Vísir - 28.04.1978, Blaðsíða 3
3
VÍSffi Föstudagur 28. apríl 1978
Siglingar um
sundin blá
— ný fjölskylduíþrótt
til að stunda heilbrigt útilíf,
náttúruskoðun og fiskveiðar.
Sundin og vogarnir og Flóinn
bjóði upp á óteljandi möguleika.
Jón lagði áherslu á að smábáta-
siglingar væru holl og friskandi
tómstundaiðja fyrir alla
fjölskylduna því fólk á öllum aldri
hrifist af þessari iþrótt. Á svæð-
inu frá Akuréy og um 12 mllur
vestur eru gjöfúl mið fyrir hand-
færaveiðar. Væri hægt að veiða
þar ýsu og þorsk og viða fengist
lúða, til dæmis út af Kjalarnesi.
„Reykvíkingum sem vilja
stunda útilíf kemur ef til vill fyrst
I huga Bláfjöll eða Heiðmörk en
við eigum náttúruundur út á Fló-
anum sem gefur þeim ekkert eft-
ir”, sagði Jón Ó. Hjörleifsson
umboðssali i samtali við Visi en
hann flytur inn fjölskyldubáta
fyrir þá sem vilja stunda sigling-
ar sér til skemmtunar og heilsu-
bótar.
Jón sagði að allt I kringum sig
.hefðu Reykvlkingar nóg tækifæri
~&~>éf£fcL£.i6r?
Sonur Jóns Hjörleifur M. Jónsson sýnir fjöiskyldnbátinn á sýningunni Auto '78.
Vfsismynd JA.
Mesta sportið er að láta reka og dorga i soðið. Hér eru Snarfaramenn
lagðir frá landi við Keili að sigla út á sundin biá.
Þá væri ekki nema um klukku-
stundar sigling út á Garðsskaga
en þar fyrir utan væri eitt hið
besta fiskisvæði fyrir
handfæraveiðar eða sjóstanga-
veiði. Það tæki örskamma stund
að bregða sér upp I Kollafjörð og
til dæmis væri 15 mlnútna sigling
upp á Akranes. Þá væri hægt að
stunda fuglaveiðar á Flóanum og
beir sem hefðu aðstöðu til stund-
pðu eggjatöku á vorin I eyjunum I
grennd við borgina.
Jón sagði að til fyrirmyndar
værisú aðstaða sem Æskulýðsráð
hefði búið unglingum til siglinga
og bátasmlða I Nauthólsvlk. Hins
vegar snerist dæmið alveg við I
sambandi við^fullorðna þvl að-
staðan til að stunda þessa Iþrótt I
dag væri i algjöru lágmarki. Væri
svo komið að þeim væri sem þvl
næst úthýst úr borginni. Sagði
hann að Snarfari, félagsskapúr
sportbátaeigenda hefði farið
fram á aðstöðu I Elliðavogi og um
það hefði náðst samstaða i borg-
arráði.
A sýningunni Auto ’78 sýnir Jón
einn enskan 19 feta fjölskyldubát.
Báturinn er yfirbyggður að fram-
an og i káetunni er rúm fyrir fjóra
til fimm. Hann er úr trefjagleri
með trélistum á byrðingnum, og
honum fylgja ýmis siglingatæki
eins og dýptarmælir og áttaviti.
Sjötíu og fimm hestafla vél er i
bátnum og kemst hann með um 35
milna hraða á klukkustund. Verö
bátsins er um þrjár milljónir.
„Reykvikingar þurfa ekki aö
leita langt yfir skammt til aö
komast I heilnæmt útiloft að
minnsta kosti ekki eftir rykugum
vegum. Sundin eru útivistarperla
sem heilla alla sem komast I
kynni við þau”.
—KS
Nýr garð-
yrkjustjóri
ráðinn á
Akureyri
Einn umsækjandi var um stöðu
garðyrkjustjóra á Akureyri þegar
staðan var auglýst laus til
umsóknar. Sá sem sótti um stöð-
una var Arni St. Jóhannsson sem
búsettur er I Kaupmannahöfn.
Skrúðgarðanefnd Akureyrar
lagði til að Arni yrði ráðinn i
starfið og hefur það verið sam-
þykkt I bæjarstjórn. Mun Árni
taka við starfinu um næstu ára-
mót.
—SG.
Ólíkir skoðanahópar stofna félag:
Búast mó við fjörugum
fundum í Manneldisfélaginu
Hópur manna sem áhuga
hefur á manneldismálum
stofnaði formlega i gær-
kvöldi Manneldisfélag tslands. t
þessu félagi eru margir sem hafa
hart deilt um fæöu og neysluvenj-
ur I ræðu og riti og þvi vaknar sú
spurning hvort andstæðingar fall-
ist nú I faðma og hætti öllum deil-
um um hvað sé hollt og hvað sé
ekki hollt.
„Það er nú ætlast til þess að
menn geti deilt um hlutina á þess-
um vettvangi heldur en I f jölmiðl-
um. Eftir er að sjá hvernig til
tekst og hvort félagsstofnunin
veröi til þess að menn hætti að
rlfast opinberlega um þessi mál”
sagði dr. Björn Dagbjartsson sem
mikið hefur starfað að stofnun
félagsins.
Björn var spurður hvort ekki
mætti vænta fjörugra félagsfunda
og taldi hann það liklegt enda
væru skoðanir skiptar I þessum
efnum.
Undirbúningsfundur að félags-
stofnuninni var haldinn fyrir
nokkru. Þar kom fram aö meðal
helstu markmiða félagsins skyldi
vera að auka skilning Islendinga
á þýðingu fæðunnar fyrir velliðan
og góða heilsu, og skapa vettvang
til skoðanaskipta fyrir alla sem
áhuga hafa á hollum neysluvenj-
um.
Einnig að veita fræðslu og
koma á framfæri upplýsingum
um næringargildi og
hollustuhætti meðal þeirra sem
vinna að framleiðslu eða vinnslu
matvæla og að stuöla að nýtingu
innlendra hráefna til manneldis.
öllum áhugamönnum er heim-
iluð þátttaka I þessu félagi.
—SG.
Við opnum
#•
í dag opnum við nýjar dyr til fjaríægra landa.
Dyr nýrrar söluskrifstofu okkar í Hótel Esju.
Þar er greið aðkoma hvaðan sem er úr bænum og
næg bílastæði.
FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR
ÍSLANDS