Vísir - 14.04.1978, Qupperneq 8
0M§
—. V :'J i '
Ég skal leyfa þér að sjé, hvernig hún virkai^s
Líbanir vantreysta
gœsluliðum
r
Israelar óónœgðir með
seinagang gœslusveitanna
Annar áfangi brottflutn-
ings israelska herliösins í
S-Libanon hefst i dag um
ieiö og gæslusveitir Sam-
einuðu þjóöanna taka sér
stööu á fimm km kafla
meðfram Litani-ánni.
Kurt Waldheim er væntanlegur
til Israel á mánudag og mun
lsraelsstjórn gera honum þá
grein fyrir óánægju sinni. Fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna mun kanna lið gæslusveit-
anna i S-Libanon að lokinni heim-
sókninni i lsrael.
Vafaiaust mun Waldheim
leggja að lsraelsstjórn að hraða
brottflutningnum, sem Israels-
menn segja vera algerlega þvi
háð, hversu fljótt gæsluliðið geti
leyst þá af hólmi.
Francis Rizak, talsmaður
kristinna manna i S-Libanon, hef-
ur æ ofan i æ iýst áhyggjum sins
fólks af þvi, að gæsluliðið sé ekki
þess megnugt að halda aftur af
skæruliðum Palestinuaraba.
Rizak sagði i israelska útvarpinu
i gær, að það væru nú fleiri
skæruliðar á þessu svæði, en voru
fyrir innrás israelsmanna.
Japanskar jórn-
brautir stöðvast
Hermenn frá Noregi, Nepal og
lran taka sér stöðu á niu
hernaðarlega mikilvægum stöð-
um (aðallega við brýr yfir ána)
um leið og israelsku hermennirn-
ir hörfa i átt til landamæranna.
Yigael Yadin, aðstoðarfor-
sætisráðherra Israels, sagði i
gærkvöldi, að lsraelsstjórn væri
ekki ánægð með, hversu seinar
gæslusveitirnar væru að taka sér
stöðu. Sagði hann það skapa is-
raelska herliðinu nýjan vanda,
þvi að það þyrfti að gæta þess, að
skæruliðar Palestinuaraba not-
uðu ekki tækifærið til þess að
hrifsa i sinar hendur stöðvarnar,
sem israelska liðið yfirgefur.
Járbrautarkerf ið í
Japan lamast algjörlega í
dag, þvi að i morgun hófst
eins sólarhrings verkfall
járnbrautarstarfsmanna,
sem krefjast launahækk-
ana og bættra vinnuskil-
yrða.
Um 80% þeirra 1.500 lesta, sem
fylgja fastri áætlun, munu stöðv-
ast af völdum verkfallsins. En
Japanir eru mjög háðir járn-
brautunum sem samgöngutæki
til þess að komast^r <gg-i vinnu,
og mun þvi verkfallið hafa áhrif
viöa á vinnustöðum.
Verkamannoflokkurinn naut
óvœnts fylgis í Glasgow
Breski Verkamanna-
flokkurinn náði sín-
umbesta árangri úr kosn-
ingum síðustu fjögurra
ára, þegar gengið var til
aukakosninga í Gars-
cadden í Glasgow i gær.
Hlaut Verkamanna-
f lokkurinn öllum að óvör-
um auðveldan sigur yfir
skoska Þjóðernisf lokkn-
um í þessum kosningum
sem flestir höfðu spáð
Þjóðernisf lokknum miklu
fylgi, ef ekki sigri í.
Litið var á þessar aukakosn-
PAPPÍRSBLEIUR MEÐ
ÁFÖSTUM PLASTIKBUXUM
Undramjúkt efni PAMPERS hvílir
næst hörundinu, en rakinn dreifist í
pappírsliig sem taka mikla vætu.
Ytrabyrði er úr plasti. Rúm og ytri-
buxur eru því ávallt þurr. PAMPERS
eru sem tilsniðnar fyrir barnið og
gefa mikið frelsi til hreyfinga.
Límbönd á hliðum gera ásetningu
einfalda.
ingar af mörgum, sem uppgjör
milli Verkamannaflokksins og
skoska Þjóðernisflokksins, sem
berst fyrir sjálfstæði Skotlands
undan bresku krúnunni. Við
talningu atkvæða kom i ljós, að
skoski þjóðernisflokkurinn hafði
að visu aukið fylgi sitt, en ekk-
ert nálægt þvi eins mikið og
spáð hafði verið. Þykja þessi úr-
slit mikill ósigur fyrir sjálf-
stæðisstefnu Skota.
Þetta óvænta brautargengi
Verkamannaflokksins þykir um
leið liklegt til að freista James
Callaghan forsætisráðherra að
efa til almennra þingkosninga
fyrr en ella — og þá hugsanlega
i október.
Donald Dewar, frambjóðandi
Verkamannaflokksins, hlaut
16,507 atkvæði. Keith Bovey
frambjóðandi Þjóðernisflokks-
ins fékk 11,955 atkvæði. Iain
Lawson, frambjóðandi Ihalds-
flokksins, fékk 6,746 atkvæði.
Hinir þrir frambjóðendurnir
komu langt á eftir.
Skotland á 71 þingmann á
breska þinginu, og hefur Verka-
mannaflokkurinn meira en
helming þeirra, enda hefur
hann jafnan gengið að visu
miklu fylgi i Skotlandi. En
stefna Þjóðernisflokksins og
sjálfstæðisbaráttan þótti likleg
til fylgisöflunar, og þvi bjuggust
menn við tvisýnni kosningum.
Til aukakosninganna i Gars-
cadden var efnt vegna fráfalls
Willie Small, þingmanns Verka-
mannaf lokksins. Þetta eru
fyrstu aukakosningarnar i Skot-
landi siðan Verkamanna-
flokkurinn komst i stjórn 1974,
og er þetta besti árangur hans i
aukakosningum i Bretlandi
siðan.
Verkamannaflokkinn vantar
nú 7 þingsæti upp á meirihluta i
þinginu, en hann styðst þar við
jringmenn Frjálslynda flokks-
ins, sem stutt hafa stjórnina i
mikilvægum málum. Framund-
an eru fjó’-ar aukakosningar, og
hefur Verkamannaflokkurinn
ekki miklar sigurlikur nema i
einu þeirra.
Viðrœður um Ródesíu
Utanríkisróðherrar Bretlands og USA komnir til Tansaníu til milligöngu við
leit að framtíðarlausn Ródesíumálsins
Stjórnir Bretlands og
Bandarikjanna beita sér
i dag fyrir nýjuifífc til-
raunum til þess að ýta
að samningaborðinu
hinni nýju rikisstjórn
Ródesiu og leiðtogum
skæruliða blökku-
manna, sem berjast
gegn henni.
Cyrus Vance, utanrikisráð-
herra Bandarikjanna, kom i
morgun til Dar Es Salaam til
fjögurra daga viðræðna við leið-
toga skæruliðahreyfinganna og
fimm utanrikisráðherra land-
anna, sem iiggja að Ródesiu, en
það eru Tanzania, Zambia,
Mósambik, Botswana og Angóla.
Vonir manna um að takast
mætti að koma á samningaráð-
stefnu skæruliðaeliðtoganna og
fulltrúa hinnar nýju stjórnar
Ródesiu eru heldur daufar. — Ian
Smith, forsætisráðherra bráða-
birgðastjórnarinnar, hafnaði i
siðustu viku þessari hugmynd.
En liklegt þykir, að Vance
utanrikisráðherra fái betri undir-
tektir hjá hinum, sem komnir eru
til Dar Es Salaam.
David Owen, utanrikisráðherra
Bretlands, var væntanlegur til
höfuðborgar Tanzaniu i morgun
til fundar við hina utanrikisráð-
herrana, en hann og Vance ætla
til Suður-Afriku á morgun og
þaðan til Ródesiu á sunnudag.
Shevchenko mel bók í smíðum
Arkady Shevchenko, að-
stoðarframkvæmdastjóri hjá
Sameinuðu þjóðunum — sem
neitað hefur að snúa heim tii
Sovétrikjanna — undirritaði
fyrir þrem árum samning við
bandariskan bókaútgefanda, og
er sagður hálfnaður með hand-
ritið, sem hann hefur i smiðum.
Samningurinn er við Aifred
Knopf-útgáfufyrirtækið i New
York, og hefur Ashbel Green,
forstjóri fyrirtækisins, staðfest
blaðafréttir um þetta.
Green hefur þó ekki viljað
segja, um hvað bókin fjalli, en
gaf þó til kynna, að Shevchenko
skrifaði um reynslu sina sem
háttsetts diplómats Sovét-
stjórnarinnar.