Vísir - 28.04.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 28.04.1978, Blaðsíða 10
10 VÍSIR utgefandi: Reykjaprenth/t Framkvæmdastjóri: Daviö Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. Úlafur Ragnarsson Ritstjórnarfullfrui: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund- ur Pétursson. Umsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jóns’son, Guðjón Arngrimsson, Jon Einar Guðjonsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefáns- son. Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjártan L. Pálsson. Ljósmyrtdir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. utlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglysinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R Petursson Auglýsingar og skrifstof ur: Siðumúla 8. símar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Jiitstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald erkr. 2000 á mánuði innanlands. Verö i lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f. Betra er seint en aldrei Ekki verður annað sagt en ríkisstjórnin sé á elleftu stundu að koma fram ýmsum þeim umbótamálum sem fyrirheit voru gefin um í stefnuyfirlýsingu hennar i byrjun kjörtimabilsins. En stjórnin hefur það að sjálf- sögðu sér til af sökunar að betra er seint en aldrei. Þannig er þessu farið með verðmyndunarfrumvarpið, sem óneitanlega er eitt af þýðingarmestu málum, er fram hafa komið i þinginu síðustu vikur. Það hef ur legið lengi í skrifborðsskúf f u uppi í viðskiptaráðuneyti sem eins konar tákn um það hversu smeykir menn eru við að hverfa frá ríkjandi haftakerfi í verðlagsmálum. En við umræður á Alþingi um þetta mál hef ur það vak- ið athygli að tveir af leiðtogum stjórnarandstöðunnar hafa Ijáð frumvarpinu fylgi sitt. Þetta eru þeir Magnús Torfi Olafsson og Gylfi Þ. Gíslason. Afstaða þessara tveggja stjórnarandstæðinga hlýtur að vekja athygli af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi sýnir hún að þingstörfin eru ekki alltaf sandkassaleikur eins og stundum vill brenna við. Þar eru þrátt fyrir allt menn sem risa upp fyrir meðalmennsk- una og taka afstöðu eftir málefnum. í annan stað bendir þessi afstaða til þess að trú manna á álagningarhafta- kerfið fari minnkandi. Sú visbending er ekki hvað síst mikilvæg. Þingmenn Framsóknarflokksins ætluðu að styðja mjög svipað frumvarp í tíð viðreisnarstjórnarinnar. Á siðustu stundu komust þeir hins vegar að þeirri niður- stöðuaðþeir mættu fyrir enga muni styðja ríkisstjórnina i svo veigamiklu máli. Þeir fóru því eftir leikreglum sandkassans. Viðreisnarstjórnin stóð þó ekki betur að málinu en svo að einn af ráðherrum hennar brá fæti fyrir framgang þess við atkvæðagreiðslu í efri deild. Þessar samverk- andi ástæður fyrir falli frumvarpsins á sínum tima leiddu til þess að í heilan áratug hefur ekkert gerst í þessum efnum. Gylfi Þ. Gislason sem bar frumvarpið fram á sínum tíma sem viðskiptaráðherra, hef ur í engu breytt afstöðu sinni þó að hann sitji nú í stjórnarandstöðu. Og afstaða Magnúsar Torfa Ólafssonar er enn eitt merki þess að hann er öðrum þingmönnum fremur hafinn yfir sand- kassaleikreglurnar sem æði oft ráða málflutningi og niðurstöðum mála á Alþingi. Þrátt fyrir afstöðu Gylfa Þ. Gíslasonar er Alþýðu- flokkurinn sem fyrr klofinn í afstöðu sinni til málsins. Þar krystallast sú erf iða aðstaða sem Alþýðuf lokkurinn er i um þessar mundir. Hann er bæði að höfða til frjáls- hyggjufylgis sem telur ríkisstjórnina hafa tekið á efna- hagsmálunum of miklum vetlingatökum og kjósenda Al- þýðubandalagsins. Að þessu leyti er Alþýðuflokkurinn milli steins og sleggju og það kemur f ram í máli eins og þessu. Kjarni málsins er þó sá að fordómarnir gagnvart frjálsri verðmyndun fara minnkandi. Ýmsir stjórn- málamenn hafa i gegnum tiðina alið á oftrú fólks á álagningarhaftakerfið. En nú sýnist fólk almennt hafa meiri áhuga á að fara inn á nýjar brautir sem eru reynd- ar orðnar gamlar og viðurkenndar i öllum grannríkjum okkar. Einmitt þess vegna sýnist verðmyndunarfrum- varpið nú eiga greiðari leið i gegnum þingið en fyrrum. Þó að frumvarpið sé á margan hátt gallað, er það skref í rétta átt. i sjálfu sér gegnir furðu, að Alþingi skuli leyfa sér að framselja ákvörðunarvald um frjálsa verðmyndun i hendur verðlagsráðs. Að réttu lagi ætti Al- 'þingi sjálft að taka af skarið i þessu efni en ekki opna heimildir fyrir minniháttar stjórnvald til þess að taka endanlegar ákvarðanir. Föstudagur 28. april 1978 vísm Franska þjóðin mœtti ekki á sitt sögulega stefnumót Um úrslit frönsku þingkosning- anna Sambandi franskra kjósenda og vinstri flokkanna hefur verið likt við trúlofun, sem aldrei nær þvi að verða að giftingu. Þótt Frakk- ar séu með hjartað vinstra meg- in, reynist seðlaveskið þyngra á metunum hægra megin, þegar á hólminn er komið. Er úrslit seinni umferðar þing- kosninganna voru gerð heyrin- kunnug sunnudagskvöldið 19. mars, i sjónvarpssal,brugðust og margir talsmenn stjórnarand- stöðunnar við eins og illa svikinn ---------------------\ Viðar Víkingsson skrif- ar frá París fyrstu grein eftir úrslit frönsku þing- kosninganna i siðasta mánuði. kærasti og hörmuðu það, að franska þjóðin hefði ekki mætt á sitt sögulega stefnumót. Og þeir máttu trútt um tala, þar sem til- hugalifið hafði átt sér langan að- draganda með að þvi er virtist si- fellt vaxandi ástriðuhita. En eftir að hafa kastað fjölda rósa ofan af svölunum i héraðskosningum, bæjarstjórnarkosningum og skoðanakönnunum, hljóp franska brúðurin frá altari þingkosning- anna með slæðuna aftur af sér eins og klippt út úr Hollywood- mynd. Hver fékk jáyrðið? Margir eru þeirrar skoðunar, að þrátt fyrir aðdráttarafl tilvon- andi brúðguma, sósialistans Mitt- erands, sem vafalaust hefði orðið forsætisráðherra i vinstri stjórn, hafibrúðurin skelfst svaramann- inn, þ.e. kommúnistann Marchais, og þvi flúið i faðm pabba, þe. forseta lýðveldisins, Giscards d’Estaing. Það er ekki svo litil þversögn i þvi fólgin, að Giscard, sem fyrir skömmu var talinn dæmigert fórnarlamb kosningakerfis fimmta lýðveldisins vegna óljóss hlutverks forsetans, skuli nú vera borinn á lárviðarsveigum sem sigurvegari einmitt i krafti þessa kerfis. Skoðanakannanir höfðu O Sólkonungur í $ Allt fram á þennan dag hefur það verið trú manna, aö þing- meirihluti væri nóg til aö koma við nauðsynlegri stjórnun á þjóð- Neðanmóls Indriði G. Þorsteinsson skrifar: Með því að virða ekki ákvarðanir Alþingis er fólk að kalla yfir sig breytingar, sem það hefur siðar meir enga stjórn á... Stjórn- mál verða að mótast af réttsýni. Þau þola ekki fjölda sólkonunga og ekki einn slíkan. r félaginu. Mikill þingmeirihluti eða litill skipti ekki ýkja miklu máli i þessu tilfelli, þótt það hafi þótt bera vott um styrk stjórnar að hafa mikinn þingmeirihluta á bak við sig. Nú hefur slik meiri- háttar meirihlutastjórn setið að völdum i landinu i fjögur ár, en þó hafa helztu einkenni hennar verið einskonar skortur á fram- fevæmdavaldi. Skýringanna á þessum skorti er m.a. að leita i skrifum um stéttasættir og ný- sköpunarstjórn, aö svo miklu leyti sem slik skrif höfða til úr- lausna vegna minnkandi fram- kvæmdavalds. Visir og nýsköpunar- stjórnin Hér i Visi hafa verið skrifaðar nokkrar forustugreinar, þar sem bent hefur verið á nýsköpunar- stjórn sem hugsanlega leið út úr eínahagsvandræðum þeim, sem nú steðja að þjóðinni, og frestað hefur veriðað leysa til frambúðar þangað til aö kosningum loknum. Til grundvallar þessum skrifum liggur sá þanki, að með þvi að kalla svonefnda verkalýösflokka til þátttöku i stjórnarsamstarfi verði hægt að ná haldbetra sam- komulagi um nauðsynlegar úr- lausnir en nú liggja fyrir. Þessu er haldið fram þrátt fyrir efna- hagsvandann, sem vinstri stjórn- in skildieftirsigá vordögum 1974. Skorti þá ekki á að pólitisk sam- staða hafði staðið um stund milli verkalýðsflokks og flokks, sem -ilefur m.a. mikið með samvinnu- verzlunina í landinu að gera. Þeir eru margir sólkon- ungarnir Lúðvik fjórtándi lét nefna sig sólkonung, en þótt hann kenndi sig viö sólina virtist skorta tölu- vert á að maðurinn risi undir nafni, Þegarliða tóká stjórnartíð hans varð Frakkland um þaö bil gjaldþrota. Átti sólkonungurinn við fáa aö skaast um þau mála- lok, þvi hann var aöeins einn sól- konungur i riki sinu. Oðru máli gegnir um hinn þráláta islenzka efnahagsvanda. Hannstafar m.a. af þvi að hér eru þeir margir sól- konungarnir. Ogdæmin hafa sýnt að erfitt er að þjóna þeim öllum, og varla yrðu þeir heppilegri viðureignar,þóttþeim væri öllum steypt i einanýsköpunarstjórn. Stéttastriðið og sólkon- ungar verkalýðsins Svo vikiðsé nokkrum orðum að stéttastriðinu, þá er þess að gæta, að i engú landi i veröldinni eru greidd laun, sem launþegum þætti ekki ágætt að væru hærri. Hvergi fyrirfinnst neinn mæli- kvarði, hvorki i sósialistiskum löndum né i löndum kapitalista, sem kveður á um það, að laun skuli almennt vera einhverrar sérstakrar upphæðar. Talað er um þjóðarframleiðslu og fjár- festingarhiutfall af þjóðartekjum og fundnar prósentutölur, sem mættu eftir atvikum ákvarða launin frá ári til árs. Kannski er þetta skynsamlegasta leiðin. Þó er enginn friður um hana vegna þess að tölur eru búnar til með ýmsum hætti og ekki sama hver

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.