Vísir - 27.07.1977, Page 18
Miðvikudagur 27. júli 1977. .
VISIR
D
O ★ ★★ ★★★★
afleit slöpp la-la ágæt framúrskarandi
Ef mynd er talin heldur betri en stjörnur segja til um fær hún +
að auki,-
Tónabió: Veiðiferðin ★ ★
Austurbæjarbió: Valsinn ★ ★ ★ +
Haskólabió, mánudagsmynd:
Fjármálamaðurinn mikli ★ ★ ★ ★
Bæjarbió: Sautján ★ ★ 4.
Laugarásbíó: The Bingo Long ★ ★
TÓNABÍÓ
Sími31182
OLIVER REEO CANDICE BERGEN
Veiðiferðin
The Hunting Party
Spennandi og áhrifarik
mynd.
Aðalhlutverk: Oliver Reed,
Candice Bergen.
Bönnuð börnum innan 16
ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
hafnurbíó
16-444
Eiginkonur slá sér út!
Bráðskemmtileg og fjörug ný
norsk iitmynd, um eiginkonur
á ralli.
Leikstjóri: Anja Breigen
tslenskur texti.
Sýnd kl. 3-5-7-9 og 11.
ISLENSKUR TEXTl.
Valsinn
Les Valseuses
Hin fræga og afar vinsæla,
franska gamanmynd i litum,
sem sló aðsóknarmet sl. ár.
Aðalhlutverk: Gérard De-
pardieu, Patrick Dewaere.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
LAUQARáS
B I O
Sími 32075
They put ihe
^baQin
baseball.
Bráðskemmtileg ný banda-
risk kvikmynd frá Uni-
versal.
Aðaíhlutverk:
Billy Dee Williams,
James Earl Jones og
Richard Pryor.
Leikstjóri: John Badham.
ISLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 5, 7,05 9 og 11,10
Ævintýri ökukennar-
ans
Confessions of a Driv-
ing Instructor
ISLENSKUR TEXTI
Bráðskemmtileg fjörug ný
ensk gamanmynd i litum.
Leikstjóri: Norman Cohcn.
Aðalhlutverk: Robin Ask-
with, Anthony Booth, Sheila
White.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Siðustu sýningar
y
" Simi 50184
Sautján
sylfen
FARVEFI LM
efler SOYAs
drisfige dan&Jte rormn
GHITA N0RBY
OLE S0LTOFT
HASS PURISTENSEH
0LE MONTY
BODIL STEEN
LILY BROBERG
instruBtion;
ANNELISE MEINECHE
Sýnum i fyrsta sinn með is-
lenskum texta þessa vinsælu
dönsku gamanmynd, um
fyrstu ástarævintýri ungs
manns.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
Myndin, sem beðið
hefur verið eftir:
Maðurinn, sem féll til
jarðar
The man who feil to
earth
Heimsfræg mynd, frábær-
lega leikin.
Leikstjóri: Nicholas Roeg
Aðalhlutverk: David Bowie
Þessi mynd hefur hvarvetna
hlotið gifurlegar vinsældir.
Sýnd kl. 5 og 9.
' *&1-15-44
Lokað
PASSAMYNDIR
feknar i litum
tilbúnar sffrax I
bartia & flölskyldu
LJOSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
r 7
Umsjón: Arni Þórarinsson og
Guðjón Arngrímsson
G0ÐUR
LÍTILL
MILL
JÓNA-
MÆR-
INGUR
Duddy ræðir við herbergisþernuna Yvette sem leikin er af Micheline Lanctot
Háskólabió: Mánu-
dagsmyndin, Fjár-
málamaðurinn mikli
(Duddy Kravitz) kana-
disk. Árgerð 1974.
Framleiðandi John
Kemeny, leikstjóri Ted
Kotcheff. Aðalleikarar
Richard Dreyfuss,
Michele Lanctot og
Jack Warden.
Þeir sem telja sig geta keypt
hamingjuna fyrir peninga ættu
að fara í Háskólabió og sjá
Fjármálamanninn mikla. Þeir
eru nú sjálfsagt ekki margir
sem telja sig geta það. En all-
flestireru þó i og með að reyna,
enda kannski ekki nema eðli-
legt. Það hefur fylgt mannkyn-
inu.
En Fjármálamaðurinn mikli
á reyndarerinditil allra. Hún er
i stuttu máli eins og biómyndir
eiga að vera.
HUn gerist fyrir nokkrum dra-
tugum I Kanada, i gyöinga-
hverfi I Montreal. Litli milljóna
mæringurinn, Duddy, er sonur
fátæks mellukóngs og leigubil-
stjóra, sem hefur yfir að ráða
einum lélegum bil og enn verri
vændiskonu. Duddy er bara núll
og nix, nýkominn úr hernum.
Hann ræður sig i vinnu sem
þjónn, og með einstakri lagni og
dugnaði tekst honum fljótlega
að safna saman dágóðri pen-
ingafúlgu. Hann fær augastað á
fallegu landssvæði og siðan
gengur myndin einfaldlega út á
það hvernig hann fer að að eign-
ast það. Víst eignast hann land-
ið, en á leiöinni losar hann sig
við alla sina bestu vini með alls
kyns svikum og prettum og
plati. Afi hans, gyðingur af
gamla skólanum hafði sagt hon-
um aö maður án lands væri eng-
inn maður,en honum likaði ekki
aðferðir piltsins og vildi að lok-
um ekkert með hann hafa.
Yvette, sem hann kynntist i
þjónsstarfinu, yfirgaf hann lika
ogeinnig Virgil sem lengst trúði
þó á hann.
Þegar myndinni lýkur er
Duddy aftur kominn inná búll-
una, þar sem pabbi hans drekk-
ur og spilar. Hann hefur reynt
margt, er forrikur, en stendur
samt i nákvæmlega sömu spor-
um.
Þráttfyrirþetta er Duddy alls
ekki vondur maður, og ósjálf-
rátt hefur maður meðaumkun
með honum. Hann vill yfirleitt
vel, en peningagræðgin hrein-
lega eyðileggur hann.
Þessi mynd er stundum sorg-
leg, stundum sprenghlægileg og
allt þar á milli. Richard Drey-
fuss leikur Duddy og er alveg
framúrskarandi. Góður var
hann i American Graffity og
góður var hann i Jaws, en þarna
er hann ennþá betri. Og Jack
Warden, sem maöur sér yfirleitt
sem ruddalegan bófa f vestrum,
erlilca mjög góðursem pabbinn.
Myndin er unnin úr skáldsögu
Mordecai Richler meö sama
nafni. Leikstjóranum Ted Kot-
cheff hefur tekist að búa til afar
sannfærandi mynd og virkileg
ástæöa ernú til að hvetja fólk til
að sjá mánudagsmyndina. Það
er þvi miöur orðið nokkuö langt
slðan sfðast var ástæða til þess.
— GA