Vísir


Vísir - 16.08.1977, Qupperneq 1

Vísir - 16.08.1977, Qupperneq 1
Ungur maður réð unnustu sinni bana í nágrenni Reykjavíkur: ENN ÓVÍST HVORT MORÐ- IÐVAR FRAMIÐ f BÍLNUM Ungur maður skaut unn- ustu sína til bana síðdegis í gær i námunda við Reykjavík og gerði siðan tilraun til að svipta sjálfan sig lífi, en sú tilraun mis- tókst. Hann fannst særður í bíl sínum í grennd við STÆRSTA HEIMILI LANDSINS SJÁ BLS. 2 Skák á torgi Guðmundur Sigur- jónsson, stórmeistari i skák. var einn þátt- takenda i skákmótinu á Lækjartorgi. Hér sést hann rabba við Jóhann örn Sigur- jónsson áður en slag- urinn byrjaði. — Sjá bls. 3. Killinn laiinst á afleggjara i'rá Hauðliólum að Suðurlandsvegi og sneri Irá Hauðhólasvæðinu. Visismynd l,.A. Rauðhóla og unnusta hans látin við hlið hans. Hún hafði verið skotin nokkrum riffilskotum og hafði hann auk þess skotið sjálfan sig í brjóstið vinstra megin og gert tilraun til að skera á slagæð. Maðurinn liggur nú á gjörgæsludeild Borg- arspítalans, en er ekki í lifshættu. Það var rétt um klukkan 17.30 að maður kom á lögreglustöðina i Arbæjarhverfi og tilkynnti að eitthvað væri athugavert við bil er stæði á afleggjara frá Suður- landsvegi að Rauðhólum. Tveir lögreglumenn fóru þegar á vett- vang og kölluðu siðan á sjúkralið. Bíllinn stóð á vinstra vegar- helmingi á afleggjaranum og sneri i átt frá Rauðhólum. Fólk er átti leið þarna hjá i bil hafði numið staðar og farið að athuga hvort eitthvað væri að og siðan var komið boðum til lögreglu. Maðurinn sat þá undir stýri bilsins nokkuð særður og stúlkan við hliö hans i framsæti og var hún látin. Maðurinn sagöi ekkert i fyrstu frá þvi að hann hefði skotið stúlkuna, en nokkru siðar skýrði hann lögreglunni frá þvi að hann hefði skotið hana með riffli og siðan hleypt af skoti á sjálfan sig. Það skot hafnaði neðarlega i kviðarholi hans vinstra megin og fór kúlan út um bakið. 1 bilnum fannst rússneskur riffill, 22 caliber. Rannsóknarlögregla rikisins hóf þegar i stað rannsókn málsins undir stjórn Þóris Oddssonar aðalfulltrúa. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Visir fékk i gærkvöldi hjá Þóri og Erni Höskuldssyni deildarstjóra, er maðurinn fæddur 1955 og stúlkan sömuleiðis. Þau munu hafa verið heitbundin og búið i Reykjavik, en maðurinn hefur dvalist er- lendis að undanförnu og kom heim fyrir fáum dögum. Billinn er af gerðinni Peugeot 204 og er með erlendu númeri. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Visir hefur aflað sér voru all- ar rúður bilsins heilar en einn brestur i framrúðu vinstra megin. Er með öilu óvist að verknaðurinn hafi verið framinn á þeim stað sem billinn fannst á og ekki er vitað hve löngu áður en fólk kom að. Ekki er vitað um ástæður fyrir þessum hörmulega atburði. Rannsóknarlögregla rikisins hafði laust fyrir hádegi enn ekki náð til allra nákominna aðstand- enda stúlkunnar sem skotin var til bana i gærdag, né heldur til allra ættingja piltsins er verknað- inn framdi. Var þvi óskað eftir þvi að nöfn þeirra yrðu ekki birt að svo stöddu. Fjölmennt lið rannsóknarlög- reglumanna hefur unnið við mál- ið án hvildar frá þvi i yær og miðar rannsókninni allvel — SG Byrjað að endur- byggia strax í dag llelgi Eysteinsson, l'orstjóri Geysis skoðar brunarústir skrifstofu verslunarinnar við Aðalstræti i morgun. Aðalskrif- stolan er inest brunnin á ann- arri hæð bússins, og þar varð sprengingin sem lyfti þaki húss- ins frá. Starfsfólk Geysis beið eltir tryggingamatsmönnum i morgun, og eftir heimsókn þeirra átti að taka til óspilltra málanna við að byggja upp aft- ur. ,,Við reynum að koma versl- uninni i gang aftur sem fyrst," sagði Helgi. Skeifan á innfelldu myndinni liékk yfir dýrum annars skrif- stofuherbergis i búsinu. Þar brann ekki neitt, en skemmdir urðu af vatni. ÓH/Vísismynd:ÓH Hvemig vœrí að bregða sér Ifl Stykkishólms? Sjó ferðakynningu Vísis ,,Á FARALDSFÆTI" á bls. 8 og 9 B——' Mœlti ekki leggja þunga- skatt á fólk eins og bíla? Páll Bergþórsson kemur víða við i veðurbók vikunnar á bls. 10-11

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.