Vísir


Vísir - 13.09.1977, Qupperneq 4

Vísir - 13.09.1977, Qupperneq 4
ÞriOjudagur 13. september 1977. VISIR ÓVÍST UM AF- DRIF SCHLEYERS Ekkert var í morgun vit- að um afdrif Hans-Martin Schleyer sem nú hef ur ver- ið í höndum mannræningj- anna í rúma viku. Vestur- þýsk stjórnvöld virðast ekki hafa orðið við kröfum ræningjanna um að láta lausa ellefu hryðjuverka- menn fyrir miðnætti síðastliðna nótt. Að öðrum kosti hótuðu þeir að myrða Schleyer. Vestur-þýska lögreglan veitir nánast engar upplýsingar um þetta mál. Talsmaður hennar sagði aðeins við fréttamenn að þeir heföu sent orðsendingu til svissneska lögfræðingsins, Denis Payot, sem er milligöngumaður miíli yfirvalda og ræningjanna. Orðsendingin hefur væntanlega verið i sambandi við úrslitakost- ina sem settir voru i gær, en ekki var skýrt frá innihaldi hennar. Hinsvegar hafa fjölmiðlar skýrt frá þvi að geysi-umfangsmikil rannsókn og leit að Schleyer standi nú yfir, þrátt fyrir kröfu ræningjanna um að lögreglan haldi að sér höndunum. Hollenska lögreglan hefur mikinn viðbúnað vegna réttarhalda yfir Mólúkkunum sem hertóku lest og skóla fyrr á árinu. Hér er verið að gera vopnaleit hjá Mólúkkafjölskyldu. Eins sœtis meiríhluti i Noregi — en Verkamannaflokkurinn vann stórsigur Norska stjórnin vann naumasta sigur sem mögulegt var i kosn- ingunum um helgina. Hún hefur eins sætis meiri- hluta á þingi. tJrslitin eru engu að sið- ur stórsigur fyrir Verka- mannaflokkinn, aðal stjórnarflokkinn, sem bætti við sig fimmtán þingsætum. Bæði Verkamannaflokkurinn og þriggja flokka samsteypan sem var sett til höfuðs honum, fengu 77 þingsæti. Það eina sem eftir var (i norska þinginu eru 155 þingsæti) fékk vinstri sóslalista- flokkurinn, sem var hinn flokkur- inn i gömlu rikisstjórninni. Sá flokkur beið ógurlegt afhroð þvi hann hafði sextán þingsæti fyrir kosningarnar. Annar sigur- vegari i þessum kosningum var Ihaldsflokkurinn sem fór úr 29 þingsætum upp i 42. Risakönguló ó vakki um bœinn Lögregla og ibúar i bænum Pitsea, i Eng- landi, gera nú mikla leit að risastórri, eitraðri, könguló sem talið er að hafi komið til bæjarins i kassa með innfiuttum banönum. Könguló þessi er hið mesta skrimsl. Hún er átján senti- metra löng og lifirmeðal annars á smáfuglum. Hún gengur undir nafninu „Hoppandi-Köngulóin” vegna þess að hún getur stokkið allt að metra i loft upp. Það var kennari i bænum sem fyrstsá kvikindið, á gluggasyllu hjá sér, og brá heldur betur i brún. Köngulóin hvarf áður en hann gæti drepið hana. Lögregla og íbúar hafa undanfarna daga gengið um vopnaðir kylfum eða löngum prikum, og leitaö að henni. Ibú- ar bæjarins eru aö vonum ótta- slegnir þvi bit köngulóarinnar er banvænt. Hoppandi köngulóin lifir ann- ars í Mexikó og er taliö aö hún hafi komið f bananakassa það- an. Fengsœlar moldvörpur Bíræfnir bankaþjófar gróf u sig inn í banka í Róm um helgina og stálu um sexhundruð þúsund sterlingspunda virði af skartgripum og öðrum verðmætum úr geymslu- boxum viðski ptavina bankans. Þjófarnir höfðu tekið á leigu fatahreinsun sem var i næsta húsi og grófu svo sjö metra löng göng yfir i bankann. Taliö er að þeir hafi komiðupp um gólfiö fljótlega eftir lokun á föstudaginn, en inn- brotiö uppgötvaðist ekki fyrr en i gærmorgun þegar starfsmenn bankans komu til vinnu. BOSS- INN SÝKN- AÐUR Ber bossi getur verið móðgandi en ekki dónalegur, að sögn hæstaréttarins i Sviss. Þar var um helgina ógiltur dómur yfir konu sem hafði snúiö berum bak- hlutanum I nágrannakonu sina eftir mikiö rifrildi. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu aö vissulega hefði þetta verið mjög móögandi framkoma og ámælisverð sem slík. Hinsvegar voru þessi frumlegu ,,rök" i deil- unni ekki talin svo alvarleg að refsa bæri konunni. Ýmsir óttast að Carter hljóti sömu örlög og Bert Lance, ef hann heldur ófram að styðja við bakið ó honum. „Marsbúarnir eru komnir" œpti bóndinn Albert Barber var viss um að mars- búarnir væru komnir, þegar hann rölti út úr bóndabænum sinum i Yorkshire, i Eng- landi, og út á kartöflu- akur. Þar blasti viö honum disk- laga hlutur með skinandi kúpul. Diskurinn gaf frá sér hátiðnihljóð og jöröin i kringum hann var svört og brennd. Albert geystist inn til að hringja á lögregluna sem kom, með vælandi sirenur. Eftir að hafa skoðaö hlutinn nokkra stund (afskaplega varlega og úr hæfilegri f jar- lægð) var gátan leyst. Þetta var gamall breskur hermannahjálmur sem hafði verið festur á hverfisteins- hjólsem lá áhliöinni. Jörðin I kring hafði verið sviðin meö blossalampa. Tónarnir sem Barber heyrði komu frá útvarps- sendi, af þeirri tegund sem jarðarbúar nota.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.