Vísir - 12.11.1977, Blaðsíða 11
Laugardagur 12. nóvember 1977
15
Um helgina verða úrslit rúðin í Reykjavík:
Örlaggríkasta próf-
kjör Alþýðuflokksíns
Elías Snœland
Jónsson,
blaðamaður,
skrifar um
Þá er komið að úrslitastundu i
margumtöluðu prófkjöri
Alþýðuflokksins i Reykjavik,
þar sem tveir alþingismenn —
annar þar að auki formaður
flokksins — berjast fyrir póli-
tisku lifisinu. tlrslit þess hildar-
leiks munu liggja fyrir aðfara-
nótt mánudagsins, en um áhrif
átakanna á Alþýðuflokkinn i
framtiðinni þora fáir að spá,
enda munu þau ekki koma end-
aniega i ljós fyrr en frá liður.
Enginn þarf að efast um, að
þetta prófkjör verður mun af-
drifarikara fyrir Alþýðuflokk-
inn en þau, sem þegar hafa ver-
ið haldin á hans vegum — og
skildu þau þó flest eftir ýmis
ógróin sár. Það, sem fyrst og
fremst gerir prófkjörið i
Reykjavik svo mikilvægt, er sú
staðreynd, að formaður Alþýðu-
flokksins, Benedikt Gröndal,
hefur ákveðið að leggja póli-
tiska framtið sina að veði. Það
gerði hann með þvi að bjóða sig
eingöngu fram i fyrsta sætið.
Hljóti hann ekki það sæti mun
hann ekki bjóða sig fram fyrir
flokkinn við næstu þingkosning-
ar. Þótt þetta liggi fyrir leggur
hins vegar annar þingmað-
ur flokksins, Eggert G. Þor-
steinsson, meginaherslu á að ná
fyrsta sætinu og ýta Benedikt til
hliðar.
Sex frambjóðendur
i prófkjörinu er kosið um
menn i þrjú efstu sætin á fram-
boðslista flokksins viö næstu
Alþingiskosningar. Frambjóð-
endur eru sex, og bjóða þeir sig
fram i mismunandi sæti, eins og
skýrt kemur fram á sýnishorn-
inu af kjörseðlinum, sem fylgir
þessari grein.
Frambjóðendurnir eru flestir
landsþekktir, og þvi ekki þörf á
að segja itarlega deili á þeim
hér.
Benedikt Gröndal.sem tók við
formennsku i Alþýðuflokknum
haustið 1974, er þekktur bæði
sem blaðamaður og alþingis-
maður, en hann hefur setið á
þingi ýmist sem kjörinn þing-
maður eða uppbótaþingmaður
sinan 1956.
Stuðningsmenn hans leggja
mikla áherslu á, að það kunni að
verða rothögg fyrir Alþýðu-
flokkinn ef formaður hans verði
felldur i Reykjavik. Einnig
hampa þeir þvi mjög, að Bene-
dikt hafi beitt sér fyrir nýjum og
opnari vinnubrögðum innan
flokksins siðan hann tók við for-
mennskunni og mikilvægt sé, að
hann fái að halda þvi starfi
áfram.
Eggert G. Þorsteinsson hefui*
setið á Alþingi siðan 1953, og
gegndi um nokkurra ára skeið
Benedikt Braui
ráðherraembætti i Viðreisnar-
stjórninni. Hann er múrari að
mennt og var lengi virkur i
verkalýðshreyfingunni og einn
helsti forsvarsmaður Alþýðu-
flokksins þar.
Eggert býður sig bæði fram i
fyrsta og annað sætið, en stuðn-
ingsmenn hans leggja nú meg-
ináherslu á að kjósa hann i
fyrsta sætið. Sú staðreynd, að
hann hefur þannig farið fram á
móti formanni flokksins, hefur
skapað mun meiri spennu i
prófkjörinu en ella hefði orðið
og gert átökin harðari. Ljóst er,
að Eggert berst nú fyrir póli-
tisku lifi sinu engu siður en
Benedikt. Hann hefur þó ekki
lagt allt undir i baráttunni um
fyrsta sætið, heldur einnig gefið
kost á sér i annað sætið á listan-
um.
Vilmundur Gylfason, mennta-
skólakennari, býður sig nú i
fyrsta sinn fram á sviði stjórn-
málanna, þótt hann hafi auðvit-
að verið tengdur Alþýðuflokkn-
um. Hann var lengi i vafa um,
hvort hann ætti einungis að fara
i annað sætið, en ákvað að lok-
um að fara einnig i fyrsta sætið.
Mun áeggjan úr föðurgarði hafa
ráðið þar miklu um. í reynd
stefnir Vilmundur á annað sæt-
ið.
Vilmundur hefur vakið mikla
athygli á undanförnum árum
fyrir haröorða gagnrýni á
„kerfið og spillinguna”, eins og
það er stundum orðað, og vafa-
laust aflað sér fylgis af þeim
sökum. Hann er hins vegar af
þessum sökum mjög umdeildur
innan flokksins, eins og við er að
búast.
Eggert Jóhanna
Sigurður E. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Húsnæðis-
málastofnunar rikisins, hefur
um árabil verið meöal forystu-
manna Alþýðuflokksins i
Reykjavik, og var t.d. lengi for-
maður flokksfélagsins. Hann
hefur einnig átt sæti á fram-
boðslistum flokksins við undan-
farnar kosningar, og var i þriðja
sætinu 1971, en i einu af neðstu
sætunum 1974. Hann býður sig
nú fram i öll þrjú sætin, og að
sögn stefnir hann fyrst og
fremst á þriðja sæti listans.
Bragi Jósepsson, námsráð-
g'jafi, býður sig fram i 2. og 3.
sæti, og stefnir að þvi að ná
þriðja sætinu. Hann bauð sig
einnig fram i prófkjÖFÍnu vegna
borgarstjórnarkosninganna og
þá i fyrsta sæti, en náði ekki
kjöri. Bragi hefur um nokkura
hrið átt i frægri baráttu við
„kerfið” og var aðalhvatamað-
ur að stofnun „Islenskrar
réttarverndar”, sem hann er
formaður fyrir. Hann var áður i
Siguröur Vilmundur
SFV og m.a. i framboði fyrir
þann flokk, en gekk til liðs við
Alþýðuflokkinn fyrir siðustu
kosningar og hefur starfað þar
siðan.
Jóhanna Sigurðardóttir gefur
kost á sér i þriðja sætið og er
eina konan, sem tekur þátt i
prófkjörinu. Má ætla, að það
verði henni til nokkurs stuðn-
ings i baráttunni um þriðja sæt-
ið við þá Braga og Sigurð, þótt
hins vegar sé langt frá þvi, að
Alþýðuflokkskonur standi ein-
huga á bak við framboö hennar.
Jóhanna er af þekktri „Alþýðu-
flokksætt” — dóttir Sigurðar
Ingimundarsonar fyrrum þing-
manns flokksins — og hefur
nokkuð starfað að verkalýös-
málum innan VR.
Þetta eru frambjóðendurnir,
en hverjir þeirra verða útvaldir
nú um helgina er ógerlegt um að
segja.
Synishorn af kjörseðli viö profkjör Alþýðuf lokksins til Alþingis- kosninga i Reykjavík 12. og 13. nóvember 1977 ATIUUID I Kjia..,«.! euin IidmbjnAenda 1 hverl uni
J öheimili er að kjou afira en þa xm 1 frambnfi eru
1 UH. 1
i l Bened'k, Crond*.
G Br.S, JOWpíWn Br^, JOMPUOfl
’ UrY'níwn □ E##TjULcn
£ • ^jvrfiv^t S fiuti
Y(Ufcjnnl)fim
Sýnishorn af kjörseðlinum i
prófkjöri Alþýðuflokksins nú
um helgina.
Kjörstaðir og
Kosningaskrifstofur
Atkvæðagreiðslan hefst
klukkan eitt i dag og stendur tii
kl. 19, og svo á morgun frá kl. 10
til 19. Strax að atkvæðagreiðslu
lokinni verður kjörkössunum
safnað saman og siðan hefst
talning. Tilkynnt verður um
stöðuna i talningunni við og við i
Kristalssal Hótel Loftleiða á
sunnudagskvöld og eitthvað
fram eftir nóttu.
Kjörstaðir eru fjórir: Drafn-
arfell 2-4 fyrir Breiðholtið,
Fáksheimilið fyrir Árbæjar-
hverfi, Fossvog, Smáibúða-
hverfi og Bústaðahverfi að
Grensásvegi að vestan og
Miklubraut að norðan, Siðu-
múla 37, 1. hæð, fyrir svæðið
norðan Miklubrautar að Snorra-
braut ásamt Hliða-, Háaleitis-
og Hvassaleitishverfi, og Iðnó,
uppi, fyrir allt svæðið vestan
Snorrabrautar aö Seltjarnar-
neskaupstað.
Allir frambjóðendur hafa
kosningaskrifstofur um helgina.
Benedikt i kaffiteriunni i
Glæsibæ, simar 84463, 84497 og
85427, Bragii Breiðfirðingabúð,
simar 82058, 29102 og 85698,
Eggert að Grensásvegi 22-24,
simar 83912, 82653 og 83054,
Jóhanna að Kleppsvegi 33, 4.
hæð, simi 38383, Sigurður að
Seljabraut 54 i Breiðholti, og
Vilmundur að Garðastræti 2,
Simar 29136 og 29145.
Frambjóðendur hafa yfirleitt
sent frá sér dreifibréf af ýmsu
tagi, og stuðningsmenn Bene-
dikts gáfu i gær út átta siðna
blað i dagblaðsbroti. —ESJ
HAUSTHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS1977
'
10 vinningar:
HITACHI LITSJÓNVARPSTÆKI
Verömæti samtals kr. 2.500.000,-
Afgreiðslan er í Sjálfstœðishúsinu
Háaleitisbraut 1. Opið frá kl. 9-22
SÆKJUM
DREGIÐ
I KVOLD
SENDUM
Hringið í síma 82900 og greiðsla verður sótt heim ef óskað er.
IlÍIFHÐ er eehkijr
og í JOKER gengur það sinn vanagang
I leiktœkjasalnum Grensásvegi 7
fjöldinn allur af leiktœkjum
sem stytta stundirnar
M.a. Alls konar kúluspil, boxtæki, körfuboltatæki, vél-
byssa, riffill, loftvarnarbyssa, karatetæki, gjafmildur fíll,
þyrla og m.fl.
Gos og sælgæti
Lítið inn
Opið alla daga frá kl. 12-23.30
Leiktœkjasalurinn
Grensásvegi 7