Vísir - 14.10.1977, Qupperneq 5
VISIR Föstudagur 14. október 1977
H
KYRRÐ KOMINA
í BANGLADtSH
í Bangladesh hefur ró
færst aftur yfir, eftir
tvenna örlagaatburði
fyrir skömmu# þar sem
voru flugránið og upp-
reisnartilraun hersins.
Gerður hefur verið góður
rómur að frammistöðu stjórnar
hersins (sem nú hefur veriö ein-
angruð i herflokkum nyrst i
Bangladesh) virðist eiga rætur
sinar að rekja til lágra launa og
bágra kjara lægstsettu foringj-
anna. Inn i hana fléttast þó um
leið öndverðar pólitiskar skoð-
anir við herstjórn landsins og
andstaða gegn herlögunum,
sem eru i gildi.
Japanska farþegaþotan á flugveUinum i Dacca, þar sem flugræn-
ingjar Rauða hersins neyddu hana til lendingar. Herstjórnin I
Bangladesh annaðist milligöngu i samningum við ræningjana, og
þótti farast verkiö vel úr hendi.
Ziaur Rahmans, hershöfðingja,
i viðræðunum og samningunum
við hryðjuverkamenn Rauða
hersins, sem rændu og neyddu
japanska farþegaþotu til lend-
ingar á Dacca-flugvelli á dögun-
um.
Sömuleiðis þótti stjórrin
bregða skjótt og örugglegá við,
þegar hún bældi niöur uppreisn
lágtsettra foringja hersins gegn
yfirmönnum sinum. Eins og
menn muna bar það að, þegar
flugránsmálið stóð sem hæst.
Óstaðfestar fréttir herma, að
yfir 230 manns hafi látið lifið i
bardögunum, sem stóðu nokkr-
ar klukkustundir, og voru aðal-
lega háðir i næsta nágrenni við
flugvöllinn. Meðal þeirra sem
féllu voru margir úr hinum litla
flugher Bangladesh.
Meðan sumir foringjar upp-
reisnarmanna ganga enn lausir,
hefur frétst að yfir 80 upp-
reisnarmanna hafi verið hand-
samaðir. Herréttur hefur þegar
verið settur i máli þeirra. Yfir-
völd hafa látið á sér skilja, að
ekki verði endilega krafist
þyngstu refsinga, eins og hefði
mátt búast við „öðrum viö við-
vörunar”.
Óánægjan á lægstu þrepum
Fréttaskýrendur segja, að
stjórnmálahópar i landinu, þar
sem i reyndinni mestöll stjórn-
málastarfsemi hefur lagst nið-
ur, hafi hug á þvi að færa sér
óánægjuna innan hersins i nyt.
— Vissulega var uppreisnartil-
rauninni valin hin ákjósanleg-
asta stund með tilliti til þess að
vekja eftirtekt, eða að koma
ráðamönnum i opna skjöldu.
Nefnilega þegar samningar við
flugræningjana stóöu sem hæst
og forráðamenn vissu alheims-
athygli beinast að sér.
Þessi uppreisn i Dacca var sú
fjórða i norðurhluta Bangladesh
á sex vikna bili. I fyrri skiptin
áttu hlut að máli einungis fá-
mennir hópar innan hersins.
Þessi órói fellur að visu ekki
undir alvarlegar byltingartil-
raunir á borð við þær, sem stór
hluti þjóðarinnar gæti fylkt sér
á bak við, en áhrif hans gætu
samt orðið hin alvarlegustu.
Slikt andrúmsloft getur gert
stórt strik i áætlanir Zia hers-
höfðingja um að koma aftur á
lýðræðislegri stjórn i landinu.
Hershöföinginn, sem komst til
valda eftir byltingarnar 1975,
hafði lofað þvi að efna til al-
mennra kosninga i lok árs 1978,
SPANVERJAR
STRANGIR Á
SIÐGÆÐIÐ
Hæstiréttur Spánar
staðfesti í fyrradag dóm
undirréttar í máli rit-
stjóra tímarits, sem birt
hafði nektarmyndir. Rit-
stjórinn Francisco Saez
Gonzalez, hafði verið
dæmdur í þriggja mán-
aða fangelsi.
Hæstiréttur þyngdi viðurlögin
á þann veg, að maðurinn fær
ekki að ritstýra blaði i sex ár.
í niðurstöðu hæstaréttar
segir, að Saez Gonzalez hafi
verið ábyrgur fyrir útgáfu
„Magazine Personas” I janúar
1976, þar sem birtar voru mynd-
ir af nöktu eða hálfnöktu kven-
fólki, „án nokkurs sýnilegs
fræðandi tilgangs, nema til þess
eins að vekja losta”.
Segir i dómnum, að sllkar
birtingar „séu árás á andlegt
þrek og siðgæði fólks”.
Fyrr I þessari viku skipuðu
yfirvöld bóksölum að hætta að
stilla út i giuggum tiritum með
nektarmyndum á útsiðum. Var
það gert i nafni barnaverndar-
laga. Sala á þessum timaritum
var þó ekki bönnuð.
eftir endurreisn lýðræðislegrar
stjórnar i áföngum.
Zia hershöfðingi nýtur al-
mennrar virðingar og trausts og
i íþjóöaratkvæöagreiöslu i mai
i sumar fékk hann og stjórn
hans yfirgnæfandi stuðning
kjósenda. Margir spá þvi, að
hann muni reyna að setja á
laggirnar eiginn stjórnmála-
flokk i tæka tið fyrir kosning-
arnar. Augljóslega mun þó fylgi
hans velta að miklu leyti á þvi,
hversu góða stjórn honum tekst
að hafa á - hernum.
Eins og sakir standa þurfa
stjórnmálaflokkar leyfi herfor-
ingjastjórnarinnar til að starfa,
og þá einungis innandyra. Oti-
fundir eða opinber atkvæða-
söfnun er ekki leyfö.
Hermaður á gangi I Dacca innan um sprengjurústir eftir Pakistan-
striðið. Millirikjaófriður, byltingar og hungursneyðir hafa löngum
gert ibúum landsins lifiö leitt.
smáauglýsingahappdrætti
Allir þeir sem birta smáauglýsingu i VÍSI átimabilinu 15-9 til 15-10 -77
veróa sjálfkrafa þátttakendur í smáauglýsingahappdrætti VÍSIS
Smáauglýsing í VÍSI er engin
auglýsing