Tíminn - 20.11.1968, Blaðsíða 13

Tíminn - 20.11.1968, Blaðsíða 13
MIÐVTKUDAGUR 20. nóvember 1968. ÍÞRÓTTIR TIMINN 13 30. íslandsmótið í handknattleik hefst í kvöld: Stóraukin þátt- taka af Norðurlandi ÍR - Valur og Fram - FH í Laugardalshöllinni í kvöld. Alf—Reykjavík. — Islandsmeistara mótið í handknattleik, hið 30. í röðinni, hefst í Laugardalshöllinni í kvöld með tveimur leikjum í 1. deild. I fyrri leiknum mætast Valur og nýliðar ÍR, en í síðari leiknum mætast FH og fslands- meistarar Fram. Hefst fyrri leik urinn klukkan 20.15. Þátttaka í íslandsméti í hand knattleik hefur aldrei verið eins mikil og nú, en alls tilkynntu 19 félög og sambönd þáttöku og senda samtals 72 lið til keppni. Það, sem vefcur sérstaka athygli við þetta íslandsmót, er mikil þátt taka liða frá Norðurlandi. Taka lið frá Akureyri, Húsavík, Ólafs firði og Dalvík þátt í mótinu og senda lið til keppni í flestum flokk um. Verður sá háttur hafður á, a.m.k. um yngri aldursflokkana, að flokkarnir að norðan keppa inn- byrðis og leika síðan til úrslita við lið að sunnan. Er jafnvel búizt við enn meiri þátttöku norðanliða, því að til tals hefur komið. að Sauð árkrókur og Siglufjörður taki þátt í mótinu. Eins og fyrr segir, hefst keppn in í kvöld með tveimur leikjum í 1. deild, en aðeins verður keppt í 1. og 2. deild fyrir áramót. Keppni yngri flokkanna hefst svo fljótlega eftir áramót og fer keppn LÆKNISAÐSTOÐ I LAUGARDALSHÖLL Alf-Rieykjiaivík. — Læknir verður til tia'ks í Laugardals- hölliimi í vetur, ef slys ber að höndum í handknattleikskeppni Meiðisli í handknattleik eru orð in svo tíð, að það er beinlínis bnáðnaU'ðisynlegt að hafa lækni til tate. Til marks um það má geta þess, að þe-gar liandsleikirn ir v við Vestur-Þjóðverj'a fóru fram, hafði HSÍ útvegað læk^ii, og kom það sér vel, þegar Ing- ólfur Óskarss-on slasaðist á hendi. Blæddi inn á lið á fingri, en . vegna . ákjótrar læknishj'álpar tókst að hindra frekari blæðingu í tíma. St. Mirren heldur sig urgöngu sinni áfram — sigraði Rangers á laugardaginn 1 : 0. St. Mirren sýndi það og sannaði á laugardaginn, að sigurganga fél- agsins í 1. deildinni á Skotlandi er engin tilviljun, því að á laugar- daginn sigraði St. Mirren Glasgow Rangers með 1:0. Enn er því St. Mirren eina félagið á Bretlands- »vjum, sem er ósigrað á þessu keppnistímabili. Celtic, sem hefur forystu í 1. deildinni á Skotlandi, sigraði á laugardaginn Raith Rov- vers með 2:0. Á sáðunni í gær -birtum við úr- sliltin í 1. deild á \Englandi s.L Iaugardag, en hér kioma úrslitin í 2. dieild: Birmángham — Blaekpool 1:0 Bury — Sheff. Utd. 0:2 Cardiff — Derby 1:1 Carlisle — Fulham 2:0 Charlton — Hull 1:1 C. Palace — Blaekburn 1:0 Huddersf. — Millwall 0:2 Middlesbro — Bolton 0:0 Norwieh — Oxifiord 1:1 Fortsmioutlh — A. ViMa 2:0 Preiston — Bristol C. 1:2 í 2. dieild hefur Millwall nú for- ystu, befur hlotið 26 stig. in hér sunnanlands að mestu fram í Laugardalshöllinni að öllum lík indum. Fyrstu leikirnir í 2. deild fara fram n. k. sunnudag í Laugar dalshö'llinni. Þá mætast Keflavík og Þróttur og síðan Víkimgur og Ármann. StraX/ á eftir leika^ í 1. deild Haukar og KR og loks ÍR og Fram. Fyrst um sinn fara allir leikir fram á sunnudögum og miðvikudögum. Segja má, að mótið hefjist strax með spennandj leikjum. ÍR, nýlið arnir og Valur, Reykjavíkurmeistar arnir, mætast í fyrsta leik, en strax á eftir mætast Fram og FH, sem löngum hafa eldað grátt silf ur. Litlar líkur eru á því. að Ing ólfur Óskarsson, fyrirliði Fram geti leikið með liði sínu í kvöld og ætti það að auka sigurmögu leika Hafnfirðinga. Annars má minna á það, að FH gekk ekki of vel með Fram nýlega, þegar hvorki Ingólfur né Gunnlaugur Hjálmars- son gátu leikið með. FH hefur einn ig átt við meiðsli að stríða. Jón Gestur Viggósson og Örn Hallsteins son hafa verið^á sjúkralista. Jón leikur ekki með í kvöld, en hins vegar er afráðið, að Örn leiki mefl og verður það mikill styrkur fyr ir FH. \ Eins og fyrr segir, hefst fyrri leikurinn í kvöld kl. 20.15, en síð ari leikurinn strax á eftir. Dómar ar í fyrri leiknum verða þeir Óli P. Ólsen og Magnús V. Pétursson, en síðari leikinn dæma Björn Kristjánsson og Karl Jóhannsson. ÖRN HALLSTEINSSON - leikur með FH í kvöld. MIKIL OVISSfl RIKJANDIUM FORMANNS „KANDiDATA” Mikil óvissa er nú ríkjandi um þag, hver verði næsti for maður Knattspyrnusambands ís lands, en nýr formaður verður kjörinn á ársþingi sambandsins, sem háð verður um næstu helgi. Margir hafa hvatt Albert Guð- mundsson til að gefa kost á sér í formannsstöðu, en vegna anna , við fyrirtæki sín, hefur Albert verið hálfragur við na aefa já- yrði sitt. en vitað er, að sterk lireyfing er um land allt til stuðnings við hann. En það verður ekki fyrr en á sjálfu ársþinginu, sem fæst skorið úr því, hvort Albert verður í framboði. Á þessu . aadawir KIHMtlSiSHISSÉMNi stigi málsins er ekki vitað um aðra „kandidata“, nema Ingv- ar N. Pálsson, núverandi vara formann KSÍ. Enn fremur hef ur heyrzt, að Jón Ásgeirsson, einn af stjórnarmönnum HSÍ. verði í framboði, en fremur verður þó að telja það ólíklegt. — alf. Þeir svara TÍMA- spurningu fer hjá Fram og FH í kvöld? Alf-Reykjavík. — Keppnin i 1. deild í handknattlieik hefst í kvöld í Laugardalsihöllinni. Og strax fyrsta keppniskvöldið mæt ast þau tvö lið sem oftast hafa barizt um íslandsmeistaratitil inn undanfarin 8 ár, núverandi íslandsmeistarar, Fram og FH. Hvernig fer hjá Fram og FH í kivöld? Þessa spurningu höf- uim við lagt fyrir nokkra áhuga menn u:m handknattleik og fara svör þeirra hér á eftir: Rúnar Bjarnason, slökkviliðs stjóri, varaformaður HSÍ: „Ég er líti'll spámaður, en þó ' vil ég ekki skorast undan því að svara spurningunini. Ég tel engan vafa á að um jafna og tvísýna baráttu verður að ræðia eins og fyrri daginn. Þess vegna spái ég jafn-tefli, 18:18“ Hallsteinn Hinriksson, fyrrum þjálfari FH: „Það er erfitt að svara þessari spurningu. Liðin hafa verið svo áþekk í haust. Satt að segja treysti ég mér ekki til að nefna neinar tölur, en spái því aðeins, að um jafn an og fjörugan leik verði að ræða.“ Hlöðver Rafnsson, ungur og áhugasamur Fi'amari: „Fram vinnur leikinn, jafnvel þótt Ing ólf Óskarsson vanti. Fram-liðið er jafnara og betra. Það hefur komið í ljós í fslandsmótinu s- 1. 2 ár. Engu að síöur býst ég við jöfnum og spennandi leik og ef ég ætti að nefna einhverj ar tölur, þá segi ég 19:17 Fram í vil.“ Kristján Bernburg, prentnemi „Ég sá FH og Fram leika í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi fyrir skemmstu. Þá sigraði FH með eins marks mun, en var heppið að sigra að mínu áliti. Ég leyfi mér að efast um, að heppnin fylgi FH aftur í kvöld. Þess vegna spái ég Fram sigri, 18:16.“ Sigurður Jónsson, fyrrum f°r maður landsliðsnefndar: ,,Mér skilst, að óvíst sé. hvort Ingólf ur Óskarsson geti leikið. Það vantar mikið _ í Fram-liðið, ef hann vantar- Ég spái þess vegna sigri FH, 17:15.“ Svo mörg voru þau orð. Þess má geta, að sala að- göngumiða að leikkvöld- inu í kvöld hefst kl. 6 í Laugardalshöllinni. Fólki er ráðlagt að tryggja sér miða í tíma og forðast bið- raðir, en á það má minna, að síðast þegar Fram og FH léku í íslandsmóti var uppselt. Rúnar Bjarnason Hallsteinn Hinriksson Hlöðver Rafnsson Kristján Bernburg Sigurður Jóusson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.