Vísir - 28.04.1978, Qupperneq 5
5
vism Föstudagur
28. apríl 1978
Samningur um
lánaviðskipti
rikissjóðs við
Seðlabankann
Seðlabankinn og rikissjóður
hafa endurnýjað samning um
ýmis fjármálaleg samskipti
þessara aðila. í þessúm samn-
ingi skuldbindur Seðlabankinn
sig til að veita á hverjum tima
nauðsynlega árstiðabundna fyr-
irgreiðslu i samræmi við
greiðsluáætlun rikissjóðs.
Verði skuldamyndun rikis-
sjóðs umfram það sem gert er
ráð fyrir i greiðsluáætlunum
munu þær skuldir jafnaðar af
hálfu rikissjóðs annað hvort
með fjármálalegum aðgerðum.
eins og það er orðað i frétt frá
fjármálaráðuneytinu, innan
hvers f járhagsárs eða með lán-
töku utan Seðlabankans og i
samræmi við lánsfjáráætlun
næsta ársá eftir. Þá eru i samn-
ingi þessum itarleg ákvæði um
vaxtakjör er gilda skulu um
innistæður rikissjóðs og skuldir
við Seðlabankann.
—KS.
EINU
HUNDRAÐI
OFAUKIÐ
í fyrirsögn i Visi við frétt um
rafmagnsverð Landsvirkjunar
nú fyrir skömmu læddist inn
meinleg prentvilla. Þar var sagt
að raforkuverð til Álversins i
Straumsvik væri um 370%
hærra en til almenningsveitna á
siðasta ári,en þar átti að standa
um 270%. Eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar á þessu.
Verðtil almenningsveitna var
að meöaitali 319,1 eyrir á kwst.
árið 1977. En til Alversins 85,6
aurar. Rétt er að geta þess að
Áburðarverksmiðjan i Gufunesi
kaupir raforkuna frá Lands-
virkjun á sama verði og Alverið
iStraumsvik. —KS.
Höklorttir þrír
enn ófundnir
Höklarnir þrir, sem teknir
voru úr Frikirkjunni í Reykja-
vik þann 20. mars sl., hafa enn
ekki komið i leitirnar. Hafa
höklar þessir ómetanlegt gildi
fyrir kirkjuna Einn þeirra hefur
verið notaður af prestum safn-
aðarins frá upphafi, annan gaf
Hjalti Jónsson, skipsstjóri og
útgerðarmaður Fríkirkjunni ár-
ið 1949. Ekki verður séð að unnt
verði að koma höklunum i verð,
og heitir safnaðarstjórnin á fólk
aðhafa augun opin og láta rann-
sóknarlögregluna vita ef það
gæti gefið einhverjar upplýsing-
ar um hvar þeir séu niöur
komnir.
Mmm
■
VUWIC .. .
HUSBONDAHOLLUR
TÆKIFÆR1SSINNI
Golfinn er vakur vagn sem rvotar hvert tœkifæri til aö sanna
húsbónda sínum getu sína og hollustu. Jafnvel þó það kurmi að valda
öfund og afbrýði. Hann mœtir hverri þraut með lipurð og léttleika
eins og fólksvagns er von og vísa.
BORGARBILL
Betri borgarbíl finnurðu varla.
Golf er léttur og lipur í umferðinni -
bílastæðisvandamálum þarftu vart að
kvíða - finnirðu smugu kemurðu
Golfinum inn - hann er sniðinn fyrir
þröng 8tœði.
KmmliiÁlfiilriftnn
Úti á landi stendur Golfinn sig,
þægilegur í akstri og liggur vel.
Hugvit8amleg hönnun hans
veldur því að innra rýmið er mikið og
drjúgt, bœði fyrir farþega og farangur.
Farangursrýmið er 379 t. en með þreföldun á því
verður Golfinn ... _
••• FLUTNINGABILL
fjölskyldunnar
á augnabliki, með 1100 l. flutningsrými.
ÞRENNTI VIÐBÓT
Golfinn er sparneytinn og þú getur valið um bensín
eða dieselvél. Og svo er það hin landsfrœga varahluta-
og viðgerðarþjónu8ta Heklu - ekki má gleyma henni -
því það er eitt að kaupa bíl - annað að reka hann.
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
—EA
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR