Vísir - 08.11.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 08.11.1978, Blaðsíða 10
10 MiOvikudagur 8. nóvember 1978 VISIR VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent h/f '1 Fra mkvæmdast jári: Davfö Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson. Elias Snsland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón meö Helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Bergllnd Asgeirsdóttir.Edda Andrésdóttir, Gisli Baldur Garðarsson, Jónina Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrin Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Stefán Kristjáns- son, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, AAagnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingarog skrifstofur: Síðumúla 8. Sfmar 86411 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14 sfmi 86611 7 llnur Askriftargjald er kr. 2400.- á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 120 kr. eintakið Prentun Blaðaprent h/f. Landbúnaðarráðstjórn Landbúnaðarráðherra hef ur kynnt álit bændanef ndar, sem undanfarna mánuði hefur unnið að tillögugerð um skipulag búvöruframleiðslu og stjórn á framleiðslu- magni. Alit þetta er um margt vert eftirtektar. Með hæfilegri einföldun má draga af því tvenns konar ályktanir: ( fyrsta lagi felst í álitinu viðurkenning á því, að við búum við offramleiðslu í landbúnaði og að ekki verður hjá því komist að bregðast við þeim vanda. ( annan stað sýnir álitið, að núverandi stjórnvöld þekkja ekki aðrar aðferðir en höft til þess að mæta vandamálum eins og þeim, sem við er að etja í landbúnaði. Öneitanlega er það mikilvægur áfangi í umræðum um íslenskan landbúnað, þegar bændur sjálfir (og þá um leið Framsóknarflokkurinn) sjá að núverandi land- búnaðarframleiðsla á ekki rétt á sér í svo ríkum mæli, sem raun er á. A hinn bóginn virðist enn skorta skilning á því, að arðsemi verði að leggja til grundvallar land- búnaðarframleiðslu eins og á öðrum sviðum atvinnu- lífsins. Nefnd landbúnaðarráðherra einblínir á haftakerfi og miðstýrðan áætlunarbúskap. í tillögunum felst, að hér á að taka upp ráðstjórn í landbúnaði. Flestum ætti þó að vera Ijóst, aðþaðer ekki leiðin út úr þeim ógöngum, sem við höfum ratað í varðandi landbúnaðarmálin. Gegnir raunar furðu að menntaður maður eins og núverandi landbúnaðarráðherra er skuli birta tillögur af þessu tagi og gera að sínum. Tillögur nefndarinnar byggja á því að halda fjölda bænda óbreyttum, þrátt fyrir augljósa nauðsyn þess að takmarka framleiðsluna. Þetta er fyrsti þverbresturinn í áliti nef ndarinnar og f rá honum staf a f lestar aðrar vit- leysur, sem þar er að finna. Til þess að koma i veg fyrir fækkun bænda, en draga þó úr f ramleiðslu, ætlar landbúnaðarráðherra að ákveða að tiltekin stærð búa metin í ærgildum sé hin eina rétta. Þeir sem framleiða yfir tiltekið mark fá minna fyrir framleiðslu sína, en framleiðendurnir verða umfram allt að vera jafnmargir og þeir eru nú. Það á að leggja hömlur á framleiðsluna án tillits til arðsemi, enda verður hún aldrei ákveðin meðopinberum staðli eins og ráð er fyrir gert. Hverja bújörð í landinu á að setja undir opinbera framkvæmda- og búrekstraráætlun. Framleiðsluráð landbúnaðarins á síðan að ákveða framleiðslumagn hvers bónda. Viðkomandi búnaðarsamband hefur rétttil þess að koma fram athugasemdum áður en slík ákvörðun er tekin, en bðndinn sjálfur verður ekki virtur viðlits samkvæmt boðorði nefndarálitsins. Sérstaklegaertekiðfram í bréfi nefndarinnar til land- búnaðarráðherra, að nauðsynlegt sé að setja lög um hámarksstærð hænsna — og svínabúa. A síðustu árum hafa nokkrir dugandi menn ráðist í stórbúskap með hænsni. Þessi búskapur hefur skilað margföldum arði á við hefðbundna landbúnaðarf ramleiðslu. Nú á að banna hagkvæmar rekstrareiningar í þessari búgrein sam- kvæmt því opinbera ráðstjórnarlögmáli, að fram- leiðendur í hverri landbúnaðargrein fyrir sig verði að vera fleiri en svo að búin skili arði. Á sama veg á að fara með svínabúin. Hér á vitaskuld aðfara gagnstæða leið. Landbúnaður á Islandi er mikil- vægari en svoað hann megi setja undir ráðstjórn. Þegar menn hafa viðurkennt að framleiðsla landbúnaðar- afurða er of mikil er kjarni málsins sá, að bændum verður að fækka. Og það mun gerast af sjálfu sér, þegar dregið verður úr landbúnaðarstyrkjunum, að óhagkvæmustu búin standast ekki samkeppnina og detta upp fyrir. Við þurfum frjálsan landbúnað en ekki ráð- stjórnarlandbúnað. Coldwater Seofood í Bandaríkjunum: HEILDARVELTA í ÁR ÁÆTLUÐ RÚMIR 62 MILUARÐAR — ekki hœgt að flytja hagnaðinn til íslands Þorsteinn Gislason forstjóri Coldwater og Guömundur H.Garóarsson bla&afulitrúi SH Visismynd KS Heildarvelta Coldwater Seafood Corporation dótturfyrir- tækis Sölumiðstöftvar hraöfrysti- húsanna í Bandarikjunum var á siöasta ári um 175 milljónir dollara en gert er ráö fyrir aö veitan i ár veröi 200 milljónir dollara eöa rétt rúmir 62 milljarðar Islenskra króna. Þessar upplýsingar komu fram á biaöamannafundi og gögnum sem blaöamenn fengu I kynnis- ferö fyrir skömmu til Bandarikj- anna i boöi SH. A fundinum kom fram aö afkoma Coldwater Seafood væri góö en hins vegar neituöu for- ráöamenn fyrirtækisins aö gefa upplýsingar um hve hagnaöur fyrirtækisins heföi veriö mikill á sföasta ári. Coldwater Seafood starfrækir tvær verksmiöjuri Bandarikjunum, eina i Camebridge og aöra i Everett en hún tók til starfa I vor. A siöasta ári var framleitt um 30,8 tonn af fiskstautum og fiskskömmtum og fleiri tegundum en fyrirtækiö seldi um 33,4 tonn af flakapakkn- ingum. Rekstra rlánin 35 milljónir dollara. A blaöamannafundinum sátu fyrir svörum Þorsteinn Gislason forstjóri Coldwater Seafood, Þorsteinn Þorsteinsson verk- smiöjustjóri i Everett, Guöni Gunnarsson verksmiöjustóri i Camebridge, Othar Hansson sölustjóri og Gunnar Guöjðnsson stjórnarformaöur SH en Guðmundur H. Garöarson blaöa- fulltrúi SH stjórnaöi fundinum. Þorsteinn Gislason sagöi aö afrakstur fyrirtækisins heföi veriö góöur á siöasta ári þó hann væri ekki mikill miöaö viö veltu. Hagnaöinum heföi veriö variö til fjárfestingar og uppbyggingar fyrirtækisins og einnig til aö standa undir rekstrarlánum. Sagöi hann aö fyrirtækiö heföi aflaö sér góös lánstrausts. Þessar lántökur kæmu islensku fram- leiöendunum til góöa þar sem fyrirtækiö greiddi freöfiskinn strax og hann bærist og yfirleitt um 20 dögum eftir aö honum heföi veriö skipað út. Þetta væri mjög mikilvægt fyrir íslensku framleiöendurna þar sem vaxtakostnaöur á lslandi væri mjöghár.ColdwaterSeafood Iðnrekendur vilja fund með rikisstjórninni: „Hvað „annað" œtlar stjórnin að gera?" Daviö Scheving Thorsteinsson, formaöur Félags Isl. iönrekenda. ;,Það virðist vera ljóst á fjárlagafrumvarpinu, að rikisstjórnin sé búin að taka ákvörðun um að gera eitthvað annað en að fresta tollalækkun- unum” sagði Davið Scheving Thorsteinsson þegar Visir spurði hann um fund þann sem is- lenskir iðnrekendur hafa óskað eftir með rikisstjórninni og hvort þeir gættu sætt sig við eitthvað annað en tolla- lækkanir. „Viö erum auövitaö þegnar I þessu landi og veröum aö sætta okkur viö þaö sem rikisstjórnin ákveöur, en þaö er ekki þar meö sagt aö viö séum ánægöir meö þaö. Viö uröum\ ákaflega ánægö- ir þegar viö sáum I stjórnarsátt- málanum aö rlkisstjórnin ætlaöi aö fresta tollalækkunum en viö uröum aö sama skapi vonsviknir þegar viö lásum i fjárlagafrum- varpinu aö þeir ætluöu ekki aö gera þaö, heldur eitthvaö annaö, ótilgreint. Þess vegna skrifuöum viö rikis- stjórninni og fórum fram á tafar- lausan fund meöþeim til aö fá aö vita hvaö þetta „annaö” væri. 1 fjarlagafrumvarpinu stendur aö þeir ætli aö gera eitthvaö sem' komi aö sama gagni fyrir iönaö- inn og frestun tollalækkana. Ef svo er, þá er okkur auövitaö sama hvert formiö er ef niöurstaöan er sú saman. Viö vonum bara að þessir menn sjái hversu alvarlegt ástandiö er þvl viö óttumst hrun atvinnulífs- ins ef þetta veröur látiö halda sinu striki”. —JM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.