Vísir - 14.11.1977, Blaðsíða 2
Mánudagur 14. nóvembcr 1977 VISIR
c
í Reykjavik
------y----
D
Áttu erfitt með að vakna
á morgnana i skamm-
deginu?
Hjörtur Guömundsson, leigubll-
stjóri: Ég á mjög gott meö aö
vakna þá.
Kristinn Þórhallsson sölumaöur:
Já, mjög erfitt, vildi helst breiöa
upp yfir haus og sofa fram undir
hádegi.
Aöalheiöur Magnúsdóttir, skrif-
stofustúlka: Nei, þaö er enginn
vandi. Ég á yfirleitt gott meö aö
vakna á morgnana.
Birna ögmundsdóttir, húsmóöir:
Já, svo sannarlega.
Myrkriö hefur slæm áhrif á
morgnana en ekkí á kvöldin.
Willy Petersen, blikksmiöur:Nei,
þaö gengur ágætlega. Ég er alltaf
vaknaöur fyrir kl. sjö.
Taka þótt í litríkum kennsluadferðum í Danmörku:
KEI AÐ SÉI 4NA FÓLKI SKEMMTA SJÁLFT
Tveir ungir íslendingar, Árni Pétur Guðjónsson og
AAargrét Árnadóttir, starfa um þessar mundir með
nýstárlegum leikhópi sem ferðast um Danmörku við
miklar vinsældir.
Leikhópurinn gengur undir nafninu Kraka og eru í
honum auk þeirra Árna Péturs og AAargrétar þrír
Danir. Þau hafa öll lokið 11 mánaða námi í leiklistar-
kennslu, eða drama pædagogik, við Herning Höjskole í
Danmörku, og voru þau fyrstu nemendurnir sem út-
skrifast með þessa menntun í Danmörku.
Kenna fólki að tjá sig
Leikhópurinn kemur ekki
fram i leikhúsum, heldur skól-
um, á vinnustöðum og viðar.
Þau klæðast marglitum bún-
ingum og bera fyrirferðar-
miklar hárkollur og skringi-
legar grimur. t þessum búning-
um ganga þau um á háum stult-
um og blága i lúðra.
Með þessu vilja þau breyta
umhverfi sinu og gera það hlý-
legra og manneskjulegra. Segj-
ast þau vilja fá fólk til að upp-
götva að i sameiningu geti það
gert eitthvað fyrir umhverfi
sitt.
Þetta starf á að vera mótvægi
við helstu skemmtanir nútim-
ans, þar sem ekki er annars
krafist. af fólki en þaö hlusti og
horfi á. Á skemmtunum Kroku
eru áhorfendur sjálfir þátttak-
endur. Þau kenna fólki hvernig
megi eyða fritimanum og gera
lifið skemmtilegra.
Leikhópurinn kemur með efn-
ið og hugmyndirnar, en allir
taka þátt i að búa til grimur,
smiða frumstæð hljóðfæri,
sauma búninga og semja litil
ævintýri. Ahorfendum, ef það er
rétta orðið, er skipt i hópa, sem
siðan vinna hver að sinni smá-
sýningu.
I smábæjum og
úthverfum
Kraka-leik-hópurinn hefur
aðallega starfað i smábæjum
Danmerkur og úthverfum
borga. Danska rikið styrkir
starfsemina og einnig hafa
sveitarfélögin greitt þeim laun.
Nám i leiklistarkennslu var
skipulagt af forystumönnum
Danska áhugamannaleikhúss-
ins og hefur það aðallega verið
fólgið i námskeiðum hjá erlend-
um og innlendum leikstjórum
og leikhópum. Meðal annars
hafa þeir komið frá Bandarikj-
unum, Bretlandi og Argentinu.
Kraka-hópnum var i sumar
boðið til Sviþjóðar á leiklistar-
hátið og tóku þau virkan þátt i
hátiðinni. Einnig fóru þau til
ítaliu i haust á leikhátið hins
svokallaða Þriðja leikhúss, þar
sem leikhópar voru saman
komnir frá flestum löndum
heims.
í Danmörku hefur starf þeirra
helst beinst að atvinnuleysingj-
um, eldra fólki og unglingum,
en einnig heimsóttu þau ferða-
mannabæinn Vigsö. Þar vakti
dvöl þeirra mikla ánægju og
tókst þeim að kynna ferða-
mennina hvern fyrir öðrum og
fá þá til að skemmta sér saman.
Arni Pétur og Margrét höfðu
bæði stundað leiklistarnám áður
en þau tóku þetta nýstárlega
nám fyrir. Meðal annars hafði
Árni Pétur verið eitt ár við nám
i Konunglega leikhúsinu i Kaup-
mannahöfn. Frá Herning Höj-
skole útskrifuðust þau með
kennaráréttindi.
—SJ
DJUPHAFSFISKURINN I FRAMSOKN
Fulltrúaráö Framsóknarfé-
laganna I Reykjavlk efndi til
fundar s.I. fimmtudagskvöld,
þar sem freista átti þess aö
kveöa niöur prófkjörsupphlaup
Kristjáns Friörikssonar, en
hann tók sig til þvert ofan I vilja
flokkseigenda, og safnaði til-
skildum undirskriftum um á-
skorun um prófkjör. Jafnframt
hafa Framsóknarmenn sagt af
þvisögurað Kristján byöi fólki I
kvöldkaffi heim til sin, svona
tuttugu manna hópum I einu, til
aö undirbúa átökin I prófkjör-
inn. Allt verkaði þetta eins og
meiriháttar uppreisn gegn
niðurrööuöu og frágengnu
mannahaldi flokkseigendanna I
Reykjavik, og þótti þeim súrt ef
óbreyttur flokksþjónn ætlaöi aö
gera allt vitlaust út af þeirri
þráhyggju að koma hagkeöj-
unni inn á Alþingi.
Kristján Friöriksson mun
hafa haft nokkrar áhyggjur af
þvi aö meö fundinum I fulltrúa-
ráöinu ætti aö beita hann ofbeldi
og kúgun og þá, sem skrifuöu
undir áskorun um prófkjör. En
aögerðirnar sncrust I höndum
flokkseigenda þannig', aö full-
trúaráðiö samþvkkti prófkjör
meö 84 atkvæöum gegn 14. Er
þvi sýnt aö hagkeðjan fær sitt
tækifæri, þótt eftir sé aö sjá
hvað hún dregur langt viö að
koma höfundi sinum, Kristjáni
Friðrikssyni, I viðunandi sæti,
þ.e. annað sætiö, á framboðs-
lista flokksins I Reykjavlk.
Helsti talsmaöurinn gegn
prófkjörinu á fulltrúaráðs-
fundinum var Eysteinn Jóns-
son, fyrrverandi formaður
flokksins. Hamaðist hann hvað
eftir annað I ræðustól gegn þess-
ari vitleysu og taldi prófkjörinu
allt til foráttu. Eysteinn er af
gamla skólanum og getur illa
hugsað sér að fólk úti I bæ sé að
ráðslaga meö fjöregg flokksins,
I þessu tilfelli þá Þórarinn Þór-
arinsson og Einar Agústsson.
Þá mun hinum gamla fjármála-
ráöherra þykja sem hagkeöjan
veröi ekki til aö leysa úr bráöum
efnahagsvanda, og heldur mun
hann hafa Iltiö álit á Kristjáni
Friörikssyni sem stjórnmála-
manni. En verst mun honum þó
þykja, aö meö prófkjörinu er
veriö aö útsetja Þórarinn Þór-
arinsson fyrir óþarfa hnjasl, en
Þórarinn cr sá maður flokksins
á þingi, sem úrræðamestur má
kallast, og sér auk þess um
samhengiö, sögulegt og per-
sónulegt, sem Eysteinn ræktar
Kristján Friöriksson
ágætlega af þvl hann hefur ekki
alveg sleppt hendinni af flokkn-
um ennþá. Sem formaöur
stjórnar SÍS heldur Eysteinn
raunar hlut flokksins I hendi
sér, og þess vegna viröist
heilsusamlegt fyrir núverandi
flokksforustu aö hlusta a.m.k. á
ráöleggingar hans. Viö þau hug-
renningaskipti er Þórarinn al-
veg ómissandi maður.
Prófkjör þýöir aftur á móti aö
næstum er útilokað að Þórarinn
nái kjöri I fyrsta sæti á listan-
um. Siðast þegar prófkjör fór
fram var Einar miklu hærri I
fyrsta sætið, en hann gaf Þór-
arni þaö eftir enda hefur Þórar-
inn reynslu af þvi aö annað er aö
ná til fólksins en vera kjörbarn
flokksforustunnar.
Slagurinn I fulltrúaráöinu
snerist þvi aö mestum hluta um
það lif Þórarins Þórarinssonar,
sem flokkseigendafélagiö hefur
taliö sina eign. Áttatiu og fjórir
Evsteinn Jónsson
dyggir flokksþjónar skyldu
þetta ekki og þess vegna barðist
Eysteinn fyrir daufum eyrum.
Auk þess naut nú ekki Kristins
við lengur, en hann hefur dregiö
sig i hlé af heilsufarsástæðum.
Hinar raunverulegu ástæður
eru þó að likindum þær, að upp-
lausnin, sem prófkjöriö hefur I
för meö sér I svo agasömum
flokki og Framsóknarflokkur-
inn er, hefur ekki veriö Kristni
aö skapi.
Framundan er svo baráttan
fyrir pólitisku lifi Þórarins Þór-
árinssonar. Þótt pólitisk skrif
hans i Timann bendi ekki til
mikilla yfirburða, kann hann
vel til verka I myrkum baksöl-
um stjórnmálanna. Þar er hann
eins og kunnur djúphafsfiskur
með ljóstýru. Slíkir menn eru
flokkum nauðsynlegir. Enginn
veit þaðbetur en Eysteinn. Þess
vegna styöjum viö Þórarinn i
væntanlegu prófkjöri.Svarthöfði
Þórarinn Þórarinsson