Vísir - 14.11.1977, Side 1
Mánudagur 14. nóvember 1977 — 281. tbl. 67. árg.
Sími Visis er 86611
5491 tók
þótt í próf
kjörs Alþýðu-
flokksins
um helgina:
VILM UNDUR OG BlNí-
DIKT FELLDU EGGERT
Benedikt Gröndal
var kjörinn i fyrsta
sætið Vilmundur
Gylfason i annað sætið
og Jóhanna Sigurðar-
dóttir i þriðja sætið i
prófkjöri Alþýðu-
flokksins i Reykjavik
um helgina. Eggert G.
Þorsteinsson alþingis-
maður náði hvorki
kjöri í fyrsta né annað
sætið.
Fyrstu tölur voru birtar um
kl. 23 i gærkvöldi og héldust þau
hlutföll á milli manna sem þá
komu fram, allan timann. Tölur
voru tilkynntar I Kristalsal Hót-
el Loftleiða að viðstöddu fjöl-
menni og komu sigurvegararnir
Benediktog Vilmundur, þangað
um tólfleytið og var vel fagnað.
Endanleg úrslit urðu sem hér
segir:
Alls kusu 5491, eða 1444 fleiri
en kusu flokkinn i siðustu al-
þingiskosningum i Reykjavik.
Aukningin nemur 35.7%.
Ógild atkvæði voru 410, yfir-
leitt vegna þess að ekki var kos-
ið I öll þrjú sætin. Gild atkvæði
voru þvi 5081.
Af þessum gildu atkvæðum
hlutu i fyrsta sæti:
Benedikt Gröndal 2.443 eða
48.1%, Eggert G. Þorsteinsson
1.355 eða 26.7%. Vílmundur
Gylfason 1214 eða 23,9% Sig-
urður E. Guðmundsson 69 eða
1,3%.
Atkvæðin i annað sætið skipt-
ust þannig:
Vilmundur Gylfason 2.586 eða
50.9% Sigurður E. Guðmunds-
son 942 eða 18.5% Bragi Jósefs-
son 777 eða 15.3%. Eggert G.
Þorsteinsson 776 eða 15.3%.
Vilmundur hlaut sameigin-
lega 11. og 2. sætið 3.800 atkvæöi
eða eða 74.8% en Eggert 2.131
atkvæði.
Atkvæði i 3. sætið:
Jóhanna Sigurðardóttir 2.995
eða 58.9% Bragi Jósefsson 1.184
eða 23.3% Sigurður E. Guð-
mundsson 902 eða 17.8%
Bragi hlaut sameiginlega i 2.
og 3. sætið 1.961 atkvæði og Sig-
urður E. Guðmundsson hlaut
sameiginlega i öll þrjú sætin
1.913 atkvæði.
— ESJ
Benedikt Gröndal fagnar sigri i nótt.
Ljósmynd: Axel
„Heldur blouf víst"
— sagði einn mannanna, sem hröktust ó gúmbóti í ísafjarðardjúpi í nótt
„Þetta var heldur
blaut vist, þvi að við
fórum allir i sjóinn”,
sagði Sigurður Egg-
ertsson, einn bátsverja
á gúmmibátnum frá
Æðey, sem hvolfdi i
nótt vestur i ísafjarð-
ardjúpi, þegar Visir
náði tali af honum um
borð i Hugrúnu frá Bol-
ungarvik i morgun.
Sigurðursagði að með honum
hefðu verið á bátnum beir Guð-
jón Haröarson og Jónas Helga-
son. Þeir félagarnir voru búnir
aö hanga á bátnum i tæpa fimm
tima áður en þeim var bjargað
laust fyrir kl. 8 i morgun. Sagði
Sigurður að það heföi gengið
ágætlega, en vistin hefði verið
slæm. Leiðindaveðurhefði verið
og gekk sjór yfir þá annað slag-
ið.
,,Það hvarflaði ekkert að okk-
ur að við værum i lifshættu. Við
bjuggumst við að okkur mundi
reka á land fyrr eða siðar. Þeg-
ar bátnum hvolfdi i nótt, fórum
við allir i sjóinn, en náðum strax
taki á bátnum.
Viö erum allir við sæmilega
heilsu og þökkum við það fyrst
ogfremstþvi aðvið vorum ailir
vel klæddir”.
Tveir mannanna eru 23ja ára
gamlir, en sá þriðji um þritugt.
Nánar segir frá leitinni á bak-
siðu. SJ
„Boðar nýja og betri
tíð í Alþýðuflokknum"
— sagði Vilmundur Gylfason um úrslitin í morgun
,,Þetta er traust borg-
aranna við blaða-
mennsku mína og við
nýjan og betri Alþýðu-
flokk”, sagði Vilmundur
Gylfason, menntaskóla-
kennari um úrslitin i
morgun, „Næsta skref
er að bregðast ekki
borgurunum”.
Vilmundur sagði, að sér hefði
ekki komið á óvart hversu afger-
andi úrslitin voru þegar ljóst varð
á sunnudaginn hversu kjörsóknin
var mikil.
;,Það er ekki nokkur vafi að
þessiúrslitboða nýja og betritið i
Alþyðuflokknum”, sagði hann.
—ESJ
r
„Anœgjuleg úrslit fyrir marga
aðila í Alþýðuflokknum”
— sagði Benedikt
„Kosningaúrslit hafa sjaldan
verið jafn ánægjuleg fyrir jafn
marga aðila i flokkiium”, sagði
Benedikt Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, i ávarpi, sem
hann flutti i nótt i Kristalsal Hótel
Loftleiða þegar úrslit i prófkjöri
Alþýðuflokksins voru Ijós.
Benedikt þakkaði það traust,
sem honum var sýnt i prófkjör-
inu, og sagði að prófkjörs-
baráttan hefði verið hörð en
drengileg.
Hann lét svo ummælt i lokin, að
Alþýðuflokksmenn myndu halda
stærri hátið að vori. —ESJ
„Þetta þýðir kafla-
skipti í lífi mínu"
— sagði Eggert G. Þorsteinsson í morgun
„Þessi úrslit þýða algjör kafla-
skipti i lifi minu, sem horfast
verður i augu við”, sagði Eggert
G. Þorsteinsson, alþingismaður, I
viðtali við Visi i morgun um úr-
slitin i prófkjöri Alþýðuflokksins.
Eggert sagði, að þessi úrslit
hefðu að sjálfsögðu komið sér
mjög á óvart.
Aðspurður hvort hann myndi
hætta stjórnmálaafskiptum við
næstu þingkosningar, sagöi Egg-
ert:
„Ég vil engu um það spá svona
i fljótu bragði. Það er hins vegar
alveg augljóst mál, að ég verð
ekki i framboði fyrir Alþýðu-
flokkinn. Dómur er fallinn i þvi
efni, og dómum ber að hlita.
Engar aðrar hugmyndir eru uppi
á þessu stigi málsins”.
—ESJ.
„Bjóst ekki við þessu"
— segir Jóhanna Sigurðardóttir
„Ég bjóst alls ekki við
að fá svona mikið af at-
kvæðum, en er auðvitað
mjög ánægð og má vel
við una”, sagði Jóhanna
Sigurðardóttir-
Er hún var spurð hvort konur
hefðu einkum stutt hana, sagðist
Jóhanna telja það ugglaust mætti
reikna með þvi og svo frá fólki
sem vildi fá brey tingu i flokknum.
Atkvæðamagn bennar og Vil-
mundar benti til þess.
—SG