Vísir - 28.04.1978, Blaðsíða 6

Vísir - 28.04.1978, Blaðsíða 6
Kinverskir fiskibátar: Ekki alitaf svo friðsælir. SKRÍTIN SJÓORUSTA í KÍNAHAFI Matrósar japönsku strandgæslunnar trúðu vart sínum eigin augum# þar sem þeij: voru á eftir- litssiglingu við Senkakus -r- fimm smáeyjar i austurhluta Kinahafs — í siðustu viku. Að þeim dreif heill floti kín- verskra fiskibáta, 140 talsins/ sumir vopnaðir þungum vélbyssum. 1 gegiium hátalarann vöruðu Japanirnir kinversku „fiski- mennina” við því, að þeir væru komnir inn í tóif milna land- helgina. Kinverjarnir svöruðu með þvi að bregða upp timbur- bör„ðum, sem á var ietrað: ,,Tiaoyutai tilheyrir Kina.” Eftir þvi sem sjóorrustur ger- ast, þá var þessi árekstur næsta ómerkilegur. Enda býst enginn við þvi, að þessi ögrun fiskibát- anna i siðustu viku leiði til styrjaldarmilli Kina og Japans. Um tima var þó loft lævi bland- ið, meðan Kinverjarnir hömp- uðu vélbyssum sinum, og vist er um þaö, aö eftir hann ristir heldur grynnra grannskapur þessara tveggja Asiuvelda. Og svo rak þetta aö einmitt i sama 'mund, sem taka átti upp samningaviöræður um friöar- og vináttusáttmála Japans og Kina. Deilan um Senkakus, (eða Tiaoyutai eins og Kinverjar kalla smáeyjarnar, en það þýðir „Fiskaveröndin”) er siður en svo ný af nálinni. Kina og Japan — og reyndar Taiwan lika (eða Formósa eins og hún hét þá) — gerðu tilkall til eyjanna fyrir mörgum áratugum. Hvorugur gaf þessum útskerjum hrjóstug- um og óbyggilegum eins og eyjarnar eru, mikinn gaum, þar til 1969 að birtist skýrsla á veg- um Sameinuðu þjóðanna, sem gaf til kynna, að iandgrunnið umhverfis eyjarnar væri eitt „efnilegasta oliuvinnslusvæði heims”. Þá kom annaö hljóð i strokkinn. Þessi tvö riki tóku að skipast á móðgandi ummælum ogyfirlýsingum varðandi eigna- og umráðaréttinn yfir Senkakus á nefndarfundum hjá Samein- uöu þjóðunum, þar sem fjallað var um friösamlega nýtingu hafsbotnsins. Mestu öldurnar lægðu svo, og 1972 urðu Peking og Tokyo ásátt um að vera frið- samlega ósammála en reyna að bæta sambúöina. Það vefst fyrir mönnum að skilja, hvað vakir fyrir Kinveri- um með þvi að ýfa upp þessar gömlu væringar I siðustu viku. Engum kom það meir á óvart en Japönum sjálfum, sem voru furðu lostnir. Sunao Sonoda, utanrikisráöherra Japans, kann að hafa getið nærri um réttu skýringuna, þegar hann hélt, að Kinverjar hefðu sett atburðinn á svið til að sljákka ögn i ihalds- sömustu öflum Frjálslyndra demókrata, sem situr i stjórn i Japan. Frá þeim armi flokksins hefur veriö mikil andstaða við friðar- og vináttusáttmálann milli Japans og Kina. Mörgum öðrum þótti samt sem Kinverj- ar hefðu meö þessu gefiö þess- um andstæðingum sáttmálans bestu trompin á hendina. — „Þetta var heimskulegt og mun einungis sameina Japani i and- stöðunni við sáttmálann,” eins og einn þeirra sgði i viðtali við fréttamenn, Newsweek”. Hvað, sem fyrir þeim hefur vakað, þá virðast Kinverjarnir hafa slökkt alla vonarneista um, að samningar um vináttusátt- málann nái fram að ganga um næstu framtið. Sonoda utan- rikisráðherra kunngerði sjálfur, að leiða yrði þessa deilu til lykta og binda endi á yfirgang Kin- verja i japanskri iandhelgi, áð- ur en viðræður yrðu teknar upp aftur. Kinverjar hafa ekkert látið frá sér heyra um málið annað en lofa að rannsaka tildrög flotasiglingarinnar. Eftir fyrstu mótmæli Japans lét bátaflotinn kinverski undan siga út fyrir tólf milurnar strax daginn eftir, og hélt sig þar i sólarhring við landhelgismörkin. Siðan hefur kyrrð komist yfir. 197 BUÐIRNAR Óðinsgötu 5 Laugavegi 20 B Móttaka á gömlum munum: T7>:___^ 1,1 r 7 a U Utankjörfundaratkvœða- greiðsla i Reykjavik vegna sveitarstjórnarkosn- inga 1978 hefst sunnudaginn 30. april n.k. Kosið verður i Miðbæjarskólanum alla virka daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22, sunnu- daga og helgidaga kl. 14-18. Mánudaginn 1. mai n.k. verður aðeins kosið kl. 10-12. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.