Vísir - 14.10.1977, Side 4
Föstudagur 14. október 1977
VISIR
Flugrœningjar styðja
rœningja Schleyers
— hafa ó valdi sínu Lufthansa þotu með 90 manns innonborðs
Þýsk farþegaþota sem
rænt var í framhaldi af
ráninu á Hans
Martin-Schleyer var
snemma i morgun lent á
flugvellinum i Dubai við
Persaflóa, eftir að hafa
hoppað á milli flugvalia
á þessu svæði i rúman
sólarhring.
Vélinni var alls staðar illa tek-
ið, en jafnan leyft að lenda þegar
flugstjórinn tilkynnti að eldsneyti
væri á þrotum.
Þetta er tveggja hreyfla þota af
gerðinni Boeing 737, með áttatlu
og sex farþega og fimm manna
áhöfn innanborðs. Vélinni var
rænt skömmu eftir að hún hóf sig
til flugs frá Mallorca, á leið til
Frankfurt.
Nánast ekkert öryggiseftirlit er
á flugvöllum á Spáni og liggur við
að hægt sé að segja að þar geti
menn komist allra sinna ferða um
flugstöðvar með fallbyssu i
aftanivagni, i eftirdragi.
Ræningjar Lufthansa þotunnar
DESAI HÓTAR
n
JARNHNEFA
ii
Forsætisráðherra Ind-
lands hefur lýst þvi yf ir að
hann muni nota „járn-
hnefa" til að bæla niður
óeirðir pólitiskra andstæð
inga stjórnarinnar. Hann
var þarna að vísa til Indiru
Gandhi og Kongressf lokks
hennar.
í fyrstu meiriháttar ræöunni
sem snertir Kongressflokkinn,
sem hann hefur haldið siðan
Indira Gandhi var látin laus,
sagði Moraji Desai forsætisráð-
herra að stjórnarandstaðan virt-
ist stefna að upplausn i landinu.
Hann sagði að svo virtist sem
Kongressflokkurinn hefði ekkert
lært af kosningunum sem hann
tapaði svo hrapallega, og varaði
við þvi að tekið yrði hart á öllum
óeirðaseggjum.
Fjölmargir stuðningsmenn
AMIN FÆR NYJ-
AR HERÞOTUR
Idi Amin, forseti Ug- nýjar flugsveitir AAiG-17
anda, hefur fengið tvær og AAiG-21 orrustuþotna,
f rá Sovétríkjunum og þær
hafa verið innlimaðar í
herafla landsins, við há-
tíðlega athöfn.
Rússar hafa einnig þjálfað
flugmennina og tók Amin af
þeim hollustueið við þetta tæki-
færi. Þegar ísraelar gerðu árás
á Entebbe flugvöll til að bjarga
gislunum er þar voru i haldi
notuðu þeir tækifærið til að eyði-
leggja mikinn hluta af flugher
Am'ins.
Nýju flugsveitirnar eiga að
bæta úr þessu og kvaðst Amin
mjög þakklátur hinum ráss-
nesku vinum sinum.
Idi Amin: Þakklátur Rússum
Reyna að ná
símasambandi
Kínversk „póst og
símasendinefnd" lagði
upp í gær í heimsókn til
Albaníu og ítalíu, að
sögn fréttastofu Nýja
Kína.
Formaður nefndarinnar er
Chung Fu-Hsiang, póst- og
simamálaráðherra. Þetta er
fyrsta opinbera sendinefndin
sem fer frá Kina til Albaniu,
siðan þjóðirnar hófu hug-
myndafræðilegar deilur sem
hafa gert sambúð þeirra
"nokkuð striða.
Stjórn Kina vonast til að
simamálaráðherranum tak-
ist að ná sambandi við al
banska ráðamenn.
eru af arabiskum uppruna, alla-
vega var bréf sem þeir sendu
Reuter fréttastofunni á þvi máli,
og þeir tala enskuna með þannig
hreim.
Ekki er vitað hvað þeir eru i
nánusambandi við þorparalýðinn
s.em rændi Schleyer, en þeir hafa
gert einum betur og krafist þess
að allir vinstrisinnaðir hryðju-
verkamenn sem sitja i vest-
ur-þýskum fangelsum, verði látn-
ir lausir.
Ekki höfðu borist nein viðbrögð
frá vestur-þýsku stjórninni þeg
ar Visir fór i prentun um hádegið.
Desai strýkur járnhnefann.
Indiru Gandhi efndu til mótmæla
viösvegar um landið þegar hún
var handtekin. Nokkurs staðar
kom til átaka vegna þessa.
MYNDA-
SKORTUR
Vegna yfirstand-
andi verkfalls BSRB
berast Visi nú engar
fréttamyndir frá út-
löndum. Lesendur
eru beðnir vel-
virðingar á þvi að
myndskreytingar á
erlendu siðunum eru
þvi heldur fátækleg-
ar þessa dagana.
Playboy-kanínurnar eru meö bestu tekjulindum fyrirtækisins.
Hagnaður jókst
um hefimng hjá
Playboy-vekSnu
Playboy, stórveldí áöur, þrátt fyrir að
Hughes Hefner, skilaði á fyrirtækið tapaði einni
síðasta fjárhagsári helm- milljón dollara á að loka
ingi meiri hagnaði en árið spilavíti sinu í Detroit.
Hagnaðurinn á árinu sem
lauk þritugasta júni siðastliðinn
varð alls 4,17 milljón dollarar en
var 2,06 milljón dollarar árið
áður.
Ekki var tekið sérstaklega
fram af hvaða rekstrarliðum
mestu tekjurnar fengust, en
timaritið og spilavitin i London
eru þar ofarlega á blaði.
Fyrir nokkrum árum átti fyr-
irtækið i nokkrum erfiðleikum
vegna þess að það hafði fært út
kviarnar of fljótt og of mikið.
Fjármálasérfræöingar sem
fengnir voru til aðstoðar eru nú
búnir að kippa þvi i lag sem sjá
má. Fyrir utan timaritið, sem
er þekktast liður Playboyfyrir-
tækisins, er það með umfangs-
mikla bókaútgáfu, klúbba og
spilaviti viða um heim og fram-
leiðir alls konar tiskuvörur.