Vísir - 21.06.1978, Page 24

Vísir - 21.06.1978, Page 24
VÍSIR Stjórnmálaflokkarnir eru allir á lokasprettinum þessa dagana. Flestir gangast þeir fyrir fundum ýmist úti eOa inni til aO reka smiOshöggiO á baráttuna. Þessi mynd var tekin á fjölsóttri EeykjavikurhátiO Alþýöu- flokksins. Fremst á myndinni má þekkja þá Vilmund Gylfason og Benedikt Gröndal ásamt konum sfnum. Þrír fangar strukut „Kemur n iður á öllum föngum" — segir Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn Þrir fangar um tvitugt sluppu úr gæslu tveggja lögregiuþjóna viO hegn- ingarhúsiO á Skólavöröu- stig um hádegiö i gær. Tveir þeirra fundust sföan vel viö skál á Hótel Heklu, en einn gaf sig fram klukk- an fjögur. Fangarnir eru aö af- plána refsidóma á Litla Hrauni en höföu veriö sendir til læknisskoöunar i Reykjavik. Um hálf tvö leytiö i gær voru þeir siban á leiö úr hegningarhúsinu og úti bfl, sem flytja átti þá aftur aö Litla Hrauni. Þeir voru ójárnaöir og gætt af tveim lögregluþjónum. A gangstéttinni tóku þeir skyndilega undir sig stökk og hlupu hver I sina áttina, þannig aö eftirför var tveim mönnum útilokuö. Strax var skipulögö leit aö föngunum og fundust tveir þeirra á Hótel Heklu þar sem þeir höföu leigt sér herbergi undir fölsku nafni. Þeir höföu drukkiö stift og voru mjög ölvaðir er lög- reglan fann þá. Sá þriöji haföi nokkru áöur gefið sig fram við lög- regluna, en hann afplánar dóm fyrir þjófnað. Aö sögn Bjarka Elias- sonar, yfirlögregluþjóns, er það mjög algengt að fangar séu i Reykjavik i læknisskoðun og hefur gæslumátinn verið svip- aður og var i gær. Bjarki sagði að rikt hefði nokkurs konar gagn- kvæmt traust milli fang- anna og yfirvalda, og fangar þvi ekki haföir i járnum. „Mig grunar t.d. að þessir drengir fái ekki alltof góðar viðtökur hjá samföngum sinum, ef þetta veröur til þess aö þeir verða framvegis fluttir á milli járnaöir”, sagði Bjarki. „Fangarnir hafa vitaö að svona atburöir koma niöur á þeim öllum”. —GA Húsið að Vesturgötu 40: RIFID í MORGUN „Húsiö aö Vesturgötu 40 var brotiö niöur i morgun. Þetta hús höfö- um viö boöiö Útivist aö flytja en þeir treystu sér ekki til þess þar sem þeir höföu enga lóö undir hús- iö” sagöi örlygur Hálf- dánarson bókaútgefandi en fyrirtækiö örn og örlygur áttu hús þaö sem rifiö var. „Okkur var ekki gefin nein von af hálfu borgar- innar um það aö fá lóð” sagði Einar Guöjohnsen hjá tltivist er rætt var viö hann I morgun. Einar sagðist hafa rætt við Sigurjón Pétursson á götu úti um lóð i Grjóta- þoröi. Sigurjón hefði þá sagt séraö þessi lóð kæmi ekki til greina þar sem ekki væri búið að skipu- leggja Grjótaþorpiö. Sigurjón heföi ætlað að athuga með aðrar lóðir, en ekkert komiö út úr því. Einar sagöi að mestur áhugi hefði verið hjá Úti- vistarfólki fyrir þvl að koma húsinu fyrir í gamla bænum, en þó heföi vel komið til greina að setja það niöur annars staðar. Enga fyrir- greiðslu heföi verið að fá og ómögulegt að hafa hvergi visan samastað fyrir húsið. Einar sagðist lika vilja kenna þvi um aö Ibúa- samtök Vesturbæjar hafi verið með hálfgeröar hótanir um mótmælaaö- gerðir. Þetta hafi skapað spennu þegar I upphafi og hann vildi þvi ab sumu leyti kenna Ibúasam- tökunum um það að húsib var rifiö. „Það barst engin al- menn lóöaumsókn frá Otivist, en hins vegar sóttu þeir um tiltekna lóð i Gr jótaþorpinu sem ekki var hægt aö láta þá fá” sagði Sigurjón Pétursson forseti borgarstjórnar er haft var samband við hann i morgun. Þá sagði Sigurjón að Einar Guöjohnsen hefði rætt um það viö sig hvort ekki væri hægt að fá lóð i Vesturbænum undir hús- ið, en sér væri ekki kunn- ugt um að nein slik lób væri fáanleg. Hann lét þess getiö að áður hefðu komið umsóknir svipaöar þeirri sem að framan greinir, þar sem menn vildu flytja hús. Þessum umsóknum hefði ekki verið unnt að sinna. —BA Það var ekki mikib eftir af gamla timburhúsinu þegar Ijósmyndari Vfsis mætti á Vesturgötu 40 i morgun. Mynd: Gunnar Taldir af Piltarnir fjórir/ sem lögöu upp á litl- um plastbáti frá Dal- vik til Hríseyjar síðastliðinn sunnu- dag, eru nú taldir af. Þeir hétu Simon Hilmarsson, Karlsbraut 21, fæddur 31. mai 1960, Stefán Ægisson, Drafnarbraut 1, fæddur 30. september 1959, Gunnar Jónsson, Skóla- braut 11, fæddur 3. október 1960 og Egill Antonsson, Mímisvegi 7, fæddur 3. mai 1962. —ÓT Sjónvarp I kvöldkl.21.20: Siðasti umrœðu- þátt- urinn fyrir alþingis- kosningarnar „Okkur telst til að með þættinum sem við sendum út i kvöld sé heildarút- sendingartimi: sjónvarps- ins á efni tengt alþingis- kosningunum, bæði flokka- kynningar, framboðsfundir og þættirnir setiö fyrir svörum, um 10 1/2 klukku- stund,” sagði Pétur Guð- finnsson framkvæmda- stjóri sjónvarpsins. Gert er ráð fyrir aö þátturinn i kvöld sem er sibasti umræðuþátturinn I sjónvarpssal fyrir alþingis- kosningarnar, veröi um tveggja klukkustunda langur. Þátturinn hefst kl. 21.20 og setjast þá við hringborðið formenn þeirra flokka sem bjóða fram i öllum kjördæmum. Þaö eru þeir Benedikt Gröndal, Lúðvik Jósepsson, ólafur Jó- hannesson, Geir Hall- grimsson og Magnús Torfi Ólafsson. Stjórnandi um- ræðnanna verður Ólafur Ragnarsson. Niðurstöður skoðanakönnunar Visis miðað við kjósendafjöldas Sjáltstœðistlokkurinn fœr 32% en Alþýðuflokkurinn 25% i frásögn af niðurstöð- um hinnar víðtæku skoð- anakönnunar, sem birtist i Vísi í gær, féll niður ein þýðingarmikil tafla. I töflu II, sem birt var, var hlutfallslegt fylgi flokkanna hjá þeim, sem tóku afstöðu i svör- um sinum. Hins vegar féll niður framhald þeirrar töflu, þar sem meðalfylgi flokkanna var reiknað út samkvæmt fjölda kjósenda i hinum einstöku kjör- dæmum. Nokkur mismunur er á þessum tveim tölum þar sem úr- takið var ekki hlutfallslega það sama I öllum kjördæmum. Þannig var úrtakið i Reykjavlk 0,5% kjósenda kjördæmisins, i Reykjanes-, Suöurlands- og Norðurlandskjördæmi eystra var hlutfallið 1%, i Austurlands- kjördæmi 1,3%, Norðurlands- kjördæmi vestra 1,6%, Vestur- landskjördæmi 1,2% og i Vest- fjaröakjördæmi voru 1,6% kjós- enda með i úrtakinu. Hér á eftir fer þessi tafla, en hún segir til um fylgishlutfall flokkanna á landinu I heild á þeim tima sem skoðanakönnun- in fór fram. Alþýðuf I. 25,9% Framsóknarfl. 12,0% Sjálfstæðisfl. 32,3% Samtökin 2,1% Alþýðubandalag 24,2% óháðir Vestfj. i,o% Óháðir Suðurl. Stjórnmálaf I. óháðir Reykjanesi Auðir seðlar 0.1% 0,8% 0,6% 1,0% Samtals 100,0% Val úrtaksins Ýmsir hafa veit þvi fyrir sér, hvernig úrtak það, sem hringt var i, var valið. Úrúrtakinu voru samtals 1270 manns. Hvernig voru þeir vald- ir? Tökum Reykjavik sem dæmi. Þar voru 302 i úrtakinu. Það var tekið i tvennu lagi, 151 maöur i hvorum hóp, til þess að fá samanburð. Til þess aö ákveða hverjir lentu I úrtökunum var tölunni 151 fyrst deilt i fjölda þeirra, sem á kjörskrá eru i Reykjavik samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar, og þannig fundið út ákveðið millibii. Siðan var valib af handahófi hvar ætti að byrja hvort úrtak um sig. Valið var ákveðið byrj- unarnúmer fyrir hvort úrtakið i Reykjavik, og fyrsti maður hvers úrtaks valinn i samræmi við það, en siðan tekið hvert nafnið eftir annað i samræmi við hið útreiknaða millibil. Sama aðferð var notuð við úr- tak úr öðrum kjördæmum. Fyrsta nafniö i hverju úrtaki var þannig valið af algjöru handahófi, og hin nöfnin i úrtök- unum siðan tekin á grundveili ákeðins fyrirfram útreiknaðs miliibils. Fólkiö sem hringdi Eins og þegar hefur komið fram i Visi vann fjölmennur hópur að gerð skoðanakönn- unarinnar. Fólk það, sem fengiö var til aö hringja i þá, sem lentu i úrtakinu, var fengið sérstak- lega til þess verkefnis. Það var um aö ræða félagskonur úr Svölunum, félagi fyrrverandi flugfreyja, þjóðfélagsfræðum og skrifstofufólk, sem starfar utan blaðsins. tltreikningarnir voru siðan gerðir af Sigurveigu Jónsdóttur, féiagsfræðing, Eliasi S. Jónssyni, blaðamanni og Davið Guðmundssyni, fram- kvæmdastjóra. SJ/ESJ. VÍSIR-SMÁAUGLÝSINGAR Opib virka daga til kl. 22 Laugardaga kl. 10-14 Sunnudaga kl. 18-22 VISIR Simi 86ÓII VISIR VISIR Simi 86611 VISIR VISIR Simi 86611 VISIR

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.