Vísir - 28.04.1978, Page 18
NíYSLA OG
NÆGJUSmi
Aldrei virðumst viö Islending-
ar efast um það, að við séum
dugnaðar þjóð, fólk, sem getur
afkastað miklu á skömmum
tima, ef við tökum okkur til. Er-
um fær um að afla mikils þegar
fisktirinn er fyrir hendi, raka
saman miklum verðmætum
þegar góð tækifæri gefast.
Þetta eru vissulega miklir
kostir fyrir þjóð, sem byggir
frekar harðbýlt land, eða máske
erum svona dugleg og fær um,
og tilbúin til að taka til hendinni,
éinmitt af þvi að landið okkar er
eins og það, misviðrasamt land,
sem agar sin börn hörðum veðr-
um, löngum vetrum, torsóttum
lifsgæöum.
Allt þetta erum við að reyna
að yfirstiga. I þvi er fólgið mik-
ið af lisbaráttu þjóðarinnar,
a.m.k. þess hluta hennar, sem
vinnur úti á vettvangi hinna
gömlu atvinnuvega til sjós og
íands. Þeim, sem þar starfa, er
raunar sifellt að fækka hlut-
fallslega, aðstaðan að batna,
lifsskilyrðin betri og öðruvisi en
áður voru þau. Þessu hefur
þjóðin áorkað, þetta er það, sem
við köllum sóknina til betri lifs-
kjara þ.e. minni vinna, fleiri
tómstundir, meiri ráðstöfunar-
tekjur, riflegri samneysla eins
og eyðslan er gjarna kölluð nú á
timum.
Það væri ekki rétt, ef einhver
héldi að með þessum orðum,
með þvi að minna á þetta hér,
væri verið að átelja þessa
stefnu. Hitt skal fullyrt, til þess
að fyrirbyggja allan misskiln-
ing, að hér er einmitt rétt stefnt
ihöfuðdráttum þegar á heildina
er litið. Við hljótum að trúa þvi,
að höfundur lifsins ætlist til
þess, að maðurinn geri sér jörð-
ina lifsins ætlist til þess, að
maðurinn geri sér jörðina
undirgefna i þeim tilgangi og
með þvi skilyrði, að hann geri
umhverfi sitt fegurra og betra,
„hjálpi Guði til að skapa” eins
og Þórhallur biskup sagði að
ræktunarmaðurinn gerði. Og
það mundi þá aftur leiða til
þess, að hann yrði sjálfur gæfu-
rikari, ferill hans þroskavæn-
legri, lif hans auðugra, fegurra
og betra.
Én hér hljótum við að stan&a
frammi fyrir stórri spurn-
ingus.s. þeirri, hvort sóknin til
-betri lifskjara, ytri lifskjara, og
ávinningurinn á þvi sviði, hafi i
Æskulýðsblaöið er málgagn
unga fólksins i kirkjunni á
Norðurlandi. Nýlega er komið
út 1. tbl. 27. árgangs. Hitstjóri
þess er sr. Jón Baldvinsson á
Staöarfelli i Köldukinn.
rauninni borið þann árangur,
sem vitanlega er hennar til-
gangur — að gera manneskjuna
aö gæfusamari og þroskaðri
einstaklingi?
Þessu verður þvi miður ekki
svarað nema neitandi. Það er
ekkert samræmi milli hinna ört
batnandi ytri lifskjara og þess,
sem maöurinn nýtur á andlega
visu, og ætti að gera hann að
gæfunnar barni. Hér stöndum
við frammi fyrir þeirri stað-
reynd, sem svo er orðuð i krist-
inni kenningu:
Ekki er lif mannsins tryggt
með eigum hans. Hvað stoðar
það manninn þótt hann eignist
allan heiminn, ef hann biður
tjón á sinni sál o.s.frv.
Loks má vitna i Gamla testa-
mentið: Gef mér hvorki fátækt
né auðævi en veit mér minn
deildan verð. Ég kynni annars
að verða of saddurog afneita og
segja: Hver er Jahve? Eða, ef
ég yrði fátækur, kynni ég að
stela og misbjóða nafni Guðs •
mins.
Gott hefðum við af þvi, að
ihuga þessi orð og heimfæra þau
til okkar og afstöðu okkar til
lifsgæðanna og það óhóf og þá
óhugnanlegu kröfugerð, sem
uppi er hjá öllum stéttum og á
öllum sviðum. — Enginn virðist
ánægður með neitt — ólikt þvi,
sem var i fyrri daga þegar
nægjusemin var dyggð, hófsemi
Sr. Gísli Brynjólfsson
skrifar:
......
hins rétta lifsregla og sparsemi
sjálfsagður hlutur fyrir hvern
einstakling, háan, sem lágan. —
Hér má minna á frásögn
gamallar konu, sem minntist
jólahalds i bernsku sinni, þegar
skemmtaður var jólamaturinn
,,og öllum fannstsinn biti bestur
og ljúffengastur”, bætti hún við.
Af þessu gætu þeir sitt hvað
lært kröfugerðarpostularnir i
hagsmunabaráttu nútimans.
— 0 —
Ekkert er nú meira rætt held-
ur en verðbólgan, orsakir henn-
ar og afleiðingar. Óteljandi eru
þær greinar og ritgerðir sem
fjármálamenn okkar og hag-
spekingar hafa um hana ritað,
enda höfum við aldrei átt slikan
hóp lærðra manna i þeim fræð-
um eins og nú. En hvað stoðar
það? Aldrei hefur þetta fjár-
málamein verið jafn óviðráðan-
legt. Þótt hagfræðingarnir komi
með margvisleg ráð koma þau
ekki að gagni. Hversvegna?
Það er vegna þess, að meinið
er ekki að finna i tölum kerfisins
heldur i sálum mannanna, hið
innra með okkur sjálfum. Þetta
er að kenna fávisri eftirsókn
okkar eftir luxus og lifsþægind-
um. Og það harða kapphlaup
hefur leitt til þess, að embættis-
laun og aflafé margra manna er
komin langt fram yfir það sem
skynsamlegt og eðlilegt má telj-
ast i okkar litla þjóðfélagi. —
Þar er um að ræða margfaldar
þurftartekjur, sem vissuiega
eiga að vera mælikvarði og við-
miðun þegar rætt er um ráð-
stöfunarfé einstaklinganna. —
Þetta er verðbólgumeinsemdin.
Hana getur hver og einn fundið
hjá sjálfum sér. Hann þarf i
rauninni ekki að leita lengra en i
sinn eigin barm. Og það sem
meira er: Hann getur læknað
hana með þvi að eiga sjálfur
þann hlut að máli að vera sann-
gjarnari i skiptum sinum við
samfélagið, hófsamari á kröf-
um sinum, nægjusamari i nægt-
um neysluþjóðfélagsins.
Fara íslensk skip á
loðnu við Kanada?
Strandar
enn á
hráefnis-
verðinu
fíugsanlegt er að fjögur islensk
ioönuskip stundi veiöar undan
strönd Kanada i júni i sumar og
landi afla sinum i Kanada. i fyrra
l'óru tvö islensk loönuskip þangaö
i mai og júni.
Gunnar ólafsson hjá Andra h.f.
hefur undanfarna daga veriö úti i
Kanada aö semja viö aöila þar.
Gunnar er nýkominn heim og
sagöi liann i samtali viö Visi i
morgun aö samningar heföu ekki
tekist ennþá. Það ætti eftir aö
ákveöa hráefnisverö og viömiöun
viö filuinnihald loönunnar. Enn
- bæri nokkuö á milli og sagði
Gunnar að linurnar mundu skýr-
ast seinna i vikunni. —KS
Til sölu
Mercedes Benz 280 SE Coupé
árg. 1969. Leðurklœðning.
Rafmagnsrúður. Fallegur bíll.
Til sýnis og sölu hjá
Föstudagur 28. april 1978 vísm
OKEYPIS myndaþjónusta
opið til kl. 7
Opið i hádeginu og d laugardögum kl. 9-6
Lincoln Continental árg. '74, 8 cyl, 460
cub, 4 hólfa, tor, ekinn 33 þús. km. Vín-
rauður. Gott lakk. Gullfallegur glæsi-
vagn, hefur öll hugsanleg þægindi og
tosti. Fæst á mjög hagstæðu verði.
Frod Maverick árg. '70, 6 cyl, beinskipt-
ur. Blár. Gott lakk. Sumardekk og ný
vetrardekk. Útvarp. Verð kr. 1200 þús.
Skipti.
Bedf ord sendibíll árg. '71 með gluggum,
mælir og leyf i. Rauður. Gott lakk. Mikið
af góðum dekkjum. Samkomulag.
Skipti. Skuldabréf.
Bronco árg. '66, 6 cyl. Blár. Gott lakk.
Alveg ný gróf dekk. Útvarp. Skoðaður
'78. Verð 850 þús. Skipti.
Mazda 121 árg. '77, ekinn 13 þús. km.
Blár. Gott lakk. Útvarp. Segulband.
Verð kr. 3,7 millj. Skipti. Skuldabréf.
VW Fastback árg. '73, ekinn 3 þús. km á
vél. Blár. Gott lakk. Útvarp. Skoðaður
'78. Verð kr. 980 þús. Skipti. Amerískan
8 cyl, sjálfskiptan dýrari.
VW Variant árg. '66. drapplitaður. Gott
lakk. Verð kr. 250 þús. Útsala? Góð kjör.
50 þús. pr. mán.
BÍLASALAN SPYRNAN
VITATORGI
milli Hverfisgötu og Lindargötu
Símcr: 29330 og 29331
V