Vísir - 09.09.1977, Blaðsíða 1

Vísir - 09.09.1977, Blaðsíða 1
Afleiðingar umbrotanna nyrðra að koma í Ijós: MEII 11 Sl KEMMDIR Á K M IÐJUNNI EN U IRÐ U í APRÍL Frá Sæmundi Guðvins- syni, fréttamanni Vísis í Mývatnssveit í morgun: ,,Okkur hefur enn ekki gef ist tími til að átta okkur á skemmdunum, en það er Ijóst að þær eru miklar og mun meiri en þær skemmdir sem urðu í hræringunum í vor," sagði Þorsteinn ólafsson, fram- kvæmdastjóri Kisiliðjunn- ar, í samtali við blaða- mann Vísis í Mývatnssveit í morgun. Skrifstofuhús Kisiliðjunnar er mjög sprungið á mörgum stöðum og töldu starfsmenn þar i morgun að húsið væri ónýtt. 1 morgun var simasambandslaust við verk- smiðjuna, en viðgerðarmenn voru að hefja störf. Svæðið umhverfis verksmiðj- una er ailt þakið sprungum og ein hráefnisþróin er mikið skemmd. Það litla sem var i henni af efni rann burt. Hitaveituleiðslan fór úr sam- bandi og eru flest hús í Reykja- hliðarhverfi vatnsiaus. Það sama er að segja um Kisiliðjuna og er talin hætta á að vélar verksmiðj- unnar verði fyrir skemmdum ef vatn kemst ekki fljótlega á, en i morgun var um 6 stiga frost á þessum slóðum. — SJ/SG Land við Kröflu seig um hálfm metra í nótt Hraungosið sem kom upp um kl. 18 i gærdag byrjaði að fjara út um klukkan ellefu. Jarð- skjálftum hefur fækkað taisvert siðan og fundust þeir aðeins fáir i morgun. Þó mæidist styrkleiki þeirra vera allt að þremur stig- um á Richterskvarða. Komu skjálftar fram i mælum veður- stofunnar i Reykjavik. Siðustu tölur um landsig á Kröflusvæðinu komu um tvö- leytið i nótt og hafði landið þá sigið um 45 cm af þeim 80 sem risið var orðið siðan i april. Aö sögn Hjartar Tryggvasonar á jarðskjálftavaktinni var sig stöövarhússins þá um 12 mm. Jarðskjálftamir i gær og nótt voru mun þéttari en þeir voru i siðustu hræringum. Hófust þeir um kl. 4 siðdegis i gær, noröur við Leirhnjúk og færðust suður i Bjarnarflag. Almannavarnakerfið var sett i gang um kl. hálf 5 i gær. Sýslumaðurinn og héraðslækn- irinn tóku siðar um kvöldiö upp aðsetur i stjórnstöð Almanna- varna og 9 lögregluþjónar voru á vakt á svæðinu. Þegar siðast fréttist i morgun hafði hættuá- standi ekki verið aflýst Viðgerð á veginum yfir Námaskarð lauk um kl. hálf 5 i morgun —SJ/SG Þannig var umhorfs við Kísiliðjuna í morgun liér fyrir ofan er fyrsta myndin sem birt er i fjölmiölum af skemmdunum við Kisiliöjuna af völdum umbrotanna i Bjarnar- flagi. Myndina tók Jens Alexandersson, ljósmyndari VIsis, f morgun og var flogiö til Reykjavikur fyrir hádegiö meö filmur hans og hinna Ijósmyndaranna tveggja, sem tekiö hafa myndir fyrir Visi nyrðra I nótt og morgun. Frásögn og myndir af gosinu við Leirhnúk á bls. 2 Margar stórar sprungur Vegurinn yfir Námaskarö er margsprunginn eftir umbrotin og varö að hafa löggæslu viö stærstu sprunguna i nótt til aö koma i veg fyrir aö fólk færi þar um. Þessa mynd tók Jens Alex- andersson viö sprunguna laust eftir miönætti i nótt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.