Vísir - 04.07.1978, Side 13
iprottir
Þriðjudagur 4. júli 1978 VlSIjt
vism Þriöjudagur 4. julí
1978
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson — Kjartan L. Pálsson
LANDSLEIKUR
HJÁ
POLLUNUM
tsland og Færeyjar leika iandsieik I
drengjaflokki I knattspyrnu á Kópavogs-
velli annaö kvöld og veröur þetta þriöji
drengjalandsleikur þjóöanna á þremur
árum. Fyrst var leikiö i Færeyjum 1976,
og þá sigruöu Færeyingar meö 1:0. 1 fyrra
var leikið i Keflavik og þá sigraöi tsland
5:2.
Lárus Loftsson unglingaiandsliösþjálf-
ari, hefur valiö hóp 16 drengja fyrir ieik-
inn i Kópavogi annaö kvöld og er hann
þannig skipaöur:
Stefán Jóliannsson KR, Elvar Gottskálks-
son tBK, Benedikt Guömundsson Breiöa-
bliki, Lárus Guðmundsson Vlkingi Jón G.
Bjarnason KR, Siguröur Grétarsson
Breiöabliki, Sigurjón Kristjánsson
Breiöabliki Helgi Bentsson Breiöabliki,
Jón Þór Brandsson FH, Guðmundur
Torfason Fram, Ástvaldur Jóhannesson
tA, Ragnar Margeirsson IBK, Páll Þor
kelsson tBK, Gisli Bjarnason KR, Hafþór
Sveinjónsson Fram og Jóhannes Sævars
son Vikingi.
Margir þessara drengja eru orönir
reyndir leikmenn þótt þeir séu ungir aö
árum og má I þvi sambandi nefna
BenediktGuömundsson sem hefur leikiö 4
unglingalandsleiki, 6 drengjalandsleiki,
veriö varamaöur i landsliöi undir 21 árs
og fastamaður i liði Breiöabiiks.
Eftir þennan leik veröur siöan valinn
endanlegur hópur leikmanna sem mun
haida tii Danmerkur n.k. mánudag og
taka þar þátt I Norðurlandamóti drengja
dagana 10.-16. júli.en þar veröur tsland i
riöli með Dönum og V-Þjóöverjum.
Leikurinn i Kópavogi annað kvöld hefst
kl. 20, og er ástæöa til aö hvetja fólk til aö
fjölmenna og hvetja islensku piltana.
gk--
Þœr a-þýsku eru
iðnar við metin
Þær hafa sýnt þaö a-þýsku sundkon-
urnar á tveim fyrstu dögum a-þýska
meistara mótsins, aö þær eru enn i
fremstu röö, og eitt heimsmet settu þær
tvo fyrstu daga keppninnar af fimm.
1 fyrradag synti Barbara Krause 200
metra skriösund á nýjum heimsmettima,
1.59.04 min og i gær setti Andrea Pollak
heimsmet i 100 metra flugsundi, er hún
synti vegalengdina á 59.46 sek. og bætti
metið 82/100 úr sekundu. Engar aðrar en
þessar tvær hafa synt 100 metra flugsund
á skemmri tima en einni minútu.
Uirika Tauber synti 400 metra skriö-
sund á 4.46.37 min. en þaö er besti timi
sem náöst hefur á vegalengdinni í ár, og
aöeins 3.60 sek. frá heimsmeti hennar.
gk—
Svisslendingar
komu
ó óvart!
Svisslendingar komu mest á óvart i 6-
landa keppni i handknattleik, sem staöiö
befur yfir i Júgóslaviu að undanförnu.
Þeir geröu sér litið fyrir og sigruðu bæði
Sovétmenn og Rúmena og höfnuðu i 3.
sæti öllum á óvart og e.t.v. mest þeim
sjálfum.
Þaö var þvi ekki nóg fyrir Sovétmenn
að sigra Júgóslava i siðustu umferöinni
16:14, Júgóslavar höfnuöu i efsta sæti i
mótinu. önnur úrslit í siöustu umferö
uröu þau, aö Rúmenia vann Polland 26:22
og Sviss sigraði Ungverjaland 22:21.
Lokarööin i mótinu var þvi sú, að
Júgóslavar urðu efstir með 8 stig, Sovét-
menn hlutu 7, Sviss 6, Rúmenia 4 og einnig
Polland og Ungverjar ráku lestina meö
eitt stig eftir jafnteflisleik gegn Sovét-
mönnum.
Það er þvi alveg óhætt að fara að lita á
Sviss sem „alvöruland” i handboltanum,
þvi að Sovélmenn og Rúmenar hafa
hingað til verið i fremstu röð I heiminum,
og þeir sovésku t.d. i 2. sæti i heims-
meistarakeppninni s.l. vetur.
gk-
TANNLÆKNARNIR
SÁU UM
MÖRKIN
Keflvikingar hafa nú tekiö forustu i
„Crvalsdeildinni” I knattspyrnu, eftir aö
þeir unnu 2:0 sigur gegn Fram á grasvell-
inum í Keflavik i gærkvöldi. Leikmenn
ÍBK hafa þvi leikiö tvo leiki og unniö sigur
i þeim báöum.
Keflvfkingarnir léku á móti nokkrum
vindi I fyrri hálfleik gegn Fram, en þó
skoruöu þeir bæöi mörk sin þá. Þaö voru
tannlæknarnir i liöinu, Magnús Torfason
og Einar Magnússoi\sem sáu um aö skora
fyrir ÍBK, en Framarar höföu engan
tannlækni i sinu liöi til aö skora fyrir sig.
Hreinn í þriðja sœti
á stórmóti í Svíþjóð
Kastaði kúlunni 19.80 metra en það nœgði honum ekki gegn Komar frá
Póllandi og Feuerbach frá Bandaríkjunum
tslandsmeistarinn i kúluvarpL
Hreinn Halldórsson varö aö gera
sér að góöu þriöja sætiö i kúlu-
varpi á alþjóöa frjálsiþrótta móti
á Ólympiuleikvangbium i Stokk-
hólmi í Sviþjóö I gærkvöldi.
Hreinn kastaöi kiilunni 19,80
metra, sem er nokkuö frá hans
besta en þó ekki nema 67 senti-
metrum styttra en sigurvegarinn
ámótinu kastaöi. Þaðvar Banda-
rfcjamaöurinn A1 Feuerbach en
hann kastaði kúlunni 20,47 metra.
Annar varö Pólverjinn
1 vi*: -v‘- U
Katrin Pálsdóttir dregur hér upp seðil meö nafni Jónasar F. Jónssonar
og hann fær ávfsun á 15 þúsund krónu vöruúttekt hjá verslunni Utilíf i
Glæsibæ i sinn hlut. Ljósm. Sigurður.
Wladyslaw Komar, sem kastaði
nákvæmlega 20 metra — eöa 20
sentimetrum lengra en Hreinn
Halldórsson. i 4. og 5. sæti komu
svo tveir Sviar sem köstuöu 19,28
og 18,33 metra.
A móti þessu, sem haldið er á
vegum sænska dagblaðsins Dag-
ens Nyheter, er boðið þekktu
frjálsiþróttafólki viösvegar að úr
heiminum. I þeim hópi eru meðal
annars Thomas Wessinghage frá
Vestur-Þýskalandi og hann
þakkaði boðið með þvi að setja
nýtt Evrópumet I miluhlaupi.
Wessinghage lét litið á sér bera
þar tilaö um 30 metrar voru eftir
aö hann renndi sér fram úr Josef
Planchy frá Tékkóslóvakíu, sem
hafði haftforystu nær allt hlaupiö
og kom i mark á 3:52, 5 mín, sem
er nýtt Evrópumet i þessari
grein.
Sumar stórstjörnurnar á mót-
inu áttuekkigóöandag i gær. Má
þar m.a. nefna heimsmethafann i
spjótkasti, Ungverjann Miklos
Nemeth,sem varö aö sætta sig viö
4. sætiö I spjótkastinu— kastaði
81,76 metrasemer um 13metrum
styttra en hann kastaði. er hann
setti heimsmetið fyrir nær tveim
árum. Sigurvegarií spjótkastinu i
gær varö Raimo Pihl frá Sviþjóð
sem kastaöi 86.88 metra.
Dick Quax frá Nýja Sjálandi
sem er einn af frægari lang-
hlaupurum heims varð aö sjá
heilt stóð á undan sér yfir mark-
snúruna i 10.000 metra hlaupinu.
Armfield
r/sparkað
Valsmenn uröu Bikarmeistar-
ar 1977, og sjást hér hlaupa
„heiöurshring” á Laugardals-
vellinum eftir úrslitaleikinn.
Hann kom sjöundi I mark en
sigurvegari varð Toshihiko frá
Japan sem ásamt fimm löndum
slnum er I Evrópu um þessar
mundir til að öðlast keppnis-
reynslu á stórmótum.
Pólska hlaupadrottningin Irena
Szewinska gerði það fyrir stjórn-
endur mótsins að keppa i 100
metra hlaupinu I gær og varð i' 4.
sæti. Sigurvegari I hlaupinu varð
hin nýja stjarna Svia á hlaupa-
brautinni Linda Haglund á 11.30
sekúndum. Szewinska og hún
mætast aftur i kvöld.en þá verður
mótinu haldið áfram og keppir
Szewinska þá m.a. i 200 og 400
metra hlaupi.
—klp—
Bikarkeppni KSÍ:
Nú koma „stóni
liðin til leiks
Fyrstu leikirnir I 16-
liða úrslitum Bikarkeppni Knatt-
spyrnusambandsins veröa háðir I
kvöld, en þá eru fjórir leikir á
dagskrá. Hinir leikirnir fjórir
verða siðan leiknir a miðvikudag
og fimmtudag.
Aðalleikur kvöldsins verður
sennilega leikur Vlkings og 2.
deildarliðs KR, sem fer fram á
Laugárdalsvelli. Þar má búast
við hörkuviðureign, og Víking-
arnir eru langt frá því að vera
öruggir með sigur ef þeir leika
Vinningshofinn
á Úlfljótsvatni
„Jú, ég er Framari og keppti i
fyrra f 5. flokki og skoraöi þá eitt
mark”, sagöi Jónas F. Jónsson,
11 ára vinningshafi hjá okkur, er
viödrógum úrnöfnum þeirra sem
hafa sent inn scöil i kosningunni
um „Liöiö mitt” i gær. Jónas
haföi heppnina meö sér og hann
hreppir 15 þúsund króna vöruút-
tekthjá versluninni Utilif i Glæsi-
bæ Viö náöum I Jónas I gær, þar
sem hann er staddur i sumar-
búöum á Úlfljótsvatni og
röbbuðum stuttlega viö hann.
— Hvaða lið heldur þú aö sigri i
íslandsmótinu?
„Ég held að það verði Akranes
eða Valur, en ég vona samt að
Framararnir standi sig vel. En ég
held samt ekki að Fram geti
unniö i Isiandsmótinu.
Ég hef litið getað æft sjálfur i
sumar, en ég fer á æfingar strax
og ég kem i bæinn og fer þá i 4. fi.
tfyrra var ég i 5. flokki og spilaði
þá á kantinum og sem tengiliður,
og ég skoraöi eitt mark, á móti
1R”.
Þaöer allt útlit fyrir að keppnin
um vinsælasta knattspyrnuliðið á
tslandi sumarið 1978 ætli að verða
mjög jöfnog spennandi.og þegar
hefur ýmislegt óvæntkomiö I ljós.
Þau lið sem flest atkvæði hafa
hlotiö til þessa eru þessi, (eftir
stafrófsröð en ekki atkvæöa-
magni);
Akranes
FH
Fram
ÍBV
KA
KR
Skallagrimur
Valur
Vikingur
Þór
Viö drögum hálfsmánaðarlega
úr öilum seðlum, og þá fær hinn
heppni 15 þúsund króna vöruút-
tekt hjá versluninni útillf 1 Glæsi-
bæ. Þegar keppninni lýkur, drög-
um við siðan Ur nöfnum þeirra,
sem hafa kosiö það liðsem sigrar,
og þá a- vöruúttekt fyrir 50 þús-
und krónur i boöi.
t.d. eins og þeir gerðu gegn tBK
um helgina.
Þór á Akureyri fær ÍBV I heim-
sókn norður, og er liklegt að þar
veröi um fjöruga viöureign að
ræða, þótt óneitanlega séu leik-
menn tBV sigurstranglegri.
tslandsmeistarar Akraness fá
hinsvegar hitt Akureyrarliðið i
heimsókn, og eru meistarar
Akraness óneitanlega sigur-
stranglegri gegn KA.
Þá fer fram einn leikur I Kópa-
vogi, enn þar mætast Breiðablik
og Fylkir og ómögulegt að spá
fyrir um úrslit þar.
Þvi er ekki að neita að reyndar
er erfitt að spá nokkru, þegar
bikarkeppni er annars vegar, þvi
að hér eins og annnarstaöar
veröa oft mjög óvænt úrslit i
bikarleikjum. — Allir leikirnir I
kvöld hefjast kl. 20.
tíT
United?
Þær fréttir bárust I gær frá
Buenos Aires i Argentfnu að
enska félagið Manchester United
væri I samningaviöræðum við
argentinska félagið Huracan um
að kaupa HM-leikmann Argen-
tinu Osvaido Ardiles, og væri lik-
iegt að samningar myndu takast
fyrir helgina.
Ekki voru þessar fréttir fyrr
komnar til Evrópu en Sir Matt
Busby, sem er nú stjórnarmaður
hjá United tilkynnti, að ekkert
væri hæft i þessum sögum.
,,Ég hef ekki heyrt um þetta.
Þiö getið verið vissir um að þetta
er uppspuni frá rótum”, sagði
Busby.
gk—
Stjórnarmenn enska
knattspyrnuliðsins Leeds
United og Jimmy Armfield
framkvæmdastjóri félagsins
komust i gær að þeirri niður-
stöðu að það væri best fyrir
aila aðila að hann segði upp
stöðu sinni hjá félaginu.
Þetta var gert á „penan
máta”, en auðvitað er þetta
ekkert annað en uppsögn.
Armfield, sem réðist til
Leeds 1974, hefur ekki náð
umtalsverðum árangri með
liðið að undanförnu, og þeir,
sem vel þekkja til mála i
ensku knattspyrnunni, voru
búnir að spá þvi að Armfield
yrði látinn fara áður en langt
um liði.
Jackie Charlton, fyrrum
leikmaður nteð Leeds og
enska landsliðinu, þykir nú
liklegastur til þess að taka
við stöðu Armfields, en hann
er sem stendur stjóri hjá 3.
deildar liðinu Sheffield
Wednesday. gk—
Hraðbraut
Grænn2 EgilsstaÓir
jBein slétt og breið
í 4 km hæð yfir sjávarmáli.
Útsýni ómótstæðilegt og Fokker Friendship ílytur þig
þægilega og örugglega á áfangastað á einni klukkustund.
Fullkomin leiósögutæki vísa beina
og örugga leiÓ
FLUGFÉLAG ÍSLAJVDS
/NNANLANDSFLUG