Tíminn - 20.11.1968, Blaðsíða 6

Tíminn - 20.11.1968, Blaðsíða 6
6 TIMINN MIÐVIKUDAGUR 20. nóvember 1968. Friðrik Steinsson: Sögufrægasti fáni, sem dreginn hefnr verið að húni á íslandi 1. desember 1951 flutti dr. theol Magnús Jónsson prófessor rætSu á samkomu Heimdallar. Ræðan birtist í Morgunblaðinu 4. s.m- Um það þegar íslenzki fán inn var dreginn á stöng á stjórn- arráðshúsinu 1. des. 1918, kemst hann svo að orði: „Og þar birtist sú sjón, sem aldrei gleymist, sjón, sem þó varð varla sjón, því að auigun- döggvuðust. Við tóna þjóðisöngs- ins og fallbyssuskot frá okkar fyrri yfirdrottnurum seig íslenzki fáninn í fyrsta skipti einn og alls ráðandi upp eftir fánastöng stjórnarráðisiiússins og staðnæmd ist við hún. Vér sýndum vort einstaka rækt arleysi, sem ég gat áður í því, að þessi fáni var ekki geymdur. Hann hefði átt að geymast eins og helgur dómur og notast a'ö eins við hátíðlegustu tækifæri. Ég veit um þetta af því að 1930 spurðumst við í alþingishátíðar nefndinnd fyrir um fullveldisfán ann frá 1. des. 1918 og ætluðum að hafa hann í heiðurssæti á Lög bergi. En hann hafði verið notað ur, honum slitið út. En dagur þessi má ekki fara sömu leiðina, það væri glæpsam legt. Hann er dýrmæt, ómetanleg eign þjóðarinjnar.“ Þjóðminjasafni berast fánar. Ummæli, er dr. Magnús við hafði um fullveldisfánann, áttu eftir að draga dilk á eftir sér. 14. des sama ár afhendir stjórn arráðíð þjóðminjaverði til vörzlu tvo fána, annan íslenzkan, óklof inn, hinn danskan klofinn, ásamt bréfi frá ráðuneytisstjóra forsæt- isráðuneytisins. Því fylgir bréf tii sama ráðuneytis frá dr. jur. Birni Þórðarsyni, dags. 7. des. 1951 (þjóðms. 15134). Bj. Þ. segir, að það geti ekki komið til mála, að orðin „en hann hafði verið notað ur, honum slitið út“ eigi við um fullveldisfánann. Svo segir orð- rétt: „Það vildi svo til, að ég varj settur og starfandi skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu frá þvíi vorið 1918 og fram á sumar 19191 í stað. Guðm. Sveinbjörnssonar, sem þá var sjúkur Framkvæmdiri stiórnarráðsins-í flaggmálinu voru, t*-/í í mínum verkahring á þess um tíma. Ef allt var með felldu, átti fáninn frá 1. des 1918 að vera geymdur heill og óslitinn í Stjórnarráðinu, eins og skjal, sem lagt er óskemmt „ad acta“ eftir notkun. Ég hringdi því Sþegar í; stað til hr. Magnúsar Stefánsson ar, dyravarðar Stjórnarráðsins, og spurði hann, hvort ekki væru geymdir gamlir fánar i Stjórnar ráðshúsinu. Hann kvað svo vera, og þar á meðal einn stór, óklof inn fáni og væri hann sá eini, er þar væri af þeirri gerð Kom svo tali okkar, að ég kæmi og skoð aði/þennan fána, og af því varð í dag. Mér blandaðist ekki hug ur um, að þessi fáni er fullveldis fáninn frá 1. des. 1918 og í sama ástandi og ég taldi hann eiga að vera. Á sama stað er einnig geymd ur klofinn Dannvbrogsfáni. Ekki er ósennilegt, að það sé sami danski fáninn og síðast var dreg inn á stön-g vfir Stjórnarráðj ís lands.“ „ÞjóSms. 15134., Islenzkur fáui, sbr. hér á und an. Óklofinn, len-gd 4 m, 53 cm. (Viðbót safnv. Smá rifur sjást hér og hvar, en litirnir eru fersk- ir og fáninn heill að öl-lu leyti. Hefur venjulegan festingarútbún að. Þetta er samkvæmt umsögn dr. j-ur. Björns Þórðarsonar full- veldisf. frá 1918). Þjóðms. 15135 s.d. Danskur fáni sbr. hér á undan, klofinn, lengd 3 m 70 cm. (Við- bót safnv. heill og litirnir fersk- ir með venjulegan útbúnað, mun hafa verið dreginn að húni á Stjórnarráðinu í síða-sta sinn 1. des. 1918). Þáttur Birgis. Það mun hafa verið á fárra vit- orði að í Þjóðminjasafninu væri geymdur óklofinn íslenzkur fáni, sem talinn væri fullveldisfáninn frá 1. d-es. 1918. Einum manni var þó örugglega kunnugt um þetta, Birgi Thorlaciusi ráðuneytisstjóra. í Andvara 1964 birtist fróðleg rit- gerð eftir hann, „Fáni íslands og skjaldarmerki." Þessi ritgerð var gefin út sérprentuð- Eftir að hafa lýst fána-hyllingunni 1. d-es. 1918 segir svo (bl-s. 48—49): „Fáni þessi er nú geymdur í Þjóðminja- safninu (Þjóðms. 15134) ásamt dönskum fána er stjórnarráðið n-otaði, (Þj-óðms, 15135. Að l|k- indum þeim síðasta sem notaðúr var þar“. Er hér sjáanlega átt við fánana tvo sem áður voru nefnd- ir. Síðar segir orðrétt^bls 49: „í bók dr. Björn-s heitins Þórðarson- notkun hans. svo og um fána hafn sögumanna, var gefinn út 12. febr- 1919 (Stjtíð. 1919, A, bls. 1).“ Svo mörg eru þau orð og skal þ'etta athugað -nán-ar síðar. Prófsveinar Stýrimannaskólans, 1918. Áð-ur en lengra er haldið skal frá því sagt, sem mátt hefði vera upphaf þessarar greinar, hvers ve-gna ég fór að kynna mér fána- málið. Sérstakle-ga það sem gerð ist í því máli á tímabilinu frá 1913 til 1918, og þar af leiðandi að athuga sannl-eiksgildi framan- greindra frásagna um að óklof- inn fán-i hafi verið dreginn á stöng á stjórnarráðshúsinu 1. des. 1918 og hylltur sem fullveldisfáni fsl-ands. Nemendu-r Stýrimannaskólans frá 1918 höfðu haft þann hátt á að hittast á 5 ára fresti eftir því sem við varð komið. Snæbjörn Jónsson Breiðfirðin-gur, sem nú er látinn fyrir nokkru-m árum. hafði aðaljega forgönigu um þetta. Snæ- björn hafði síðar gerzt húsgagna- smiður, vann í land-i og átti því hægara um vi-k að beita sér fyrir í Reykjavík og hættir sjóferðum Á síðastliðnu hau-sti spjölluðum við um það að skemmtilegt væri að mæta við skólaslit Stýrimanna- s-kólans í tileifni af 50 ára próf- afmæli okkar. Þar sem það mun vera talin góð kurteisi að færa skólastofnun við slík tækifæri eit-t hvað, sem verða má til gagn-s eða gleði, — þá hófust um það vanga veltur hvers konar gjöf við gæt- um fært Stýrimannaskólanum í þessu tilefni. Hinn sögufrægi dagur 1- des. 1918 var ofarlega í huga o-kkar í þessu Sambandi. ’Mig minnti að e'nhvers staðar hefði ég séð ljós- mynd frá athöfninni við stjórnar- ráðshúsið d-ag þann er íslenzki ríkisfáninn var dreginn á stöng í fyrsta sinn. Þótti okkur nú við eiga í framhaldi af því. sem við höfðum áður gert að færa skól- anum stækkaða ljósmynd frá þess um atburði ef myndin væri til. Eftir skamma leit kom í ljós að til var í minjasafni Reykjavíkur ljósmynd frá atihöfninni við stjórnarráðshúsið. Á myndinni var merki Ijósmyndarans M.Ó. saman- dregið og mun það vera Magiiús Ólafsson ljósmyndari. Málað hafði verið ofan í ljósmyndina, sem sýndi klofinn íslenzkan fána við á flaggs-töng stjórnarráðshúss Neðan við myndina stendur: Rflcisfánj fslands hylltur í Reykja- vík 1. desember 1918. Reynt var að hafa upp á sjálfri filmunni til að láta gera stækk- ar, forsætisráðherra, „Alþingi og frelsisbaráttan 1874—1944,“ segir á bls. 376. að það hafi verið klofni fáninn, sem dreginn var í fyrsta sinn á stöng yfir dyrum stjórn- arráðshússins 1. des. 1918. Þetta er ekki rétt. Gerð tjúgufánans, klofna fánans, var ekki ákveðin fyrr en i febrúar árið eftir. Hafði dr. Björn sjálfur le’'ðrétt þetta í bréfi til forsætisráðuneytisins 7. des. 1951 og áréttað í símtali við undirritaðan 14- febrúar 1952. Sjálfsagt hefur þessa misskUn- ings gætt víðar, því að í íslands- sögu, sem Ríkisútgáfa námsbóka hefur gefið út eftir Þorstein M. Jónsson ,2. útg., 1963. er á bls. 49 teikning af stjórnarráðshús- inu 1. des. 1918 með klofinn fána við hún Konusgsúrskurður um lögun hins klofna fána (tjúgufánans) og þessu en flestir aðrir. Hann var félagsmaður góður og áhugamað- ur um ýmislegt, sem ekki kom við hinu venjulega brauðstriti og verðu-r ekkj í krónum metið. Vegna þessa sambands, sem þess- ir mpnn leituðust við að hafa sín á nulfi, bar eðlilega margt á góma frá fyrri tíð. Allir vorum við á einu máli um það að 1. des. 1918 væri mesti merkisdagur þessa árs. Þann dag eignuðust íslend- ingar sinn eigin farfána er ís- lenzk skip máttu nota utan land- helgi og í erlendum höfnum. í tilefni af þessu færðum við Stýri mannaskólanum árið 1958 silki- fána ,en þá voru 30 ár liðin frá þessum merkisatburði í sögu ís- lenzkra siglinga. Þeir, sem ennþá eru á lífi af prófsveinum Stýrimannaskólans frá 1918 eru nú flestir búsettir aða ljósmynd, en «það tókst ekki. Filman mun þó vera til. Niður- staðan í málinu varð því sú, að við fengum Halldór Pétursson listmálara til að gera málverk með hliðsjón af myndinni, sem er í minjasafni Reykjavikur. Vegna þessarar ákvörðunar okkar og einnig vegna þess að ég vissi að mér vrði falið að hafa orð fyrir hópnum við afhendingu myndarinnar þá tók ég að kynna mér sögu íslenzka fánans eftir föngum. Er það merkileg saga og skemmtileg og þess virði að hún væri skráð. Eins og þeir vita, sem kynnt sér hafa þessi mál voru öll fyrirmæli u-m fánann gerð hans og uotkun sett með kbnungsúr- skurðum: 1- Konungsúrskurður er settur 22. nóv. 1913 um sérstakan fána fyrir ísland — gerðin skyldj á- 'kveðin síðar. (Stjtíð. A. nr. 68). 2. 19 júní 1915 um gerð fán- ans (Stjííð. A. nr 14) 3. 30. nóv. 1918 um gerð fána íslands (Stjtíð. A. nr- 41) Gerð- in er nákvæmlega sú sama og á- kveðið var í konungsúrskurði frá 1915, en viðbót: „Stjórnin og op- inberar stofnanir skulu nota fán- ann klofinn að framan Nánari ákvæði um notkun klofna fánans verða sett með sérstökum ko- ungsúrsfcurði." 4. Þessi boðaði konungsúrskurð ur kemur svo 12. feb. 1919 og heitir: „Konungsúrskurður um lögun hins klofna fána og notk- un hans, svo og um fána hafn- sögumanna." (Stjtíð A. nr. 1). Það er eftirtektarvert. að í nið urlagi konungsúrskurðarins 30. nóv. 1918 þar sem boðaður er sér- stakur konungsúrskurður, þá er aðeins talað um nánari ákvæði um notkun klofna fánans, ekki minnzt frekar á gerð hans. Eðli- legt hefði því verið að álykta að gerð klofna fánans hefði þá þegar verið róðin, en svo er reyndin ekki, eins og síðar kom ’í ljós. Almennt var talið að það hefði verið klofinn fáni, sem dreginn var á stöng 1. des. 1918, og svo er einnig kennt í skólum saman- ber íslandssögu Þ-M. Enda fæ ég ekki betur séð samkvæmt niður- lagi konungsúrskurðar 30. nóv. 1918, að það sé ekki aðeins heim- ilt heldur skylt að draga klofinn fána á flaggstöng stjórnarráðshúss ins 1. des. 1918 enda þótt nán- ari fyrirmæli um gerð klofna fán- ans væru ekki fyrir hendi. Frásögn Birgis, sem áður get- ur um að það hafi verið óklofinn fáni, kbm eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Vegna þess, er að framan segir um málverkið sem við færðum Stýrimannaskólanum, tók ég mér fyrir hendur að rann- saka samtíma frásagnir um at- burð þennan. Var bað tiltölulega auðvelt með aðstoð góðra manna. Niðurstaðan varð sú að bókstaf- lega hver einasta frásögn frá þess um tíma sem ég hef komizt í kynni við og getur um gerð fán- an^, sem dreginn var á stöng á stjórnarráðshúsinu þennan dag, getur um klofinn fána, tjúgufána, og ríkisfána íslands. Þegar rætt var um oklofna fán- ann voru fánaheitiu nokkuð á reifci, en þau er ég áður taldi voru aðeins höfð um klofna — tjúgufánann — að því er ég bezt veit. Rflúsfáni íslands er fyrst notað um klofna fullveldisfánann 1. des. 1918. Þessu til sönnunar skuilu nefnd nokkur dæmi: í ræðu forseta sameinaðs þings sem haldin var við stjórnarráðs- húsið fáum mínútum eftir að fán- inn var dreginn að hún: „Oss er bæði ljúft og S'kylt að minnast sambandsríki vors Danmerkur við betta mjög svo hátíðlega tækifærj þegar íslenzkur ríkisfám er fyrsta sinn, dreginn að 'nún á þessu landi og tuliveldi íslands viðurkennt í öllum þess mál- um,“ sbr. Ægi desember 1918 og víðar. Þá skal bent á nokkur blaða- ummæli frá desember 1918 1. Morgunbiaðið 2 des Þar er allítarleg frásögn af atburði bess- um Tvívepis i bei-n grein er pess getið að klofinn íslenzkur fáni hafj verið dreginn á stöng.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.