Vísir - 14.11.1977, Blaðsíða 32
VÍSIR
Mánudagur 14. nóvember 1977
ðÉ SANYO 20" litsjónvarpstœki fró ^ími 86611
YjHÍW '“3 ™ ■ ■ Opiö virka daga tii kl. 25
GUNNARI ASGEIRSSYNI er vinningurinn I Sunnudaga kl. 18-25
smáaugiýsingahappdrœtti Visis. DREGIÐ 21 NGV.
22.00
Umfangsmikil leit að báti með þrem mðnnum í ísafjarðardjúpi:
Bátnum hvolfdi en mennirnir
héngu á honum í fimm tíma
Leitað var í alla nótt að
gúmmíbét með þremur
mönnum innanborðs.
Fannst báturinn og
mennirnir heilir á húfi
rétt fyrir klukkan átta í
morgun. Höfðu þeir þá
komistá kjöl og legið þar
í fimm tíma.
Mennirnir, tveir frá Bolung-
arvik og einn frá Æðey, lögðu af
stað frá Æðey um klukkan tiu i
gærkvöldi og áætluðu að vera
komnir til Bolungarvikur um
klukkan 11. Voru þeir á gúmmi-
bát með utanborðsmótor.
Þeirra var fljótlega saknað og
voru björgunarsveitir við ísa-
fjarðardjúp kallaðar út til leit-
ar. Samkvæmt upplýsingum
Sigurðar Þórðarsonar formanns
björgunarsveitarinnar i Súða-
vik, heyrðu leitarmenn sem
staddir voru við Eyri i Seyðis-
firði snemma i morgun, menn
kalla. Reyndust það menn þeir,
sem saknað var.
Vélbáturinn Hugrún frá Bol-
ungarvik fór þá þegar á vett-
vang og fann mennina rétt fyrir
klukkan átta i morgun. Mótor-
inn i gúmmibátnum hafði bilað
fljótlega eftir brottför en
mennirnir reyndu lengi að halda
bátnum á réttum kili. Honum
hvolfdi þó og lentu mennirnir i
sjónum, en komust upp á bátinn
og höfðust mennirnir þrir við á
kilinum i fimm tima eða þar til
þeir fundust. Voru þeir þá við
Traðarsker i Seyðisfirði.
Mennirnir voru furðu vel á sig
komnir þrátt fyrir volkið. Veður
á þessum slóðum var leiðinlegt,
hvasst og um 4ra stiga frost.
Skipstjóri á Hugrúnu er t3uðjón
Kristjánsson.
—EA/FH, Súðavik
71 árs
gömul kona
lést í um-
ferðarslysi
Sjötiu og eins árs gömul
kona lést i umfcrðarslysi á
Akureyri á laugardagskvöld.
Hún hét Helga Sigurjónsdótt-
ir, til heimilis að Lyngholti 1,
Akurcyri.
Slysið varð á mótum Höfða-
hliðar og Hörgárbrautar rétt
fyrir klukkan hálf tólf á
laugardagskvöld. Helga heitin
var að fara yfir götuna er hún
varð fyrir bfl sem kom sunnan
eftir götunni. Hún mun hafa
verið látin er komið var með
hana á sjúkrahúsið á Akur-
eyri.
—EA
Haraldur talinn af
Báturinn Ilaraldur SH 123 er
nú talinn af. Með honum fórust
tveir menn. Bragi Þór
Magnússon fæddur 1949, lætur
eftir sig eiginkonu og fjögur
börn og Benedikt Gunnlaugs-
son fæddur 1943, lætur eftir sig
eiginkonu, eitt barn og þrjú
uppkomin stjúpbörn.
Þeir voru báðir búsettir á
Grundarfirði.
—EA
BSRB-fólk samþykkti
Hinir nýju kjarasamningar
BSRB og rikisins voru sam-
þykktir með talsveröum meiri-
hluta atkvæða i kosningunni um
þá sem fóru fram um helgina.
Á kjörskra voru 9000 banda-
lagsmenn og um 6050 þeirra
greiddu atkvæði eða 67%. Búið
er að telja öll atkvæði nema um
100, sem ekki hafa náðst inn
vegna slæms simasambands.
„Já” við samningunum sögðu
4488 eða 75%, „Nei” sögöu 1132
eða 19%, auðir seðlar voru 330
eða 5.5% og ógildir voru 8.
,,Það sem nú gerist” sagði
Haraldur Steinþórsson fram-
kvæmdastjóri BSRB i morgun,
„er að á næstu 45 dögum eiga
sér stað viðræöur milli aðila frá
fjármálaráðuneytinu og rikis-
starfsmannafélaganna um sér-
kjarasamninga, og hafi þéir
ekki komist að samkomulagi
fyrir þann tima, fer málið fyrir
dómstól sem heitir Kjaranefnd.
Kjaranefnd skilar siðan úr-
skurði sinum eftir aðra 45 daga,
sem veröur um miðjan febrú-
ar”. ga
Ófœrt é flesta staði
í innanlandsflugi
„Það er fljótt sagt, það var
ekkertflogið I gær vegna veðurs
og dtlitið ekki bjart fyrir daginn
I dag”, sagði Pétur Maack, af-
greiðslustjóri I innanlandsflugi
hjá Flugleiðum, I samtali við
VIsi i morgun.
Færtvar til Vestmannaeyja I
morgun en ófært til Norður- og
Austurlands, allt frá Akureyri
að Hornafirði. Ekki hafði heyrst
frá Isafirði en trúlega verður
ekki flogiö þangað i dag. Hins
vegar sagði Pétur Maack að
flogið yrði til Færeyja I dag, en
þangað hefur verið ófært siðan á
fimmtudag i siðustu viku.
Hjá Vængjum fékk blaðið þær
upplýsingar hjá Jónasi Sigurös-
syni að flogið hefði verið til
Blönduóss i gær en i dag væri
eingöngu áætlað að fljúgá á
Stykkishólm og Rif. Litlar Hkur
væri til þessað flogið yrði á aðra
staði. —SK
Dreifðu 80 tonnum af saltii
Borgarbúar fengu I morgun
að njóta þeirrar þjónustu, sem
gatnamálastjóri lofaði ef þeir
hættu að aka um götur borgar-
innar á nagladekkjum.
Þegarmennkomu á fætur var
snjór yfir öllu, en búið var að
saltbera göturnar þannig að
akstur og umferð gekk mjög
vel. Var búið að dreifa salti yfir
allar götur nema minni umferð-
argötur og staði þar sem litil
umferð er.
Samkvæmt upplýsingum sem
Visir fékk hjá gatnamáladeild,
voru þrir bilar komnir af stað
með salt klukkan fjögur i nótt,,
og voru þeir búnir að bera á all-
ar helstu götur þrem timum sið-
ar.
Voru það götur sem vagnar
SVR aka um, svo og allar helstu
tengibrautir i borginni. Voru
borin áttatiu tonn af salti á göt-
urnará þessum þrem timum, en
það er óvenju mikið enda að-
stæður slæmar — þykkur is yfir
öllu og snjór ofan á. — klp
Undanþógu
lofað,
en...
Þaö er kerf ið sem ræð-
ur, en ekki ráðuneyti eða
önnur yfirvöld. Kerfið
krefst þess skákmeistar-
arnir Hort og Spassky
greiði samtals900 þúsund
í skatta hér þótt fjár-
málaráðuneytið hafi gef-
ið skriflegt vilyrði fyrir
niðurfellingu skatta áður
en einvígi þeirra hófst
siðast liðinn hefur.
Kerfíð heimtar skatt
af Spassky og Hortl
Fyrir skömmu barst Skák-
sambandinu skattseðlar fyrir
þá Hort og Spassky. Samkvæmt
þeim á Hort að greiða um 400
þúsund krónur i skatta vegna
verðlaunanna sem hann fékk
hér og Spassky á að greiða 500
þúsund.
„Mér finnst þetta einkennileg
sending. Áður en einvigið hófst
gaf fjármálaráðuneytið okkur
skriflegt vilyrði um að verð-
launin skyldu undanþegin skatti
og borgarráö gaf undanþágu á
útsvari”, sagði Einar S. Einars-
son, forseti Skáksambandsins, i
samtali við Visi i morgun.
Hann sagði að loforð borgar-
ráðs hefði staðið og ekkert út-
svar lagt á skákmeistarana.
Hins vegar leggur rikið á þá
tekjuskatt hvað sem ráðuneyt-
isbréfi liður. „Að sjálfsögðu
munum við krefjast þess að
staðið verði við þetta fyrirheit”,
sagði Einar.
Verðlaun Spassky námu um
1,5 milljónum króna en Hort
fékk um 1,2 milljónir króna i
einn hlut. —SG