Vísir - 21.06.1978, Side 2

Vísir - 21.06.1978, Side 2
Miðvikudagur 21. júni 1978 Hvað fannst þér um hátiðahöldin á 17. júni? Valur Guðmundsson, iðnverka- maöur. Ég fylgdist nú ekki með þeim að neinu ráði. Þó fór ég aðeins upp í Austurbæjarskóla, og það var náttúrulega ekkert glæsi- leg sjón sem mætti manni þar. Mest þótti mér skömm aö full- orðna fólkinu sem var þarna fullt að þvælast. Þegar foreldrar eru farnir að drekka sig fulla meö börnunum sinum er auövitaö ekki von á góðu. Anna Maria Jónsdóttir, af- greiðslustúlka.Égfórekkert sjálf en heyröi eitthvaö um lætin og fannst þau hálfðhugguleg. Mér finnst sniðugra aö hafa hátiða- höldin niðri á Lækjartorgi, þvi að þá eru bæöi ungir og gamlir saman. Þegar þetta erhaft i skól- unum koma bara ungir krakkar, og þá lendir allt i fyllirii. Annars er það svo sem ekkert nýtt aö þaö sé fvlliri á 17. júni. Davið Lúðviksson, nemi. Ég sá þau nú ekki nema rétt í sjónvarp- inu. Þeir sýndu frá skemmti- atriðunum á Arnarhóli, og þau sýndust mér ágæt. Ég held að þaö væri betra, að hafa hátiðahöldin um kvöldið á Ladtjartorgi, heldur en að hafa þau I skólunum. En þaö fylgja kannski ýmis vanda- mál, sem erfitt er aö leysa. Sigrún Ingimarsdóttir, kennari. Éghorfði bara á skemmtiatriðin i sjónvarpinu um kvöldið og fannst gaman. En fylliriið er voðalegt. Það er alveg óskiljanlegt að svona læti skuli geta átt sér stað. Maria Þorvarðardóttir, skrif- stofustúlka.Þau voru alveg ágæt. Égfór upp í Austurbæjarskóla og fannst það svo sem allt I lagi. Þó var alveg ferlega mikið fylliri. Mér sýndist það vera miklu meira en hefur veriö undanfarin ár, og meira af ungum krökkum sem voru fullir. Gamli ' Garður ekki Iseldur í bili INauðungaruppboð á gamla Garðiátti að fara fram I gær. Það var aö kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik sem nauðungarupp- boðið skyldi fara fram. Fulltrúi fógeta setti uppboðs- þing I gær, en siðan var ákveðið að auglýsa annað og sföasta upp- boð f október næstkomandi. Félagsstofnun stúdenta hefur þvi 4ra mánaða frest til að bjarga Gamla Garði undan hamrinum. —BA. Iðnskólanum slitið Iðnskólanu m í Reykjavik var slitið i 73. sinn föstudaginn 9. þ.m. Brautskráðir voru 275 nemendur. Fastráðnir kennarar við skólann voru 63 en 67 lausráðnir. 1 skólaslitaræðu sinni ræddi skólastjórinn Þór Sandholt um námsárangur nemenda i skóla, og kvað hann vera I hættu m.a. vegna þess hve nútimasamfélag glepur fyrir og raskar rósemi ungs fólks. Félagslif skólans var betra og fjölbreyttara en áður. Nemendur tóku isinar hendur rekstur mötu- neytisoghefurhann gengið vel. I- þróttalif hefur verið mjög öflugtoghafa nemendur unntó tn verðiauna í fjölmörgum greinum. t lok skólaslitaræöu sinnar kvaddi skólastjóri brautskráða nemendur og óskaði þeim góðs gengis I atvinnulifinu. SAFNA FIÐRILDUM Á SUMRIN „Við erum búnir að veiða sex fiðrildisiðan á hádegi og i morgun veiddum við f jögur, svo við erum búnir að veiða alls tiu fiðrildi i dag”, sögðu þessir knáu drengir, sem biaöa- maður Visis hitti á Sel- fossi. Þeir sögðust hafa safnað fiðr- ildum i allt fyrrasumar og þaö sama væri gert núna. „Fyrst veiðum viö þau og setjum i krukku, svo förum viö meö þau heim og skoðum þau, og svo sleppum við þeim aftur”, sögðu þeir. Strákarnir sem heita (t.f.v.) Jósef Anton Skúlason 5 ára, Hallgrimur Guömann Hall- grimsson 7 ára og Kristján Þór Skúlason 8 ár^ganga um bæinn með þennan gamla barnavagn, sem hefur aö geyma veiðitæki þeirra félaga. Vlsismynd: Gsal. —Dagsbrúnarkosningar í kjörklefanum—i Segja má að nú sé oröiö svo skammt til kosninga, að úr þessu fari litið að segja hverju haldið er fram f blööum og fjöl- miðlum. Stærstur hluti þeirra kjósenda, sem á annað borð heldur ekki tryggö við flokka sina, hefur þegar ákveöið hvar hann lætur atkvæði sitt falla. Skoöanakannanir sýna vinstri- bylgju, en nokkur hundraðstala lætur ekkiuppi um atkvæði sitt, og sýnistsitt hverjum hvar þau atkvæöi eiga eftir að lenda. Fyrir utan smálegan skæting hefur kosningabaráttan beinst áð nokkrum höfuðmálum, sem hvert um sig er sæmilegur um- ræöugrundvöllur. Vegna kosn- ingasigurs i byggðakosning- unum hefur Alþýðubandalagið hamrað á þvi, aö kjósendur eigi að heyja kjarabaráttuna i kjör- klefanum, svo gæfuleg sem þau slagorö eru bæöi fyrir Alþýöu- bandalagið oglaunþega.Svo vill til að árangurinn af kosninga- loforðinu „Samningana i gildi” liggur þegar fyrir. Alþýöu- bandalagið samdiog ber ábyrgö á la unatillögum núverandi borgarstjórnarmeirihluta, og situr uppi með brigömælin við kjósendur. Enda er þeim bandalagsmönnum meira I mun að rlfast vikum saman innbyrtis um það hverjir eigi aö vera formenn einstakra nefnda og hverjir eigi að kveikja á jóla- trjánum, en hvort staðið er viö slagoröin „Samningana i gildi”. Stjórnarflokkarnir benda réttilega á það, að gengið hefur verið endanlega frá útfærslu landhelginnar I tvö hundruð mllur á liðnu kjörtlmabili. Það er ekkert smámál. Þeir benda einnig á það, að efnahagsráð- stafanirnar varð að gera, ef hér átti ekki að verða hrun atvinnu- vega innan skamms tfma. Stjórnvöld veröa aö sjá slikar hættur fyrir og bægja þeim frá með ráðstöfunum, enda er of seint að hefja björgunarstarfiö, þegar slysiö er orðiö meö þeim hætti aö öllum almenningi er áfalliö ljóst. Það er i þessum gráu skuggabeltum milli ákvörðunar og veruleika, sem stjórnarandstaðan sækir sinn kosningasjó og viröist ætla að verða vel til fanga. Afstaða Sjálfstæðisflokksins til varnar- liðsins og Nató er mörkuð og ótviræð. Hins vegar baslast Framsókn áfram I einskonar brókarhafti út af þessum málum, og getur ekki tekið af skarið og stutt eindregiö veru okkarl Nató og veru varnarliðs- ins meðanþurfa þykir. Afanga- brottför þess er þeim enn tungu- tömust, þótt vitað sé, að Fram- sókn verður aldrei til aö hafa frumkvæði um brottförina. En henni hefur verið ýtt út á fremstu nöf I þessum efnum, vegna þess að „shadow-boxing” flokksins I þessum efnum við kjósendur hefur verið haldið áfram of lengi. Flokkur- innmyndiað likindum hressast ef hann lýsti yfir að hann væri á móti brottför hersins. Hitt liðiö er hvort eð er farið. Alþýðuflokkurinn býður fyrst og fremst upp á Vimma og Eið og Arna. Þetta eru ungir menn sem ætla sér stóra hluti. Þeim hefur hins vegar ekki gefist timi til að móta sjónarmið sin, enda fljóta i kringum þá gamlir skarfar — jafnvel inn á þing, sem alteknir eru gömlum sjónarmiðum og gömlum lausn- um. Stjórnarflokkarnir eiga I vök aö verjast. Sú barátta virðist ætla að koma harðast niður á Framsókn, og uppsker hún það fyrir ýmsa óákveðni og að- gerðarleysi og vaklandi viöhorf I varnarmálum. Sjálfstæöis- flokkurinn virðist hins vegar ætla að koma nokkuð uppréttur úr þessari orrahrlö. Sjónarmiö hans eru fastmótuð og ákveðin og hann hefur kosiö að falla og standa meö ákvörðunum, sem bera þjóðhagslegri ábyrgö vitni. En þjóðfélagið er nú einu sinni orðið þannig, aö sé ekki öllu sleppt lausu kemur óróaliðið með lausnir og yfirboð, sem það getur ekki staöið viö, og krefst þess að fólk gangi af pólitisku skyni sinu I kjörklefanum og taki upp Dagsbrúnarkosningar. Svarthöfði.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.