Vísir - 09.09.1977, Qupperneq 24
SMÁAUGLÝSINGAHAPPDRÆTTI VÍSIS
VINNINGURINN ER PHILIPS 26"LITSJÓNVARPSTÆKl
ERT ÞÚ MEÐ?
SÍMI 86611
Opið virka daga til kl. 22.00
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
<t
Svona
leit
gos-
svœðið
út um
húdegið
í dag
Þessa mynd tók Loftur As-
geirsson, Ijósmyndari Vfs-
is. laust fyrir hádegi i dag
af svæöinu i nánd við Leir-
hnúk, þar sem eldgosið
stóð sem hæst í gærkveldi.
Kyrrt var við gígaröðina,
sem myndaðist í gosinu og
nýja hraunið byrjað að
kólna, en svolitil gufa steig
upp af jöðrum þess.
Gufumökkur byltist aftur
á móti upp úr stærsta gígn-
um, eins og vel sést á þess-
ari fréttamynd dagsins.
1150 nýir
áskrifendur
að Vísi
Mikiö hefur veriö aö gera i
Vísisbásnum á heimilissýn-
ingunni i Laugardalshöilinni
aö undanförnu. 1 þriöjudags-
kvöld sföastliöiö höföu 937
manns notfært sér hina friu
kynningaráskrift Visis, sem
gildir til 1. október.
Sföan hafa um 100 manns á
degi hverjum gerst áskrifend-
ur, þannig aö nú er talan oröin
um 1150. Ileimilissýningunni
lýkur um helgina.
Hrœringar
komnar í
bundið mál
Enn finnast hér á landi
hagyrðingar, sem sett geta
fam skoðanir sinar i bundnu
máli. Prófarkalesararnir okk-
ar hér á Visi, þeir Sigvaldi
Hjálmarsson og Orn Snorra-
son, voru að minnsta kosti
ekki lengi að setja saman
þessa ferskeytlu núna i morg-
un, á meðan þeir lásu yfir nýj-
ustu fréttir af eldgosinu fyrir
norðan:
Frýs á vörum feikna bros,
fækkar jarðhræringum.
Horfið yndi, ekkert gos
upp úr Þingeyingum.
Frá fréttamönnum Vísis
á umbrotasvæðinu nyrðra í
morgun: Skömmu eftir að
veginum yfir Námaskarð
var lokað í gærkvöld vegna
sprungumyndana, komu
blaðamenn Vísis þar að.
Friðrik Steingrímsson,
lögregluþjónn var á verði
hjá stærstu sprungunni og
gætti þess að enginn færi
þar fram hjá.
Hann haföi rétt látiö þau orð
falla, að ógerlegt væri að vita
hvað gerðist næst, þegar gifur-
legar dunur kváðu viö og mikil
eldsúla steig upp nokkru noröan
við veginn.
Þeir sem þarna voru höfðu sig
þá tafarlaust i burtu, enda var
útlit fyrir að þarna væri eldgos
byrjað. Fólk i Reykjahliðar-
hverfinu var beðið að vera viö-
búiö brottflutningi og varað við að
yfirgefa svæðið án þess að láta
stjórnstöð almannavarna vita.
Tvær fjölskyldur með ung börn
yfirgáfu svæðiö strax þegar til-
kynningin kom. Greip nokkur
órói um sig meðal fólks, en fljót-
lega upp úr miðnætti varð ljóst að
þarna var um að ræöa sprengingu
i gasi sem safnast hafði fyrir i
einni borholunni i Bjarnarflagi.
Sigurður Þórarinsson, jarðfrœðingur, um eldsumbrotin á Leirhnúkssvœðinu:
j
„UÐUR í ÞRÓUN?
SEM GETUR ENDAÐ
MED STÓRGOSr
Frá Sæmundi Guðvins-
syni, fréttamanni Vísis í
Mývatnssveit í morgun:
„Þetta var miklu meira
hraungos en áður og mun
minna um leirslettur.
Þetta er liður i þroun sem
getur endað með stórgosi,"
sagði Sigurður Þórarins-
son jarðfræðingur þegar
Vísir ræddi við hann i Mý-
vatnssveit í morgun.
Sigurður sagði að gosið hefði
hagað sér öfugt viö t.d. gos i
öskju, þar sem það hefði fjaraö út
með leirslettum. Hann sagði að
aðalgigurinn væri á sama stað og
i april i vor, þegar leirgosið varð.
Sprungurnar i Bjarnarflagi væru
einnig á sömu stöðum og sprung-
ur mynduðust i þeim hræringum.
Sigurður sagöist álita að ef eitt-
hvað meira ætti eftir aö gerast i
þessari lotu, þá yrði það fljótt.
Tók hann fram að jafnar likur
væru á aö þessi þróun stöðvaðist
og að hún endaði með stórgosi.
Hraunstrauminn taldi hann
hafa orðið um 1800metrar á lengd
og um ferkilómetri að flatarmáli.
Hefði það skipt nokkrum milljón-
um teningsmetra.
—SJ/SG
Siguröur Þórarinsson jaröfræö-
ingur nyröra I morgun.
Visismynd-.JA