Vísir - 25.05.1978, Blaðsíða 7

Vísir - 25.05.1978, Blaðsíða 7
vism Fimmtudagur 25. mai 1978. LURIE — eff kosningar ffoeru ffram nú Samkvæmt skoðana- könnun i Bandarikjun- um mundi Edward Kennedy sigra Carter i forsetakosningum ef þær færu fram nú. Það kemur fram í skoðana- könnuninni, að Kennedy myndi fá um 60 prósent atkvæða, en 1 öðrum könnunum hefur það einnig komið fram, að vinsældir forsetans fara sifellt minnkandi og vinsældir hans hafa minnkað mjög, eða allt að 29 prósentum. Carter hefur ekki viljað gefa þaö upp ennþá hvort hann ætli að fara i kosningaslaginn i næstu forsetakosningum, 1980. Ferðost á fyrsta farrými: ... Moskva: RAÐIST INN A SKRIFSTOFU FINNSKA FLUG FÉLAGSINS Ungur Sovétmaður réöst inn i skrifstofu finnska flugfélagsins Finnair i Moskvu um hádegis- biiið i gær, tók þar tvo gisla og heimtaði að sér yrði útveguð flugvél svo hann gæti farið úr landi. Eftir nokkra skothrið yfir- buguðu sérþjálfaðar lögreglu- sveitir manninn, sem er 22 ára gamall. Gislar hans sluppu. Slagurinn við manninn stóð i rúman kiukkutima og skrif^tofa finnska flugfélagsins I Moskvu er nokkuð mikið skemmd en starfsemin hélt þar áfram eins og ekkert hefði i skorist eftir há- degið en merki um skotbardaga og brotnar rúður minntu á þenn- an atburð, sem er fyrsti sinnar tegundar sem fréttist af frá Sovétrikjunum. Forsœtisráðherra Belgíu leggur til: Öryggissveit- um verði kom- ið upp í Afríku Belgiska forsætisráð- herranum Leo Tindeman virðist hafa tekist að setja niður deilur lands síns við Zaire. Forsætisráðherrann hitti forseta Zaire# MobutO/ i París i gær, en sá fundur kom öllum að óvörum. A fundi með forsetanum kom' belgiski forsætisráðherrann með þá tillögu að settar verði upp ör- yggisgæslusveitir Afrikurikja. Rikin tvö, en Zaire er gömul belgisk nýlenda, lentu upp á kant, þegar Mobuto forseti sakaði belg- iska utanrikisráðherrann um að hafa svikist undan merkjum þeg- ar hann tilkynnti ekki, samkvæmt beiðni, um að Saire færi fram á aðstoð við að brjóta uppreisnar- menn á bak aftur. Utanrikisráð- herrann neitar þessum sakar- giftum forsetans. Þeir hvitu menn sem vinna i Shaba-héraði eru i tengslum við hinar miklu koparnámur sem eru i landinu. Nærri þvi tvö hundruö manns létu lifið fyrir vopnum uppreisnarmanna. Uppreisnarmenn i Zaire: MÖRFA TIL ANGÓLA Hópar uppreisnarmanna hörfa nú undan frönskum hermönnum sem hafa fylgt þeim eftir á flóttan- um. Uppreisnarmenn fara til stöðva sinna í Angola og hafa væntanlega með sér einhvern hluta gislanna sem þeir tóku í Kolwesi. Vestrænir diplómatarhafa látið hafa það eftir sér að þeir byggjust ekki við að uppreisnarmenn myndu koma með gislana til Zambiu heldur myndu þeir koma þeim beint frá Zaire til Angola. Sést hefur til uppreisnarmanna úr landamæraþorpum þar sem þeir hafa farið yfir landamæri Zaire inn i Angola. Þeir virtust hafa nokkuð af farartækjum en að sögn þorpsbúa voru margir hverjir fótangandi. Ekki sáu þorpsbúar að þeir hefðu hvita gisla meðferðis. Skoðanakönnun í Bandaríkjunum: Bandaríkin: Valdið hjá frú Carter Carter forseti verOur að reyna að finna út leið til að falla landsmönnum betur i geð, þvf vinscldir hans hafa minnkað mjög undanfarið. Kennedy sigraði Carfer Carter ekki nema um 35 prósent. Carter er nú að undirbúa ferð sina um Illinois-riki og Vest- ur-Virginiu, þar sem hann ætlar að reyna að bæta á vinsældir sinar. Það er ABC-Louis Harr- is-stofnunin sem gengst fyrir þessum skoðanakönnunum. í könnun fyrirtækisins kemur þaö einnig fram að Carter myndi biða lægri hlut fyrir fyrrverandi forseta, Gerald Ford, og einnig ef Ronald Reagan færi i fram- boð á móti forsetanum. — segir Bob Hope Bandaríski grínistinn Bob Hope byrjar á því aö halda upp á afmælisdaginn sinn snemma í ár en hann er nú 75 ára. Hann hefur nú opnað mikla skemmtun þar sem hann mun skemmta á hverju kvöldi ásamt öðrum mjög svo þekktum mönnum og kon- um næstu vikurnar. Skemmtunin fer fram I Kennedy Centre i Washington. Þangað kom Carter forseti til að heilsa upp á Hope sem lét forset-' ann aldeilis heyra það. ,,Ég hef heimsótt þingið og Hvita húsið”, sagði Hope ,,en ég hef aldrei rek- ist á þá persónu sem hefur valdið i hendi sér, frú Carter”. A meðal gesta hjá Hope voru Elizabeth Taylor og Fred Mac- murray. Einnig voru þar margir Bob Hope leikari skemmtir fyrírfólki Bandarikjanna í Kennedy Center. þingmenn og aðrir embættismenn i Washington. Þýskaland: FIÓÐ í RÍN Ailar skipaferðir um Rin, frá Sviss til Mannheim voru stöðvaðar i gær vegna þess hve hækkað hafði i ánni vegna mikiiia rigninga undanfarið. Sérstök neyðarþjónusta var sett upp i Karlsruhe og fylgd- ist með ánni. 1 tilkynningu frá öryggisvörðum sem mældu vatnshæðina i ánni kom fram að hún hafði náð 8.44 metrum sem er aðeins um sex senti- metrum neðar en mark það sem teist hættuástand. t Mannheim var sem yfir- völd settu á siglingabann var farið að hlaða upp sandpokum til að verja nokkur hús við ána sem gætu veriö I hættu ef hækkaði um nokkra senti- metra I ánni til viöbótar. Þessar miklu rigningar sem nú eru i Þýskalandi eru þær verstu i tiu ár. Þær urðu þess valdandi að rafmagn fór af ýmsum byggingum og einnig urðu truflanir á samgöngum, auk flóöanna sem fyrr getur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.