Tíminn - 27.11.1968, Síða 16

Tíminn - 27.11.1968, Síða 16
ATTU FAA METRA EFTIR UPP í KLETTA ÁJ-Rifi, þriðjudag. Litlu muna'ði að vélbáturinn Andey ræki upp í fjöru er vél arbilun varð í bátnum í gær, en Andey er 14 lestir. Vélin í bátnum bilaði þegar verið var að berja til hafnar í vondu veðri og munaði örlitlu að bát- urinn væri kominn upp í fjöru þegar Skarðsvíkin, sem er 174 lestir renndi upp að Andey, svo nærri að hægt var að kasta línu milli skipanna. Tókst að ná Andey út á rúmsjó og draga til Rifshafnar. í gær réru flestir bátar frá Rifi í sæmilegu veðri. Þegar leið á daginn brældi upp og héldu bátarnir þá til hafnar. Andey lagði líuna sunnan við Öndverðarnes. Um kl. 16 lagði báturinn af stað til lands. Skipstjórinn, Sverrir Krist jánsson, á^etlaði að vera kom inn til hafnar um kl. 19. Leið nú og beið og kl. 20 um kvöldið tilkynnti báturinn vélarbilun. Landssynningur var á og rak bátinn í átt að landi. Hann rak aðeins nokkra metra frá Brim nesi og síðan meðfram land- inu og mátti engan tíma missa til að bjarga bátnum. Skarðsvík SH-205 lagði úr Rifshöfn og elti Andey yfir Skarðsvíkina sem báturinn er nefndur eftir og var Andey komin vestast í víkina og átti aðeins örfáa metra eftir í fjör una, en bátinn rak hratt í ó- veðrinu, er Skarðsvíkin, þ. e. a. s. skipið, sveigði að og tókst skipverjum að kasta línu yfir í bátinn og draga hann út. Var nú haldið á móti veðrinu til Rifs'- hafnar og tók langan tíma að draga bátinn þangað. Skipstjóri á Skarðsvík er Sigurður Krist jónsson. Sprengisandsleið nú opnuð úr Skagafirði IÍJ-Reykjavík, þriðjudag. Austur við Jökulsá á Sólhcima- sandi er nú hópur Skagfirðinga að KRISTJAN KARLSSON ERINDREKI LÁTÍNN FB-Reykjavík, þriðjudag. Kristján Karlsson erindreki Stéttarsambands bænda varð bráð kvaddur í Reykjavík í dag. Kristj án var fæddur 27. maí 1908 að Landamóti í Ljósavatnshreppi í I Framhald á Dls 14 v v Sæluhúsið í Hvítárnesi. Þyrla leltar manna á Hrunamannaafrétti. Fin/IM TÖFÐUST I AFTAKAVEÐRI KJ-Reykjavík, þriðjudag Af tuttugu smalamönnum úr Hrunamannahreppi, sem fóru inn á afrétt á sunnudaginn, komu fimm ekki til byggða á tilsettum tíma, Var hafin jeit að þeim í morgun, og fundust þeir heilir á húfi. Höfðu þeir tafizt vegna aftaka veðurs, sem gerði á afréttinum, og leituðu skjóls í sæluhúsinu í Hvítárnesi. Þyrlan Eir var send af stað til leitar og fann mennina við Grjótá, en á heimleiðinni kom fram smávægileg bilun í þyrlunni og var þyrla Andra Heiðberg send með varastykki og viðgerðarmann. setja þrjá hluta úr gömlu brúnni á bíla, og er ætlunin að brúa Austari-Jökulsá við Austurbug hjá hinum gamla Eyfirðingavegi með þessum brúarhlutum úr gömlu brúnnni á Jökulsá á Sólheimasandi, og opnast þá leiðin úr Skagafirði og á Sprengisandsleið. Gamla brúin á Jökulsá á Sól- heimasandi var byggð á árunum 1920—22, ea var leyst af hólmi í fyrra af nýrri brú. Þrátt fyrir að gamla brúin hafi orðið fyrir nokkr um áföllum í vatnavöxtum á síð ari árum, eru góðir hlutar enn í henni, og hefur töluvert verið sózt eftir að fá hluta úr henni til að brúa vatnsföll á afréttum í nágrenni Jökulsár á Sólheima- sandi og þar fyrir ajustan, en þeir hluta hennar sem lengst munu fara, verða settir á Austari-Jök ulsá, og eru það áhugasamir Skag firðingar sem að þeirri brúarbygg ingu standa. Ingólfur Nikodemus- son trésmiður á Sauðárkróki er I forystumaður þeirra Skagfirðinga, ■ og er hann ásamt öðrum fyrir austan að koma brúarhlutunum á bílana þrjá. Eru tveir hlutanna 6.70 á lengd en einn 8.70. svo alls mun nýja brúin verða rúmir tuttugu metrar á lengd. Þeir fé lagar sögðu fréttaritara Tímans í S-kógum í dag, að beir hefðu mætt miklum velvilja hjá Vega málastjórninni í sambandi við brú argerðina. Þeir biuggust við að geta lagt upp i fyrsta áfanga ferð arinnar einhvern tíma á morgun, en varla komast nema á Selfoss annað kvöld. Austari-Jökulsá hefur löngum verið mikill farartálmi fyriv þá sem lagt hafa leið ‘•ína inn á há- Framhald á bls. 14 Tíminn hafði í dag tal af Guðbergi Guðnasyni bónda á Jaðri í Hrunamannahreppi, en hann var einn fimmmenninganna sem seinkaði til byggða. — Við fórum um tuttugu tals ins saman inn í Árskarð í Kerl ingafjöllum á sunnudaginn, og vorum við á þrem jeppum. Færðin var allsæmijeg inneftir, en um miðjan dag 'á mánudag gerði mikla snjókomu. sem tafði okkur, sem vorum á ein- um bílnum, en þeir sem voru á hinum bílunum tveim komú til byggða í gærkveldi. Við kom- umst við illan leik í Hvítárnes- skálann, þurftum að ganga á undan bílnum, og moka. Við vorum svo í skálanum í nótt, og lögðum af stað snemma í morgun, og vorum komnir yf ir Bláfellshálsinn og að Grjótá þegar þyrlan fann okkur. Við fundum tvö lömb þarna á af- réttinum, og komum með þau til byggða í dag Það er þó nokkur snjór efst á afréttinum, en frekar lítill þegar neðar dregur. Gunnar Ólafsson skipherra og Björn Jónsson flugstjóri voru í þyrlunni. sem fann mennina. Gunnar sagði Tímanum í dag, að þeir hefðu byrjað að leita fyrir ofan Gullfoss, og fylgt veg inum, Um ellefu leytið fundu þeir mennina fimm á bflnum, og voru þeir þá við Grjótá. Það var ekkert sérstakt að hjá þeim, nema hvað peir voru kannski orðnir olíulitlir, og svo höfðu þeir auðvitað orðið fyrir óvæntum töfum. Gunnar sagði, að það hefði verið hvasst í morg un á þessum slóðum, en ferð þyrlunnar hefði gengið ágæt- léga þrátt fyrir rokið. Fréttaritari blaðsins í Hruna mannahreppi sagði í dag, að bflar hefðu verið sendir í gær kveldi tfl að grennslast fyrir um fimmmenningana, en þeir urðu að snúa við á Bláfellshálá vegna ófærðar og veðurs. Það var þyrlan Eir sem fann mennina við Grjótá, eins og að framan greinir og lenti hún hjá þeim, en þegar hún var að hefja sig til flugs aftur kom í ljós smávægileg bilun, en þyrlan gat auðveldlega haldið áfram ferð sinni, og lenti á hlað inu hjá Jaðri í Hrunamanna- hreppi, en þangað kom svo þyrla Andra Heiðberg með varahlut og viðgerðarmann, og komu þyrlurnar síðan báðar til Reykjavíkur um miðjan dag. Talstöð í jeppanum, sem seinkaði hefði komið að góðum notum þarna. og þyrftu fleiri en siwrtmenn i Reykjavík að hafa talstöðvar i jeppum sín- um þegar ferðast ér um óbyggð ir að vetrarlagi, og allra veðra er von. Jökulsárbrúin, sem flutt verður.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.