Vísir - 17.05.1978, Qupperneq 7
7
GMLAGEYJAKLASIMN
SÆLURSITURI
— bera vitni saksóknarans í Moskvu, sem lýsa „rúmgóðum húsakynnum, úgœtis fœði"
og fleiri hlunnindum. — Vitni Orlovs fó hinsvegar ekki að koma i vitnastúkuna
Búist er við þvi, að
dómar verði kveðnir upp
i dag i málum sovésku
andófsmannanna
þriggja, sem sakaðir
hafa verið um
andsovéskan áróður
fyrir að kvarta undan
mannréttindabrotum.
Einn þeirra, hinn 53 ára gamli
kjarneðlisfræðingur, Yury Orlov,
bar á móti þvi fyrir dómi i
Moskvu, að starf hans sem leið-
togi „Helsinkihópsins” væri
undirróðursstarfsemi. Hinir sak-
borningarnir tveir, sem dregnir
hafa verið fyrir réttt i Tbilisi i
Georgiu, hafa játað sök sina.
Réttarhöldin hófust á báðum
stööunum á mánudaginn. I
Moskvu leyfðu yfirvöld ekki aðra
áheyrendur að réttarhaldinu en
eiginkonu Orlovs og tvo syni hans
af fyrra hjónabandi. öllum vin-
um, vestrænum fréttamönnum og
fulltriía úr bandariska sendiráð-
inu var visað frá.
Fyrsta daginn gekk lögreglan
kurteislega en ákveðið til verks
við að visa fólki frá. 1 gær þótti
mönnum hinsvegar hennar aðfar-
ir ekki fagrar, þegar lögreglan
reyndiað aftra fréttamönnum frá
þvi að skrá niður frásögn frú
Orlov af þvi sem borið hafði við I
réttarsalnum.
Læknar höfðu „afhjúpað
lygarnar” i fullyrðingum
Helsinkihópsins um, aö yfirvöld
notuðu geðlækningar og
geðveikraspitala til pólitískrar
kúgunar. Hafnarverkamenn frá
Riga höfðu borið vitni þvi, að ekk-
ert verkfall hefði verið þar, eins
og Orlov hafði haldið fram 1976.
Frú Orlov var ekki leyft að yfir-
gefa réttarsalinn i matarhléinu I
gær til þess að hitta fréttamenn
og gefa þeim skýrslu. Hún sagði
þeim i gærkvöldi, að réttarhaldið
hefði snúist upp I skopleik, þar
sem áhorfendur hefðu eiginmann
hennar að athlægi.
Hún lysti þvi, að auk hennar og
tveggja sona Orlovs. væri þröngt
setinn áhorfendabekkurinn af
svonefndum „fulltrúum al-
mennings”. Hún sagði, að dómar-
inn gripi æ ofan i æ fram i fyrir
Orlov, þegar hann væri að
yfirheyra vitni.
Þremenningarnir geta átt yfir
höfði sér allt að 7 ára vist i
þrælkunarbúðum, auk 5 ára
útlegðar I Siberiu.
í fréttum sinum af réttarhöld-
unum i Moskvu hefur Tass-frétta-
stofan ekki látið neinn i vafa um,
að Orlov muni fundinn sekur.
„Glæpsamlegt atferli Orlovs hef-
ÆtSa að bjarga
útlendiugum úr
Shaba-héraðinu
Bandarikin hafa
herlið og flugvélar til
taks til að flytja burt
útlendinga úr Shaba-
námuhéraðinu i suður-
hluta Zaire, þar sem
uppreisnarmenn eru
sagðir hafa náð á sitt
vald námabænum
Kolwezi.
Hin opinbera fréttastofa Zaire
hélt þvi fram i gærkvöldi, að
uppreisnarmenn heföu tekið
fyrir gisla um 100 útlendinga af
3.000 (aðallega Belgiumenn og
Frakkar), sem starfa I Shaba.
— Um 70 Bandaríkjamenn og 20
Bretar eru einnig á þessum
slóðum.
Staðfestar hafa veriö fyrri
fréttir um, að þrir Belgiumenn
og einn Itali hafi fallið i bardög-
unum um Kolwezi.
Uppreisnarmennirnir sóttu að
námabænum með 4.000 manna
lið, sem kemur allt frá bæki-
stöðvum iAngóla. Þeir eru bún-
ir sovéskum vopnum og þykir
vafalitið að þeir hafi notið þjálf-
unar hjá Kúbumönnum, sem
staðsettir eru i Angóla.
Talsmaður þeirra segir, að
stjórnarherinn hafi beðið mikið
afhroð I Kolwezi, og flúið bæinn.
Hin opinbera fréttastofa Zaire
segir, að stjórnarherinn hafi
varpað fallhlifaliöi niður yfir
námabæinn og hafin hafi verið
gagnsókn til þess að hrekja upp-
reisnarmenn á burt. — Seint i
gærkvöldi sagði Cyrus Vance,
utanrikisráðherra Bandarikj-
anna, að hann hefði áreiðanleg-
ar heimildir fyrir þvi, að
Kolwezi og flugvöllur bæjarins
væri enn á valdi uppreisnar-
manna.
Kosningar í
Dóminíkanska
lýðvekfínu
Antonio Guzman, einn
frambjóðanda stjórnar-
andstæðinga i
Dominikanska lýðveld-
inu, tók forystuna, þegar
atkvæði voru talin i nótt
eftir forsetakosningarn-
ar i gær.
Þegar atkvæði höfðu verið talin
úr 59 kjördeildum af rúmlega
1.200 i höfuðborginni Santo Dom-
ingo, hafði umbótarflokkur Guz-
mans fengið 11.406 atvkæði á móti
5.394 atkvæðum sem hinn aldraði
Joaquin Balaguer, forseti hafði
fengið.
Balaguer, sem hefur verið við
völd frá þvi 1965, þegar borgara-
styrjöldinni lauk, á þó meira fylgi
að fagna úti á landsbyggðinni, og
var búist við þvi, að hann mundi
síga upp aö hlið Guzmans, þegar
liði á atkvæðatalninguna, ef ekki
fara fram úr.
Frambjóðendur voru fimm en
aðrir þóttu litt koma til greina.
Fyrir kosningar var almennt bú-
ist við endurkjöri Balaguer for-
seta, sem hefur staðið fyrir
lýðræðislegu sjónarfari. En
Guzman þótti samt liklegur til að
veita honum keppni. Mjög kom þó
á óvart, hve mikið forskot hann
virtist ætla að fa meö fylgi sinu
meðal höfuðborgarbúa.
ur verið staðfest af vitnum,”
sagði þessi opinbera fréttastofa i
gærkvöldi.
Meðan á réttarhöldunum stóð i
gær söfnuðust nokkur ungmenni
fyrir utan réttarsalinn og hrópuðu
slagorð fjandsamleg Gyðingum
að vestrænu fréttamönnunum,
sem þar biðu. Myndatökumenn
frá vestur-þýska sjónvarpinu
fengu ekki að munda myndavélar
sinar fyrir lögreglunni.
Eftir þvi sem frú Orlov lýsti
gangi réttarhaldsins i gær, höfðu
vitnin afsannað, að mannréttindi
væru brotin i þrælkunarbúðum,
fangelsum eða geðveikraspitöl-
um, eins og Helsinkihópur Orlovs
og raunar fleiri andófsmenn hafa
þó haldið fram.
Frúin sagði, að saksóknarinn
hefði leitt fram fimmtán vitni, en
dórmarinn hafði meinað þeim
vitnum, sem Orlov vildi leiða
fram, að koma I vitnastúkuna.
Meðal vitna, sem Tass-frétta-
stofan greinir frá, voru tveir
fangar, sem Tass segir, að hafi
veriö sóttir til hegningarvinnu-
búða. Tass hefur eftir þeim, að
aðbúnaður i búðunum sé góður
með rúmgóðum vistarverum,
ágætis fæði og aðgangi að verslun
og kvikmyndasýningum.
Ólympíuleik-
arnir V 984
Alþjóðlega Ólympiu-
nefndin virðist núna,
þegar hún kemur saman
til ársfundar i Aþenu,
hafa greitt götu þess að
Los Angeles fái að halda
Ólympiuleikana 1984.
Killanin lávarður, forseti
nefndarinnar, mun strax i upp-
hafi fundarins gera grein fyrir
samningunum, en Tom Bradley,
borgarstjóri Los Angeles, hefur
látið eftir sér hafa, að samningar
hafi tekist.
Olympiunefndin á eftir aö
greiða atkvæði um samningana.
Bradley borgarstjóri sagöi, að
Kaliforniubúar þyrftu ekki að
kviða þvi að halda leikana, eins
og samist hefði. — Los Angeles
sótti um að halda leikana 1972 og
1976, en fékk ekki.
A fundi Olympiunefndarinnar
verður einnig skorið úr um, hvaða
tilboði skuli takið um vetrarleik-
ana 1984. Fulltrúar frá Gautaborg
i Sviþjóð, Sarajevo i Júgóslaviu
og Sapparo i Japan munu gera
nefndinni grein fyrir tilboðum
þessara borga á fundinum i dag.
Baby
Vöwdfer
•<^\
Bab\'
VötÍOft
Baby
SAVLON
Care®
SAVJON
SAAJON V5 Stxáhesnnd P"~~
JUg) m BibvCSf
JDai/u
Care w
Fœst um allt land. inm&n ,
Heildsölubirgðir: Sími 827o?erw ^