Vísir - 27.07.1977, Blaðsíða 8
8
Miðvikudagur 27. júli 1977. VISIR
■55JI Hjá Sauðárkróksbœ eru
■jppS eftirtalin störf laus til
umsóknar, frá og með
1. september n.k.:
Staða HJÚKRUNARFRÆÐINGS við
gagnfræðaskóla, barnaskóla og leikskóla.
BRYTI i heimavist gagnfræðaskóla og
iðnskóla.
RÁÐSMAÐUR i heimavist gagnfræða-
skóla og iðnskóla.
HÚSVÖRÐUR Gagnfræðaskóla Sauðár-
króks.
Skriflcgar umsóknir skulu berast á bæjarskrifstofurnar
við Faxatorg fyrir 31. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar verða veittar af skrifstofustjóra og
bæjarstjóra.
Simi á Bæjarskrifstofum er (95) 5133.
Bæjarstjóri.
FERÐAVÖRUR
fjölbreytt úrval
Ymsar vörur sérstaklega ætlaöar göngufólki.
Skófatnaöur, eldunartæki, dúnsvefnpokar,
mjög létt tjöld (göngutjöld) o.fl.
ská r\
Bl'ÐMM
Rekln af
Hjálparsveit skata
Reykjavik
SNORRABRAUT 58.SÍMI 12045
HÚSBYGGJENDUR-Einanpnarplast
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæöiö frá
mánudegi-föstudags.
Afhendum vöruna á byggingar-
staö, viöskiptamönnum
aö kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verö
og greiösluskilmálar
viö flestra hæti
Borqarplamtílr
Borqqrncsl "[[~>iml 93-7370.
kvBW M helfmntml 93-7335
Datsun 220 disel árg/73 ek. 40 þ. • hvitur
M.Bens 220 disel árg. '70 - svartur
Opið frá kl. 9-7 KJÖRBÍLUNN
. ii1A, Sigtúni 3
Laugardaga kl.10-4 sím; 144n.
Guðmundur Georgsson:
ATHUGASEMD VEGNA GREINAR
SVEINS SNORRASONAR, LÖG-
FRÆÐINGS SKÚLA PÁLSSONAR
Allhörð hrið hefur verið gerð að
sjúkdómsgreiningu, sem undir-
ritaður starfsmaður Tilrauna-
stöðvar háskólans i meinafræði
aö Keldum át‘i verulegan hlut að,
þ.e. greining smitandi nýrnasjúk-
dóms (bacterial kidney disease) i
fiskeldisstöð Skúla Pálssonar i
Laxalóni. Stór orð hafa ekki verið
spöruö, m.a. er haft eftir Skúla
Pálssyni i Visi þann 12. þ.m., að
hér sé um lygi og fals að raaða. Ég
er sannfærður um aö þeir sem til
þekkja munu skilja af hverju ég
leiöi það hjá mér að elta ólar við
þau gifuryrði. Hins vegar ritar
lögfræðingur Skúla langa grein,
sem birtist i blaði yöar, þar sem
sjúkdómsgreiningin er véfengd
að þvi er virðist á faglegum
grundvelli og vitnar lög-
fræðingurinn m.a. i bók um fisk-
sjúkdóma.
Eins og fram hefur komiö var
framlag mitt ekki merkara en
svo, að það fólst einvörðugu i þvi
að staðfesta, að sjúkdóm, sem dr.
T. Hastein, erlendur fisksjúk-
dómafræðingur, hafði greint árið
áður, værienn að finna i fiskeldis-
stöðinni i Laxalóni.
Að visu virðist lögfræöingnum
það ekki fullljóst að endanleg
niöurstaöa dr. Hasteins var sú að
um smitandi nýrnasjúkdóm væri
að ræða. Til þess að íylla uppi
fremur gloppóttar tilvitnanir lög-
fræðingsins i bréfaskipti dr. Ha-
stein skal tekið fram, að þegar i
fyrsta bréfi sinu dags. 9/6 i fyrra
nefnir dr. Hastein fyrst þann
möguleika aö um langvinnan
smitsjúkdóm kunni aö vera að
ræða. 1 öðru bréfi 22/9 ’76 gerir
dr. Hastein itarlega grein fyrir
ýmsum umhverfisþáttum, sem
hafi áhrif á gang sjúkdómsins. En
eins og flestum mun kunnugt geta
ýmsir ytri þættir haft veruleg
áhrif á gang smitsjúkdóma og
nægir sennilega aö minna Is-
lendinga á sjúkdóma eins og
berklaveiki. Hins vegar má vera
að þessar bollaleggingar Ha-
steins hafi villt um fyrir lög-
fræðingnum en þvi ætti tæpast að
vera til að dreifa um siðasta bréf
dr. Hasteins frá 11/1 1977, sem
lögfræðingurinn minnist reyndar
ekki á. Þar stendur blátt áfram
að sjúkdómsgreiningin hafi veriö
smitandi nýrnasjúkdómur eöa
orðrétt: Var diagnose pa den inn-
sendte fisk ble bakteriell nyre-
syke. Eins og við byggir dr. T.
Hastein sjúkdómsgreininguna á
þvi að hann fann sérkennandi
sýkla i dæmigeröum vefja-
skemmdum. Það er misskilning-
ur hjá lögfræðingnum að dr. Ha-
stein hafi ekki mátt greina sjúk-
dóminn án þess að rækta sýkilinn.
Það er alkunna að erfitt er að
rækta hann. Til dæmis kveður
Bullock svo að orði i bók um
sýklasjúkdóma i fiskum, sem rit-
stýrt er áf Snieszko og Axelrod,
að vegna þess hve erfitt sé aö
rækta sýkilinn sem veldur smit-
andi nýrnaveiki sé sjúkdóms-
greining byggð á smásjárskoðun
á sýnum úr vefjaskemmdum.
Þess má geta að þekkt eru fleiri
dæmium smitsjúkdóma bæði hjá
mönnum og skepnum er slikt
gildir um. Það er mörg bókin.
Dr. Richards, erlendur fisk-
sjúkdómafræöingur, viö Háskól-
ann i Stirling, samstarfsmaöur
höfundar þeirrar bókar er lög-
fræðingurinn vitnar til staöfesti
siöar greiningu okkar á efnivið
sem honum var sendur og fannst
raunar myndin það dæmigerð að
hann falaðist eftir frekari sýnum
til að nota við kennslu.
Það kann aö vera álitamál
hversu marga erlenda fisksjúk-
dómafræðinga þurfi að kalla til,
svo að skjólstæðingur Sveins
Snorrasonar sætti sig við niður-
stööurnar. Eftir siðustu fregnum
virðistekkiþörfá fleirum. A.m.k.
fæég ekkilagtannan skilning i þá
staðreynd að hinir ágætu fisk-
sjúkdómafræðingar dana skyldu
allir með tölu sniðgengnir og þess
istað boðiöhingað hr. statsbiolog
Frank Bregnballe forstöðumanni
tilraunaeldisstöðvar. Það skal
tekið fram að mér var ekki kunn-
ugt um veru hr. Bregnballe hér
fyrr en ég heyrði fregnir I útvarpi
af blaöamannafundi hans. Allar
vangaveltur um það hversu ég
kynni að hafa tekið honum eru þvi
dæmdar til að vera ófrjóar.
Ég skal fúslega viðurkenna, að
ég er þakklátur Sveini Snorrasyni
og skjólstæðingi hans fyrir aö
hh'fa kurteisi minni við þeirri þol-
| raun aö taka á móti hr. Bregn-
1 balle eftir þá sérkennilegu hátt-
visi hans að draga sjúkdóms-
greiningu mina i efa opinberlega
án þess að gera tilraun til að
bregða sér yfir Vesturlandsveg-
inn til að kynna sér á hverju hun
byggðist. Þó verður framkoma
hans gagnvart mér, innfæddum
„sérfræðingi” að teljast höfðing-
, leg miðað við þá háttvisi, sem
BILAVARAHLUTIR
Nýkomnir varahlutir í
Ford Cortina '68
Ford Fairlane '66
BILAPARTASALAN
Höfðatúni 10/ simi 11397.
Opið fra kl. 9-6.30- laugardaga
kl. 9-3 og.sunnudaga kl. 1-3.