Vísir - 17.11.1977, Síða 20
20
Fimmtudagur 17. nóvember 1977
VISIR
Úr fteimi frímerkjanna
Umsjón: Hálfdan Helgason
1‘orens Rafn
SigurðiH* Pétursson
íslonds-
samlarna
15 ára
Fyrir rúmum 15 árum, þann
16. jánúar 1962, var stofnað i
Stokkhólmi i Sviþjóð félag
frimerkjasafnara, sem hlaut
nafnið ISLANDSSAMLARNA.
Naf ngiftin hefur sjálfsagt komið
nokkuð af sjálfu sér, þvl félags-
menn voru allir áhugamenn um
söfnun islenskra frimerkja og
með félagsstofnuninni var ætlað
að stuöla enn frekar að söfnun
og rannsókn íslenskra fri-
merkja. Þremur árum siöar var
svo stofnuð i Gautaborg sérstök
deild úr félaginu og með
árunum hefur félaginu vaxiö
svofiskurumhrygg (enda engir
venjulegir menn, sem eru þar i
forsvari) að félagsmenn eru nú
hátt á fjórða hundraðinu.
Tengsl félagsins viö Islenska
safnara hafa frá upphafi verið
mikil og góð og er þess
skemmst að minnast er
fVdagar úr Islandssam larna
heiðruðu Félag frimerkjasafn-
ara i Reykjavik meö þátttöku i
afmælissýningu F.F. á siðast-
liðnu sumri. A þeirri sýningu
hlaut formaður Islandssaml-
arna, Bernhard Beskow, gyllt
silfur fyrir frábærlega fallegt
safn Islenskra skildingamerkja.
Fyrir þá, sem safna
Islenskum frimerkjum og vilja
kynnast þeim og islenskri póst-
sögu náiö, er félagsbréfið
Rapport ómetanlegt en það er
sent til félagsmanna fjórum til
fimm sinnum á ári. Sem dæmi
um efnisvalmá nefna aö nýlega
skrifuðu þeir félagarnir Tore
Runeborg og Per V.A. Hanner,
all ýtarlega og skemmtilega
grein um eftirstimplanir is-
lenskra frimerkja. Einnig má
nefna grein Færeyingsins Ing
vards Jacobsens um færeysku
merkin 1940-1941. Var vel til
fundið að birta þá grein, þvi
þrátt fyrir nafn félagsins, nær
söfnunarsvæði félagsmanna
einnig til Færeyja, Grænlands,
Dönsku Vesturindla og Slés-
vikur.
Þó að afmælisdagur félagsins
sé 16. janúar eins og áður sagði,
hefur verið ákveðið að halda
upp á 15 ára afmælið með
hátfðasamkomu þann 3. des-
ember n.k. Sama dag fer fram
veglegt uppboð og hefur upp-
boösskrá þegar verið send
félagsmönnum. Er uppboðs-
efnið hið glæsilegasta enda álit
margra að hvergi sé jafn fjöl-
breytt og gott úrval islenskra
frimerkja og i Sviþjóð. Auk
þessa mun svo félagiö standa
fyrir frimerkjasýningunni
ALLTING77,sem haldin verður
á Póstsafninu I Stokkhólmi dag-
ana 2. desember til 15. janúar
1978. í sambandi við sýninguna
mun sænska póststjórnin nota
sérstimpil við mynd af islenska
fálkanum sem er nokkurs konar
féiagstákn Islandssamlarna.
Þeir sem áhuga hafa á að
gerast félagar i Islandssaml-
arna ættu að skrifa til:
Föreningen Islandssamlarna,
c/o Tore Runeborg, Birger
Jarlsgatan 66 II 114 20 Stock-
holm, Sverige, en hann mun
áreiðanlega gefa allar nánari
upplýsingar.
JUPHILUX 78
ILuxembourg verðurhaldin
5. alþjóðlega sýning ungra
safnara, þ.e. þeirra sem eru
yngri en 21 árs. Sýningin
stendur dagana 6-10 april
1978 og hefur hlotið nafnið
JUPHILUX 78. Þátttakendur
eru um 500 talsins frá 41 landi
og munu þeir sýna um 500.000
frimerki i 1500 sýningar-
römmum. 1 sambandi viö sýn-
inguna mun póstmálastjómin
i Luxembourg gefa út minn-
ingarörk, sem verður til sölu
dagana 3.-10. april eingöngu.
Verðgildi arkarinnar eru 31 F
en verð hennar hinsvegar 60
F, sem mun jafngilda um það
bil 360 krónum islenskum.
Þeir sem hafa áhuga á að
eignast þessa örk geta sent
pantanir ásamt greiðslu til:
Direction des Postes Office
des Timbres, P.B.
Luxembourg. Hverri örk fylg-
iraðgöngumiðiað sýningunni.
JOLAFRIMERKI
Póststjórnirf jölmargra landa
gefa út sérstök frimerki, sem
aðallega eru ætluð á jólapóst-
inn.
Nú I ár eru Sviar timanlega á
ferðinni og i dag (17. nóv.) koma
út hjá þeim 6 frimerki með
myndum af ýmiskonar jóla-
undirbúningi. Þrjú merkjanna
eru að verðgildi 75 aurar og þr jú
að verögildi 1.10 kr.
Þann 7. desember verða gefin
út I Liechtenstein fjögur jólafri-
merki með verögildunum
10,50,80 og 150 Rp. Myndirnar
eru tréskurðarmyndir eftir
listamanninn Erasmus Kern,
sem uppi var á fyrri hluta 17.
aldar og bjó I bænum Feldkirch
I Austurriki.
Fyrstu jólafrimerkin i heim-
inum komu út árið 1897 I Nýju
Suður Wales i Astralfu. Þau
merki voru s.k. liknarmerki,
þ.e. þau voru með umframverði
og það all hressilegu. A merkj-
unum, sem voru tvö, stóðu töl-
urnar 1 og 21/2 Það þýddi að viö
greiðslu burðargjalds, giltu þau
sem 1 eða 2 1/2 pence en við
kaup á þeim varð að borga fyrir
þau tólffalt það verð, þ.e.a.s. 1
eða 2 1/2 shilling. Mismunurinn
var siðan látinn renna I liknar-
sjóð. Arið 1897 kom reyndar
einnig út i Canada jólafrimerki
en það var ekki liknarmerki
frekar en merkin frá Sviþjóð
eða Liechtenstein, sem minnst
vará hér að framan og verögildi
þess var 2 cent.
SMÆLKI
Löngum hefur verið álitiö að
Þjóðverjar séu mestu fri-
merkjasafnarar i veröldinni.
Talið er aö um það bil þrjár
milljónir Vestur Þjóðverja
safni frimerkjum en það mun
vera þvi sem næst 5% þjóðar-
innar. Nú hafa borist fréttir
frá Bandarikjunum þess efnis
að þar séu tæplega 8% þjóöar-
innar, eða nálægt 16 múljónir,
frimerkjasafnara. Þar, eins
og i Þýskalandi, eru um það
bil 90% safnaranna karlkyns.
Sagt er að eitt sinn hafi
maður nokkur komið inn I fri-
merkjaverslun eina (nei, það
var hvorki hjá Magna né
Bolla) og reynt að selja fri-
merki gamalt frá einhverju
landanna við botn Miðjarðar-
hafs. Hann hélt þvi fram aö
það væri mjög verðmætt, þar
sem það hafi verið á bréfi Páls
postula til Korintumanna.
„Aumasta og barnalegasta
vitleysa, sem til er”mátti lesa
um frimerkjasöfnun árið 18631
ensku siðdegisblaöi árið 1863.
Þá varfjöldifólks þegar á kafi
ifrfmerkjasöfnun, sem sjá má
á þvi að árið 1852 var fyrsta
frimerkjasýningin haldin. Þaö
var iBrussell i Belgiu og voru
sýnd tæplega 100 merki I ein-
um ramma.
22. ÞATTUR
NÚ ER ÞAÐ DANSKA KRONAN,
SEM VELDUR ÝMSUM ÁHYGGJ
UM
Það var ekki beinlinis giæsi-
legur dagur hjá dönsku krón-
unni á gjaideyrismarkabinum i
gær. Hún seig hægt og varlega
niður á við. Það var ekki um
stór stökk að ræða en hún
lækkaði almennt gagnvart öll-
um mikilvægum gjaldmiðlum
nema norsku krónunni sem átti
enn verri dag en danska krónan
þrátt fyrir oliuauðinn. Belgiski
frankinn, sem stendur veikt,
héit stöðu sinni gagn vart dönsku
krónunni — en skandinavisku
krónurnar og belgiski frankinn
heyra ekki til þunga vigtarflokks
gjaldmiðlanna.
V* r/J GENGIOG GJALDMIÐLAR
Ein af ástæðunum fyrir sígi
dönsku krónunnar er sú stað-
reynd ab fjármagnsinnflutning-
ur einkaaðila tii landsins virðist
vera að minnka. Þessi fjár-
magnsinnfiutningur hefur veriö
veruiegur um lengri tima m.a.
vegna þess að vaxtamismunur-
inn milli Danmerkur og ná-
grannalandanna hefur verið það
verulegur, að hann hefur hvatt
til fjármagnsinnflutnings. En
■ GENGISSKRÁNING ■
Gengi nr. 219 Gengi nr. 218
16 nóv. kl. 13 15. nóv. kl. 13
Kaup: Sala: Kaup: Sala:
1 Bandarikjadollar •' 211.10 211.70 211.10 211.70
1 Sterlingspund • 383.70 384.80 383.70 84.80
1 Kanadadollar • 190.355 190.85 190.10 190.60
100 Danskar krónur • 3439.65 3449.45 3439.65 3449.45
lOONorskarkrónur • 3855.70 3866.70 3855.70 3866.70
100 Sænskar krónur • 4397.90 4410.40 4397.90 4410.40
lOOFinnsk mörk • 5072.10 5086.50 5072.10 5086.50
100 Franskir frankar • 4344.70 4357.10 4338.50 4350.80
100 Belg. frankar • 597.70 599.40 597.70 599.40
100Svissn. frankar • 9578.70 9605.90 9574.90 9603.10
lOOGyllini • 8696.20 8720.90 8694.80 8719.50
100 V-þýsk mörk • 9399.35 9426.05 9385.35 9412.05
100 Lírur • 24.01 24.08 24.01 24.08
100 Austurr. Sch • 1318.50 1322.30 1317.30 1321.10
lOOEscudos • 519.00 520.50 518.70 520.20
lOOPesetar ■ 254.25 254.95 254.25 254.95
100 Yen • 86.10 86.35 86.10 86.35
umræðan undanfarið um
hugsanlega breytingu á afstöðu
dönsku krónunnar til gjald-
miðlaslöngunnar og v-þ marks-
ins getur hafa skapað slika
óvissu um gengismálin að hún
dragi úr vilja til að taka einka-
lán erlendis. Astandiö er reynd-
ar þannig að hver helgi kostar
þá sem þurfa að eiga viðskipti I
erlendum gjaldeyri, svefnlaus-
ar nætur. Um næst siðustu
helgi var það belgiski frankinn
sem áhyggjum olli hg um næstu
helgi getur það orðið norska
krónan.
Þrátt fyrir óróleikann kring-
um dönsku krónuna er rétt að
taka fram að hún er enn um
miðju gjaldmiðlaslöngunnar og
hinar „litlu” gjaldmiðlarnir eru
fyrir neöan hana en v-þ markið
efst. Það er einmitt staöa
marksins eins sér í efsta sætinu
scm veldur áhyggjum.
Ekki urðu umtalsverðar
breytingar á hlutfallinu milli
„stóru” gjaldmiðlanna I gær.
Ýmsir spá þvl að ekki muni
veröa verulegar breytingar á
næstunni þar sem forráðamenn
iðnrikja hafa sameiginlegra
hagsmuna að gæta aö banda-
riski dalurinn iækki ekki of mik-
ið fyrir OPEC-fundinn I desem-
ber.
Peter Brixtofte/ESJ.
‘Gjnfavörur
Jóluvörur
VEGGKLUKKUR
VEKJARAKLUKKUR
ELDHÚSKLUKKUR
Litið við eða hringið.
Heildverslun
PÉTURS PÉTURSSONAR
Suðurgötu 14
Simar 21020 — 25101
Maður fær eitthvað fyrir
peningana,
þegar maður
auglýsir
í Vísi