Vísir - 25.05.1978, Blaðsíða 8

Vísir - 25.05.1978, Blaðsíða 8
///>: / v Fimmtudagur 25. mai 1878. vísra fólk BHl phmðlelkarans fyrlr framan mHljén dollara hús hans I Las Vegas' Píanóbíllinn Píanóleikarinn Liber- ace er töluvert gefinn fyrir prjál. Föt hans eru með eindæmum skraut- leg og húsin sem hann á viðsvegar um heiminn eru eins og ævintýra- hallir. Og það er auðvitað útilokað fyrir svoleiðis mann aðaka um í venju- legum bíl. Þegar hann fékk sér nýjan bíl, ekki alls fyrir löngu, fór farartækið beint í hend- ur nokkurra listamanna sem áttu að gera það samboðið meistaranum. Svo voru blaðamenn og Ijósmyndarar kallað- ir á vettvarig og fengu að smella mynd af dýrð- inni fyrir framan milljón dollara hús Liberaces í Las Vegas. Liberace er nú kominn vel yf ir miðjan aldur, en nýtur áfram mikilla vinsælda. Hann hefur varla undan að hafna tilboðum um að koma fram á frægum stöðum víðsvegar um heiminn. Hann er löngu orðinn ’ margfaldur milljóna- mæringur á öllu saman og þyrfti ekki að vinna handtak það sem ef tir er ævinnar.,, En ég get ekki lifað án þess að spila fyrir fólk," segir hann. Maginn áJunot Það hlýtur að vera þreytandi á stundum að vera frægur og alltaf með Ijósmyndara og blaðamenn á hælum sér. Það er sama hversu lítilf jörlegt það er sem frægar persónur taka sér fyrir hendur, þvi er slegið upp sem stórf rétt. Hvað þá ef þær verða fyrir einhverju smá- vægilegu óhappi. Philip Junot, unnusti Karólínu, prinsessu frá Monaco var eigi alls fyrir löngu ( næturklúbbi með sinni heittelskuðu. Ein talan á hvítu skyrtunni hans losnaði og það mátti greina smáblett af brúnum maga. Það var engu lík- ara en hann hefði dans- að nektardans. Blöðin slógu upp stór- JnBot og KartUiia I utur- kldbbnum. ba» voru settar hvltar örvar inn á myndirnar svo aft allir tækju eftir því aÖ þaö sást I magann. um myndum af honum daginn eftir, með mis- munandi ónákvæmum eða villandi fyrirsögn- um: ,,Junot dansar magadans" og þar frameftir götunum. Og til þess að stóratburður- inn færi nú ekki framhjá lesendum, voru sett hvít ör inn á myndirnar til þess að allir mættu sjá magann brúna. o Knievel i fangelsi Það var sagt frá þvi hér um daginn að ofur- huginn Evel Knievel hyggðist vinna sér inn tuttugu milljónir dollara með þvi að stökkva fall- hlífarlaus úr sprengju- f lugvél í f jörutíu þúsund feta hæð, og lenda í hey- sátu. Eftir það ætlaði kapp- inn að draga sig I hlé. Nú er hinsvegar ekki vist að þetta fari samkvæmt áætlun, þvi Knievel er I fangelsi I Los Angeles og skattayfirvöld hafa hirt meirihlutann af auðæfum hans. Fangelsisdóminn fékk Knievel fyrir að berja á fyrrverandi umboðs- manni sínum með „baseball"-kylfu. Að vísu á hann ekki að sitja inni I nema hálft ár eða svo, en einhvernveginn virðist sem mesti glans- inn sé farinn af ofur- huganum. Blöð I Bandarikjunum eru heldur kuldaleg ( hans garð og segja að það sé óvíst að hann framkvæmi „stóra stökkið" því hann sé „búinn að vera".Knie- vel er nú þrjátíu og níu ára gamall og sagður i létegri þjélfun. Evel Knle/el Tarsan kom rétt tlmanlega] til aft hindra a& gorilla apinn dræpi Tom c 1912 'jniue r#»iur« Snaicíi* Tarsan beiö viöbúinn meöan apinn kom froöufellandi lútt til hans Ég sem hélt aÖ framsóknarmenn væru grænir og þvott ekta og þyldu samstarf viö aöra Hlýtur aö vera ný upp- ^ skrift, sem Vilma hefur ekki Aumingja stelpan — Þaö er ekki- nóg meö aö hún þurfi aö kyssa hann til aö halda I hann heldur^ ^~þarf hún llka aö halda Ihann . til aö kyssa hann

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.