Vísir - 14.04.1978, Síða 18

Vísir - 14.04.1978, Síða 18
Hvernig á sú kennsla a6 vera? Þvi er auövelt aö svara. Meö þvi að vera þeim góð fyr- irmynd. Með þvi að þeir fullorðnu — þeir, sem eiga að hafa vit fyrir börnunum og kenna unglingun- um gefi þeim meö lifi sinu það fordæmi, sem hollt er að breyta eftir i sjálfsafneitun, hófsemi, trúmennsku og öðrum góðum og göfugum dyggðum kristilegrar siðfræði. Að sýna hinum ungu þetta i breytni hins daglega lifs. bað er besta fermingargjöfin — i raun og veru sú eina gjöf sem máli skiptir og getur gert út um framtið fermingarbarnsins — barnsins þi'ns. — Með þvi getur þú átt rikan þátt i þvi að leiða barnið þitt á gæfunnar braut og beðið fyrir þvi og framtið þess, ekki aðeins með orðum heldur einnig i verki: Guð verndi verndi þig, en vak og bið. og varðveit, barn, þinn sálarfrið. Á Herrans traustu hönd þig fel. Ef hann er með, þá farnast vel. Guð leiði þig. Þegar maður sér, að heilar opnur i blöðunum eru fullar af nöfnum barna, sem eiga aö fermast á morgun , þá fannst Kirkjusiöu Visis ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að helga fermingarbörnum þessa siöu kirkjunnar i dag. Þegar' Kirkjusiðan sá, aö Fermingarbarnablaö i Keflavik og Njarövik var komið út var ekkert sjálfsagðara en að gera að umræðuefni þetta stórmynd- arlega framtak prestanna i þessu mikla og ört vaxandi þétt- býli Suðurnesja. Þeir eru ábyrgöarmenn blaðsins og skrifa ávarp, þarsem þeir velta vörngum fyrir gildi fermingar- innar og þvi hver áhrif hún hef- ur á börnin. Þeir segja, aö vissulega gangi mörg börnin sefjuð og hálfsofandi gegnum Ii/ fylgdar þig hann krafði ferminguna og undirbúning hennar. Það sé „hrikaleg stað- reynd”, sem kirkjan verði að horfast i augu við, og þá vænt- anlega að gera allt, sem i henn- ar valdi stendur til að bæta hér úr. Hinsvegar fullyrða þeir prestarnir, að mörg fermingar- börn taki undirbúning þessarar hátiðlegu athafnar og mikils- verða dags i lifi sinu mjög al- varlega, sinni honum af alúð og alvöru. Þeir sem stýra slikum undirbúningi, kynnast i mörg- um tilvikum óvenju-málefna- legri og heiðarlegri leit hinna ungu, sem þvi miður er næsta fátið i heimi hinna fullorðnu. Þannig farast þeim orð kenni- mönnunum i Keflavik og Njarð- vik. Og vissulega má segja að Fermingarblaðið sanni orö þeirra. I blaðinu eru smágrein- ar eftir 18 fermingarbörn, sem mörg a.m.k. virðast gera sér grein fyrir hinni hátiðlegu al- vöru þessarar fögru athafnar. Hvað gera svo hinir fullorðnu til að beina ahrifum fermingar- innar i hollan og heillavænlegan farveg? Margir kosta miklu — já alltof miklu til fermingarinnar i veislum og gjöfum. Ekki skal það lastað að halda þessi tima- mót i lifi táningsins verulega hátiðleg. En dýrasta fermingar- gjöfin og veglegasta veislan verður aldrei virt eða metin til fjár. Hún er fyrirmynd þeirra fullorðnu. 1 heilögu orði segir: Kenn þeim ungu þann veg, sem þeir eiga að ganga og á gamals aldri munu þeir ekki af honum vikja . Séra Gisli Brynjólfs- son skrifar 11" ™ M ■ iii- 3 FÉLAG FARSTÖÐVAEIGENDA Síðumúla 22 - 105 Reykjavík - Sími 34100 - Pósthólf 196 FÉLAGSFUNDUR Félagsfundur FR-deildar 4. verður hald- inn að Domus Medica, föstudaginn 14. april, kl. 20.30. Gengið inn frá Egilsgötu: Fundarefni: 1. Deildarmál. 2. Húsnæði deildarinnar. 3. Stofnun unglingadeildar. 4. önnur mál. Félagar fjölmennið. Stjórnin. -----—......................... ..... Lauk doktorsprófi í USA Jón Bragi Bjarnason, efna- fræöingur, hefur lokiö doktors- prófi frá rlkisháskólanum i Colo- rado, en ritgerð hans fjallaöi um einangrun og greiningu á enzym-blæðingaþáttum úr eitri ameriskrar landslöngu — en slöngubit valda um 50.000 dauðs- föllum i heiminum á hverju ári. Jón Bragi er þrítugur að aldri og kennir nú lífenfafræði við Há- skóla islands. Ilann hefur hafið rannsóknir á enzymum úr þorski. — ESJ. Föstudagur 14. april 1978 visndR OKEYPIS myndaþjónusta opið til kl. 7 Opið i hódeginu og d iaugardögum ki. 9-6 Blazer K5 árg. 73 8 cyl, 307 cub. Sjálfskiptur. Blár, gott lakk. útvarp og segulband. Skoðaður 78. Traustvekj- andi bíll. Verð kr. 3 millj. Willy's árg. '63 B18. Volvo-vél. Rauður og hvítur. Góðdekk. Skoðaður 78. Verð kr. 650 þús. Skipti. Allt kemur til greina. Hanomag Hanchel F 76 Diesel árg. '71.6 cyl, 5 gíra. Brúnn og drapplitur. Gott lakk. Litur mjög vel út. Oll dekk ný, tvö varadekk. Sá besti í bransann. Verð kr. 4,3 millj. Chevrolet Impala Haraiop, 4ra uyra árg. '65, 6 cyl, sjálfskiptur. Grár með svörtum röndum. Skemmtilegur bíll. Verð kr. 600 bús. Cortina 1300 árg. '71, 4ra dyra. Brúnn, gott lakk. Vetrardekk. Útvarp. Verð kr. 750 þús. Skipti á amrískum 2ja dyra eða japönskum á 1.500 þús. til 2 millj. Toyota Carina árg, '74. Brúnn, gott lakk. Sumardekk og vetrardekk. Fall- egur bíll í toppstandi. Datsun 120 A árg. '73. Ljósgrænn. Gott lakk. Góð dekk. útvarp. Verð kr. 1.250 þús. Skipti á Saab 99 72-74 eða ameriskum 72-73. BÍLASALAN SPYRNAN VITAT0RGI milli Hverfisgötu og Lindorgötu Simar: 29330 og 29331

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.