Vísir - 22.10.1977, Blaðsíða 12

Vísir - 22.10.1977, Blaðsíða 12
12 Laugardagur 22. október 1977 VISIR FLUCi'ttlRMÍMNt ÞAflAM HCJNC.DI VMI&CHNEW&Ll' r UBLmui scHMIdt a(* SA&fil': VERKINU tft LOUb FlUGtVÖLLUR.ÍNN í MO&ADI54HJ K.I. 00.05 I.U 5IUKCA IblLAft. AÍA v-UPPAÐ ^lilPmANSA 2.3 ntHN Uft PvSkU V l"Kl NfrASVEit f NNl Gt-EftA ÁftÁS Danska fegurðardrottn- ingin Naomi Wilkens Jensen var einn gísl- anna um borð í Lufthansa þot- unni. Við kom- una til Kaup- mannahafnar féll hún grátandi í faðm móður sinnar. en hafði staðið sig eins og hetja meðan verst stóð. Þrlr flugræningjanna voru samstundis skotnir til bana en einn þeirra, kona, særöist. Þegar hún var bor- in út úr vélinni gaf hún V-merkiö, sigurmerkiösem Churchill geröi frægt. LEIKNUM ER EKKI L0KIÐ Ekki siðan ísraelar gerðu leifturárásina á Entebbe til að frelsa gislana sem þar voru, hefur heimurinn sam- fagnað jafn innilega og þegar þýskar vikinga- sveitir ruddust um borð i Lufthansa þotuna i Sómaliu, felldu þrjá ræningjanna og frelsuðu gislana ómeidda. Þó eru nokkrir sem eru I sárum vegna þess sem gerst hefur: eiginkona þýska flugstjórans, sem ræningjarnir myrtu og fjöl- skylda Hans-Martins Schleyers, sem aðrir mannræningjar myrtu I hefndarskyni fyrir árásina og sjálfsmorð þriggja félaga sinna. Þvi miður eru engar likur til að þessum darraðardansi sé nú lok- iö. Þýska stjórnin hefur svarið þess eiö aö koma lögum yfir moröingja Schleyers. Og heiftúðugir vinstri menn viða um heim þykjast hafa harma að hefna vegna árásarinnar á flugvélina og vegna sjálfsmoröa Andreasar Baader og félaga hans. Þegar eru farnar að berast fréttir af árásum á þýskar verk- smiðjur og þýsk fyrirtæki viðs- vegar i Evrópu. Það hafa lika borist ægilegar hótanir um frek- ari morð og hryðjuverk. Það liggur við að það riki hernaðarástand i Vestur-Þýska- landi. Hermenn gráir fyrir járn- um fara þar um götur og bryn- varðar bifreiðar standa fyrir framan opinberar byggingar. Enginn maður i ábyrgðarstöðu þar i landi getur verið óhultur um sig og sina. Kommúnistarnir sem nú herja á þýsku þjóðina hafa sýnt sig að vera sneiddir allri samvisku, ekki siður en Andreas Baader, Ulrika Meinhof og fleiri úr þeirra félags- skap. Kannske hefur þó eitthvað áunnist við þessa atburði. Þær eru nú orðnar mjög ákveðnar, raddirnar sem segja að ekkert dugi til að vinna bug á þessum moröingjalýð nema samstaða allra siðmenntaðra þjóða. tsrael hefur löngum visað veg- inn I því hvernig á að fást við hryðjuverkamenn. öþjóðalýður- inn veit að þar þýðir ekkert að leita eftir samningum. Flug- eða mannræningjar eru skotnir ef þeir reyna eitthvað slikt. Og þetta hefur ekki verið árangurslaust. Þetta kostaði fórnir f upphafi og á kannske eftir aðgera enn. En það er mjög langt siðan reynt hefur verið að hrófla við israelskri flugvél. Akveðin afstaða þýsku stjórnarinnar i þessu máli og hik- lausar aðgerðir franskra yfir- valda þegar ráðist var um borð I Caravelle þotu á Orly flugvelli fyrir skömmu, nægja kannske til að sýna framá að i baráttunni við þessi villidýr þýðir ekki að sýna linkind. Hnefinn er það eina sem þau skilja og það verður ekki fyrr en hnefinn er krepptur með öllum þjóðum, að hægt verður aö vinna bug á þessum lýð. — ÖT. Þetta eru nokkrir morðingjanna. Þeirra er leitað um alla Evrópu. Þau hafa hótað að halda ófram morðum og spellvirkjum Suaanne Albrecht, 26 Willy Peter Stoll, 27 Birgitta Mohnhaupt, 28 Rolf Heissler, 29 Silke Maier Witt, 27 Juliane Plambeck Christian Klar, 27 Sigrid Sternbeck, Adelheid Schultze, 22 Angelica Speilel, 27

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.