Vísir - 11.10.1978, Síða 12
13
Miðvikudagur 11. október 1978
VÍSER
VISIR Miðvikudagur 11. október 1978
Reykjavikurmeistarar Vals i körfuknattleik 1978. A myndinni eru I fremri röð frá v: Jóhannes Magnússon, Torfi Magnússon, Tim Dwyer,
Lárus Hólm, Rikharöur Hrafnkelsson og Þórir Magnússon. Aftari röð frá v: Einar Matthiasson, liðsstjóri, Auöunn Einarsson i stjórn Körfu-
kn.deiidar Vals, Helgi Sigurjónsson, Kristján Agústsson, Hafsteinn Ilafsteinsson, Sigurður Hjörieifsson, Gústaf Gústafsson og Sigurður
Helgason (lukkutröll). — Vissmynd Einar.
TAUGAR VALSMANNA
RtYNDUST STIRKARI
— Þeir sigruðu Fram í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í körfuknattleik
í gœrkvöldi — Fyrsti meirihóttar sigur Vals
Valsmenn uröu I gærkvöldi
Reykjavikurmeistarar I körfu-
knattleik, er þeir sigruðu Fram i
úrslitaleik i Laugardalshöllinni
með 91 stigi gegn 83. Þar með var
fyrstí sigur Vals I meiriháttar
körfuknattleiksmóti staðreynd en
Framarar sem voru af mörgum
taldir sigurstranglegri verða að
biða enn um sinn eftir titli.
Framliðiö er ungt lið og þaö
sást greinilega strax i upphafi
leiksins að þeir eru óvanir því að
leika úrslitaleiki. Taugar þeirra
voruslakar ogValsmenn komust
strax i 11:2. Fram tókst þó að
minnka muninn og komst yfir
33:29 en i hálfleik leiddi Valur
42:38.
1 upphafi siðari hálfleiks fékk
Tim Dwyer þjálfari og leikmaður
Vals, sina 5. villu og var þvi úr
leik. Héldu menn aö þetta myndi
gera gæfumuninn en svo fór þó
ekki. Þórir Magnússon tók heldur
betur „syrpu” I siöari hálfleikn-
um og skoraöi þá margar glæsi-
legar körfur, og i heild lék Vals-
liðið þá mjög vel sem sterk heild.
bæði i vörn og sókn.
Leikurinn var þó jafnt I
nokkurn tima og sjá mátti á töfl-
unni tölur eins og 48:48 54:54 og
60:60, en siðan sigu Valsmenn
fram úr og komust I 72:62. Þaö
var þessi kafli sem gerði út um
leikinn, þvi að þótt Valsmenn
væru i miklum villuvandræðum
tókst þeim að halda fengnum hlut
og sigur þeirra var verö-
skuldaður.
Valsliðið er greinilega I mikilli
Best œtlar í
mál við FIFA
„Ef FIFA (Alþjóöaknatt-
spyrnusambandið) stendurfasti á
þvi aðsetja mig Ikeppnisbann, þá
mun ég fara I mál og krefjast
réttar mins”, sagði irski knatt-
spyrnusnillingurinn George Best i
gær. Sem kunnugt er hefur Ful-
Handbolti
í kvöld
Tveir leikir fara fram i úrsiita-
keppni Reykjavikurmótsins i
handknattleik í kvöld. Valur og
Armann mætast I Laugardals-
höllinni kl. 20, og strax á eftir eig-
ast Vikingur og KR við. Sigri
Valur og Vikingur i þessum
leikjum, veröur leikur þeirra eftir
viku hreinn úrslitaleikur.
ham kært Best til FIFA fyrir að
leika með bandarisku liöi I
Evrópu, og er reiknað með að
FIFA muni innan skamms setja
algjört bann á Best sem leik-
mann.
„Fulltrúar Fulham segja, aöég
sé leikmaður þeirra, en það fær
ekki staðist hjá þeim”, sagði Best
i gær. „Ég á mitt lif sjálfur, og ég
læt ekki fara svona með mig án
þess að bera hönd fyrir höfuö
mér”.
Sem kunnugt er varð George
Best frægur, er hann lék meö
Manchester United, og þótti þá
eitt mesta efni, sem fram hefur
komiö I knattspymu i heiminum.
Hann er enn i dag mjög snjall
leikmaöur.og Fulham gerir kröf-
ur til hans en hann lék með félag-
inu þar til á miöju siöasta ári, að
hann hélt til Bandarlkjanna.
gk—•
framför þessa dagana, og munar
ekki litið um þaö að Þórir
Magnússon er nú i sinu gamla
góða „formi”. Þá er breiddin i
liðinu orðin mikil og leikmenn
eins og Tim Dwyer, Torfi
Magnússon, Kristján Agústsson,
Þórir og Rikharður Hrafnkelsson
mynda sterka heild, sem ætti aö
geta náö langt i úrvalsdeildinni i
vetur.
Framarar eru lið framtiöarinn-
ar i körfuknattleiknum, á þvi' er
enginn efi. Þeir eru flestir mjög
ungir að árum og liöiö er skipað
hávöxnum leikmönnum sem eiga
eftir að ná langt. Þeirra timi er
einungis ekki kominn til fulls enn,
það kom i ljós aö taugar þeirra
þoldu ekki álagið i þessum leik.
Stighæstu leikmenn liöanna I
gærkvöldi voru þeir Kristján
Agústsson og Þórir Magnússon
meö 20 stig hvor og Tim Dwyer 17
fyrir Val. Hjá Fram var John
Johnson stighæstur með 39 stig,
Ómar Þráinsson fékk 12.
Dómarar voru Erlendur Ey-
steinsson og Jón Otti ólafsson.
Þeir dæmdu ekki sannfærandi að
minu mati, og dómar þeirra eru
allt of tilviljunarkenndir eins og
annarra Islenskra dómara. Það
sem dæmt er á I þessari sókn er
ekki dæmt i þeirri næstu og alls
kyns furðuhlutir eins og að fjar-
lægja áhorfanda, sem hvetur lið
sitt fyrir aftan varamannabekk,
eru algjör fjarstæða og nánast
fiflaskapur.
gk-.
Umsjón: Gylfi Kristjansson
Kjartan L. ^álsson
3
„Verstu dóm-
arar í heimi"
— sagði John Johnson, þjálfari og leikmaður Fram
og hágrét eftir ósigurinn gegn Val í gœrkvöldi
John Johnson, þjálfari og leikmaður
Fram i körfuknattleiknum, gat ekki leynt
vonbrigðum sinum eftir úrslitaleik Vals
og Fram i Reykjavikurmótinu I körfu-
knattleik igærkvöldi. Strax ogundirritaö-
ur hafði kynnt sig fyrir John, brast hann I
grát, og siðan streymdu orðin fram:
„Dómararnir gáfu þeim sigurinn, alveg
eins og þeir gáfu KR sigurinn gegn okkur
á dögunum. Islenskirdómarar eru verstu
dómarar i heimi, settu þaö I blaöiö!”
Siðan var eins og John róaöist og hann
bætti viö:
„Valur er með gott lið og greinilega vel
þjálfað. Við erum hinsvegar með ungt lið.
sem þoldi illa pressuna i þessum leik. En
við eigum eftir að koma sterkir og við
vinnum bikarkeppnina i vetur. Ég er enn
sannfærður um aö Fram er besta liöið I
Islenskum körfuknattleik I dag”. gk—.
10-20 ÁRUM Á
EFTIR TÍMANUM
##
##
— sagði Tim Dwyer, þjólfari og leikmaður Vals, um
dómarana eftir leik Vals og Fram
„Það er leikinn góður körfubolti á ts-
landi, en dómararnir eru 10-20 árum á
eftir timanum”, var það fyrsta, sem Tim
Dwyer, þjálfari og leikmaður Vals, sagði
eftir úrslitaleikinn við Fram i gærkvöldi.
Við lékum vel að þessu sinni og vorum
betri aðilinn I leiknum og áttum skilið að
sigra”, bætti hann við.
Meira vildi Dwyer ekki segja um leik-
inn, en það var greinilegt að það sat i báð-
um bandarisku leikmönnunum mikil óá-
nægja með þátt dómaranna i honum. Það
er engin nýlunda að heyra leikmenn, sem
tapa, kenna dómurunum um, en að leik-
maður og þjálfari liös, sem sigrar I úr-
slitaleik, vilji helst tala um hversu lélegir
dómararnir hafi verið, er nokkur nýlunda
hér á landi a.m.k. gk-.
Leeds komst áfram
Leeds tryggði sér I gærkvöldi rétt til að
leika i fjórðu umferð enska deildarbikars-
ins, er liðið sigraði Sheffield United á úti-
velli 4:1. Það voru þeir Tony Currie og
Frank Gray sem komu Leeds á sporið
með tveimur mörkum á tveimur minút-
um i fyrri hálfieik, og eftir það var ekki að
sökum að spyrja. Leeds mætir nú QPR á
útivelli I næstu umferð. En lítum á úrslit
annarra leikja i deildarbikarnum I gær-
kvöldi:
Swindon-Peterbrough 0:2
Peterbrough mætir Brighton næst.
C. Palace-Aston Villa 0:0
Liðin verða að mætast i 3. sinn
Man. City-Blackpool 3:0
Man. City mætir Norwich næst
Það var ekki fyrr en á 52. minútu að
City komst á blað gegn Blackpool, en þá
skoraöi Gary Owen úr vitaspyrnu. Owen
skoraöi siöan aftur og Tommy Booth bætti
þriðja markinu við.
gk-.
Ósamið við
Feyenoord
Samningaviðræður Péturs Péturssonar
við hollenska liðið Feyenoord stoðu yfir I
gær en er við ræddum viö aðila seint I
gærkvöldi, var okkur tjáð að viðræðurnar
væru f fullum gangi. Þó var fullvist taiið
að ekki yrði skrifað undir neitt i gærkvöldi
en talið líklegt að málið myndi skýrast I
dag. gk-.
,yaramannameistarinn
— Knattspyrnumaðurinn Jón Gunnlaugsson, sem hefur 5 landsleiki að baki fyrir
ísland, hefur 20 sinnum verið varamaður í landsleik án þess að fara inn á
n
„Auðvitað hef ég oft verib sár og
leiðuryfir þessu, en þaö þýðir ekkert
að fara i fýlu, maður verður að hafa
bein inefinu til ab taka þessu”, sagði
Jón Gunniaugsson, knattspyrnu-
maöur á Akranesi, þegar við höfðum
samband við hann i gær.
Tilefniö var það, að Jón Gunn-
laugsson er örugglega „varamanna-
meistari” lsiands hjá landsliðinu I
. knattspyrnu. Hann hefur spilað 5
landsleiki frá þvf hann var vaiinn i
fyrsta skipti 1 landsliðshópinn 1974,
en 20 sinnum hefur hann setib á
varamannabekknum og horft á fé-
laga sfna spreyta sig.
Ferill Jóns mebjlandslíðinu hófst
er tsland og Finnland léku á Laugar-
dalsveDi 19. ágtist 1974. Þá sat hann á
varamannabekk, og fékk þá for-
smekkinn af þvi sem koma skyldi.
1 landsleik Danmerkur og tslands I
Alaborg 9. okt. 1974, kom Jón inn á
sem varamaður, og fékk þar sinn
fyrsta landsleik skráðan. 1 kjölfarlö
fylgdu þrir leikir á varamanna-
bekknum, en Jón fékk aftur leik 1975
gegn Færeyingum.
En nú fylgdu á eftir 6 landsleikir,
þar sem hann vermdi varamanna-
bekkinn. Siðan iékhann gegn Færey-
ingum 1976, var varamaður gegn
Finnum, en lék siðan gegn Luxem-
borg hér heima 21. ágúst 1976.
Þá tók við langt tfmabil á vara-
mannabekk, eða alls 71eikir. Jón lék
slðan gegn N-lrum i Belfast i fyrra,
en I sumar hefur hann tvfvegis verið
varamaður, gegn Dönum f Reykja-
vik og A-Þýskalandi T Halle. — Upp-
skeran hjá Jóni i þau 25 skípti sem
hann hefur klæðst landstiösbúningn-
um er þvf ekki nema 5 landsieikir!
„Auðvitað gef ég kost á mér, ef ég
verð valinn f landsliöshópinn næsta
sumar”,sagði Jóner viö ræddum viö
hann. „Það er þó ekki vist ab ég
verði meö i þessu tengur. Ég er orð-
inn varamaður i Akranesliðinu og þá
fer maður nti að athuga sinn gang.
Þaðeru að koma inn I þetta hjá okk-
ur ungir strákar, en e.t.v. mætir
maður til leiks l vor sterkari en
nokkru sinni fyrr.
Jón sagðist vera á þeirri skoðun,
að menn ættu að fá skráðan lands-
leik, þótt þeir kæmu ekki inn á. Hann
sagbi að þeir sem væru á vara-
mannabekknum iegðu alveg jafn-
mikib á sig við undirbúning fyrir
leikina eins og hinir, og það ætti að
meta það tD jafns við þá sem spila.
„Þetta er haft svona i handknattleik
og körfuknattleik, menn fá skráðan
landsleik, þótt þeir komi ekki inn á”.
gk-.
HROLLU
AGGI
MIKKI