Vísir - 04.07.1978, Qupperneq 10
10
Þriðjudagur 4. júli 1978 VISIR
VÍSIR
útgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
ólafur Ragnarsson .
Ritstjornarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund-
ur Pétursson. Umsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind
Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttír, Elías Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson,
Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrín Pálsdóttir, Kjartan Stefáns
son, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L.
Palsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. Útlitog hönnun: Jón
Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstof ur: Siðumúla 8.
simar 86611 og 82260
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611
Jlitstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7^jjyiur
Askri f targ ja Id er kr. 2000 á
mánuði innanlands. j
Verð i lausasölu
kr. 100 eintakið.
Prentun
Blaðaprent h/f.
Gengisfellingarhringrásin
Enn einu sinni blasir við gengisfelling, sem stafar
af því fyrst og fremst að kostnaðarhækkanir innan-
lands hafa verið mun meiri en verðhækkanir á fisk-
mörkuðum okkar erlendis hafa leyft. Viðstöndum enn
einu sinni f rammi fyrir af leiðingum þess að eyða um-
fram það sem aflað er.
Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins er tómur og
verður því ekki notaður sem verðbólgustyrktarsjóður
á næstunni. Gengi krónunnar hef ur reyndar verið allt
of hátt skráð um langan tíma. Stjórnvöld og hags-
munasamtök hafa smám saman verið að taka
ákvarðanir um að rýra verðgildi krónunnar, en hafa
skotið á f rest eins og venjulega að skrá gengi hennar í
samræmi við það.
í rökréttu samhengi við þessa f ramvindu mála blas-
ir eins og venjulega við stöðvun f iskvinnslunnar. Frið-
rik Pálsson, framkvæmdastjóri Sölusambands
islenskra fiskframleiðenda, lýsir þessari venjulegu
hringrás i grein í nýútkomnu hefti af Ægi. Hann bend-
ir þar réttilega á, að upphaf spunktur hringrásarinnar
er sú tiskustef na Þjóðhagsstof nunar, að meðalrekstur
skuli standa á núlli og verðákvarðanir og gengis-
skráning eigi að miðast við þá pólitísku ákvörðun.
Verðlagsráð getur ekki tekið f iskverðsákvarðanir
af þvi að i öllum tilvikum þarf pólitískar ákvarðanir
til að gera upp dæmið. Þessar pólitísku ákvarðanir
tekur efnahagssérfræðingur ríkisstjórnarinnar sem
oddamaður yfirnefndar Verðlagsráðs. Sérhver fisk-
verðshækkun stefnir núllrekstri fiskvinnslunnar í tap
og því blasir hin venjubundna stöðvun við að henni
lokinni.
Gengisfellingu er þó yfirleitt skotið á frest. Efna-
hagssérfræðingur rikisstjórnarinnar hefur áður en
fiskverð er ákveðið fengið pólitíska ákvörðun um að
Verðjöf nunarsjóður f iskiðnaðarins borgi brúsann
f yrst í stað, jaf nvel þótt verðlag erlendis sé i hámarki
og f iskvinnslan ætti að réttu lagi að greiða til sjóðsins.
í sumum tilvikum þarf rikissjóður að ábyrgjast þess-
ar greiðslur. Sú yfirlýsing af hálfu ríkisstjórnar er
venjulega fyrsta vísbending um gengisfellingu.
Friðrik Pálsson segir í grein sinni: ,,Þegar hér er
komið, vona ég að allir skilji hvers vegna það er ekki á
valdi Verðlagsráðs sjálfs að ná samkomulagi um nýtt
f iskverðán tilkomu oddamanns frá rikisstjórninni við
aðstæður sem þessar. Það er einf aldlega ekki um neitt
að sem ja f yrr en gengið hef ur verið f ellt, eða það ligg-
ur f yrir að minnsta kosti, að það verði fellt.
Á meðan á öllu þessu stendur er gengið of hátt skráð
og óeðlilega mikill innflutningur á hagstæðu gengi
flæðir inn í landið. Oeðlilega lágt verð á erlendum
gjaldeyri leiðir til hlutfallslega lágs verðs innfluttra
vara og það er hinum almenna neytanda vel kunnugt
um, enda slakar hann aldrei á kaupæði sínu af ótta við
að gengið verði leiðrétt".
Hér er vissulega komið að kjarna þess vandamáls,
sem við eigum við að striða í efnahagsmálum.
Óhjákvæmilegt er að hverfa f rá núllstef nunni og losa
þar með um það pólitíska kverkatak, sem nú er á út-
vegi og f iskvinnslu i landinu og helgast m.a. af því að
Verðlagsráð er hætt að verðleggja og Verðjöfnunar-
sjóður hættur að verðjafna. í framhaldi af því er
höfuðmál að ná pólitiskri samstöðu milli stjórnvalda
og hagsmunasamtaka að halda fiskverðs- og launa-
hækkunum innan þeirra marka sem markaðsaðstæð-
ur leyta.
Ný rikisstjórn þarf að stöðva þessa
taktföstu hringrás óraunhæfra kjarasamninga, fisk-
verðsákvörðunar, viðmiðunarverðsákvörðunar og
gengisfellingar.
„Hef ekki lengur Iðngun til að
vera með ótal jórn í eldinum"
- — segir Eysteinn Jónsson
„Það er afar tímafrekt
að gegna formennsku í fé-
lagi með jafnmargbrotna
starfsemi og Samband
íslenskra samvinnufélaga
fæst við. Þar að auki er ég
búinn að vera í félags-
málabaráttu i 50 ár og því
mái til komið að draga sig í
hlé", sagði Eysteinn Jóns-
son er rætt var við hann í
Bifröst, þar sem hann lét
af formannsku í Sam-
bandsstjórninni.
Eysteinn, sem er tæplega 72 ára
gamall, kvaöst ekki telja það
skynsamlegt aö vera lengur á
oddinum i þeirri baráttu- sem
Sambandsfélögin þyrftu að heyja.
Hann heföi tæpast úthald i það
lengur.
Aöspuröur um framtiöaráform,
sagði hann að þau væru ekki
alveg ljós. Fyst af öllu ætlaöi
hann að hvila sig vel i sumar.
Siöan væri nóg af áhugamálum,
sem nú gæfist timi til að sinna.
Skiðaiþróttin hefur löngum átt
rikan sess i huga Eysteins og
kvaðst hann ætla i Kerlingarfjöll
aö hálfum mánuði liðnum. Það
hafi litill timi gefist til þess um
ævina að taka sér gott fri og þvi
ætlaöi hann að hvila sig vel.
Félagsmálaáhuginn síst
minni
Eysteinn hætti fyrr á þessu ári
sem formaöur Náttúruverndar-
ráðs. Þaö starf tók drjúgan tima
frá honum. A þessu ári hefur
hann losaö sig viö stórverkefni,
en hann kvaö þaö ekki breyta
þvi, aö félagsmálabarátta ætti
hug sinn jafnt eftir sem áður.
Náttúrverndarmálin væru til
dæmis eitt af hans aöaláhuga-
málum og samvinnuhreyfingin
heillaöi engu aö siöur. Þaö væri
þviengin ástæöa til að ætla annað
en hann gæti starfað eitthvaö
áfram þótt formannstitiliinn væri
ekki lengur fyrir hendi. Gamlir
formenn og sjómenn, sem látiö
höföu af starfi, héldu iðulega
áfram að sækja sóinn og sama
yrði liklega meö sig.
Félagsmálaþátttaka heföi
alltaf verið svo snar þáttur i lifi
sinu, að án þennar fengi hann
vart þrifist. Raunverulega hefði
aldrei annaö komið til greina en
taka virkan þátt i henni. Eysteinn
kvaöst vera þessi umbrotamaður
i pólitik, sem ekki hefði frið i
sinum beinum öðru visi en vera
meö.
„Þetta er i fyrsta skipti sem ég
er alveg frjáls og óbundinn. Ég
býst við að sinna fjölskyldu
minni, sem er orðin nokkuð stór,
meira en undanfarið.
Höfuðatriði er þó það, aö ég hef
ekki lengur löngun til að vera með
ótal járn i eldinum”, sagði félags-
málafrömuðurinn Eysteinn Jóns-
son að lokum.
—BA
Árangurslausar truflunaraðgerðir:
Rainbow Warrior er farinn heim
Hvalveiðivertíðin hefur
gengið mjög vel en bræla
truflaði veiðarnar um helgina.
Aö sögn starfsmanna i Hval-
stöðinni i morgun voru þrir
hvalbátar á leiðinni til lands
með þrjá hvali hver og alls mun
þá vera búið að veiða 132 hvali.
Allar líkur benda til landi að minnsta kosti í
þess að Greenpeacesam- bili. Visir reyndi í morgun
tökin séu hætt truflunar- árangurslaust að ná sam-
aðgerðum sínum hér á bandi við togara samtak-
anna, Rainbow Warrior.
Hann var þá svo langt
kominn áleiðis til Bret-
lands að Gufunes-radíó
var ekki lengur í kallfæri.
Það er þvi ekki að sjá að þeir
Greenpeace menn hafi haft
hingað árangur sem erfiði.
—H.L.