Vísir - 05.10.1978, Side 23
VTSIR Fimmtudagur 5. október 1978
Gersveppir teknir of frílista
„Stjórnvöld hyggjast
bœta sér upp of
mikla áfengishœkkun
##
segir Árni
Gunnarsson,
alþingismaður
„Stjórnvöld viröast
þarna eygja möguleika á
því að bæta sér upp of
mikla áfengishækkun. Ég
ætlaöi ekki aö trúa mínum
eigin eyrum þegar ég
heyrði fyrst um þessa
hugmynd. Hvaða lausner
þetta' Skammsýnin sem
birtist i þessu er hreint
ótrúleg," sagði Árni
Gunnarsson. alþingis-
maður og ritstjóri
Alþýðublaðsins/ um bréf
það sem fjármálaráð-
herra hefur sent við-
skiptaráðherra um að
gersveppir verði teknir af
frílista.
„Hér bruggar hver maöur
þrátt fyrir aö það sé bannaö
meö landslögum. Efni til þess
aö brugga er selt út um allt
land, en menn hafa ekki viljaö
viðurkenna þetta. Svo viröist
sem hinir niu ráöherrar hafi
sest niður og komist að hinni
vitlegu niöurstöðu að það væri
bruggaö á Islandi. Þetta gera
þeireftir aö ljóst veröur aö tekj-
ur af áfengishækkuninni veröa
ekki eins miklar og reiknaö var
meö. Þetta sýnir stjórnunina og
tviskinnungsháttinn i landinu i
hnotskurn.
Viö veröum annaðhvort aö
breyta lögunum og leyfa mönn-
um að brugga löglega eöa á hinn
bóginn aö banna alveg innflutn-
ing á þeim efnum sem notuð
eru’í sagöi Arni en hann hóf
máls á þessu á fundi hjá Junion
Chamber i gærkveldi, þar sem
hann var gestur.
BA
Mikil ásókn hefur veriö i öl-
gerðarefni eftir aö rætt var um
aö taka ger af frilista. Visis-
mynd: JA.
j. I
• • •
Þaö kom önd aö læk. A
lækjarbakkanum var skilti
þar sem sagöi aö bannaö
væri aö fljúga yfir lækinn,
bannaö aö synda yfir tækinn
og bannaö aö kafa yfir læk-
inn. Hvernig komst öndin
yfir lækinn?
Hún kunni ekki aö lesa, svo
hún bara synti yfir.
Vandrœði
Hvernig stendur á þvi aö
Ragnar Arnalds er I svona
miklum vandræöum meö
hvað á aö gera viö Viðishús-
ið? Hann var ekki i neinum
vandræðiun meö hvað ætti
að gera viö þaö þegar þaö
var keypt.
MYNDIR SELDAR Á 7 TIL 560 ÞÚSUND
,,Þá er þessari útsölu lokið”,
varð ágætum manni að oröi eftir
málverkauppboö Klausturhóla
sem haldiö var aö Sögu i gær.
Kaupendur voru flestir meö bros
á vör er þeir yfirgáfu uppboös-
staðinn, enda mál manna að
þarna hefði mörg góð mynd
fengist fyrir litið verð.
1 byrjun uppboðsins voru boðn-
ar upp myndir eftir minna þekkta
listamenn. Gengu boðin treglega,
og fóru t.a.m. tvær snotrar vatns-
litamyndir eftir Atla Má á 14 og 15
þúsund krónur, og tréskurðar-
þrykk eftir Gunnar I Guðjónsson
á aðeins 7 þúsund krónur.
Athygli vakti, að silkiþrykk-
mynd eftir Guðrúnu Tryggva-
dóttur, sem merkt var nr. 9 af 17
eintökum, sem gerð hafa verið af
þessari mynd, var seld á 47
þúsund krónur. Næsta mynd á
uppboðsskránni var svo original
oliupastelmynd eftir Hring
Jóhannesson, en hún fór á aðeins
40þúsund krónur. Litil landslags-
mynd eftir Rudolf Weisshauer
var seld á 11 þúsund krónur.
Mikið var boðið upp á Iitkritar-
myndum og pennateikningum
eftir Jóhannes Kjarval, sem voru
ómerktar en staðfestar af syni
meistarans, Sveini Kjarval. Voru
þær flestar seldar á 30 til 50
þúsund krónur, en oliumálverk
eftir Kjarval voru seld á 130
þúsund upp i 400 þúsund krónur.
Hæsta verðið fékkst fyrir oliu-
málverk eftir Júliönu Sveinsdótt-
ur, „Uppstilling við glugga”, 560
þúsund krónur. Mynd eftir Ninu
Tryggvadóttur var seld á 500
þúsund krónur, og mynd eft,ir
Finn Jónsson á sama verði.
—GBG
Um 225 milljarðo
fjárfesting i landbúnaði!
Hvað með
arðsemina?
„Það verður ekki séð af
málef nasamningi ríkis
stjórnarinnar að hún ætli
að láta gera neina athuguri
á landbúnaðinum" sagði
Árni Gunnarsson á JC
fundi í Reykjavík í fyrra
kvöld.
Hann bætti þvi við að það væri
ef til vill ekki við þvi að búast
þegarFramsóknarflokkurinn ætti
aðild að rikisstjórn.
Arni vakti athygli á þvi aö f jár
festing i landbúnaði væri um 225
milljarðar króna. A landinu öllu
væru á 5. þúsund lögbýli og talið
væri að visitölubúið kostaöi um 5C
milljónir. Hann spurði siöan hver
væri arðurinn af þessum 22E
milljörðum.
HINAR MARGEFTIRSPURÐU
VENDIÚLPUR KOMNAR AFTUR
m
Bruggið
Hið geysiháa verð á áfengi
hér á landi hefur meöal
annars orðiö til þess að
þúsundir manna hafa tekið
þaö til bragös aö búa til öl i
heimahúsum. Þaö mun opin-
bert leyndarmál aö oft er
þessi drykkur eitthvaö sterk-
ari en lög leyfa.
En eins og venjulega þegar
menn finna sér einhverja
leiö til aö spara aura, finnur
rikisvaldiö leiö til aö hindra
það.
1 þetta skipti á aö gera þaö
meö þvi aö taka gersveppi af
frilista. Ekki er þó vist aö
þetta gangi eins og til er ætl-
ast.
Margir eru búnir aö fjár-
festa i bruggtækjum og
veröa sjálfsagt lítið hrifnir af
þessari tiltekt. Nú er auðvelt
að rækta gersveppi og er því
ekki óliklegt aö „neðan-
jarðar’t- sveppaverksmiöjur
taki til starfa ef stjórnvöld
fylgja þessu eftir.
—ÓT
VIÐ ÞJONUM stór-reykjavíkursvæðinu
PÓSTSENDUM UM ALLT LAND
eik
SMNDGÚTU31 Sími:53534
Farafanov sendiherra meö
aflann
i landhelgi
Leitarmenn á Land-
mannaafrétti stóöu soveska
sendiherrann aö meintum
ólöglegum veiðum i Kirkju-
fellsvatni á Fjallabaksleiö
eigi alls fyrir löngu.
Var sendiherrann meö
fjölmenna áhöfn meö sér og
böröu þeir vatniö sem ákaf-
ast. Alveg er bannaö aö
veiöa i þessu vatni.
Það var sendiherranum til
málsbóta aö hann vissi ekki
mn þaö og hafði plagg undir-
ritað af islenskum manni,
sem heimilaöi veiöarnar.
Leitarmenn létu þvi hjá
líða að gera afla og veiðar-
fær: upptæk.
Tvœr bíl-
veltur
Bilvelta varð á Reykjanes-
brautinni rétt innan við Voga
snemma i gærmorgun. öku-
maður, — ungur maður — ,var
einn i bilnum, og mun hann ekki
hafa slasast alvarlega. Hann var
fluttur á sjúkrahdsið i Keflavik.
Billinn skemmdist eitthvaö. Bill-
inn mun hafa oltið vegna isingar á
veginum.
1 fyrrakvöld, um klukkan tiu,
fór bill út af veginum á Kjalarnesi
og valt. ökumaður var einn i biln-
um og slapp hann ómeiddur. Bill-
inn er nokkuð skemmdur eftir.
—EA
• •