Vísir - 13.09.1977, Qupperneq 1
RANNSOKN PUNDMALSINS
LOKSINS Á FULLA FERÐ
Tvö ár eru liðin
síðan Sparisjóður-
inn Pundið var
kœrður
A vegum Rannsóknarlögreglu
rikisins er nú gerö gangskör aö
þvi aö hraöa rannsókn Punds-
málsins, sem hefur veriö aö
veitast i Sakadómi Reykjavikur
i tæp tvö ár. Erla Jónsdóttir
deiidarstjóri hefur tekiö viö
stjórn rannsóknarinnar og undir
hennar stjórn vinna tveir menn
eingöngu viö þetta mál, en þaö
snýst um meinta ólöglega vexti.
Þaö var i nóvember 1975 sem
viöskiptavinur viö Sparisjóöinn
Pundiö kæröi til sakadóms
vegna okurvaxta sem honum
var gert að greiða vegna lána er
hann fékk hjá Pundinu.
SU aðferð var notuð, aö
maðurinn fékk hjá Pundinu
nafn á manni er þar var i við-
skiptum. Síðan lét sá maöur
lánsbeiðanda hafa miða með
númeri sparisjóðsbókar og tók
fyrir það háa greiðslu. Þegar
vixlar voru framlengdir þurfti
skuldarinn að greiða há ,,lán-
tökugjöld” á nýjan leik og
annaðist Pundið innheimtu á
þeim.
—SG
„RÁÐLEGGJ-
UM ÖÐRUM
AÐ REYNA EKKI
SLÍKT FLUG"
— sögðu bandarísku loftbelgsfararnir
„Þær um tuttugu tilraunir, sem
gerðar hafa verið tii að fara á
loftbelg yfir Atlantshafið hafa all-
ar mistekist, og við ráðieggjum
mönnum svo sannarlega aö reyna
ekki”, sagöi Ben Abruzzo, annar
bandarisku loftbelgsmannanna
sem nauðientu út af Vestfjörðum i
gær.
Þyrla frá Keflavikurflugvelli
bjargaði þeim i gærkvöldi og
flutti þá til Reykjavikurflugvall-
ar, þar sem fjöldi fréttamanna
tók á móti þeim — en fylgst hafði
verið með hrakningum þeirra fé-
laga viða um heim.
Þeir Ben og Maxie Anderson
lögðu af stað i loftbelgnum frá
Marshfield i Massachusetts-fylki
i Bandarikjunum á föstudags-
kvöld i siðustu viku, og þeir ætl-
uðu að reyna það, sem engum
hefur enn tekist, að fara i loftbelg
milli meginlanda Ameriku og
Evrópu. Sú ferð endaði i sjónum
út af Isafirði. Flugliðar i Loft-
leiðaþotu heyrðu neyðarkall frá
loftbelgnum, og þyrlur Varnar-
liðsins hófu svo leit i dögun i gær-
morgun. Fannst belgurinn um
hádegið, en hann nauðlenti þó
ekki fyrr en um fimmleytið.
Björgun þeirra félaga gekk vel,
þar sem þeir voru i loftbelgskörf-
unni i sjónum. Sjálfan belginn
létu þeir lönd og leið og sprakk
hann að lokum i verulegri hæð
vegna þrýstingsmunar.
Þeir Ben og Maxie voru fegnir
hvildinni i gærkvöldi i hlýjum og
mjúkum rúmum.
— ESJ.
Þaö var þröng á þingi á Reykjavikurfiugvelli þegar þeir Ben og Maxie komu þangaö I gærkvöldi. Mynd-
ir frá björguninni eru á baksiöu. Visismynd: EGE
Sjá viðtal við Hrafn Bragason bls. 3
Ávísanamálinu
lýkur á árinu
Sjá Veðurdagbók
Páls á bls. 10-11
Kristileg
íþrótta-
grein
r
A vogarskálum:
Hvemig
mat
áað
borða?
Frá því segir í máli og myndum á bls. 7
EITT SÆTIUMFRAM I NOREGI
i