Vísir - 29.07.1978, Page 19
vtsir
Laugardagur 29. júli 1978
19
að sitja inni allt aö þvi aðgerö-
arlaus. Þetta er eina æfingin
sem við erum i undir beru lofti,
og hún er býsna friskandi bæöi
fyrir likama og sál”.
islenski tölthesturinn
sérstaklega góöur
fyrir fatlaða
Haukur Þóröarson, yfirlæknir
á Reykjalundi, var forgöngu-
maöur um aö leigöir yröu hestar
og skipulagöir reiðtúrar fyrir
vistmennina. Aö sögn Hauks
hefur komiö i Ijós á undanförn-
um árum aö þaö er mjög gott
fyrir fólk, sem þjáist af vissum
tegundum lfkamlegrar fötlunar
aö fara á hestbak og láta likama
sinn hreyfast i takt viö likama
hestsins.
„Notkun hesta i þessu augna-
miöi hefur veriö töluverð
erlendis, svo sem á Norðurlönd-
um, i Þýskalandi, Sviss, Banda-
rlkjunum og sjálfsagt viöar”,
BÍLAVARAHLUTIR
Saab '68
VW 1600 '68
Willys '54
Fíat 850 sport '72
Moskvitch '72
Fiat 125 S '72
Chevrolet Cheville '65
sagöi Haukur. Islenskir tölt-
hestar eru sérstaklega góöir til
notkunar i þessum tilgangi og
hafa talsvert verið notaöir
erlendis. Þeir sem eru lamaöir
fá mikla þjálfun fyrir vöövana á
hestbaki. Sumar lamanir eru
svokallaöar stifar lamanir. Þá
kemur mikil stifni i vöövana
sem lamaðir eru. Fari maður
sem þjáist af stifri lömum á
hestbak veröa vöövar viökom-
andi fyrir teygingu og stifnin i
þeim minnkar. Aö visu er sú
minnkum ekki til frambúöar, en
vöövarnir veröa liprari um
tima. Sjúklingar sam hafa trufl-
að jafnvægisskyn fá einnig
mikla þjálfun af þvi aö sitja
hest”.
„Auk alls þessa kemur svo til
almenn örvun, sem fólk fær i
hestamennsku „bætti Haukur
við. „Margir sem orðiö hafa
fatlaðir detta i doða og sinnu-
leysi. Hestamennskan er tilval-
in til aö auka virkni fólks
almennt og áhuga þess á lifinu i
kringum sig”. —AHO
BÍLAPARTASALAN
Hoiðatum 10, simi 1 1397.
Opið fra kl 9 6.30. lauqar'daga
kl. 9 3 oy sunnudaqa kl 13
Reiðtúrar hafa veriö skipulagðir fyrir vistmenn á Reykjalundi undanfarin sjö sumur, og eru leigöir
hestar til starfseminnar, yfirleitt úr nágrenni Reykjavikur.
Ánægjulegar harðsperrur
kynnti mig rugiuö fyrir knapan-
um. Var þar kominn annar
bóndi, Vilhjálmur Guömunds-
son, en hann hefur veriö um þaö
bil þrjá mánuöi á Reykjalundi
eftir þvi sem ég uppgötvaöi
seinna”. Ég er hér til endurhæf-
ingar út af brjósklosi i hrygg og
sliti alls konar, sem vill gera
vart viö sig þegar menn hafa
lengi unnið erfiöisvinnu”, sagöi
Vilhjálmur, og hægði örlitiö á
reiöinni til aö oröin fykju ekki út
i vindinn”.
■Mikil sálubót
Vilhjálmur hefur veriö bóndi i
þrjátiu ár, byrjaði búskap á
Hraunum i Fljótum i Skaga-
fjarðarsýslu, en bjó seinna á
Gauksmýri i Vestur-Húna-
vatnssýslu. „Ég hef auðvitað átt
ótal hesta á ævinni, bæði til
dráttar og reiöar” sagöi hann.
„Eitthvaö er náttúrulega oröiö
litið úr þvi núna, en hún Elding,
uppáhaldið mitt, er svo sem
alveg nóg fyrir mig. Ég er búinn
að fara á hestbak á hverjum
degi undanfarinn hálfan mánuð,
— það er að segja siöan reiðtúr-
arnir hófust i byrjun sumars.
Þetta er mikil sálubót og liökar
mann óskaplega. Svo er hún
Sigga Bogga ofsalega ágæt
stelpa og starfinu vaxin, og þaö
skemmir sannarlega ekki fyr-
ir”.
Það eru ekki eintómir bænd-
ur, sem hafa dottið á kaf i reiö-
mennskuna á Reykjalundi. Með
i túrnum var einnig Guöbjörg
Kristin Eiriksdóttir, sem út-
skrifaöist úr Menntaskólanum I
Flensborg i vor. „Ég er meö
slæma liöagigt, og hef veriö hér
á Reykjalundi undanfarin sum-
ur þvi aö þaö er mjög erfitt aö fá
sumarvinnu svona á sig kom-
inn”, sagði Guöbjörg okkur.
„Ég vinn hér á simanum I fjóra
tima á dag og finnst dýrlegt aö
skreppa á bak áður en ég fer aö
vinna. Það er svo gott fyrir
mjaðmaliöinn”.
Vilhjálmur Guömundsson og Sigga Bogga hjálpa Jóni á bak. Aö
sögn Jóns er þaö mjög góö æfing fyrir vöövana aö vera á hestbaki.
Haukur Þóröarson, yfiriæknir á Reykjaiundi , sagöi aö isienskir
tölthestar væru einstaklega góöur fyrir fatlaöa, og heföu þeir tals-
vert verið notaöir erlendis. A þessari mynd eru þau Vilhjálmur
Guðmundsson, Guöbjörg Kristin Eiriksdóttir, Sigga Bogga og Jón
Hilmar Sigurösson.
Sjálfsagt muna margir eftir
Jóni Hilmari Sigurössyni,
iþróttamanni, sem setti hvert
metið á fætur ööru i lang-
hlaupúm á sinum tima. Jón var
einnig bóndi I úthlið i Biskups-
tungum, en hálsbrotnaði þegar
stafli af heyböggum hrundi yfir
hann, með þeim afleiöingum aö
•mænan skaddaöist, og hann
lamaðist algerlega. Eins og gef-
ur aö skilja hefur verið litiö um
iþróttaiökun eöa búskap hjá
Jóni siðan þetta geröist, en hann
hefur verið á Reykjalundi til
endurhæfingar i rúmlega eitt
ár.
„Það er mjög góö æfing fyrir
vöðvana að vera á hestbaki”,
sagði Jón þegar við áöum um
stund i litilli laut. „Mér gekk
furðanlega vel viö þetta i fyrsta
skipti sem ég fór á bak. 1 næstu
túrum á eftir var ég hins vegar
að drepast úr harösperrum, en
svo fór aö ganga betur og betur
eftir að ég hafði jafnað mig á
þeim. Það er lika næstum þvi
ánægjulegt aö finna til af harö-
sperrum, þvi að það
þýöir aö eitthvaö er af vöövum
sem virka. Svo er þetta bráö-
skemmtileg tilbreyting frá þvi
Gódbeilsaep
IttaRRS
Þarna er Jón Hilmar meö Siggu Boggu hestastjóra
„Það er ánægjulegt aö finna til af harösperrum þvi aö þaö þýöir aö
eitthvaö er af vöövum sem virka”. Hér er Jón Hilmar aö búa sig
undir reiötúrinn.
HNETUSTENGUR