Vísir - 02.09.1978, Side 19

Vísir - 02.09.1978, Side 19
19 VTSIR Laugardagur 2. september 1978 Brynjar og þýskur samferöamaöur i Cima de Rosso. Arnþór Þóröarson. Frá feröamannabænum Zermatt blasir Matterhorn viö i fjarska. Gengiö eftir skriöjökli aö Monte Sisonne Fiesch smábæ skammt frá Zermatt. I Zermatt Fyrsti dagurinn i Zermatt,þess- um sérstæöasta ferðamannabæ i Sviss, verður okkur sérstaklega minnisstæður, stórkostlega gott veður, alveg heiður himinn og Matterhornið eitt frægasta fjall veraldar, óhemju tignarlegt að sjá gnæfa upp yfir bæinn. Það er engin furða að i mörgum ferða- mannabæklingum er bærinn nefndur Mekka fjallgöngumanns- ins. Daglega kemur til bæjarins fjöldi fjallgöngumanna sem fara þaðan upp i hina fjölmörgu fjalla- skála sem eru við rætum fjall- anna allt i kring. Þaðan er siðan lagt til atlögu við fjöllin sjálf. Bil- ar eins og við þekkjum þá eru bannaðir i Zermannt og verða ferðamenn sem koma akandi að skilja bila sina eftir i næsta bæ og fara siðasta spölinn til Zermatt með lest. Þar er aftur nóg af hest- vögnum og rafmagnsbilum sem hægt er að leigja og láta aka sér i um bæinn. Eftir að hafa spurt til vegar gengum við 20 min. leið til far- fuglaheimilisins sem er stórt og reisulegt hús skammt frá bæjar- miðjunni. Þar skildum við far- angurinn eftir og fórum aftur niður i bæ að skoða okkur um og lita i verslanir. Eins og áður sagði er Zermatt mikill ferðamanna- bær og allt atvinnulif byggist á ferðamönnum, þetta sést best á þvi að þegar gengið er um göturn- ar skiptast á hótel verslanir, veit- ingahús og bankar svo fólk geti nú alltaf haft nóg af peningum i vasanum. Matterhorn biður Matterhornið var á sinum stað og fannst okkur óvenju mikill snjór i þvi' miðað við þær myndir sem viö höfðum séð af þvi. Það kom lika á daginn er við fórum á fjallamannaskrifstofuna að leita upplýsinga um ástand fjallanna. aðsnjór var meðallramesta móti iMatterhorninu og öðrum fjöllum þarna nálægt vegna eindæma fannfergis i Alpafjöllunum undan farnar vikur og var okkur sagt að glapræði væri að ætla að klifa Matterhornið i sliku ástandi. Reyna mætti eftir viku ef sólskin héldistnokkradaga i röð. Að klifa Matterhornið fer nefnilega þann- igfram að fjallgöngumaðurinner sifellt að klifra bæði með höndum og fótum i snarbröttum hliðum fjallsins alla þá 1200 metra löngu leið frá skála upp á tind. Sé mikill snjór i klettunum getur klifrið verið stórhættulegt og afar sein- legt sem hefur aðra hættu i för með sér. Sem sagt þá að veðrið i Olpunum vill oft breytast til hins verra seinni hluta dags heiður himinn seinnihluta nætur og morguninn fram að hádegi en þá getur á mjög skömmum tima þykknað upp og brostið á með ægilega rigningu og þrumuveður en eldingarnar eru sérstaklega hættulegar fyrir fjallgöngumenn og verða árlega mörgum að bana. Eftir viöræðurnar við starfs- mann fjallamannaskrifstofunnar tókum við þá ákvörðun að láta Matterhornið biða en þess i stað leggja af stað daginn eftir áleiðis á Monte Rosa, hæsta f jall Sviss 4634 m, sem er ekki langt frá Zermatt. Hitinn þenna dag var búinn að vera óskaplegur og olli okkur þessum einkennilega mikla þorsta sem verður helst ekki slökktur nema með stórri könnu af góðum bjór, leið okkar lá af þessari ástæðu alltaf öðru hverju inná veitingahús þar sem afgreiddur var slikur bjór. En okkur var ekki til setunnar boðið þvi nú þurftum við að kaupa okk- ur mat til að hafa i nesti á Monte Rosa. Þeirra erinda fórum við nú i stóra kaupfélagsverslun og keyptum nokkur stór brauð, smjör ost, te sykur yoghurt, sultu og nýja ávexti að ógleymd- um nýgrilluöum kjúklingum sem þarna voru matreiddir og seldir við vægu gjaldi — herramanns- matur. Einnig keyptum við okkur silikon á spreybrúsa og notuðum við kvöldið til að Uða þvi anorakk- ana til þess að gera þá vatns- þétta. Einnig bárum við vatns- ver jandi áburð á gönguskóna sem vissulega voru orðnir þurfandi fyrir eftir tveggja vikna erfiði i misjöfnu færi. Til Rotenbader Næstu nótt. sváfum við á far- íuglaheimilinu og vöknuðum morguninn eftir kl. 7.00, snædd- um morgunmat og héldum siðan niður á lestarstöðina þar sem við settum i geymslu það af farangrunum sem við ætluðum ekki að nota i þetta sinn. Að þessu loknu fórum við i farmiöasöluna og keyptum okkur far með lest upp ifjöllin tilstaðarsem nefndur er Rotenboden. Þaðaner tveggja klst. gangur að Monte Rosa skál- anum þar sem við ætluðum að sofa næstu nótt. Til þess að kom- ast þangað þarf að ganga upp með löngum skriðjökli og fara siðan þvert yfir hann við rætur Monte Rosa en þar stendur skál- inn í 2880 m hæð. Er þangað var komið var sólin komin hátt á loft og bakaði okkur með brennandi geislum sinum. Til þess að verj- ast sólbrunanum urðum við að bera á okkur sólkremið öðru hverju. tskálanum borguðum við fyrir gistingu næstu nótt en borð- uðu siðan kjúklinginn góða sem við höfðum keypt daginn áður, með honum drukkum við heitt og vel sætt te sem við löguðum okk- ur. Það sem eftir var dagsins sóluðum við okkur og athuguðum útbúnaðinn. Fórum siðan að sofa um kl. 19.00 um kvöldið, óneitan- lega nokkuð snemma en nauðsyn- legt engu að siður þvi.skálavörð- urinn vekur alla um kl. 2.00. Fyrir höndum var löng ganga og þvi betra að verasnemma á ferðinni bæði út af veðrinu eins og áður sagði og eins vegna þess að þegar sólin feraðskina á snjóinn spillist göngufærið fljótt. Algengt er aö sökkva u.þ.b. 40 sm i snjóinn á niöurleið seinni hluta dags en ganga honum glerhörðum og finum i upphaf i ferðar seinnihluta nætur. Áfram upp Þegar við vöknuðum um tvö- leytið um nóttina og litum út var stjörnubjartur himinn og veður- útlit hiö besta. Við borðuðum þvi glaðir I bragði og fórum að hafa okkur til, fórum i gönguskóna og hnéháar legghlifar til varnar snjónum. Um þrjú leytið héldum við af staö, var þá enn dimmt af nóttu svo við urðum að lýsa upp gönguleiðina og notuðum við til þess ljós sem við spenntum á höfuðið svipað og námumenn og hellaskoðaðar. Þannig gengum við i um tvo tima en þá var orðið það bjart af degi að við gátum hætt að nota ljósin. A þessum tima höfðum við tveir fyrst verið i hópi um tuttugu annarra sem voru að fara sömu leið en tókum fljótlega forystuna. Eftir þriggja tima göngu vorum við komnir i 3900 m hæð og sáum við þá ekki lengur til fólksins sem hafði lagt upp frá skálanum um leið og við. Seinna fréttum við að það hefði snúiðvið vegna þokunnar sem nú var orðin nokkuð þétt, annars var logn, en örlitið byrjað að snjóa. Áfram héldum við en hvildumst þó öðruhverju þvi i þessari hæð urðum við miklu fyrr þreyttir og móðir vegna þunna loftsins. Þrúgusykur og hið heimsþekkta svissneska súkkulaöi var aðal- fæðan á leiðinni upp. Göngufærið var allan timann nokkuð gott. Fyrst þegar frá skálanum kemur er snjóbrekka nokkuð brött og þarf að faraupp hana en siðan er gangan nokkuð jafnt á fótinn og yfir nokkrar jökulsprungur að fara. Það er gert á snjóbrúm sem venjulega eru yfir sprungurnar, fara verður þó sérstaklega var- lega og binda menn sig ávallt saman i linu til frekari öryggis. óvæntur Ijósmyndari 1 4360 m hæð er staður sem kallaður er „Söðullinn” vegna út litsins og náðum við þangað um klukkan sjö um morguninn. Þar skildum við bakpokana eftir þvi þaðan var stutt ferð á tindinn sem heitir Dufourspitze (4634) en nokkuð erfitt klifur siðustu 250 m upp eftir örmjóum klettahrygg með brattar snjóhliðar og kletta beggja megin við. Okkur gekk erfiðlega að finna tindinn vegna þokunnar.sem var ennþá yfir öllu fjallinu en um klukkan átta fór að rofa til og sást þá tindurinn greinilega og stóðum við þar stuttu seinna. Eftir stutta dvöl á tindinum sáum við hvar fjall- göngumaður kom klifrandi upp i áttina til okkar. Lyftist þá heldur betur brúnin á okkur þvi þarna var komin ágætis lausn á þvi vandamáli hver taka ætti að ljós myndaf okkur tveim saman meö bæjarfána Kópavogs. Þetta reyndist vera Bandarfkjamaður og var hann þriðji og sá siöasti sem steig á tind Monte Rosa þennan dag. Eftir myndatökuna fórum við siðan niður af toppnum og niður á Söðulinn, en þar biöu þá tveir félagar Bandarikja- mannsins. þeim hafði þá ekki lit- ist meira en svr, á klettahrygginn |JCU dhVauu avi lái'a viilii lciigra. Þunna loftið olli okkur nú tölu- verðum höfuðverksvo viö héldum fljótlega niður af fjallinu og vor- um komnir i skálann um hádegisbil eför niu klukkustunda göngu. Þar fengu við okkur vel að borða og héldum af stað aftur niður til Rotenboden og tókum þar lestina til Zermatt. M II I I I I I I I 11 I 11I1111111

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.