Vísir - 12.11.1977, Blaðsíða 3
*r s:<
VISIR
Laugardagur 12. nóvember 1977
Pétur Sveinbjarnarson og Hjalti Geir Kristjánsson á fundi með
fréttamönnum i gær. (Visism. JEG)
A iðnkynningarári var um 8
milljdnum króna til sjónvarps-
auglýsinga og voru birtar 68 aug-
lýsingar i sjónvarpi. íslensk iðn-
kynning hafði milligöngu um
kynningu islenskra iðnfyrirtækja
ifjölmiðlum og fyrir þess tilstilli
var starfsemi 120 iðnfyrirtækja
kynnt. Auk þess fór fram marg-
þætt útgáfustarfsemi á vegum is-
lenskrar iönkynningar.
Hjalti Geir Kristjánsson sagði
að án atbeina fjölmiðla hefði ekki
náðst jafngóður árangur og raun
ber vitni og aldrei áður hefði ver-
ið fjallað jafnmikiö um málefni
iðnaðarins.
Iðnkynningarári lauk með
viðamikilli iðnkynningu I Reykja-
vik sem fór fram samtimis á
fimm stöðum i borginni og sóttu
hana 80.600 manns.
Athyglisverðar kannan-
ir
Islensk iðnkynning samdi við
Hagvang hf. um að fylgjast með
þeim áhrifum, sem iönkynningin
hafði, bæði hvað varðar viðhorf
almennings gagnvart islenskum
iðnaði og breytingum á innkaup-
um fólks.
1 heildarniðurstöðum þeirra
skoðanakannana sem Hagvangur
framkvæmdi kemur fram, að tek-
ist hefur aö auka vitneskju fólks
og breyta viðhorfum almennings
til islenskra iðnaðarvara.
Sem dæmi má nefna, að i sam-
bandi við kaup á Islenskum iön-
varningi telja nú 46% aðspuröra
að fólk hafi i huga þjóðarhag,
gjaldeyrissparnað, tryggingu at-
vinnu og fleira, er það gerir inn-
kaup sln. Við fyrstu könnun voru
aðeins 16% sem höfðu leitt hug-
ann að þessu. Þá telja 91% þeirra
sem spurðir voru að Islensk iðn-
kynning hafi haft jákvæð áhrif.
I lok þessa mánaðar koma aðil-
ar iönaðarins saman til aö meta
stöðuna tilframbúðar. ÞeirHjalti
Geir og Haukur Björnsson sögðu
að nú þyrfti að -vinna meira að
innri málum iðnaöarins, til dæm-
is varðandi aukna menntun iðn-
verkafólks, bæta hönnun og efla
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins.
Kostnaður Islenskrar iðnkynn-
ingar við iðnkynningarárið nem-
ur um 30 milljónum króna. Ekki
liggur fyrir kostnaður einstakra
bæjarfélaga eða fyrirtækja, en þó
er vitað aö þær 43 milljónir sem
Reykjavikurborg lagði fram viö
iðnkynningar I borginni skiluðu
sér til baka I aðgangseyri og
fleiru.
— SG
Siglufirði 6
Kvenfélagið Von Siglufirði á 60
ára afmæli um þessar mundir 1
þvi tilefni heldur félagið afmælis-
fagnað með hátiðarfundi á morg-
un sunnudag sem eingöngu er
fyrir núverandi og fyrrverandi
félagskonur. Einnig verður haid-
in sýning á verkum félagskvenna
sem unnin hafa veriö á námskeið-
um. A sýningunni verður einnig
brugðiö upp svipmyndum úr sögu
félagsins I máli og myndum.
Félagið var stofnað 13. nóv.
1917 og voru félagskonur þá 48.
Fyrsti formaður var frú Indlana
Pétursdóttir Tynes. Félagið hefur
frá stofnun beint starfsemi sinni
að mannúðar- og líknarmálum og
stutt ýmis konar framfaramál I
bænum. 1 mörg ár starfrækti
fólagiö barnaheimili yfir sumar-
. tlmann og byggöi hús yfir þá
starfsemi innan við bæinn.
Félagið hefur staðið fyrir
margskonar námsskeiðum fyrir
konur I bænum, gefið út skrifað
blaö á timabili, safnað fé til
elliheimilis- og sjúkrahússbygg-
ingar.
Strókar stofna tafl
félag ó Seltiarnarnesi
Stofnað hefur verið taflfélag á
Seltjarnarnesi, og er Garöar
Guðmundsson formaður þess.
Nokkrir strákar I Valhúsa-
skóla áttu frumkvæði að stofnun
félagsins en fengu til þess að-
stoð frá Skáksambandi Islands.
I stjórn eru auk Garðars þeir
Gylfi Gylfason, varaformaður,
Sólmundur Kristjánsson, gjald-
keri, Bjarni Alfþórsson, ritari,
og Marinó Njálsson, spjald-
skrárritari, en Varamenn eru
Guðmundur Sigurbjörnsson og
Jón 0. Sólnes.
—ESJ.
Áœtlunorflug liggur
niðri til Bíldudals
Ekkert áætlunarflug er nú
hingað til Kildudals og er það
mjög bagalegt. Forráðamenn
Vængja segja að flugvöllurinn
hafi verið mældur niður i 460
metra lengd, en er 55 metrar.
Vængir geta því ekki lent hér á
þeirri vél sem þeir nota núna og
tekur 19 farþega.
Að visu getur flugvélin lent en
þá aðeins með fjóra farþega inna-
borðs og það samrýmist ekki
þeirra áætlun. Samkvæmt
upplýsingum sem sveitarstjórinn
fékk hjá Vængjum þá er minni
flugvél þeirra i viðgerð erlendis
og var áætlað að sú viðgerð tæki
sex til niu vikur.
Vænglr eiga að vera með áætl-
unarflug hingað tvisvar i viku.
Meðan að allt flug lá niðri hjá
þeim I sumar sendu þeir hingað
litlar leiguvélar annað slagið með
farþega en enga fragt.
Leiguflugvélar frá Flugskóla
Helga Jónssonar hafa komið
hingað daglega að undanförnu og
það hefur bjargað miklu. Þessa
þjónustu hefur Helgi verið með
um árabil og á miklar þakkir
skildar.
Þegaralltlá niðri hjá Vængjum
i sumar óskaði hreppsnefndin eft-
ir því við Flugfélag Islands að það
tæki upp aftur þá þjónustu sem
var áður en Vængir hófu flug
hingað, en þar var um að ræða
áætlunarferðir með bllum milli
Bildudals og flugvallarins á
Patreksfirði. Þessar ferðir voru
þrisvar I viku. Svar hefur ekki
borist og ástandið er mjög slæmt
varðandi flugsamgöngur sem
stendur. _HF/—SG
Frú Indlana Pétursdóttir Tynes
fyrsti formaður kvenfélagsins
Vonar Siglufirði.
Arlega heldur félagið skemmt-
un fyrir eldra fólkið og gleður
sjúklinga á sjúkrahúsinu með
jólagjöfum.
Félagskonur eru nú 116. For-
maður félagsins er frú Erla
Eymundsdóttir. —
ÞRJ, Siglufirði — KS.
BAHAMAKYNNING Á
HÓTEL LOFTLEIÐUM
ar á vegum Flugleiða. Kynning-
arvikan hófst i gær og stendur
til 15. þ.m. Verða á boðstólum
þann tima réttir frá
Bahamaeyjum.
Hljómsveitin hefur verið á
ferðalagi um Evrópu en fer héð-
an til Bahama. —K.S.
„Count Bernadino”
leika fyrir fréttamenn.
,,Lét mig ekki
dreyma um að það væri
svona kalt hérna”,
sagði stáltunnuleikari
hljómsveitarinnar
,,Count Bernadino” frá
Bahamaeyjum i sam-
tali við Visi.
Hljómsveitin kom hingað til
lands i fyrradag og mun leika I
Vfkingasal á Hótel Loftleiðum á
kynningarviku um Bahamaeyj-
Bílmotta
sem heldur
þurru og hreinu
jHvernig er það nú hægt? Jú — í vætu og snjó lætur þú hliðina með
Ikantinum snúa upp. Vatnið safnast í botninn á mottunni en skórnir|
Ihvíla þurrir á upphleyptu munstrinu. Heilt úr eftir þörfum.
] i þurrkatíð lætur þú hina hliðina snúa uppog sandur og aur, sem berst |
linn í bílinn safnast í vöfflumunstraðan botn mottunnar.
jstærðir: 40 x 51 cm og 46 x 57 cm. Margir litir.
IFást á bensínstöðvum Shell.
Olíufélagið Skeljungur hf
II