Vísir - 28.09.1978, Qupperneq 23
23
VISIR Fimmtudagur
28. september 1978
|| Síðasti dagur
CÓ morgwn
T Opið tll kl. 1 ■
I annað kvöld
í Iðnaðarhúsinii
í Iðnaðarhúsinu werio
við Hallveigarstíg reyfarakaup
Leigjendasamtökin
með nýja skrifstofu
Þýska-enska
Handbœkur
í bréfritun
Handbók í bréfritun
á ensku og Handbók í
bréfritun á þýsku
nefnast tvær bækur
eftir Ingólf Árnason/
sem Skuggsjá hefur
gefið út.
Bækurnar eru ætlaöar
verslunarmönnum, sem
annast bréfaskriftir á ensku
og/eða þýsku, en ættu aö
geta orðiö þeim aö gagni,
sem stunda tungumálanám i
skólum.
Báöar eru bækurnar unnar
á sama hátt, þannig aö i
meginhluta þeirra eru birtar
einstakar setningar en auk
þess einnig heil bréf. Meö
niöurrööun setninganna er
miöaö að þvi að semja megi
bréf með þvi aö velja og
raöa saman setningum sem
bréfritari telur best henta
hverju sinni. Einnig er is-
lensk þýöing setninganna
birt.
-m
Sigurlaug
Rósinkranz
syngur ó
Sauðárkróki
Sigurlaug Rósinkranz
sópransöngkona heldur tón-
leika i Sauöárkrókskirkju á
fimmtudaginn kl. 20.30.
Undirleikari hennar er Páll
Kr. Pálsson organleikari. Á
efnisskránni eru lög eftir
Arna Thorsteinsson, Pál
Islólfeson, Sigvalda Kalda-
lóns og Sigurö Þórarinsson.
Einnig leikur Páll Kr. Páls-
son orgelverk eftir Bach og
Reger.
Sigurlaug Rósinkranz er
búsett i Sviþjóö, og starfar
sem söngkona þar i landi.
Hún er hér i stuttri heim-
sókn.
-KP.
Fjölmargir leigjendur
hafa leitað ráða hjá Leigj-
endasa mtökunum frá
stofnun þeirra í vor. Þau
hafa tekið á leigu skrif-
stofuhúsnæði að Bókhlöðu-
stíg 7 í Reykjavík.
Samtökin hafa bent fólki á aö
kynna sér bók Björns Þ. Guö-
mundssonar „Lögbókin þin”, en
þar er meðal annars fjallaö um
húsaleigu. Um húsaleigugjald
segir Björn meöal annars aö þaö
geti miöast viö allt leigutfmabil
eöa styttri tima. Hámark þess sé
bundiö veröstöövunarlögum
(bráöabirgöalög frá 9. september
s.l.) Hann kveöur ekki nauösyn-
legt aö þinglýsa venjulegum
húsaleigusamningi. Húsaleigu-
timifari eftir húsaleigusamningi
eöa venju.
Leigjendasamtökin vara viö
þvi aö Húsaleigusamningur Hús-
eigendafélags Reykjavikur sé
um of einhliöa eiganda leiguhús-
næðis i hag.
Hér sjáum viö kennsluhúsnæöi Fjölbrautaskólans á Akranesi
Fjolbrautaskólinn á Akranesi:
500 nemendur í vetur
Fjölbrautaskólinn á Akranesi
var settur i annaö sinn i byrjun
mánaöarins. Nemendafjöldinn i
vetur er um 500, en skóiann sækja
62 nemendur utan Akraness.
Skólinn starfar á fimm náms-
sviöum. Húsnæöismál skólans
hafa verið mjög á döfinni allt siö-
asta ár. Er þar stærsta máliö að
nýbyggingu grunnskólans á
Garðagrundum hefur seinkað og
er þvi þrengt allmjög aö kennslu-
rými skólans.
Heimsvist hefur nú veriö komiö
á fót i prestsetrinu Kirkjuhvoli.
Pappírs-
flóðið
minnkað
Til að greiða fyrir og einfalda
tollafgreiöslu hefur fjármála-
ráöuneytið ákveöið, aö inn-
flytjendur skuli viö innlagningu
aöflutningsskjala til tollmeöferö-
ar frá og meö 2. október n.k.
leggja fram i einriti öll fylgisskjöl
með aöflutningsskýrslu önnur en
farmbréf, sem lögö skulu fram i
tviriti. Eru þvi hér með afturköll-
uð fyrirmæli á bakhliö aöflutn-
ingsskýrslu um framlagningu
vörureiknings i tviriti.
•i
999
• • •
Af hverju nota fílar
hatta? Til þess að þeir
þekkist ekki úr mann-
f jöldanum.
Heilðg reiði
Tilvonandi hugsanlegur
nýr ritstjóri Þjóöviljans,
Hjalti Kristgeirsson geröi
heiftarlega árás á Sjón-
varpiö I „Klippt og skoriö” I
gær. Meöal annars hund-
skammar hann stjórnendur
þar i bæ fyrir efnisval sem
hann segir fara eftir enskum
og ameriskum linum.
Fleira liggur honum á
hjarta þvi hann bölsótast
einnig yfir myndum um
bilasport sem hann hefur
grun um aö eigi töluveröan
þátt i tiöum bilslysum hér á
landi.
Þaö hafa margir og oft
nöldraö vegna sjónvarpsins
en langt oröiö siöan svona
heiiög reiöi hefur duniö yfir
þaö. Hjalti segir aö þaö sé
bókstaflega engan ljósan
punkt hægt aö finna i dag-
skránni,
Man hann virkilega ekki
eftir þættinum um réttar-
höldin yfir Yuri Orlov? Eöa
man hann kannske einmitt
eftir honum?
Munurinn
Hver er munurinn á
kapítalistum og kommúnist-
um?
Ka pítal istarnir setja
peningana ofar öllu en
kommúnistar setja mennina
ofar öllu. Þessvegna loka
kapítalistar peningana sfna
inni en kommúnistar menn-
ina.
| Blaðið Lögberg-
Heimskringla er í
nokkurri sókn þessa
dagana og hafa skrif-
stofur þess jafnframt
verið fluttar í nýtt og
vistlegt húsnæði. Nýja
heimilisfangið er: 1400
Union Tower building,
191 Lombard Avenue,
Winnipeg, Manitoba
R3B 0T6.
Það er alltaf vel
þegið að fá nokkrar
línur frá gamla land-
inu eða annað sem
getur styrkt útgáfuna.
Það er töluvert um
áskrifendur hér á landi
og þeir sem vilja
styrkja blaðið á þann
hátt geta haft sam-
band við Heimi
Hannesson hrl. sem er
umboðsmaður eða
Birnu Magnúsdóttur
(Sími 74153L
—ÓT