Vísir - 25.05.1978, Blaðsíða 11

Vísir - 25.05.1978, Blaðsíða 11
11 TtSIR Fimmtudagur 25. mai 1978. það reynst erfitt þar sem við höf- um aðeins einn fulltrúa i bæjar- stjórninni sem að sjálfsögðu fær engu að ráða. Við reynum hins vegar að benda á betri leiðir, berjumst fyr- ir félagslegri samhjálp á öllum sviðum. Sem dæmi I þvi sambandi þá viljum við leggja áherslu á bygg- ingu fbúðarhúsnæðis á félagsleg- um grundvelli, verkamannabú- staða, en það hefur ekki verið gert árum saman og er þörfin þvi orðin mjög brýn fyrir slikt hús- næði i dag”, sagði Sigriður Jó- hannesdóttir húsmóðir og kenn- ari, sem skipar annað sætið á lista Alþýðubandalagsins i Kefla- vik. Hún hefur verið varafulltrúi i bæjarstjórn undanfarin fjögur ár. Hún taldi möguleika Alþýðu- bandalagsins til að bæta við sig manni ekki mjög mikla ,,við stefnum að þvi að halda þessum fulltrúa sem við höfum” sagði Sigriður að lokum. Tómas Tómasson „Varanleg gatnagerð í kjölfar hita- veitunnar" — segir Tómas Tómasson ,,Við leggjum áherslu á að i framhaldi af hitaveitufram- kvæmdum, sem tvimælalaust er stærsta verkefnið um þessar mundir.verðiunniðað varanlegri gatnagerð í bænum”, sagði Tómas Tómasson efsti maður á lista Sjálfstæðisfiokksins. Tómas sagði að þessar fram- kvæmdir þyrftu að fylgja i kjölfar hitaveitunnar. Nú væri búið að leggja bundið slitlag á um 67% gatna i bænum og stefnt væri að þvi að þvi yrði lokið á næsta kjör- timabili. Siðastliðið ár hefði verið unnið markvisst að lagningu slit- lags á nýjar götur og viðhaldi eldrigatna. Einnig i framhaldi af þessu legðu þeir mikla áherslu á fegrun bæjarins og umhverfismál Nýlega var hafist handa við stækkun fjölbrautaskólans og sagði Tómas að með tilkomu hans hefði veriðbætt úr brýnni þörf og nú þyrftu Keflvikingar i miklu minna mæli að senda unglinga til náms i önnur byggðarlög. Nú væri risið af grunni langþráð, stórt og myndarlegt iþróttahús. Þar væri fullkomin keppnisað- staða en jafnframt væri það byggt sem kennsluhús fyrir skólaleikfimi. Gertværi ráð fyrir þvi að þetta hús yrði tekið i notkun á næsta ári. Einnig væri i bigerö að reisa ibúðir fyrir aldraða. Þá sagði Tómas að á siðustu átta árum hefði verið byggðar milli 500—600 ibúðir i Keflavik og þrjú stór hverfi hefðu risið upp. A-USTf 1. ólafur Björnsson út- gerðarmaður 2. Guðfinnur Sigurvinsson skrifstofumaður 3. Karl Steinar Guðnasson kennari formaður Verkalýös og sjómannafélags Keflavikur 4. Jón ólafur Jónsson verslunarmaður 5. Gottskálk Óiafsson tollvörður 6. Guðrún ólafsdóttir for- maður Verkakvennafélags Keflavikur og Njarðvíkur 7. Svava Asgeirsdóttir skrif- stofumaður 8. Þór Iljaltason forstjóri 9. Sigurður Árnason verka- maður Heiðarbyggð væri nú i byggingu. Þar væru fyrirhuguð skóla- og iþróttamannvirki. Stærsta skrefið sem þyrfti að stiga þar væri bygging útisundlaugar. „Við bættum við okkur einum manni i-bæjarstjórn við siðustu kosningar”, sagði Tómas, „og höfum þvi fjóra fulltrúa. Ég geri mér kannski ekki miklar vonir um að við fáum fimm menn að þessu sinni en bendi á að það er eini möguleikinn fyrir Kefl- vikinga að fá konu i bæjarstjórn”. Tómas hefur setið samtals 16 ár i bæjarstjórn Keflavikur. Hann er fæddur i Grindavik árið 1924 en til Keflavikur flyst hann árið 1943. —KS „Viljum endur- reisn atvinnu- lífsins" — segir Olafur Björnsson „Við viljum leggja höfuðá- herslu á að endurreisa atvinnulíf hér. Við staðhæfum að siöustu tvær ríkisstjórnir séu búnar að UM HVAÐ CR KOSIÐ í Keflavík? koma því i rúst”, sagði Ólafur Björnsson efsti maður á lista Al- þý ðuflokksins. Ólafur sagði að framkvæmdir á vegum bæjarins yltu alveg á þvi hvort þetta tækist. Á óskalista þeirra væri efst á blaði að bæta aðstöðu aldraðra öryrkja og þroskaheftra. Siðan kæmu al- mennar framkvæmdir eins og skólar, en þeir væru einnig háðir fjárframlagi frá rikinu. Þeir hefðu mikinn áhuga á aö fegra út- lit bæjarins. 1 kjölfar hitaveitu- framkvæmdanna og þess umróts sem þær hafa valdið þyrfti aö bæta göturnar. Jafnframt væri umhverfið ekki i þvi ástandi sem vera ætti. „Ég vil koma þvi að”, sagöi Ólafur, ,, að hvetja fólk til aö hugsa um hvernig stjórnvöld eru búin að leika okkur i reynd með þvi að setja okkur hjá við upp- byggingu i sjávarútvegi undan- farin ár.” „Það er engin spurning að viö fáum þrjá menn”, sagði Ólafur, Ólafur Björnsson. „en ég held að það sé glannaskap- ur að fara að tala um að baráttan snúist um þann fjórða, það veröur bara létt með þann þriðja”. Ólafur er fæddur að Hnúki i Klofningshreppi, milli Gilsfjarð- ar og Hvammsfjarðar, árið 1924. Hann tók fyrst sæti i bæjarstjórn Keflvikur árið 1958. —KS B-LISTI 1. Hilmar Pétursson skrif- stofumaður 2. Guðjón Stefánsson skrif- stofustjóri 3. Siguröur Þorkelsson skólastjóri 4. Birgir Guönason máiara- meistari 5. Kristinn Danivalsson bif- reiðarstjóri 6. Oddný Mattadóttir húsmóðir 7. Magnús Gunnarsson versl- unarmaður 8. Magnús Haraldsson skrif- stofustjóri 9. Jóhanna Jónsdóttir verka- kona D-LISTI 1. Tómas Tómasson spari- sjóðsstjóri 2. Ingólfur Halldórsson yfir- kennari 3. Ingólfur Falsson vigtar- maður 4. Kristinn Guðmundsson máiarameistari 5. Ingibjörg Hafliðadóttir hús- móðir 6. Arni Reynir Árnason for- stjóri 7. Arni Þ. Þorgrimsson flug- umferðarstjóri 8. Ingibjörg Elisdóttir húsmóðir 9. Halldór Ibsen forstjóri G-LISTI 1. Karl Sigurbergsson, form. skipstjóra og stýrimannafé- lagsins Visis. 2. Sigriður Jóhannesdóttir, kennari. 3. Gylfi Guðmundsson, yfir- kennari. 4. Sólveig Þórðardóttir, ljós- mæðranemi. 5. Alma Vestmann, húsmóðir. 6. Jóhann Geirdal, kennari. 7. Birgir Jónasson, iðnverka- maöur. 8. Jón Kr. óísen, formaður Vélstjórafélags Suðurnesja. 9. Arnheiöur Ingólfsdóttir hjúkrfr. myndakerfisins og annarra kerfa. Greining þeirra er ekki fræðileg, heldur hugmyndafræði- leg, hún er valdafýsn þeirra grimuklædd. Þessir róttæku „fræðimenn” reyna að réttlæta tilkall sitt til valda, kröfu sina um hlutverk fjárhirðanna, en þeir smiða ekki kenningar heldur loftkastala. Náttúruvisindin hafa hrakið þessa hugmyndafræði i flestum efnum að sögn Möllers, hann vitnar til verka liffræðings- ins og nóbelsverðlaunahafans Jacques Monods og eðlisfræð- ingsins og heimspekingsins Karls R. Poppers. En Möller deilir einnig á borg- arana, sem kosta frelsinu til aö kaupa frið af öllum róttæklingum háskólanna. Hræðslugæði borg- aranna eru honum áhyggjuefni. Hann vitnar til orða Tómasar Manns: „Frelsi i skilningi lýð- ræðissinna má alls ekki fela I sér frelsi til að fella lýðræðisskipu- lagið”. Möller hafnar alræðis- stefnunni, en hann hafnar einnig þeirri lýðræðisstefnu, sem er ein- ungis andlaus hentistefna. Sú var og er höfuðsynd lýðræðislegra jöfnunarsinna (sósíaldemó- krata), að þeir breyttu hinu vest ræna lýðræði i stofnanaræði eða sérfræðingaræði („socialt tekni- krati”). Maðurinn hefur horfið i allri tækninni — hann á að vera tilgangur, en ekki tæki. Hann er andstæðingur þeirrar gildis-tóm- ■El r r f f m rj irjrrtpl- rrrrfFFS r Cíl. ... Marxsinnar hafa náö öllum völdum í sumum deildum vestrænna háskóla hyggju (nlhilisma), sem Dostójevský skrifaði gegn I Glæpi og refsingu, segir eins og rithöf- undurinn rússneski: ekki er allt leyfilegt. Aðverafrjálseraðbera ábyrgð á sjálfum sér og virðingu fyrir lifinu. Mannúðleg lýðræðis- stefna Möller velur mannúðlega lýð- ræðisstefnu. Kenning hans minnir á kenningu sumra „nýju” heim- spekingannafrönsku. (Hannvitn- ar til eins höfuðspekings þeirra, Andrés Gluckmanns.) A kenn- ingu Möllers er sami kosturinn og sami gallinn og á kenningu þeirra: Hann gagnrýnir alræöis- skipulagið og málsvara þess með réttum rökum, en hann greinir ekki kosti veruleikans af nægi- legu raunsæi Möller er framsæk- inn” menntamaður, hann er and- stæðingur, framleiðsluskipulags- ins, fjöldamenningarinnar, mengunarinnar og flokksræðis- ins, tekur fagurfræðina fram yfir hagfræðina. Draumlyndi hans jaðrar við einfeldni.Hann trúir til dæmis spádómum Ivans Illitsj og Rómarhópsins (en rök Rómar- hópsins i Takmörkum vaxtarins („The Limits to Growth”) hafa öll verið hrakin af fræðimönn- um). Enn er það, að efi ihalds- mannsins um allar kenningar og öll kerfi er einungis hollur i hófi. Ekki er hægt að leggja allar kenningar að jöfnu, hafna þeim öllum. Möller berst gegn al- ræðiskenningunni. En fyrir hverju? Mannúðlegri lýðræðis- stefnu. En þetta svar hans er ekki full- nægjandi. Hann verður að velja aðra af þeim tveimur aðferðum við að taka efnahagslegar ákvaröanir, sem til eru, mark- aðskerfiö eða miðstjórnarkerfið. Hann misskilur markaðslögmál frjálshyggjumanna, þegar hann ritar: „Maðurinn hefur aldrei lif- að án laga og reglu. Spurningin er: „Hverra lög og hverra regla?” Frjálslyndir menn svara: „Einkaframtaksins” — og marxsinnar: „öreigaalræðis- ins”. Hvor tveggja lögin og báðar reglurnar eru sumum i hag og öðrum i óhag”. Hann misskilur þau, þvi að hugsjón frjálslyndra manna er réttarrikið. Það er fyrirmyndarrikiþeirra, staðleysa (útópia): í þvi hafa allir sama réttinn, en stöðu eftir efnum og ástæðum. Aðeins erhægt að nálg- ast réttarrikið ef hagkerfið er markaðskerfi eins og ég hef leitt rök að i fjölmörgum Morgun- blaðsgreinum. Orð eins og „einkaframtak” og „frjáls sam- keppni” merkja hugsun frjáls- hyggjumanna einungis til hálfs. Möller dregur ekki réttar stjórn- málalegar ályktanir af siðferði- legum forsendum sinum. Frjáls- hyggjumenn stefna af frjálsri samvinnu eftir almennum, hlut- lausum leikreglum, en ekki nauð- ungarsamvinnu eins og sam- hyggjumenn (sósialistar). Flokkakerfið á íslandi er að visu greinarbetra en i Danmörku, heimalandi Möllers. Islenskir frjálshyggjumenn stefna aö sam- vinnu stéttanna. Frjálshyggja þeirra er mannhyggja. Flokkur þeirra er Sjálfstæðisflokkurinn. Kjörorð þeirra eru: Stétt með stétt! Niður með bákniö! Upp með manninn!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.