Vísir - 14.10.1977, Síða 8
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 101. og 102. tbl. Lögbirtingablaðs 1976 og
1. tbl. þess 1977 á Vagnhöfða 6, þingl. eign Harðar Sigur-
jónssonar fer fram eftir kröfu Iðnaðarbanka Islands.Val-
garðs Briem hrl. og Gjaldheimtunnar I Reykjavfk á eign-
inni sjálfri mánudag 17. október 1977 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta i Sólheimum 27. talinni eign Her-
berts Guðmundssonar fer fram á eigninni sjálfri mánudag
17. október 1977 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta I Laugavegi 133 þingl. eign Birgis
Jóhannssonar fer fram á eigninni sjálfri mánudag 17.
október 1977 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta I Vesturbergi 52, þingl. eign
Gunnlaugs Meisted fer fram á eigninni sjálfri mánudag
17. október 1977 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík
PASSAMYNDIR s
feknar i lifum
tilbútiar strax I
barna & flölskyldu
LJOSMVNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
SÖLUBÖRN!
Notið fríið til þess að selja VÍSI.
Þið getið unnið ykkur inn
vasapeninga og auk þess hafið
þið möguleika á vinningi í
söluhappdrœtti VÍSIS, úttekt
úr TÓMSTUNDAHÚSINU
fyrir kr. 150.000á mánuði
AFGREIÐSLA
Stakkholti 2-4
Simi 86611
VÍSIR
y
ar um ástina.
Visismynd: JEG
„Þögul mynd hróp-
qr oft hœst/#
— segir Tom Krestesen listmólari, en sýning á
verkum hons verður opnuð i Norrœna
húsinu á laugardaginn
„Þögul mynd hrópar
oft hærra en mynd sem
máluð er í sterkum lit-
um," sagði Tom Kreste-
sen listmálari þegar Vís-
ir ræddi við hann í kjall-
ara Norræna hússins, þar
sem onuð verður sýning á
verkum hans á laugar-
daginn.
Þetta er ein örfárra sýninga
sem Norræna húsið efnir til á
verkum norrænna listamanna.
A sýningunni eru 60 listaverk
unnin með tússi, oliu og vatns-
litum á tré og papplr. Mörg
verkanna eru unnin á gamlar
skápahurðir, hillur og skrifborð.
Tom Krestesen sagði að hann
heföi lengi unnið með Iiti, en
fyrir nokkrum árum -hefði hann
uppgötvað að hann kæmist ekki
lengra meö litina og þá snúið sér
að túlkun I svart og hvitt. Mynd-
irnar eru yfirleitt dökkar. Þær
fjalla um vald og valdbeitingu,
fórnardýr og bööla. Myndir
Krestesens af valdhöfum sýna
ekki andlit ákveðinna persóna,
þótt sumar þeirra likist mönn-
um sem við þekkjum. Þaö segir
hann að sé aöeins tilviljun.
Þessar myndir nefnir lista-
maðurinn „Þeir sannfærðu”.
Andlitin eru ekki aðlaöandi,
enda segir Krestesen aö þau eigi
ekki að vera það. Hann vil sýna
andlit valdhafanna eins og i
hulu, likt og þau séu að leysast
upp.
Pólitísk verk?
„Það má segja að þessi verk
séu pólitisk,” sagði hann. „En
þó ekki i þeim skilningi að þau
fylgi neinum einum flokki. Til-
gangurinn er þvert á móti að
vekja umhugsun, að fá fólk til
að taka manneskjulega afstööu I
móti valdi og valdbeitingu.”
En þaö eru fleiri verk á þess-
ari sýningu, en þau sem lýsa þvi
illa i mannlegu samfélagi. 1
sýningarskrá segir sænski rit-
höfundurinn Sun Axelson m.a.:
„Það er maöurinn og veröld
hans sem vekur mestan áhuga
minn i verkum Toms Kreste-
sens. En i þeim er einnig að
finna önnur minni: landslag,
náttúru, trjágöng, akra, sima-
straura. Hann málar sjávar-
myndir, bjartar myndir, mynd-
ir sem ljóma af hamingju. Þaö
er gott til þess aö vita.”
Tom Krestesen er fæddur i
Danmörku 1927. Hann hlaut
menntun slna i Aarhus Tekniske
Malerskole og Konstakademien
i Stokkhólmi. Hann hefur haldið
fjölda einkasýninga á Norður-
löndunum og víðar, auk þess
sem hann hefur tekið þátt I
mörgum samsýningum.
Sýningin i Norræna húsinu
stendur til 30. október og verður
opin kl. 14—19 daglega.
„HÁLFGEI
Magnús Kjartansson
opnar sýningu ó
verkum sínum i Gallerí
Sólon Islandus
„Þetta eru hálfgeröar
gamanmyndir," sagöi
Magnús Kjartansson mynd-
listarmaöur þegar Vísir leit
inn þar sem hann var aö
hengja upp myndir sínar í
Galleri Sólon islandus f
Aðalstræti.
Magnús opnar sýningu sina á
laugardaginn kl. 15. og verður hún
opin til 29. október kl. 14-22. A sýn-
ingunni er 41 mynd, flestar teikn-
Haustsýn-
ing FÍM
Haustsýning Félags islenskra
myndlistarmanna stendur nú yfir
að Kjarvalsstöðum. Þar eru sýnd
myndlistarverk eftir 41 höfund.
Verkin eru af ýmsum gerðum,
s.s. myndvefnaður, keramik,
glermyndir, grafik, kritarmynd-
ir, oliumáiverk, höggmyndir og
skúlptúr. Sýningin stendur til 23.
október og er opin kl. 16—22.
Leikhúsin
eru lokuð
Engar leiksýningar eru I leik-
húsum borgarinnar á meðan
verkfall opinberra starfsmanna
stendur yfir. Þvi er eina leikritið
sem sýnt er þessa dagana „Bless-
að barnalán” Kjartans Ragnars-
sonar, sem sýnt er á miðnætur-
sýningum i Austurbæjarbiói á
föstudags- og laugardagskvöld kl.
23:30.
Jakob Þór Einarsson og Vaka
Haraldsdóttir I hlutverkum Ad-
ams og Evu.
Höfuðbólið
og hjóleigan
Skagaleikflokkurinn frumsýndi I
gær verk Sigurðar Róbertssonar
„Höfuöbólið og Hjáleigan”. Næstu
sýningar á leikritinu eru á Akra-
nesi I kvöld og á laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 21.
Þetta leikverk Siguröar er eitt
þeirra sem komust i úrslit i sam-
keppni sem efnt var til á Þjóðhátið-
arárinu 1974. Inntak verksins og
grunnur er sköpunarsagan, sam-
skipti Drottins allsherjar við
Garbriel og Lúsifer og sköpun Ad-
ams og Evu og tilvist þeirra i Para-
dls.
Hlutverk eru fimm talsins og fara
þau Þorvaldur Þorvaldsson, Anton
Ottesen, Pálmi Pálmason, Vaka
Haraldsdóttir og Jakob Þór Ein-
arsson með þau. Lýsingu hannaði
Magnús Axelsson, ljóstæknir. Leik-
mynd gerði Vignir Jóhannsson og
Haukur Jón Gunnarsson leikhús-
fræðingur setti verkið á svið.
Haukur hefur dvalist 6 ár erlend-
is við nám I leikhúsfræðum, bæði I
Japan og Englandi. Telja Skaga-
menn mikinn feng að veru hans og
starfi hjá félaginu.
t