Vísir - 28.09.1978, Page 13
Fimmtudagur 28. september 1978
VISIH
VISIR
Fimmtudagur 28. september 1978
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson — Kjartan L. Pálsson
13
V
J
I
■
Pétur Pétursson:
Ánœgður með
þessi úrslit
,,Ég er harbánægOur meb þessi
úrslit”, sagði markaskorari þeirra
Skagamanna, Pétur Pétursson, er við
spjölluðum við hann eftir leikinn.
,,Ab sjjálfsögðu hefði verið gaman að
skora á móti þeim, og að sigra þá — en
þctta var gott hjá okkur Skaga-
mönnum, og ég held ab við þurfum
ekki aö skammast okkar fyrir þennan
leik né þessi úrslit”....
—klp—
Georg Kirby þjólfari:
Áttum að
vinna þó
„Þetta voru góö úrslit”, sagði
George Kirby, sem kom brosandi út
undir eyru lil að ræða við blaðamenn
eftir leikinn viöþýsku meistarana FC
Köln í gær.
„Viö áttum aö vinna þá —við vorum
betri aðiiinn i fyrri hálfleik, og áttum
að komast I 2:0,þegar Pétur komst
einn i gegn i fyrri hálfleik. Þar heföi
góður leikmaður (Ciass-player”)
skorað mark!
Undir lokin átti Matthias einnig gott
tækifæri að skora með skalla — en
hann skallaði boltann eins og blöðru.
Annars var m jög erfitt aö leika gegn
þeim. Þeir héldu boltanum og tóku
enga óþarfa áhættu. Viðkomum þeim i
opna skjöldu af og til með snöggum
upphlaupum okkar, og ég held að þeir
hafi verib tiltölulega ánægðir að
sleppafrá okkur meö jaf ntefliö”, sagði
Kirby, að lokum vib bla öamennina, en
hann heldur heim til Englands i dag.
-klp-
Hvað fœr
ÍBV?
Aðeins eitt islenskt lið er áfram i
Evrópumótunum i knattspyrnu, en
það er lið iþróttabandalag.s Vest-
mannaeyja, sem sló Glentoran frá
Norður-irlandi út i UEFA-keppninni.
Eyjaskeggjar og fleiri biða spenntir
eftir að vita hvaða lið tBV fær i 2.
uinferð, en dregið veröur um hvaða lið
mætast þar nú síðar i vikunni.
Mörg góð liö eru eftir i UEFA-
keppninni, en okkr spá er að ÍBV fái
eitt af þessum þrem félögum: FC Carl
Zeiss Jena frá Austur-Þýskalandi,
lliberniani FC frá Skotiandi eða
Manchester City frá Englandi (?)..
—klp—
■í
Mark Skagamanna I uppsiglingu. Karl Þórðarson brýst upp með endalinunni og gefur fyrir markið (stóra myndin). Boltinn berst fyrir markið og þar kemur bakvörðurinn Herbert
Hain og þegar hann reynir að hreinsa frá markinu, spyrnir hann boitanum I eigiö mark ( litla myndin).
Vlsismyndir — Einar.
Skagamenn í miklu stuði og
hrelldu leikmenn F. C. Kölnl
þeir höfðu yfir í leiknum allt fram ó lokakaflann, en þó tókst hinum reyndu atvinnumöimum oð jafna metin 1:1
„Það er ékki gott að segja, hvaö
hefði gerst, ef Pétur Pétursson
hefbi skorað og komið Akranesi
yfir 2:0” sagöi v-þýski þjálfarinn
Hans Weisweiler eftir leik Akra-
ness og F.C.Köln á Laugardals-
velli i gær.
Pétur fékk mjög góða sendingu
inn fyrir vörn Köln á 12. minútu,
er staban var 1:0 fyrir Akranes,
sem markvörður Köln, Harald
Schumacher kom út á móti og
tókst naumlega að verja skot Pét-
urs.
Þar skall hurð nærri hælum við
mark Köln, þvf að fjórum minút-
um áður hafði bakvörðurinn Her-
bert Hein skorað sjálfsmark og
Skagamenn voru þvi yfir gegn
hinum frægu leikmönnum Köln-
er. Þáhaföi Karl Þórðarsson leik-
ið iaglega upp með endamörkum
og gefiö fasta sendingu fyrir
markið, og Hein sem kom að á
fullri ferð negldi boltann upp i
þaknetið i eigin marki !
Hvaö heföi þvi gerst ef Pétur
heföi komiö Akranesi yfir 2:0?
Þvi er ekki gott aö svara, en allt
heföi getaö gerst og jafnvel sá
möguleiki aö Kölnarliöiö heföi
brotnaö niöur er fyrir hendi.
Skagamenn léku stórgóöan
fyrri hálfleik I gær gegn hinum
frægu mótherjum sinum. Þeir
létu boltann ganga á milli sin og
byggðu upp hættulegar sóknarlot-
ur, sem komu Þjóöverjunum
greinilega i opna skjöldu. En
mörkin uröu ekki fleiri i hálf-
leiknum. Hættulegasta tækifæri
Kölnar kom hinsvegar á 28. min-
útu, en þá vippaöi belgiski lands-
liösmaöurinn Roger van Gool yfir
Jón Þorbjörnsson — en i þver-
slána og boltinn barst út á völlinn
aftur.
Menn Voru þv.i bjartsýnir, er
siöari hálfleikurinn hófst, en þaö
kom greinilega i ljós að leikmenn
Kölnar voru ákveönari i hálf-
leiknum en i hinum fyrri. Þeim
tókst þó aldrei aö ná afgerandi
tökum á leiknum, en boltinn var
lengst af á vallarmiöjunni.
Þaö var svo á 72. minútu aö
Köln jafnaöi, og þaö var Belginn
Roger van Gool, sem skoraöi.
Hann fékk sendingu fyrir markiö
frá Engel og skoraöi i autt mark-
iö. Þarvar vörn Skagamanna illa
vakandi, og þá ekki sist Jón Þor-
björnsson, sem heföi átt aö taka
fyrirgjöf Engels.
Skagamenn mega vel við þaö
una aö hafa gert jafntefli viö
þetta fræga liö, liö sem sigraði
bæöi i Bundesligunni og í v-þýsku
bikarkeppninni á siöasta ári.
Þvi er ekki aö neita aö leik-
menn Kölnar voru meö hættulegri
tækifæri, er á leikinn leiö, en
Skagamenn voru aö sama skapi
óheppnir aö komast ekki i 2:0 i
fyrri hálfleiknum. Þetta var sigur
áhugamannaliös gegn þrautþjálf-
uöu liði atvinnumanna, þótt
markatalan hafi veriö jöfn er upp
var staöið.
Bestu menn i liöi Akraness voru
Arni Sveinsson, sém átti stórleik,
Karl Þóröarsson sem var góöur
aö venju, og Jón Alfreðsson sem
vann mjög vel og geröi margt
laglegt. Þá má ekki gleyma
Sveinbirni Hákonarsyni, ungum
pilti, sem er nýbyrjaður aö leika
meö liöinu, en leikur eins og hann
hafi ekki gert annað i mörg ár.
Sannarlega framtiöarmaöur!
Þaö verður aösegjasteins og er
að Kölnarliöiö olli vonbrigöum i
þessum leik, maöur bjóst viö mun
meiruaf þessum frægu leikmönn-
um. Sérstaklega áiú þetta viö um
leik liösins i fyrri hálfleik, enda
voru Skagamenn þá áberandi
betri aöilinn.
gk—•
„MITT UÐ GETUR
BCTUR CN ÞCTTA
u
„Akranesliöið er mjög gott
lið, mun betra en ég átti von á
fyrir leiki okkar gegn þeim”,
sagði hinn frægi v-þýski þjálfari
Hans Weisweiler, eftir ieik
Akraness og F.C. Köln á Laug-
ardalsvelli.
„Þeir voru betri aðilinn I fyrri
hálfleiknum og það er ekki gott
að segja. hvað hefði gerst, ef
Pétur hefði skoraö á 12. minútu
og komið Akranesi yfir 2:0.
Lið mitt getur mun betur en
þetta, og vib munum gera það
þegar við höfum fengið Heinz
Flohe og Dieter Muiler inn i liöið
aftur”, sagði Weisweiler, þegar
hann var spurður að þvi hvort
Köbi kæmist langt f keppninni
með leikjum sem þessum.
Weisweiier sagðist hafa hrif-
ist af þremur leikmönnum
Akraness i þessum leik, Karli
Þórðarsyni, Matthíasi
Hallgrímssyni og Pétri Péturs-
syni, og sagði þá vera mjög
sterka og skemmtílega leik-
menn.
gk--
Stapleton var á
skotskónum góðu
Arsenal-leikmaðurinn Frank
Stapleton var svo sannarlega á
skotskónum i A-Þýskalandi i gær.
Þar lék Arsenal siðari leik sinn i
1. umferð UEFA keppninnar i
knattspyrnu gegn Leipzig
Lokomotiv og sigraði 4:1.
Stapleton skoraði eina mark
A-Þjóðverjanna, en hann lét það
ekki nægja heldur skoraði tvö
fyrir sitt félag og þeir Brady og
Sunderland bættu tveimur við i
viðbót.
Manchester City komst einnig
áfram, á kostnaö hollenska liös-
ins Twente Enschade. Fyrri leik
liöanna, sem fór fram i Hollandi
lauk 1:1, en i gær er leikiö var i
Manchester.sigraöiCity 3:2. Þeir
Bell og Kidd skoruöu hvor sitt
markiö, og hollenski landsliös-
maöurinn Wildschot kom meöeitt
„villt skot” og skoraöi i eigiö
mark.
Asgeir Sigurvinsson og félagar
hjá Standard Liege héldu til Skot-
lands og léku siðari leik sinn gegn
Dundee United. Fyrri leiknum
lauk meö 1:0 sigri Standard, og i
gær tókst þeim að halda jöfnu 0:0
og komust þvi áfram.
Hollenska liðið Ajax, sem oft-
sinnis hefur gert það gott i
Evrópukeppni, þurfti aö vinna
upp tveggja marka forskot
spænska liösins Athletico Bilbao.
Það tókst og vel þaö, þvi aö Ajax
sigraði 3:0 og tryggöi sér rétt til
að leika i 2. umferö.
Leikur finnska liösins Kuopio
og danska liðsins B-1903 var æsi-
spennandi. Staöan i hálfleik var
3:3, ogleiknum laukmeð jafntefli
4:4, Þaö nægöi Finnunum, þvi aö
þeir hcíöu unniö heimaleik sinn
2:1.
West Bromwich Albion var :
þriðja enska liðið til að komast
áfram i 2. umferð. Þeir unnu
Galtasary frá Tyrklandi 3:1, og
komust þvi áfram meö samtals
markatölu 6:2. Mörk WBA i gær
skoruöu Robson, Cunningham og
Trewic k.
Hibernian fráSkotlandi komst i
2. umferð eftir 3:2 sigur samtals
gegn Norrkjöping, og þaö sama
gerðu leikmenn v-þýska liösins
Borussia Mönchengladbach eftir
7:2 sigur samtals gegn Sturm j
Gras frá Austurriki.
klp/gk
M eistararnir út
Forest áfram!
Leikmenn Liverpóol, Evrópu-,
meistararnir i knattspyrnu s.l.
tvö ár máttu bita i það súra ebli i
gærkvöldi að vera slegnir út úr
Evrópukeppni meistaraliöa á sin-
um eigin heimavelli. Mótherjarn-
ir voru ensku mcistararnir Nott-
ingham Forest scm hafði unnið
fyrri leik liðanna á heimavelii
sinum 2:0 og menn vissu að
Evrópumeistararnir myndu setja
allt I sóknarleikinn og freista þess
að vinna þennan mun upp.
Akaft studdir af 50 þúsund
áhorfendum hófu leikmenn
Liverpool þegar störsókn i
upphafi leiksins, en þær brotnuðu
allar á sterkri vörn Forest. Ef
boltinn komst þar inn fyrir var
Peter Shilton réttur maöur á rétt-
um staö og hann hleypti engu
framhjá sér. Þeir Kenny Dalglish
ogRay Kennedy létu skotin riöa á
varnarvegg og mark Forest, en
boltinn vildi ekki rétta leiö
Belgisku meistararnir FC
Brugge höföu 2:1 i forskot.er þeir
héldu til Póllands og léku þar
gegn pólsku meisturunum Wisla
Krakow. Þaö dugöi Brugge
skammt, þvi að Pólverjarnir
sigruðu 3:1 og komust áfram.
Fleiri stórlið uröu aö sætta sig
við að vera slegin út I 1. um-
ferðinni. Meöal þeirra var italska
liðið Juventus sem hélt til Glas-
gow með eitt mark I forskot á
Rangers.
Það mark dugði skammt.
MacDonald jafnaöi metin á 16.
minútu og á 69. minútu skoraöi
Gordon Smith sigurmarkið sem
fleytir Rangers i 2. umferð. Þess
má geta að i'talski landsliðsmark-
vörðurinn Dino Zoff bjargaði liöi
sinu frá enn stærra tapi.
Gamli kunninginn okkar hann
Joe Hooly. sem þjálfaöi liö IBK á
sinum tima stýröi liði slnu beint
inn i 2. umferð. en hann þjálfar
sem kunnugt er norsku meistar-
ana Lilleström. Lilleström lék i
gærkvöldi heima gegn Linfield
frá N-trlandiogsigraði 1:0 og þaö
mark kom þeim áfram.
Sviar eigalika liö i 2. umferö en
það eru meistararnir frá i fyrra,
Malmö. Fyrri leik þeirra gegn
frönsku meisturunum Monaco.
sem háður var i Sviþjóð. lauk 0:0,
en Sviarnir sýndu styrkleika sinn
og unnu 1:0 i Frakklandi i gær-
kvöldi.
Leikmenn Real Madrid áttu
ekki i vandræðum meö Nieoer-
korn frá Luxemborg. Spán-
verjarnir unnu fyrri leikinn
heima 5:0 og i gær urðu úrslitin
7:0 og Real fer þvi áfram með
markatöluna 12:0
Albönskumeistararnir-sem eru
nú aftur meö i Evrópukeppni eftir
langt hlé.töpuöu l:4fyrir austur-
risku meisturunum Wien Ausbim
og það kom þvi aö litlu gagni fyrir
þá að hafa sigrað i fyrri leiknum
2:0.
Þá má geta um leik Dynamo
Dreseen frá A-Þýskalandi og
Partizan frá Júgóslaviu. Staöan
að loknum báöum leikjum lið-
anna var 2:2, en Dynamo
Dresden fer fram eftir aö hafa
sigraö i vitaspyrnukeppni. gk/klp
Stórsigur Milan
gegn Möltubúum
ttalska liðið Inter Milan vann
stærsta sigurinn af þeim liðum,
sem kepptu I 1. umferð Evrópu-
keppni bikarmeistara i knatt-
spyrnu. ttalarnir léku gegn Flor-
ina frá Möltu og unnu þá 5:0 á
ttallu i gær og þvi samtals 8:1.
Ensku bikarmeistararnir Ips-
wich léku gegn Hollenska liðinu
AZ ’67 og slógu þá út. Ekkert
mark var skorað I fyrri leik liö-
anna, sem fram fór I Hollandi, en
Ipswich sigraöi 2:0 I gær meö
mörkum þeirraMarinerog Wark.
Skotar eiga lika sina fulltrúa i 2.
umferöinni. Aberdeen lék gegn
Marke frá Búlgariu 11. umferö og
tapaöi 2:3 I útileik sinum. En i
gær sýndu Skotarnir á sér spari-
hliöarnar og unnu 3:0 og þar meö
5:3 samtals.
Spánska liöið Barcelona átti
ektó I erfiöieikum meö aö kómast
áfram. Liöið lék gegn Donetsk frá
Sovétrikjunum og sigraöi 3:0 i
heimaleik sinum. Leikur liöanna i
Sovétrikjunum i gærkvöldi varð
enginn sigurleikur fyrir Sovét-
mennina, honum lauk 1:1 og
Barcelona komst þvi auöveldlega
áfram.
Belgiska liöiö Beveren — sem
vill fá Pétur Pétursson i sinar
raöir — tryggöi sér rétt til aö
leika I 2. umferð og þaö sama
geröu leikmenn Fortuna Dussel-
dorf, sem vorufulltrúar V-Þýska-
lands I keppninni. Aö visu voru
leikmenn F.C. Köln v-þýskir bik-
armeistarar i fyrra, eftir sigur
gegn Fortuna, en þeir léku i
keppni meistaraliða gegn Akra-
nesi.
DanskaliöiöFramhaföi 2 mörk
I forskot er liöiö hélt til Nancy i
Frakklandi i gær. Þaö dugöi
frændum okkar Dönum skammt,
Nancy sigraöi 4:0 og kemst þvi
áfram.
Kalmar frá Sviþjóö haföi gert
jafntefli heima gegn ungverska
liöinu Ferencvaras, sem lek hér
fyrir nokkrum árum gegn ÍBK, en
Ungverjarnir tóku völdin i sinar
hendur I Ungverjalandi i gær og
sigruöu 2:0.
’ KLP/gk-.
Valsmenn
slegnir út
í Mogdeburg
Austur-þýsku bikarmeistararnir,
FC Magdeburg, gerðu vonir Vals-
manna um aö komast í 2. umferð i
Evrópukeppni bikarhafa að engu á
þriggja minútna kafla i lok siðari hálf-
leiks i Magdeburg i gær.
Fyrri leiknum hér heima lauk með
jafntefli 1:1, en það tók þá þýsku ekki
nema 15 min. að skora fyrsta markið i
gær. Þannig var staðan þar til 3
minútur voru til hálfleiks, en á þeim
tima skoruðu heimamenn tvö mörk.
i siðari hálfleik bættu þeir fjórða
markinu við, og Valsmönnum tókst
aldrei að koma knettinum i markið hjá
Magdeburg, þrátt fyrir nokkur sæmi-
leg tækifæri.
Ingi Aibertsson komst m.a. tvivegis
i gegn og að marki, en brást bogalistin
i bæði skiptin. Leikurinn var skemmti-
legur og kunnu hinir liðlega 20 þúsund
áhorfendur vel að meta hann.
Amór með ó
móti Hollandi
Arnór Guðjohnscn, sem hefur aö
undanförnu dvalist við æfingar hjá
belgíska liðinu Lokeren og gerist
atvinnumaðurhjá félagínu á næstunni,
mun koma hingaö tíl lands um helgina
og leika með islenska unglinglalands-
liðinu gegn Hollandi á Laugardalsvelli
n.k. miðvikudag. Leikur liðanna þá
verður liður i Evrópukeppni unglinga
(16-18 ára) og það liö, sem vinnur sam-
anlagt heima og að heiman, kemst i
úrslitakeppnina sem fram fer i
Austurríki næsta vor. Islenski lands-
liöshópurinn fyrir ieikinn gegn Hol-
landi veröur þannig skipaður:
Bjarni Sigurbsson tBK, Arni Dan. Ein-
arsson Breiðabliki Agúst Hauksson
Þrótti, Heimir Karisson Vikingi,
Halldór ólafsson IBÍ, Benedikt
Guömundsson Breiöabliki, Astvaldur
Jóhannsson Akranesi, Skúli Rösants-
son ÍBK, Guðmundur Torfason Fram,
Arnór Guðjohnsen Vikmgi/Lokeren,
Lárus Guðmundsson Vlkingi, Ragnar
Margeirsson ÍBK, Ilafþór Sveinjóns-
son Fram, Sæbjörn Guðmundsson KR,
Bergur H. Bergsson Selfossi og Gunn-
ar Gislason KA.
Meistarar
Póllands
slegnir út
Lið Kúbu i blaki geröi vonir heims-
meistara Póllands um að halda titli
sinum að engu, or liðin mættust i Róm
á italiu i gærkvöldi.
Kúbumennirnir, sem eru ósigraðir á
mótinu, og sagðir ósigrandi vegna
tækni sinnar uppi vib netib, sigrubu
heimsmeistarana 15:8, 15:10og 15:9 og
komust þar með i undanúrslit. Sovét-
menn unnu ttali 15:11, 15:6 og 15:3 og
eru einnig I undanúrslitum.
Undanúrslitaleikirnir verða á milli
Sovétmanna og S-Kóreu annarsvegar
og Kúbu og italiu hinsvegar. Sigurveg-
arar úr þessum leikjum leika siðan til
úrslita á sunnudag.
gk—•