Vísir - 29.07.1978, Qupperneq 14
14
Laugardagur 29. júli 1978 VISIR
BILAVAL
Laugavegi 90-92
viö hliðina á Stjörnubíó
Höfum opnað aftur
Tit sölu:
Golf L 77
Dodge Dart sport 75
Blazer K5 74
Datsun 100 A 74
Vantar Lödu 77 eöa Fiat 425 P 77 í skiptum
fyrir Fiat 128 74
Milligjöf staögreidd.
Scania 74
13 1/2 tonn, búkki 12-13 m.
Samkomulag.
Benz 1513 72
6 millj.
Samkomulag um greiðslur.
BÍLAVAL
Símar 19168, 19092
TILBOÐ
Tilboð óskast í eftirtaldar
skemmdor bifreiðar
árgerö
Auto Bianchi 1978
Mazda 323 1978
Datsun 180 1978
V.W. 1300 1974
Fiat127 1973
Cortina 1970
Escort 1300 1977
VauxhallViva 1974
FordFalcon 1968
Hillman Hunter 1971
Ennfremur tvö Honda SS 50 bifhjól árgerð
1974. Bifreiðarnar og bifhjólin verða til sýnis
mánudaginn 31. júlí í Skaftahlíð 24 (kjallara)
frá kl. 9-12 og 14-16.
Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 17.00 sama
dag til bifreiðadeildar Tryggingar h/f.,
Laugavegi 178, Rvk.
Trygging h.f.
I---------------------------1
blaöburóarfólk
óskast!
BERGÞÓRUGATA
Frakkastigur
Kárastigur
ÞÓRSGATA
Freyjugata
Njarðargata
Lokastigur
STIGAHLÍÐ
Bogahlið
Grænahlið
Afleysingar
LEIFSGATA
Fjölnisvegur
Mimisvegur
Þorfinnsgata
BÚÐIR II GARÐABÆ
4/8 — 10/8
Asparlundur
Hliðarbyggð
Þrastarlundur
SEL I frá 1/8-22/8
Brekkusel
Dalsel
Engjasel
KÓP. AUST. 4
Frá 4/8-1/9
Birkihvammur
Fifuhvammsvegur
Reynihvammur
VÍSIR
Það var um miðjan júni s.l., að undirritaður
átti erindi út á Kennedyflugvöll til að sækja
pakka að heiman. Við komuna þangað var sýnt
að einhver væri á ferð, sem fengur var i, þvi
ljósmyndari stóð þar tilbúinn og beið
komuvélarinnar frá Keflavik. Eftir stundar-
korns viðræður við stöðvarstjórann, Baldvin
Berndsen, varð það að samkomulagi, að nota
mætti ljósmyndarann, ef ekkert skammaryrði
yrði ritað með myndunum i Visi. Það hafði
nefnilega oft hvarflað að ritara þessa stúfs að
það væri gaman fyrir fólk á íslandi, sem ekki
hefur sótt New York heim að vita nánar
hvernig háttar til þarna á þessum stórtækni-
lega flugvelli. Áður en sú lýsing hefst er ekki úr
vegi að geta aðeins um forsögu tilveru Loft-
leiða i Ameriku.
Texti: Hrafn Pólsson
Flugsagan
Flugsaga íslands er mjög lit-
rik og skemmtileg, en hún nær
allar götur aftur til 1919, ef ég
man rétt, enda var nú á dögun-
um haldinn flugdagur á Sauöár-
króki i minningu um Alexander
Jóhannesson sem oröið hefði 90
ára á þessu ári. Ekki eru samt
80 ár liöin siðan Wright-bræður
fóru á loft. Ekki vorum viö Is-
lendingar strax komnir á fulla
ferö meö Alexander i farar-
broddi þarna eftir fyrri heims-
styrjöldina, en verulegt flug
hafiö 1937 og siöan upp úr siðari
heimsstyrjöldinni farið að
fljúga milli landa. Auövitaö var
fyrst farið til fastalands Evrópu
og var þaö ,,hið gamla” Flugfé-
lag Islands, sem var þar á ferð-
um, en hið yngra félag, Loftleiö-
ir, hóf vesturferðir til Ameriku
árið 1947, þegar Alfreö Eliasson
og Kristinn Olsen stýröu Sky-
masterflugvél til New York.
Allar götur siöan höfum við Is-
lendingar verið i loftferöasam-
bandi við Bandarikin, sem hefur
haft mikla þýðingu fyrir sam-
göngur okkar og ekki sist fyrir
Islendinga, sem búiö hafa fyrir
vestan um lengri eða skemmri
tíma.
Um nokkurt skeiö var Bolli
Gunnarsson, einn þeirra sem
lenti á Vatnajökli, umboösmað-
ur Loftleiða i Vesturheimi, en
lengst af var Siguröur' Helga-
son, núverandi forstjóri félag-
anna, þar i forsæti og vann mik-
ið og heilladrjúgt starf fyrir
Loftleiöir t.d. I vélakaupum og
viö samningaboröið.
Ljósmyndarinn
Eins og áöur sagöi var þarna
ljósmyndari kominn á
Kennedyflugvöll þetta vorkvöld
til þess aö mynda einhverja
mikilvæga mannveru. Þessi
myndasmiður reyndist heita
Michael Concelli og vinna ein-
göngu fyrir 10 nafntoguð flugfé-
lög. Hann virtist hafa það i góöu
meðallagi, enda talsvert á
þriðja hundrað pund aö þyngd
og brosti I sifellu brosi þess sem
sæll er meö afbrigðum. Hann
hafði með sér ungan son sinn
um fermingu, sem ætlaði föður
sinum að kaupa handa sér raf-
magnsgitar eftir auglýsingu i
blaði þetta kvöld, en pabba
gamla lá ekkert á að fá þetta
apparat inn á heimilið og brosti
meira og meira eftir þvi sem
timinn leiðs Michael sagðist oft
fara vegna vinnu sinnar á ýmsa
dýrðarstaði ferðamanna, eins
og Bahamaeyjar, Hawai og
Brasiliu. Þetta er algengt i
Bandarikjunum, að menn segi
gjarnan frá velgengni sinni og
dragi þar lltið undan. Eftir hálfa
klukkustund vildi hann ekki
heyra annað en að vera kallaður
Mikki og var allur af vilja gerð-
ur að gera myndasögu mina
sem fjölbreytilegasta, svo ég
bað hann að byrja myndatökur
með það sama.
Vélin kemur
A meðan vélin frá íslandi var
i aðflugi fórum við Mikki inn á
gafl hjá starfsfólki Loftleiða á
flugvellinum. A leiðinni náðum
við mynd af hinni siungu
Stefaniu Patterson, sem lengst-
an starfsferil hefur af starfs-
fólkinu. Staðar var numið inni á
skrifstofu Olaf Ellerup, vakt-
stjóra, en hann er sennilega
mesta lipurmenni, sem nokkurt
flugfélag hefur i þjónustu sinni
að öðrum ólöstuðum. Þar hitt-
um við fyrir annan ágætis-
manninn, E.inar Asgeirsson,
sem um árabil hefur starfað við
hlið Olaf. Einnig sat þarna mak-
indalega fyrrverandi mjólkur-
póstur úr Sogamýrinni, Halldór
Þorsteinsson frá Brekku, sem
verið hefur flugvirki hjá ís-
lenska flugflotanum manna
lengst. Hann las Visi og talaði I.
sima isömuandrá. Hann minnti
einna helst á Helga sáluga Hjör-
var sem talinn var fær um
hlusta á útvarpið, rita næsta er-
indi sitt, og ræða við eiginkon-
una, já, allt á sama tima. Ekki
fengust afgreiðsluséffarnir til
að koma á mynd, en Halldóri
var alveg sama.
Upp í rana
Um leið og flugvélin lenti kom
Baldvin og sagði: „Jæja, strák-
ar upp i rana”. Þannig er háttur
á þarna þegar vélarnar renna
upp að stöðvarbyggingunni aö
stóruip harmonikulöguðum
göngubrúarrana er rennt út að
flugvélardyrunum, sem farþeg-
ar ganga siðan um I land.
FrSulein Schmidt visar veginn við komu vélarinnar.
Þeir fyrstu á austurieið.
Spilverk þjóðanna og feröafélaga talið fr:
dóttir, Asta Ragnarsdóttir, Valgeir Guðji
er, Þóra Schram, Guðrún Gisladóttir, Si{
Tómas VaLgeirsson.
Baidur Oddsson, flugstjóri.
Afgreiðslan: Stakkholti 2-4 Simi 86611