Vísir - 02.02.1978, Page 5
VTSIR Fimmtudagur
2. febrúar 1978
V-Þýski varnarmálaráðh. segir af sér vegna:
Persónunjósna
leyniþjónustu
hersins
Leiðtogar stjórnar-
flokkanna i V-Þýska-
landi hittast fyrir lukt-
um dyrum i dag til að
hlýða á skýrslu Georg
Lebers varnarmálaráð-
herra um hleranir leyni-
þjónustu hersins, en
ljóstrað hefur verið upp,
að þær hafa verið við-
tækari en ráðherrann
hefur. áður viljað kann-
ast við, og hefur hann
sagt af sér embætti.
Leber afhenti Helmut Schmidt
kanslara afsagnarbeiðni sina i
gær, en kanslarinn bað hann að
ihuga og endurskoða þá afstöðu
og hefur Leber ekki ákveðið enn,
Eitruðu appelsínur
hvort hann stendur fast við af-
sögnina.
Varnarmálaráðherrann er yfir-
maður og ábyrgðarmaður leyni-
þjónustu hersins. í síðustu viku
svaraði hann fyrirspurnum i
þingi um hleranir leyniþjónust-
unnar, en þær eru ekki löglegar.
Kvað hann leyniþjónustuna án
hans vitundar hafa hlerað ibúð
einkaritara hans 1975 vegna
gruns um að hún væri njósnari
kommúnista. Lét Leber á sér
skilja, að þar hefði verið um að
ræða undantekningartilfelli.
V-þýska sjónvarpið hélt þvi
fram i gærkvöldi, að leyni-
þjónustan hefði gripið til óleyfi-
legra hlerana i að minnsta kosti
20 tilfellum siðan Leber tók við
ráðherraembætti fyrir fimm ár-
um.
Leber mun hafa skýrt meðráð-
herrum sinum frá þvi að hann
gæti ekki staðið við fyrri fullyrð-
ingar si'nar i þinginu.
ísraelsmenn hafa nú
aukið eftirlit sitt með út-
flutningi á Jaffa-appel-
sinum sinum, og biða
með öndina i hálsinum
eftir viðbrögðum á er-
lendum mörkuðum, eftir
að eitur fannst i appel-
sinum þeirra i Hollandi
og V-Þýskalandi.
Samtök, sem kenna sig við mál-
stað Palestinuaraba, segjast i
bréfi til heilbrigðisráðuneyta
átjan landa hafa eitrað appelsin-
urnar.
Jaffa-appelsinur eru ísrael það
sama og sjávarafurðir eru Islandi
— aðalútflutningur og gjaldeyris-
lind.
Eitrið, sem fannst i tuttugu
appelsinum, reyndist vera kvika-
silfur i óuppleysanlegu formi,
ekki banvænt en liklegt til þess að
valda ógleði.
tsraelsk yfirvöld telja full-
yrðingu bréfritara um, að appel-
sinurnar hafi verið eitraðar á
hernumdu svæðunum, ekki eiga
við neitt að styðjast, þvi að Jaffa-
appelsinur séu ekki framleiddar
utan ísraels. Zvi Keinan, for-
stöðumaður útflutningsráðs
ísraels, telur, að öryggisráðstaf-
anir heima fyrir séu svo öflugar
að útilokað sé, að hermdarverka-
menn Araba hafi getað komist til
að eitra appelsinurnar. Þó verður
eftirlitið aukið enn frekar, að
gefnu þessu tilefni.
Fimm börn i hollenska bænum
Maastricht veiktust og voru lögð
inn á sjúkrahús eftir að hafa
borðað eitraðar appelsinur.
Njósnuðu í tvö
ár fyrir Vfetnam
Bandarisk yfirvöld
ihuga i dag að visa úr
landi einum af sendi-
fulltrúum Víetnams
hjá Sameinuðu þjóð-
unum, eftir að viet-
namskur námsmaður
og einn embættis-
manna stjórnarinnar
urðu uppvisir að þvi að
njósna fyrir Hanoi.
Námsmaðurinn og embættis-
maðurinn voru handteknir á
þriðjudag og ákærðir fyrir stuld
á leyniskjölum, sem þeir af-
hentu fulltrúum Vietnams hjá
Sameinuðu þjóðunum i New
Yorkog I Paris. Báðir héldu fast
fram sakleysi sinu fyrir rétti i
gær, þar sem ákæran var birt
þeim.
Talsmaður utanrikisráðu-
neytisins bandariska sagði
fréttamönnum i gærkvöldi, að
ekki hefði enn verið ákveðið
hvort sendifulltrúanum hjá
Sameinuðu þjóðunum yröi visað
úr landi eða ekki.
Sendinefnd Vietnams hjá
Sameinuðu þjóðunum hefur
borið af sér allar ásakanir um
hlutdeild i njósnasamsæri.
Sagði nefndin, að ásakanirnar
hefðu ekki við neitt að styðjast,
heldur væri þær sprottnar upp
af fjandsemi Bandarikjastjórn-
ar I garð Hanoi..
Njósnararnir tveir, sem
handteknir hafa verið, eru 32
ára gamall námsmaður, Truong
Dinh Hung að nafni, og Ronald
Humphrey, 42 ára starfsmaöur
hjá Upplýsingaþjónustu USA.
Þeir eru bornir sökum um að
hafa stundað þessar njósnir sið-
ustu tvö ár. — Hung er sonur
Trung Dinh Dzu, sem tapaði
forsetakosningum S-Vietnam
fyrir Nguyen Van Thieu 1967 og
Thieu lét siðar varpa i fangeldi.
Roman Polanski nýtur nú franska vegabréfsins til þess að sleppa undan réttvísinni
i Bandaríkjunum.
Polanski flúinn
til Frakklands?
Mœtti ekki fyrír rétt, en sást á Lundóna-
flugvelli i gœr. Hvergi finnanlegur í London
Kvikmyndaleikstjór-
inn Roman Polanski,
lét sig hverfa i stað
þess að mæta fyrir rétti
i Kaliforniu og hlýða
þar á dómsuppkvaðn-
ingu vegna ólöglegra
kynmaka hans við 13
ára stúlkubarn á heim-
ili Jack Nicholsons
leikara.
Dómarinn gaf út handtöku-
skipan á Polanski, sem hinsveg-
ar sást bregða fyrir á Heatrow-
flugvelli I London undir hádegi i
gær. Hann hvarf mönnum þar
strax sjónum aftur.
Polanski hefur franskt vega-
bréf og þykir möguleiki á þvi, að
hann hafi skipt um flugvél i
London og flogið til Parisar, en
enginn hefur orðið hans var þar.
— Hús Polanskis I Belgravia-
hverfi i London virðist standa
autt.
Hjá British Airways hefur
verið staðfest, að Polanski hafi
flogið undir eigin nafni frá Los
Angeles til London i gær.
Verjandi leikstjórans skýrði
réttinum frá þvi að hann héldi
að Polanski hefði farið frá
Bandarikjunum, en vildi ekki
láta uppi hvert, og bar fyrir sig
lögfræöingsskyldu sina gagn-
vart skjólstæðingnum. Lög-
fræðingurinn sagði dómaran-
um, aö hann rriundi reyna að
telja skjólstæðing sinn á að snúa
aftur og koma fyrir réttinn.
Fréttamenn leituðu Polanskis
um alla London til að leita hjá
honum skýringar á þessum
flótta, en fundu hvergi. Breska
lögreglan segist enga vitneskju
hafa um ferðir hans, enda hafi
hann ekkert brotið af sér i Bret-
landi og engin beiðni borist frá
bandariskum yfirvöldum um
afskipti af honum.
Polanski hefur nýlokið 42
daga gæsluvarðhaldi, meðan
hann gekkst undir geðrannsókn,
sem dómarinn ætlaði að hafa til
hliðsjónar við uppkvaðningu
dómsins. Hafði verið mælt með
þvi, aö látið yrði sitja við þetta
gæsluvarðhald, og sækjandi
málsins hafði látið á sér heyra,
að hann mundi ekki krefjast
þyngri refsingar. Brotið, sem
Polanski játaði á sig, varðaði þó
allt að 50 ára fangelsi.
Niðurstaða geðrannsóknar-
innar hafði verið mjög mildandi
fyrir Polanski, og samúðarvekj-
andi. Sagt var, að morð Man-
son-fjölskyldunnar á Sharon
Tate, eiginkonu hans 1969, hafi
haft djúpstæð áhrif á Polanski,
sem allar götur siðan hefði verið
að leita ástarinnar.
Polanski átti að leikstýra
endurgerð kvikmyr.darinnar
„Hurricane” fyrir italska fram-
leiðandann, Dino de Laurentis.
En framleiðslan hefur tafist
vegna þessa máls, og tilkynnti
de Laurentis i siðasta mánuði,
að hann neyddist til þess að láta
Polanski hætta.
Saksóknarinn i máli Polansk-
is lét eftir sér hafa i gær, að
hann teldi að Polanski fengi
þyrgri dóm fyrir þetta tiltæki en
hann ella hefði fengið. En hann
bjóst ekki við, að Polanski
mundi afplána þann dóm. ,,Ég
býst ekki við, að hann snúi
nokkurntima aftur hingað til
lands”, hélt saksóknarinn. Ef
Polanski notfærir sér frönsk
borgararéttindi sin og kemst til
Frakklands, verður hann ekki
fremseldur þaðan.
Borpallurínn strandaði
Breskar herþyrlur
hafa bjargað 24 mönn-
um af 33, sem voru á
norska oliuborpallinum,
sem rak i ofsaveðri upp
á land i nótt. Þrem var
svo bjærgað um borð i
björgunarskip.
Flestir þessara manna eru
Norðmenn, og voru þeir fluttir til
St. Peter Port i Guernsey og út-
veguð gisting á hóteli.
Borpallurinn, Orion, var i slefi
á leið til Rotterdam, þegar hann
slitnaði aftan úr vestur-þýskum
dráttarbát og rak fyrir straumi
og vindum. Strandaði hann um 4
milur frá St. Peter Port. — Bor-
pallurinn hefur verið seldur til
Brasiliu.
Var strax hafist handa við aö
bjarga mönnunum af pallinum,
enhætta varð um tvö-leytið Inótt, I hafrótinu. Atti að byrja björg-
þegar borpallurinn tók að snúast I | unaraðgerðir aftur með birtingu.