Vísir - 13.10.1977, Qupperneq 23
VISIR Fimmtudagur 13. október 1977.
c
23
íffli
Hringiöisíma 86611
ciukkan 13 og
skrifið tfl Vísis Síðumúla 14, Reykjavík.
3500 óra landnóms tófunnar minnst
J
u
með hótíðahöldum og róðstefnu
ff
Hiö tslenska Tófuvinafélag hyggst vinna aöþvi m.a. aðstofnað verði tófuminjasafn og að saga tófunnar
i landlnu verði skráð hið fyrsta.
smáauglýsingahappdrætti
Allir þeir sem birta smáauglýsingu i VÍSI átímabilinu 15-9 til 15-10-77
veróa sjálfkrafa þátttakendur í smáauglýsingahappdrætti VÍSIS
Ikkkkmmi
Vinningurinn
KENWOOD hljómtæki
veróur dreginn út 15-10-77
Smáauglýsingamóttaka í síma 86611
alla daga vlkunnar kl. 9-22 nema
laugardaga kl. 10-12 og
sunnudaga kl. 18-22 (6-10 e.h.)
Frá Hinu íslenzka Tófuvina-
félagi:
Hið islenzka Tófuvinafélag var
stofnað i Reykjavik 1. okt. 1977.
Félagið hefur að markmiði:
1) að vinna markvisst að út-
breiðslu tófunnar um land allt
2) að standa dyggan vörð um
fornhelgan rétt tófunnar i landinu
3) að skapa islenska tófustofnin-
um viðunandi lifsskiiyrði, eink-
um á vetrum, og skal unnið að þvi
að afréttir verði eigi jafn
samvizkusamlega smalaðir og
verið hefur
4) að sporna gegn miskunnar-
lausum ofsóknum á hendur tófu-
stofninum islenzka
5) að beita sér fyrir að Alþingi Is-
lendinga leiði i lög eftirfarandi:
a) að islenzki tófustofninn verði
alfriðaður
b) að tófan fái sinn sess i náttúru-
verndarlögum
c) að innflutningur á útlendum
tófum verði bannaður
d) að gömul verslunarákvæði um
útflutning á melrakkabelgjum
verði numin úr gildi
e) að embætti veiðistjóra verði
lagt niður
f) að áreitni snjósleðamanna við
frjálsar tófur verði bönnuð
g) að þyrlur verði bannaðar i
eftirleit
h) að bannað verði að lifláta tófur
nema i eftirfarandi undan-
tekningartilfellum: 1) að tófa
sé sannanlega staðin að þvi að
hafa drepið meira en nemi
vikuforða 2) að um sannanlega
sjálfsvörn gegn árás tófu sé að
ræða
6) að stofnaður verði tófugarður i
Akrafjalli, Borgarfjarðarsýslu
A næstu árum hyggzt Hið islenska
Tófuvinafélag einkum vinna að
eftirfarandi:
1) að viðurkenndir verði tófudag-
ar frá 6. júni til 12. júli eða til
hundadaga ár hvert
2) að minnast 3500 ára landnáms
tófunnar á tslandi þann 6. júni
1982, m.a. meö margbreyttum
hátiðahöldum og þjóölegri ráð-
stefnu
3) að komið verði á fórnarviku
tófunnar, og verði menn hvattir
til að gefa svo sem eitt sunnu-
dagslæri eða sauðarkrof og koma
þvi á fjöll
4) að saga tófunnar i landinu
verði skráð hið fyrsta
5) að gerð verði heimildarkvik-
mynd um islenzka tófustofninn
6) að stofnað verði tófuminjasafn
7) að hafnar verði viðtækar rann-
sóknir á islenzka tófustofninum
og beinist þær einkum að:
a) félagslegu atferli og aðlögun-
arhæfni
b) mataræði
c) greindarvisitölu
d) „para—psykologiskum” hæfi-
leikum
e) bitferli
f) lyfjagrasaneyslu
8) að gert verði meira að þvi en
verið hefur að fólk haldi tófur sem
gæludýr
9) að hafin verði útgáfa
islenzkrar tófufyndni
Þess má geta að félagið hyggst
hafa i frammi öfluga útbreiðslu-
starfsemi til stuðnings málstað
sinum með útgáfu félagsrits,
minnispeninga, veggspjalda,
hljómplatna og tónbanda.
Stjórn félagsins skipa:
Sigurður Hjartarson, Akranesi,
forseti, Þorsteinn Jónsson,
Reykjavik, ritari, Grétar H.
Jónsson, Reykjavik, gjaldkeri og
endurskoðandi, Arni Hjartarson,
Tjörn i Svarfaðardal, útbreiðslu-
stjóri (tengiliður við bændur).
Pósthólf Hins islenzka tófuvina-
félags er nr. 81, Akranesi
Heimili og varnarþing félagsins
er á Akranesi og sendist umsókn-
ir um inngöngu i H.l.T. i pósthólf
félagsins, nr. 81 á Akranesi.
Smáauglýsing í VÍSI er engin
auglýsing
Skodaeigendur
Vió bjóðum yóur Ijósaskoöun án endurgjalds
Ath. ef stilla þarf Ijós eóa
framkvæma viðgeró
á Ijósabúnaói greióist
sérstaklega fyrir þaó
Ath. LJÓSASKOÐUN LÍKUR 31. OKT. NK.
JÖFUR
HF.
AUÐBREKKU 44-46 - KOPAVOGI - SÍMI 42600