Vísir - 05.01.1978, Side 4

Vísir - 05.01.1978, Side 4
c Fimmtudagur 5. janúar 1978 VISIR Umsjón: Guömundur Pétursson J Lýðrœðið í V-Þýskalandi Stenst lýðræðið áhlaup hryðjuverkamanna og öfgaaflanna, eða neyðast menn til þess að kasta grundvallarlýðræðisreglum fyrir borð og taka upp hætti einræðis- og harðstjórnarrikja með til- heyrandi öryggislögreglu þriðju gráðu yfir- heyrslum og fangelsunum án dómsuppkvaðninga til þess að halda uppi lögum og reglu? Þetta er spurningin sem brunnið hefur á vörum manna siðasta ár, þegar mannrán og morð hryðjuverkamanna keyrðu úr hófi fram án þess aö yfirvöld fengju miklum vörnum við komið. I þvi samhengi beindist athyglin mest að Vest- ur-Þýskalandisem harðastvarð fyrir barðinu á hryðjuverka- öflunum þetta árið. Ar, sem um leið var eitt það versta i annars óhugnanlegri þróun morða og rána i V-Þýskalandi er gekk i garð með uppgangi Baader- Meinhofsglæpaf lokksins og harðnaði undir áhrifum öfga- samtaka japanskra rauðliöa og skæruliða Palestinuaraba. Hættan Uppvöösl usem i þessara stjórnleysingja sem i skjóli frjálslegs réttarfars og lýð- ræðisregla til tryggingar mann- réttindum einstaklinga sam- félagsins unnu hin verstu fólskuverk gekk fram af al- menningi sem krafðist meiri árangursaf löggæslunni. Ef lýð- ræðisreglur bundu hendur lög- gæslunnar i þeirri baráttu, þá var krafan sú að þau höft yrðu leyst. Uppræta varð hryðju- verkaöflin hvað sem það kost- aði. Mundu stjórnvöld V-Þýska- lands standast þetta álag? Sæu þau sig tilneydd að verða við kröfunum og vikja til hliðar — að visu um stundarsakir og að- eins til bráðabirgða en það er nákvæmlega sami fyrirvarinn og hafður hefur verið hjá öllum einræðisstjórnum, þegar þær komast til valda, þótt þær svo riki áratugum saman — helg- ustu lýðræðissjónarmiðum? Yfirlýsingar vestur-þýsku stjórnarinnar sem undir forystu Helmut Schmidts kanslara sór að hún mundi ekki láta kúgast af morðingjunum til örþrifa- ráöa, megnuðu ekki að sefa menn. Hitt sýndistof freistandi. Að láta að vilja fjöldans er ein- mitt lýðræði, ekki satt? Að nauðsyn getur brotið lög eru gömul sannindi ekki satt? Ný lög Þvi setti kviða að mörgum, þegar ný lög voru sett til að tak- marka réttindi málflutnings- manna sem annast málsvörn fyrir hryðjuverkamenn. Nauð- synin haföi kallað á þessa laga- breytingu. Það hafði komið á daginn, að lögfræðingar höfðu haldið uppi tengslum milli hryðjuverkamanna sem áttu að heita einangraðir i fangelsi, og skoðanabræðra þeirra utan fangelsismúranna. Orðsending- Sílasalan Höfóaturú 10 s.18881 &18870 Bronco 74 Gulur. Allur nýklæddur. 6 cyl. beinsk. Ný dekk. Verð 2350.000.00. Skipti. Skuidabréf. Bronco 68 Kauður 8 cyi. beinsk. Góð dekk fullklæddur. Topp- bfll. Verð 1300 þús. skipti á bil að 600 þús. kr. Fiat 128/ comfort Ekinn 11 þús km. Rauður. Snjódekk, sumardekk. Verð 1750 þús. Skúffa 72. Blæja 68 vél 318 ekinn 90 þús. Verð 1 milljón. Skipti. Ath. höfum fjiildabifreiða fyrir skuldabréf opið alla daga vikunnar frá 9-8 Utanbæjarmenn ath. Opið á sunnudögum. ar voru bornar á milli, vopnum, útvarpstækjum, sprengiefni smyglað inn í fangelsin. I ein- stöku tilvikum sannaðist að lög- fræðingur, verjandi hryðju- verkamanna á sakabekk hafði tekið þátt i undirbúningi glæpa ofstækishópanna. — Þingið i Bonn setti þvi lög þess efnis að verjendur hryðjuverkamanna mættu aðeins hafa bréfleg sam- skipti við skjólstæðinga sina og að þessi bréfaskipti yröu undir eftirliti. Lýðræðisvenjan 1 lýðræðislegum réttarfars- rikjum er réttur sakbornings til þess að verja hendur sinar sett- ur hátt. Honum er tryggður verjandi og þykir ekki góð latina að setja nein höft á sam- skipti þeirra svo að þeir geti borið saman bækur sinar og sem bestundirbúið málsvörnina Það sem þeim fer á milli i slik- um undirbúningsviðræðum þyk- irviða algert trúnaðarmál. Lög- maður getur misst starfsrétt- t þeim umræðum, sem oröiö hafa um lýöræði Satnbandslýð- veldisins Þýskalands, hafa marg- ir kvatt sér hljóðs. Meðal þeirra er rithöfundurinn frægi, Gunter Grass, sem i annan tima hefur oft verið manna gagnrýnastur á þaö, sem honum hefur fundist aflaga I sinu heimalandi. Hann hefur ver- ið óþreytandi á verði sinum gagn- vart hverskonar aðför aö frelsi ' mannanna og þá sérstaklega tjáningarfrelsi listamanna. 1 þetta sinn hefur hann tekið upp vörn fyrir stjórnvöld sins heimalands gegn gagnrýni er- lendis i viðtölum við hin og þessi erlend blöð. ,,Ég er þeirrar skoöunar, að dregin hafi verið upp erlendis mjög bregluð mynd af Sam- bandslýðveldinu,” sagöi Grass i viðtali viö Rotterdam-blaðiö ,,NRC Handelsblad”. „Þaö er mynd, sem oft er hatursfull, llkt og fólk erlendis vilji ekki taka eft- ir breytingunum i V-Þýskalandi.” I hans augum er það „allt i lagi”, þótt Þýskaland sé haft I slikum brennidepli erlendis, eins og hann sagði I viðtali við sænska indi sin ef hann rýfur trúnað við skjólstæðinginn. Þar sem lýð- raeðið þykir risa hæst er sak- sóknara óheimilt að notfæra sér við málssóknina upplýsingar sem fengist hafa i slikum trúnaðarviðræðum verjanda og skjólstæðings hans. Þessi nýju lög virtust ganga á sveig við þessi sjónarmið og tálma undirbúning málsvarnar þegar verjendur hryðjuverka- manna áttu I hlut. Margir lágu þinginu i Bonn á hálsi fyrir að gripa til slikra ráða. Þótt sem fyrsta skrefið hefði verið stigið á óheillaveginum. Samanburður Þjóðverjar eru sárir þessari gagnrýni og telja hana mjög ómaklega. Þeir hafa svarað henni með þvi að bera saman þessi nýju lög sin og viðhlitandi lög nágrannarikja i vesturálfu þar sem lýðræðið þykir hvað mest haft i heiðri. Segjast þeir finna þarsvomargar hliðstæður að hin nýja lagabreyting fylgi troðinni slóð og viðtekinni hefð hinna sem nú séu farnir að kasta steinum. Nefnd eru sem dæmi lög niu nágrannarikja allt frá Dan- mörku suður til ttaliu og sýnt framá, að gert sé ráð fyrir að hömlur geti verið settar á sam- skipti verjanda og skjólstæðings hans i fangelsinu. Vakin er at- hygli á því að viða séu þvi ekki eins skýr og þröng mörk sett, hvemær gripa megi til slikra ráða eins og hin nýju lög Þjóð- verja gera. Danmörk er i þvi samhengi nefnd sem dæmi. Þar er gert ráð fyrir að i einstökum neyðartilvikum (sem ekki eru nánarskilgreindhverséu) megi skera á samskipti verjanda og Fólk var orðiö þreytt á eilifum ótta við hver mundi næstur veröa fyrir barðinu á hryðju- verkamönnunum. sakbornings,og á það við um öll refsilagabrot af hvaða toga sem þau eru spunnin. I Bret- landi má banna verjanda að heimsækja skjólstæðing sinn i fangelsi ef ástandið innan veggja fangelsins þykirkrefjast sliks. ítalskur lagabókstafur geymir ekkert ákvæði um svona höft en i framkvæmdinni hefur stundum verið gripið til þess að takmarka heimsóknir verjanda i fangelsið meðan mál er á frumrannsóknarstigi. 1 Sviss er dómara i sjálfsvald sett að fyrirskipa slikt bann um ákveðinn tima. I Hollandi má banna slikar heimsóknir i allt að sex daga samfleytt. Austurriki gerir ráö fyrir slikum hömlum ef hætt þykir við að rannsókn málsins verði spillt. Þannig segjast Þjóðverjar finna samskonar ákvæði hjá lýðræðisrikjum án þess að þau þyki þar neitt sérstakt tiltöku- mál. Eruþau hvergi eins og i V- Þýskalandi, einskorðuð við stórhættulega glæpamenn eina likt og hryðjuverkamenn. Hryðjuverk öfgaaflanna kölluðu fram háværar kröfur um ab yfir- völd létu til skarar skriða. „Bri ttfli íngluð mAu my rnQ | segir Giinter Grass um þœr umrœður, sem spunnist hafa um V-Þýskaland blaðið „Expressen”. Meira að segja finnst honum það „mikil- vægt” I viðtalinu viö hollenska blaðið. — „Þegar á allt er litið, hefur Þýskaland hrundið af stað tveim heimstyrjöldum og ber ábyrgðina á moröum sex milljóna gyðinga.” En að nýta slika sam- viskubletti „til þess aö draga upp mynd af vaxandi fasisma,” segir hann I Expressen, „þvi verð ég aö mótmæla.” „A þeim 30 árum, sem liðin eru frá stofnun Sambandslýðveldis- ins, hefur lýðræöið vaxiö hérna úr grasi,” heldur hann áfram. Telur Grass það einmitt vott um lýð- ræðiskennd sinnar þjóöar, að hún skuli enn halda við tilhugsuninni um þá sök, sem hún ber af Hitlerstlmanum. Það telur hann mjög mikilvægt og nefnir til samanburðar: „En þau fjölda- morö, sem drýgð voru á fyrir- striðsárunum á Madagaskar, I Indó-kina og Alsir, hafa Frakkar ýtt út úr minningu sinni. Þvi spyr ég mig stundum, hvaðan þeir finni siðferðislegan styrk til þess að dómfella Þjóðverja?” Hann telur ótta manna erlendis fyrir -ýjum uppgangi fasista I V-Þýskalandi ekki hafa við neitt að styðjast. Hann segir forsendu allrar gagnrýni vera þá, aö menn gaumgæfilega grandskoöi hlutina fyrst. Hann segir það ekki grannt skoöað, ef menn sjá ekki, hvernig fylgi eina hægri öfgaflokksins I V-Þýskalandi, Þjóðernissinna- flokksins, hefur hrapaö niður I „aum 1,2%” á slöustu árum. Grass telur, ao margir mistaki sig á „ákafri þörf Þjóðverjans fyrir öryggi” og ætli hana fasista- hyggju. Hann skýrir þessa „öryggisþörf” landa sinna sem afleiðingar þess aö þeir hafi upp- lifað tvær heimstyrjaldir og tvö ofboðsleg krepputimabil, sem hafi brennt sig svo I þjóðarsálina, að þeir bregðist „af og til móður- sýkislega við”, ef þeim finnist efnahagslegu öryggi þeirra eða tilveru stefnt á einhvern hátt I hættu. — „Sjálfir erum við þessa meðvitandi og gagnrýnum sjálfir þennan þátt i okkar fari. En ég held ekki, að unnt sé aö saka Þjóðverja um nasisma. Þaö þarf að fara til annarra landa að leita að honum,” segir Gunter Grass.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.