Vísir - 08.11.1978, Blaðsíða 3

Vísir - 08.11.1978, Blaðsíða 3
3 VISIR Miövikudagur 8. nóvember 1978 SLÁTRUN Á RIÐU- VEIKU FÉ HAFIN Slátrun á riðuveiku sauðfé hófst í gær og stendur eitthvað næstu daga. Alls er það um 1800 fjár sem slátrað verður. Lang stærsti hópurinn er frá bænum Brú á Jökuldal, þar sem um 800 verður slátrað Hinn hlutinn kemur frá fjár- eigendum i grennd viö Reykja- vik og nágrenni, i Olfusi og viö- ar um landiö. Ætlunin er aö fylgjast svo mjög vel meö fé á þeim stöðum sem veikin hefur komiö upp og slátra jafnóöum og vart veröur viö riöuveikitil- felli. Ekki er talin ástæöa til aö slátra öllu fé þar sem veikin hefur komiö upp heldur aöeins aö taka út sjúkt fé. Þá er talin góö von til þess aö sumir fjár- eigendur sleppi þótt veikin hafi komiö upp hjá nágrönnum. f Fjárborg viö Reykjavik eru til dæmis 32 fjárhús en milli þeirra er litill samgangur þegar fé er i húsum og smithætta bvi minni en ella. —ÓT Coldwater Seafood: 150 milljónir í oug lýsingar á Coldwater Seafood ver árlega miklu fjármagni til auglýsinga á fram- leiðslu sinni. Á yfir- standandi ári hefur fyrirtækið varið um 150 milljónum króna i auglýsingar. Þessar auglýsingar birtast eingöngu i fag- timaritum sem lesin eru þessu óri af stjórnendum veit- ingahúsa, innkaupa- stjórum mötuneyta og fleirri slikum aðilum. Fýrirtækið selur aðeins á svokölluðum stofnana- markaði en hefur ekki reynt að auglýsa vörur sinar á almennum neyt- endamarkaði. —KS Hér fylgist einn verkstjóranna meö gæöaeftiriitinu I einni verksmiöja Coldwater I Bandarlkjunum. Vlsismynd KS. Coldwater Seafood í Bandarikiunum: Um 240 manns í kynnis- ferð ó þessu ári Um 240 frystihúsa- menn, starfsmenn SH og fulltrúar fjölmiðla hafa heimsótt verk- smiðjur Coldwater Seafood i Bandarikjun- um á þessu ári i boði fyrirtækisins og SH. Tilefni þess var aö kynna Islendingum starfsemi fyrir- tækisins en slikar boösferöir voru farnar siöast fyrir tæpum tiu árum. Farnar voru þrjár feröir og fór stærsti hópurinn 150 manns i sumar en fyrir stuttu fóru til Bandarikjanna rúmlega 60 manna hópur verk- stjóra I frystihúsum, starfs- menn SH og fréttamanna. —KS Ókrfur tíl Hofnar ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, hélt í gærmorgun til Kaup- mannahafnar, þar sem hann mun sitja fundi for- sætisráðherra og sam- starfsráðherra Norður- landa. Forsætisráðherra er væntanlegur heim um helgina. Árekstur víð Hóskólabíó ökumaður Bronkójeppa hringi i sima 32908 Arekstur varö milli Skoda Amigo og blárrar jeppabifreiöar af geröinni Ford Bronco á bila- stæöinu viö Háskólabió s.l. sunnu- dag laust eftir klukkan sautján. ökumaöur Skódabifreiöarinnar biöur ökumann Broncojeppans aö ha£a samband viö sig sem fyrst i sima 32908 (Guörún Pétursdótt- ir). Einnig eruþeir sem vitni voru aö árekstrinum beðnir aö hafa samband i sama sima. —KP. Vitni gefi Keyrt hefur veriö utan i þrjá mannlausa bila i Kópavogi siö- ustu daga, og i öllum tDvikum hafa ökumenn fariö af staönum. Aöfaranótt laugardags var keyrt á kyrrstæöan, mannlaus- an Volkswagen viö EngihjaDa 3. A milli klukkan hálf niu og níu í gærkvöldi var keyrt á mann- lausan Citroen sem stóö viö sig fram Skólagerði 15, og I gærmorgun var keyrt á nýjan Audi, sem stóö á neöra bilastæöinu viö Út- vegsbankann vib Digranesveg. Þaö var um klukkan hálf tlu. Vitni, ef einhver kunna aö vera, eru vinsamlegastbeöinaö hafa samband viö rannsóknar- lögregluna i Kópavogi sem fyrst. ________—EA SJÓN ER SÖGU RÍKARI ITT Schaub-Lorenz, vestur-þýsku litsjónvarpstækin eru þekkt fyrir skýra mynd, góða liti og endingu. Spyrjið þá sem eiga ITT litsjónvarpstæki, þeir eru okkar besta auglýsing. GELLIR hefur verið umboðsaðili fyrir vestur-þýsk ITT tæki í meira en áratug, og hefur reynslu i meðferð þeirra. Tæknimenn okkar, sem eru menntaðir hjá framleiðanda i Vestur-Þýskalandi, sjá um viðgerðar- og stillingaþjónustu. Bræóraborgarstíg 1 -Sími 20080- (Gengió inn frá Vesturgötu)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.