Vísir - 17.07.1978, Qupperneq 1
TilBögur Alþýðuflokksins i vinstristiórnarviðrœðum:
EINOKUM
ADALVEHK-
TAKA LJUKI
Vilja úttekt ó risnu opinberra stofnana, bankastarfsmanna
og þingmanna. e Meint einokunaraðstaða Flugleiða og
Eimskips og SIS verði könnuð
Alþýðuf lokkurinn
mun líklega kref jast
þess í væntanlegum
stjórnarmyndunar-
viðræðum/ að einok-
un Islenskra aðal-
verktaka á Kefla-
víkurflugvelli verði
afnumin. Þá verði
einnig gerð úttekt á
ýmsum málum í
kringum herinn svo
sem gjaldeyrismál-
um. Mun Alþýðu-
flokkurinn leggja
fram beinar tillögur
í þessum efnum og
kref jast þess að tek-
in verði upp frjáls
útboð.
íslenskir aðalverktakar
ráða um 60% af útboös-
markaðnum i landinu, og
eru nú með tvó stórverk-
efni á Keflavikurflug-
velli, byggingu fjölbýlis-
húsa og byggingu nýs
flugturns.
Þá er blaðinu kunnugt
um, að hugmyndir eru
innan Alþýöuflokksins
um, að könnuð verði ýmis
hlunnindamál, svo sem
risna opinberra stofnana,
bankastarfsmanna og
þingmanna. Enn fremur
er liklegt að Alþýðu-
flokkurinn muni fara
fram á, að athugun verði
gerðá þvi hvort Samband
isl. samvinnufélaga sé
ekki komið út fyrir verka-
hring sinn, og athuguö
verði samvinna Flugleiða
og Eimskips i ferðamál-
um, en ýmsir telja þar
vera um að ræða sterka
einokunaraöstöðu.
ÓM/Gsal
Fulltrúar Alþýðuflokks og Framsóknar lega myndun vinstri stjórnar, og var þessi
hittust i morgun til viðræðna um hugsan- mynd þá tekin. Sjá frétt á baksiðu.
Visismynd: SHE.
Rikið sjái um rekstur
sjúkrahúsa og hafna
Meðal tillagna nefndar um verkefnaskiptingu
rikis eg sveitarfélaga
Nefnd sú, sem Gunnar
Thoroddsen, félagsmála-
ráðherra, skipaðiá sinum
tima til að gera tillögur
um nýja verkefnaskipt-
ingu rikis og sveitar-
félaga, hefur nú skilað
ráðherra áfangaskýrslu
um tillögur slnar i þeim
efnum.
i Visi I dag er birtur úr-
dráttur úr þvi helsta sem
nefndin leggur til, en
óhætt mun að fullyrða að
þetta mun vera viða-
mesta skýrsla sem gerð
hefur verið um þessi mál
hérlendis.
í tillögunum er meðal
annars lagt tii að rikið
taki að sér að sjá um
rekstur ailra sjúkrahúsa
og annast allar hafnar-
framkvæmdir, en
sveitarfélögin taki að sér
skólana og vegafram-
kvæmdir i þéttbýli.
Sjá siður 10 og 11
Landsmóti
lokið
Landsmóti hestamanna aö Skógarhól-
um lauk í gær. Hér sést Halldór E. Sig-
urðsson, landbúnaöarráðherra, afhenda
Sveini Guðmundssyni á Sauðárkróki
verðlaun, en hestur hans, Sörli, hlaut
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Sjá
nánar á bls. 2.
Ljósm: G.T.K.
„Kom oins
og reíð-
arsiag "
,,Það mun óhætt að segja að fréttir um þessi tog-
arakaup i Portúgal komi, eins og reiðarslag framan
I forsvarsmenn skipaiðnaðarins”, segir Þorleifur
Jónsson, framkvæmdastjóri Félags dráttarbrauta
og skipasmiðja. En Þorleifur gerir fyrirhuguð
skipakaup frá Portúgal að umtalsefni i grein, sem
hann ritar i Visi i dag.
Þar telur hann þaö vera stóra spurningu hvort
rétt sé að bjarga saltfiskmarkaðnum með togara-
kaupum. Það sé vart traustvekjandi, aö Portúgalir
voru hæstir þeirra, sem gerðu tilboð i Breka VE
eftir brunann á Akureyri.
„Hvers vegna hefur ekki farið fram útboð i sam-
bandi við þessi togarakaup?”, spyr Þorleifur.
„Hefur engum dottið það i hug, að e.t.v. væri hægt
að fá ódýrari skuttogara annars staðar ef þörf er
fyrir þá? Eða skiptir þörfin og veröiö engu máli?”
Sjá siöu 12.
Teikningar
Húsnœðismólastoffnunar:
Þjánusta einka-
aðila ódýrari?
Húsbyggjendur hafa um langt skeið talið aö
teikningar og þjónusta Húsnæðismálastofnunar
rikisins sé það ódýrasta, sem völ sé á hér á landi.
En er raunin sú?
Einkaaðilar, sem veita sömu þjónustu og Hús-
næðismálastofnunin, fullyröa að þeirra verð sé mun
ódýrara. 1 Visi i dag eru viötöl viö fulltrúa einka-
framtaksins og framkvæmdastjóra Húsnæðismála-
stofnunar rikisins um þessi mál.
____ Sjá siður 20-21.