Vísir - 09.09.1977, Síða 4
“ -» 9
c
Föstudagur 9. september 1977
VÍSIR
í kosningasjómann?
Odvar Nordli, forsdetisráðherra Noregs, og Kare
Willoch, formaður Hægri-flokksins, gerðu sér litið
fyrir um daginn og brugðu sér i sjómann i Ibsens-
húsinu i Skien. Eins og sjá má á myndunum bar
Nordli sigur úr býtum. En nú er eftir að sjá hvernig
kosningarnar á mánudaginn fara.
Átök milli lögreglu og
S-Mólúkka í Hollandi
— réttarhöldum yfir ótta S-Mólúkkum lýkur í dag
Lögreglan i Assen í Hol-
landi skiptist á skotum við
hóp Suður-Mólúkka/ sem
söfnuðust saman fyrir ut-
an dómshúsið þar í gær til
að mótmæla réttarhöldum
yfir Suður-Mólúkkunum,
sem tóku gísla í lest og
barnaskóla i Hollandi fyrir
Fjörutíu dóu í
jórnbrautarslysi
Mikiö járnbrautarslys varö
náiægt borginni Assiut i
Egyptalandi I gær.
Rúmlega fjörutiu manns
létu lifiö og 150 særðust i slys-
inu. Dagblaöið Al-ahram i
Egyptalandi greinir frá þvi aö
nokkrir erlendir feröamenn
hafi veriö meðal farþega, en
ekki var vitaö af hvaöa þjóö-
erni þeir eru.
þremur mánuðum. Ein
Suður-Mólúkkakona særð-
ist í viðskiptum við lög-
regluna og nokkrir voru
handteknir.
Suður-mólúkkarnir átta, sem
nú eru fyrir rétti, héldu á annað
hundraö gislum i nitján daga, en
þá réðust hermenn að lestinni og
skólanum og frelsuðu gislana.
Mikill órói hefur fylgt réttarhöld-
unum og i fyrrakvöld gerðu ungir
Mólúkkar uppþot fyrir utan
dómshúsiö. Einn lögreglumaður
varö fyrir skoti, og kveikt var i
tveimur barnaheimilum og miö-
stöð Rauöakrossins i Assen.
Vegna ótta um að aftur kæmi til
átaka i gær var öryggisviðbúnaö-
ur stóraukinn. Lögreglumönnum
á svæðinu var fjölgaö, brynvarðir
bílar voru settir niður hér og þar
og sandpokum hlaðið upp fyrir ut-
an dómshúsið.
Réttarhöldunum lýkur i dag, en
dómur veröur kveöinn upp eftir
tvær vikur.
Idi Amin meðvit-
undarlaus eftir
skurðaðgerð
— hefur verið
fluttur út í
eyju í
Viktoríuvatni
Idi Amin forseti Uganda, sem
nú er meðvitundarlaus eftir að
hafa gengist undir skurðaðgerð
siðastiiðinn miðvikudag, hefur
verið fluttur i sjúkrahús á eyju i
Viktoriuvatni. Var þaö gert af
öry ggisástæöum að sögn
embættismanns i Uganda.
Amin iagðist inn á
Mulago sjúkrahúsið i Kampala
fyrr i þcssari viku, og var hann
skorinn upp af sovéskum skurð-
lækni við einhverjum sjúkdómi.
Engin opinber yfirlýsing hefur
verið gefin út um liðan hans.
Sérfræðingar i Nairobi kannast
ekki við neinn spitala á um-
ræddri eyju á Viktoriuvatni, en
þegar embættismaöurinn i
Uganda var spurður nánar,
sagði hann að þetta væri
„sérstakt sjúkrahús fyrir
sérstakt fólk”, og aö „forsetinn
væri öruggur þar”.
Amin hefur áður gengist undir
minni háttar skuröaðgerðir. I
október siðastliðinn var hann
skorinn upp á sjúkrahúsi i
Kampala, en ekkert var látið
uppi um hvað amaði að honum.
Fyrrverandi læknir Amins og
fyrrverandi heilbrigðis-
málaráðherra, sem báöir hafa
flúið frá Uganda, sögðu fyrr á
þessu ári að Amin þjáðist af
sýfilis, og væri geðveikur af
völdum þess sjúkdóms.
Rétt áður en Amin lagðist inn
á sjúkrahús undirritaði hann
dauðadóma fimmtan manna,
þar á meðal tólf, sem ákærðir
voru fyrir að hafa ætlað að
steypa honum af stóli. Skjóta á
mennina fimmtán siðdegis i dag
við hliðina á klukkuturninum i
Kampala. Þó er ekki ljóst hvort
dauðadómnum verður fullnægt
á meðan Amin er enn
meðvitundarlaus.
Þýsk yfirvöld
þegja um Schleyer
^;
Rœningjarnir hóta að drepa hann ef kröfur þeirra verði hunsaðar
Yfirvöld i Vestur-Þýska-
landi hafa ekkert viljað
láta uppi um hvernig gangi
að semja við ræningja
Hanns-Martin Schleyers,
formanns Samtaka at-
vinnurekenda og iðnrek-
enda i Þýskalandi.
Þó var lesin upp yfirlýsing frá
lögreglunni i sjónvarpinu i gær,
og voru i henni endurtekin skila-
boöin til ræningjanna um aö til-
nefna milligöngumann milli sin
og lögreglunnar. Ræningjar
Schleyers, sem eru félagar i
Baader-Meinhof hópnum svo-
nefnda, hafa hótað að drepa hann
ef yfirvöld verði ekki við kröfum
þeirra um að ellefu hryðjuverka-
menn verði látnir lausir úr fang-
elsi. Meðal þessara hryðjuverka-
manna eru þau Andreas Baader,
Jan-Carl Raspe og Gudrun
Ensslin, forsprakkar hins upp-
haflega Baader-Meinhof hóps, en
þau afplána nú lifstiðarfangelsis-
vist fyrir morð og sprengjutil-
ræði.
Ræningjar Schleyers krefjast
þess að hverjum hinna ellefu
hryðjuverkamanna verðigefin 100
þúsund mörk og siðan leyft að
fljúga til annars lands eftir eigin
vali. Einnig heimta þeir að mót-
mælendaklerkurinn og friöar-
sinninn Martin Niemöller og
Denis Payot, sem er frá Sviss og
hefur barist mikið fyrir mann-
réttindum verði látnir fylgja ell-
efumenningunum úr landi.
Niemöller, sem er fyrrverandi
forseti Heimsráös kirkna, hefur
sagst mundu fara með föngunum
ef yfirvöld færu fram á það við
hann. Payot sagðist einnig mundu
fara með þeim ef rikisstjórninni
væri það mjög i mun.
Skaut fimm — að
sjólfum sér meðtöldum
Maður nokkur i Chartres i
Frakklandi skaut bróður sinn,
mágkonu og eiginkonu til bana
i gær og framdi siðan sjálfs-
morð.
Maðurinn, sem heitir
Bernarnd Pierson, réðst inn á
heimili bróður sins og mág-
konu i gærkvöld og skaut þau
til bana ásamt hundinum
þeirra. Siðan ók hapn til
Chartres og neyddi hjákonu
sina til að koma með sér.
Hann réðst inn i ibúð konu
sinnar þar i borg og skaut sex
skotum að henni. Eftir að
hafa drepið hana framdi hann
sjálfsmorð. Lögreglan segir
að ekki hafi enn tekist að finna
hjákonu Piersons, og óttast er
að hann kunni að hafa drepið
hana lika.
Þetta eru sex þeirra ellcfu félaga úr Baader-Mcinhof hópnum, sem
ræningjar Hanns-Martin Schleyers heimta að veri latnir lausir úr fang-
elsi.