Vísir - 29.07.1978, Síða 23
VISIR Laugardagur 29. jiili 1978
23
fyrirtækið fór aö ýta á eftir þvi
aö hún yröi spiluö. En þegar hún
fór aö heyrast komst hún inn á
sænska vinsældalistanrt. Þessa
dagana er svo önnur tveggja
laga plata aö koma út meö mér
og þaö hefur komiö til tals aö
hún fari einnig fyrir Eurovision-
dómnefndina, en ég geri mér
samt engar vonir um þaö, þvi
þaö er alltaf veriö aö breyta
reglum keppninnar og nú má
vist enginn útlendingur koma
þar nálægt.
Hæfileikakeppni
Rétt áöur en fyrsta platan
komst á sænska vinsældarlist-
ann var haldin hæfileikakeppni
um alla Sviþjóö og ég gaf mig
fram fyrir umdæmiö Mellan-
Sverige. Fyrir keppnina safnaöi
ég saman nokkrum kunningj-
um, Ragnari, Siguröi Long o.fl.
og við komum þarna fram meö
þrjú lög. Við sigruðum i um-
dæminu i undanúrslitunum. Svo
var aðalkeppnin haldin þann 10.
júni siðastliðinn og þá vorum
við búin aö endurvekja Lava.
En þegar komið var aö þvi, að
tilkynna átti úrslitin kom til min
forsvarsmaður keppninnar og
sagði að þar sem lagiö mitt
hefði þá nýlega veriö komin á
vinsældalistann, væri þaö álit
dómnefndarinnar aö ég væri bú-
in að fá mina viöurkenningu og
yröi þvi sett i heiðursverðlauna-
sæti keppninnar. Þannig missti
ég af hinum góðu peningaverð-
launum sem féllu i hlut sigur-
vegarans.”
Til Englands
— Hvað tekur við hjá
hljómsveitinni að íslandsferð-
inni lokinni?
Janis: „Héðan höldum við til
Noregs og verðum þar að
minnsta kosti i hálfan mánuö.
Ætlunin er að hljómsveitin
starfi eitthvað fram á haustiö,
en þá tekur við fri. Sumir fara i
skóla og við Ingvar ætlum að
flytja til Englands. Þar er
maður i jafnari aðstöðu, þvi aö
Sviar eru mjög fyrir sig — vilja
hafa allt sænskt — og þvi er
mjög erfitt að vera erlendur
tónlistarmaður þar. En
hljómsveitin verður áfram til og
umboðsmaðurinn okkar, sem
hefur i rauninni meiri sambönd
útum heim en i Sviþjóð, er nú að
skipuleggja stóra reisu til
Þýskalands, Hollands,
Grikklands og eftilvill Japans.”
Ingvar: „Við erum nefnilega
með hljómplötu i bigerð. Þessi
umboðsmaður okkar á réttinn
að mörgum lögum sem hann
hefur boðið okkur að taka upp.
Við gerum plötuna annaðhvort
héri Hljóðrita eða i London. Og
þetta ferðalag er hugsað til að
fylgja henni eftir.”
Lélegt skólakerfi
Janis: „Annars er helsta ástæð-
an fyrir flutningi okkar til
Englands sú að ég er sjálf þaðan
og svo eru það börnin. Við erum
mjög óanægð með skólakerfið i
Sviþjóð og viljum koma þeim i
skóla i Englandi. Það er höfuð-
orsökin fyrir þvi að við ákváð-
um að festa kaup á húsi i
London. Það er einnig i deigl-
unni að komast inn i tónlistina
þar, en það er nú ekki hlaupið að
þvi. Við höfum þó ágætis sam-
bönd i Englandi.”
Ingvar: „En þó við eigum hús I
London ætlum við að gera út frá
Sviþjóð i gegnum umboösmann
okkar þar.”
í 50 stiga gaddi
— Hafiði lent I einhverjum
ævintýrum i sambandi við
spilamennskuna i Sviþjóö?
Janis: „Já, það er ekki laust við
það. Við keyptum okkur einu
sinni gamlan strætisvagn, gerð-
um hann upp og lögðum á stað I
hljómleikaferðalag til Noröur-
Noregs I gegnum Finnland og
Lappland allt þar til við vorum
aöeins fjórum kilómetrum frá
landamærum Noregs og
Rússlands norðurundir íshafi.
Þar var 50 stiga gaddur.”
Ingvar: „Ferðin var farin I
þeim tilgangi að heilsa uppá
norskar herstöðvar til að
skemmta hermönnunum.”
Janis: „Nú, það þarf
náttúrulega ekki að spyrja aö
þvi: billinn var alltaf að bila og
einu sinni vorum við stödd langt
frá mannabústöðum. Þá frýs á
vélinni og öllu saman og ekki
nokkur smuga á þvi að koma
skrjóðnum aftur af stað. Viö
bjuggumst þvi við að verða
þarna úti. En. þá skeður krafta-
verk — alveg eins og i ævintýr-
unum — við sjáum dauft ljós úti
viö sjóndeildarhring. Haldið var
af stað ogþað frusu strax skegg-
in á strákunum. Þarna komum
við að bæ, þar sem fólkið var
hálfúrkynjaö. En það haföi sem
betur fór sima og við gátum
hringt til þeirrar herstöðvar
sem við komum frá og var borg-
ið.”
Ingvar: Þetta ferðalag stóð I 23
daga og við spiluðum 21 kvöld.
Keyrt var á steinoliu allan tim-
ann og stybban frá henni gekk
nærri af okkur dauðum. A
hverju kvöldi þurftum viö að
byrja á þvi að þiða rafmagns-
snúrurnar sem voru frosnar i
köggla. En hreina loftið á þess-
um slóðum átti sennilega mest-
an þátt i að við lifðum þetta af.”
Janis: „Það þarf náttúrulega
ekki að taka það fram, að
bflskrjóðurinn gaf endanlega
upp öndina stuttu eftir að við
höfðum farið yfir sænsku
landamærin. Við vorum
nefnilega svikin i sambandi við
þessibilakaup og það má teljast
mikið lán að við skulum vera
hér til frásagnar. Okkur hefur
nú boðist að fara aðra ferð
þarna um norðurhjarann, en
ætli við hugsum okkur nú ekki
tvisvar um áður en við tökum
þvi.”
— Hver þykir ykkur helsti
munurinn á þvi að spila hér á
íslandi eða erlendis?
Ingvar: „Það er helst, að i
Sviþjóð er betra kaup og aldrei
spilað án þess að gengið hafi
verið frá samningum löngu áður
og i þeim matur, ferðir og allur
slikur kostnaður innifalinn.
Afurámóti finnst okkur
tónlistarsmekkur tslendinga
miklu betri og áhorfendur krefj-
ast meira af hljómsveitunum en
Sviar. Það er þvi leiðinleg sú
staðreynd að hér er lifandi
tónlistarflutningur að syngja
sitt siðasta.”
Janis: „Það er ákaflega leið-
inlegtað „tyggjókúlutónlist” og
diskótek séu farin að spila svona
stóra rullu hér. Tónlistarmönn-
um er lifsnauðsynlegt að spila
þróaða og erfiða tónlist, sem
þeir þurfa að hafa fyrir að
framkalla og geta* lagt tilfinn-
ingar sinar i. Þetta er það sem
er að skemma fyrir islenskum
poppurum. Þeir eru hreinlega
að selja sig. Músik er einskis
virði ef tilfinninguna vantar.”
Allir velkomnir
— Hve lengi ætlið þið aö
stoppa hér á Islandi að þessu
sinni?
Janis: „Við verðum hér
eitthvað fram yfir verslunar-
mannahelgi, en við þurfum að
vera komin til Noregs fyrir 15.
ágúst þvi þá upphefst okkar
spileri þar samkvæmt samning-
um. Og við viljum bara segja
það að lokum, að við bjóðum
alla Islendinga velkomna á böll-
in okkar á næstu dögum. Við er-
um hér komin fyrst og fremst til
þess að skemmta landanum og
vonum að það takist sem best.”
—PP
Yiðtol: PqII Polsson
Myndir: Sigurður H. Engilbertsson
SUBARU— ffjölskyIdubíll: 94 hestöfl — 1600 cc. — 800 kg.
Fjögurra dyra — Framhjóladrif.
og SUBARU
— ffyrir þá sem vilja komast áffram
SUBARU i-sportbíll: 115 hestöfI—1600 cc. — aðeins 800 kg.
Tveir blöndungar — 5 gíra kassi — örsnöggt viðbragð
Tveggja dyra — Framhjóladrif.
SUBARU
Til afgreiðslu strax
FRAMHJÓLADRIFSBILAR/ sem verða — FJÓRHJÓLADRIFS-
BILAR
með einu handtaki inni í bílnum/ sem þýðir/ að þú kemst hvert sem
er á hvaða leið sem er.
SUBARU með fjórhjóladrifi klrifrar eins og geit, vinnur
eins og hestur, en er þurftarlítíII eins og fugl.
SUBARU station
95 hestöfl — 1600 cc. — 975 kg. Fjórhjóladrif
Nw er lika hasgt að ffá
SUBARU Pickup, sem er til í allt:
94 hestöfl — 1600 cc. — 930 kg. Fjórhjóladrif.
SUBARU — sparneytinn og hentugur fyrir fjölskylduna
SUBARU
bilar með langa reynslu.
SUBARU—UMBODIÐ
INCVAR HELCASÖN
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 845 1 "0 og 8451 1